Fréttablaðið - 28.05.2002, Qupperneq 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
28. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
FRETTABLAÐID
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið á
pdf-formi á vísir.is. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BLAPSINS [
Um foringja-
dýrkun og
rassakyssara
María Kristjánsdóttir, leikstjóri, skrifar:
Tvær ungar og fallegar
blómarósir úr hópi leikara
áttu allan veg og vanda að undir-
búningi kosningarhátíðar R-list-
ans á Hótel íslandi og voru gest-
gjafar okkar sem þangað komu.
Þær voru sjálfar skreyttar rósum
og báru körfur með rósablöðum
sem þær stráðu yfir borðin og
okkur sem þar sátu. Þær sýndu
því Ingibjörgu Sólrúnu á engan
hátt meiri sóma en okkur hinum
sem mættu á undan henni í hús.
Þráinn Bertelsson sem gaf í
skyn hér í blaðinu á mánudaginn
að ef til vill hefði foringjadýrkun
ráði gjörðum leikkvennanna ætti
að biðja þessar stúlkur afsökunar.
Þar sem ég rak stundum inn
nefið á kosningaskrifstofu R-list-
ans í Túngötu vikuna fyrir kosn-
ingar get ég einnig upplýst Þráin
og aðra fjölmiðlamenn í ríki
Davíðs, sem hafa svo skelfilegar
áhyggjur af foringjadýrkun í röð-
um R-listamanna, um það að á
þeirri skrifstofu unnu ótrúlega
margir sem þekktir eru fyrir að
rekast illa í flokki og enginn for-
ingi getur raunar treyst vegna
þess hve þjakaðir þeir eru af sam-
visku sinni og réttlætiskennd. Það
væri betra land sem við byggjum
í ef slíkir menn væru í meirihluta
í stétt fjölmiðlamanna. ■
Tortryggni á undanhaldi
The MoscowTimes
Dálkahöfundur rússneska dag-
blaðsins Moscow Times, sem gef-
ið er út á ensku, furðar sig á því,
að athygli stjórnmálaskýrenda
hafi einkum beinst að samningi
Rússa og Bandaríkjamana um að
fækka kjarnorkuvopnum. Hann
segir að jafnvægi kjarnorku-
vopna hafi hvorki neina hernaðar-
lega né pólitíska þýðingu lengur.
„Það sem mestu skiptir er vilji
beggja ríkjanna til að halda áfram
viðræðum sínum um öryggismál.“
Rússum sé „söguleg nauðsyn" að
tengjast Vesturlöndum nánari
böndum eftir að hafa búið í fimm
hundruð ár við alræðisstjórn keis-
ara og heimsvaldasinna.
washingtonpost
„Ef Kalda stríðinu er nú loksins
lokið, þá stafar það miklu frekar
af því sem er að gerast í hugum
almennings í Rússlandi og Banda-
ríkjunum, heldur en af því sem
stendur í samningi um fækkun
kjarnorkuvopna sem forsetarnir
George W. Bush og Vladimir
Pútín undirrituðu í síðustu viku,“
segir Masha Lipman, dálkahöf-
undur í bandaríska dagblaðinu
Washington Post. Hún segir að í
Rússlandi sé fólk smám saman að
komast á þá skoðun, að Rússar
þurfi á samvinnu við Bandaríkin
að halda. Tortryggnin sé að vísu
Úr leiðurum heimsblaða
Ferðalag Bush Bandaríkjaforseta til Evrópu
og sögulegt samkomulag Rússa og Banda-
ríkjanna um fækkun kjarnavopna hafa orð-
ið dálkahöfundum og leiðarahöfundum er-
lendra blaða tilefni til vangaveltna.
J
enn ekki farin, en hún sé á hægu
undanhaldi.
THEINDEPENDENT
Leiðarahöfundur breska dagblaðs-
ins Independent beinir hins vegar
athygli sinni að tortryggni Vestur-
Evrópubúa gagnvart Bandaríkjun-
um. Blaðið hefur oft gagnrýnt ut-
anríkisstefnu Bandaríkjanna harð-
lega, en segir í leiðara sínum nú að
gagnrýnendur megi ekki gleyma
því að Bandaríkin séu byggð að
mestu á sams konar verðmæta-
mati og Evrópuríki. Þótt Banda-
ríkjunum takist ekki alltaf að
standa undir hugsjónum sínum, þá
tekst Evrópuríkjum ekki heldur
alltaf að standa undir þeim siðferð-
iskröfum, sem settar eru fram í
Mannréttindasáttmála Evrópu.
„En við ættum ekki að líta fram
hjá þeirri staðreynd, að markmið
okkar eru þau sömu.“ ■
KVIÐDÓMUR
Kosningamar og túlkun þeirra
Allir vilja vera sigurvegarar kosninga. Stjórnmálaöflin í landinu reyna að túlka úrslit kosninganna út
frá hagsmunum sínum. Eigna sér gott gengi þar sem því verður við komið. Reyna að finna nærtækar
skýringar þar sem úrslitin voru óhagstæð. Menn spá í merkingu úrslitanna fyrir stjórnmálaumræðuna.
GUNNAR HELGI KRISTINSSON BALDUR ÞÓRHALLSSON
Stjórnarflokk-
ar sterkir
„Ríkisstjórnarflokkarnir
geta bara vel við unað. Þeir
fara aðeins niður, eins og er
alkunna að ger-
ist með ríkis-
stjórnarflokka,
bæði hér og í
öðrum löndum.
Það er erfiðara
að átta sig á árangri Sam-
fylkingarinnar, þar sem
hún er að bjóða fram í
fyrsta skipti. f keppninni
Samfylkingin og Vinstri-
grænir, þá kemur hún tölu-
vert sterkar úr. Það er eðli-
legt ef maður rifjar upp
söguna. Samfylkingin varð
upp úr sveitarstjórnarkosn-
ingum 1998. Sveitarstjórn-
arfólk í flokkunum var
kjarninn á bakvið Samfylk-
inguna.
Úrslitin í Reykjavík hljóta
að vera leiðinleg fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Þeir fengu
ekki góða kosningu. Það er
ekki hægt að stilla því
þannig upp að F-listi hafi
verið að taka svo mikið frá
D-lista. Samkvæmt þeim
upplýsingum sem ég hef,
þá var það stuðningsfólk R-
lista sem var að kjósa F-
lista í meiri mæli.“ ■
Styrkja Sam-
fylkinguna
„Það sem vekur athygli við
kosningarnar er lítið fylgi
Vinstrihreyfingarinnar-
græns fram-
boðs. Þeir
náðu einungis
þremur mönn-
um inn á þeim
átta stöðum
sem þeir buðu fram. Sam-
fylkingin hefur sannað sig
sem stóra aflið vinstra
megin við miðju. Skoðana-
kannanir hafa sýnt Vinstri-
græna jafn stóra og Sam-
fylkinguna. Það er ekki al-
veg hægt að bera saman
alþingiskosningar og
sveitastjórnarkosningar.
Úrslitin hljóta að styrkja
innra starf Samfylkingar-
innar. Úrslitin sýna líka
sterka stöðu stjórnarflokk-
anna bæði Sjálfstæðis-
flokks og ekki síður Fram-
sóknarflokks. Það eina
sem skyggir á góða út-
komu Sjálfstæðisflokksins
er tapið í Reykjavík. Það
er ekki hægt að tala um
annað en afhroð ef borið
er saman við aðrar borgar-
stjórnarkosningar sem
maður hlýtur að þurfa að
gera.“ ■
EGILL HELGASON
Máttleysi
auglýsingcinna
„Mér finnst mikil spurning
eftir þessar kosningar, að
hve miklu leyti auglýsing-
ar virka. Hjá
Sjálfstæðis-
flokknum í
Reykjavík
virðast þær
ekki hafa skil-
að neinu. Mér finnst at-
hyglisvert hvað fjölmiðla-
umræðan var löng og ítar-
leg. Sumir segja of löng.
Síðan kemur það að það
var mjög góð kjörsðkn.
Þannig að kannski var um-
ræðan löng, góð og lýð-
ræðisleg. Stóru tíðindin
I eru náttúrlega tap Sjálf-
[; stæðisflokksins í Reykja-
[ vík. Þar var háð orusta
nánast í Stalingradstíl. Ég
er hins vegar ekki viss um
I að hægt sé að lesa mikla
! merkingu út úr þessum
J kosningum fyrir pólitíkina
á landsvísu." ■
STEFANfA ÓSKARSDÓTTIR
Litlar
breytingar
„í Reykjavík stendur það
uppúr að fólk virðist vera
ágætlega ánægt með R-list-
ann og það
sem hann hef-
ur boðið upp
á. Fólk er ekki
tilbúið að gera
neinar breyt-
ingar. Ingibjörg Sólrún hef-
ur mikið persónufylgi og
nýtur trausts. Skoðana-
kannanir hafa sýnt traust á
henni, langt inn í raðir
sjálfstæðismanna. Konur
vilja sjá konur í áhrifastöð-
um. Sigur Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjanesbæ
og Mosfellsbæ finnst mér
sýna að þeir sem standa
fjær forystu flokksins í
landsmálunum virðist
ganga betur. Árni Sigfús-
son og Ragnheiður Rík-
harðsdóttir koma mjög vel
út meðan Gunnar Birgis-
son sem er þingmaöur tap-
ar fylgi. Hann geldur fyrir
það að vera fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar. Það má því
segja að þar birtist kveð-
inn vilji til valddrei ingar.
Almennt virðast þó jós-
endur ekki vilja br ting-
HANNES H. GISSURARSON
Jafnvægi að
komast á
„Skilaboð kosninganna eru
að flokkarnir halda allir
sínu. Það merkir að það er
tiltölulega
mikil ró eða
kyrrð yfir
vettvangi
stjórnmál-
anna. Enda er
að komast á jafnvægi og
stöðugleiki eftir smávægi-
lega röskun. Þetta held ég
að séu skilaboðin í stjórn-
málum. Sveiflur eru stað-
bundnar. Það er ekki hægt
að greina neina eina
sveiflu yfir landið.
Stærsti persónulegi sigur-
inn er tvímælalaust sigur
Árna Sigfússonar í
Reykjanesbæ. En auðvitað
skilar Ingibjörg Sólrún
mjög góðum árangri með
því að halda borginni
þrisvar, þó að hún hafi
tapað lítilsháttar. Þeir þrír
sem sigra stórt eru fyrir
utan Árna, Sigurður Geir-
dal í Kópavogi og Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir í
Mosfellsbæ. Lúðvík Geirs-
son í Hafnarfirði og Ingi-
björg Sólrún ná mjög góð-
um árangri." ■
OP RETT
Sumarbúðiroar
Ævintýralahd
Upplýsingar og skráning
551 9160 • 551 9170
Tímabil:
•9
cö
cn
upplysingar@sumarbudir.is
co
Q-
o
g.
V)
co
o
•O
13. júní-19. júní 7-12 ára
20. júní - 26. júní 7-12 ára
26. júní - 3. júlí 8-12 ára
4. júlí-10. júlí 8-12 ára
11. júlí- 17. júlí 8-12 ára
18. júlí-24. júlí 8-12 ára
25. júlí-31. júlí 10-12 ára
1. ágúst - 7. ágúst 13-14 ára ^
8. ágúst -14. ágúst 10-12 ára
Hiö eina sanna 17. júní tímabil.
Sápukúlusprengikeppni
reiptog • pokahlaup • andlitsmálun
bandfléttur í háriö • skartgripagerö
blöörur • kókosbollukappát
diskótek • ís • gos • popp • nammi
V/SA
.maantmm
Greiðsludreifing
leiklist
myndlist
kvikmyndagerð
heimspeki
grímugerð
tónlist
dans
íþróttir
reiðnámskeið
sundlaug
íþróttahús
trampólín
fjöruferð
stíflugerð
tilraunir
kertagerð
ratleikir
þythokkí
« Sumarbúöimar Ævintýraland • Reykjum, Hrútafiröi • Skrifstofa Hafnarstræti 19
FRAMMÍGRIP SEM
KOSTUÐU BORGINA
Það þykir áberandi,
samkvæmt tölvu-
bréfi til mín, hve
Agli Helgasyni er
tamt að grípa fram í
fyrir okkur sjálfstæðismönnum.
Björn Bjarnason, bjorn.is, 27.mai
SKAPARI HIMINS
OGJARÐAR
Gunnar er maðurinn
á bak við allar fram-
farir sem hér hafa
orðið.
Vonsvikinn stuðnings-
maður Gunnars Bírgissonar í Kópavogi
Fréttablaðið, 27. maí.
TIL ÞESS ER SAMHJALPIN
Það er aumt að þurfa að byggja
allt sitt á öðrum
Sjálfstæðismaður í Hafnarfirði. Frétta
blaðið, 27. mat
HÉR HAFA AUGN-
LÆKNAR NÓG
AÐ GERA
Augnlæknar hafa hér
greinilega verk að
vinna því að flísin
sem klauf sig úr
borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis-
manna á síðasta kjörtímabili er
nú orðinn að bjálka í auga
Flokksins.
Þráinn Bertelsson er ekki sammála
því að tap Björns sé ólafi F. að kenna.
Fréttablaðið, 27. maí.
OG ENGAR REFJAR
Ég vil pólitískan bæj-
arstjóra
Tryggvi Harðarson,
Hafnarfjarðarkrati. Frétta-
blaðið, 27. maí.
SJÁLFSKAPARVÍTIN
EKKI BETRI EN HIN
Hitt er svo annað að
lýðræðið er hálf-
þreytandi sport og
kemur þar vel á
vondan því íslend-
ingar völdu það sjálfir á Þingvöil-
um 1944.
Ásgeir Hannes Eiríksson. DV, 27. mai.
SEGIR SIG SJÁLFT
Ég er ótvíræður sig-
urvegari þessara
kosninga því hinir
töpuðu allir.
Oddur Helgi Halldórs-
son á Akureyri. Fréttablað-
ið 27. maí.
| LEIÐRÉTTING |
Missagt var í blaðinu í gær að
Vinstrihreyfingin grænt
framboð hafi einungis komið að
mönnum í Skagafirði og á Akur-
eyri þar sem flokkurinn bauð
fram í eigin nafni. Vinstri grænir
komu einnig að manni í bæjar-
stjórn á Grundarfirði. U-listinn
fékk þannig tvo menn í Skaga-
firði, einn á Akureyri og einn í
Grundarfirði.