Fréttablaðið - 28.05.2002, Page 22
FRÉTTABLAÐIÐ
28. maí2002 ÞRIÐJUDAGUR
SAGA PAGSINS
28. IWAI
Gissur biskup ísleifsson lést
um 76 ára að aldri árið 1118.
Hann var annar biskupinn í Skál-
holti og tímabil hans er af mörg-
um álitið það besta á þjóðveldis-
öld.
Reykjavíkurlistinn
fékk meirihluta
fulltrúa í borgar-
stjórn Reykjavíkur
árið 1994 en þá hafði
Sjálfstæðisflokkurinn
verið við völd í tólf
ár.
Arið 1961 fór breska dagblaðið
London Observer af stað með
herferð fyrir því að fá látna lausa
fanga, sem voru í fangelsi vegna
skoðana sinna. Þessi herferð varð
upphafið að stofnun mannrétt-
indasamtakanna Amnesty
International.
I Íímamót
JARÐARFARIR_________________________
13.30 Hulda Guðmundsdóttir, Úthlíð
15, verður jarðsungin frá Bústaða-
kirkju.
13.30 Guðrún Lilja Gísladóttir, Loga-
fold 76, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju.
AFMÆLI______________________________
Ragnheiður Asta Pétursdóttir er 61 árs.
Bragi Ásgeirsson er 71 árs.
Helgi Pétursson er 53 ára.
ANPLÁT______________________________
Jóhanna Margrét Jóhannesdóttir, elli-
heimilinu Grund, lést 14. mal. Jarðarför-
in hefur farið fram.
Guðrún 0.1. Valdimarsdóttir, frá
Lambanesi, Saurbæ, lést 22. maí.
Heimsending og sótt
Alltaf spennandi
tilbod!
Fráboer hóptilbod
fyrir afmœlisveislur!
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
www.gunnimagg.is
MALARINNIM
Bæjarlind 2 • Kópavoqi • Simi: 581 3500
22
Ráðherradóttirin
dúxaði í Versló
„Ég fékk 9,0 í ritgerð og það dró
mig niður,“ segir Ingunn Agnes
Kro, dúxinn í Verzlunarskólanum
í ár með 9,7 í meðaleinkunn. „Rit-
gerðin var skáldskapur minn upp
úr Kristnihaldi undir jökli og ég
er svo sem ánægð með árangur-
inn.“
Ingunn Agnes er dóttir Val-
gerðar Sverrisdóttur viðskipta-
ráðherra og eiginmanns hennar,
Arvid Kro. „Ég ætla að fara í
læknisfræði í haust en í sumar
vinn ég sem ritari hjá bankastjórn
Seðlabankans og einnig í tísku-
vöruversluninni Mango,“ segir
hún.
Ingunn Agnes er tvítug og á
tvær alsystur og eina hálfsystur.
Hún er hógvær og lítillát þegar
henni er hrósað fyrir námsárang-
ur sinn og þakkar hann góðri
ástundun. Starfsfólk og kennarar
Verzlunarskólans eru á einu máli
um að Ingunn Agnes sé ekki að-
eins góð námsmanneskja heldur
einnig og ekki síður falleg, góð og
taki fullan þátt í lífinu. Til að
mynda var Ingunn Agnes í stjórn
nemendafélagsins og gjaldkeri
Dúxinn
Ingunn Agnes Kro
fékk 9,7 í meðaleinkunn.
þess en það er eitt erilsamasta
embættið innan félagsins.
Ljóst er að bankastjórar
Seðlabankans fá góðan ritara í
sumar og þá ekki síður eigendur
Mangó sem eiga eftir að njóta
starfskrafta Ingunnar. Svo ekki sé
minnst á þjóðina sem eignast
góðan lækni þegar fram líða
stundir.B
MARGT TIL LISTA LAGT
Ingunn Agnes er ekki aðeins góð náms-
manneskja heldur einnig sæt og góð og
tekur fullan þátt í lífinu.
FÓLK í FRÉTTUM
þeim hætti um leið og reynt væri
að höfða til eldri kjósenda. Full-
yrti konan að breytinguna mætti
sjá ef bornar væru saman eldri
og nýrri myndir af frambjóðand-
anum. Rétt er þó að fara varlega í
allar vangaveltur
um hárlitun. Ger-
hard Schröder,
Þýskalandskansl-
ari, brást t.d. reið-
ur við þegar hann
var vændur um að
hafa látið lita
hrafnsvart hárið og fullyrti að
þannig væri hann bara frá náttúr-
unnar hendi. Þá verður að teljast
líklegt kosningabaráttan og öflug
skoðanaskipti hafi verið hressan-
di fyrir Björn og ekki loku fyrir
það skotið að yngjandi áhrif bar-
áttunnar skili sér í endurnýjun
hársins. Sögðu þó aðrir sem kenn-
ing konunnar var borin undir að
þetta væri bara rugl, hárið á
Birni væri alveg eins og það hefði
alltaf verið.
Þingvallanefnd hefur fyrir sitt
leyti veitt eiganda sumarbú-
staðar rétt innan við Hótel Valhöll
á Þingvöllum leyfi til að rífa hús-
ið og byggja nýtt mun stærra hús
á lóðinni. Eigandi lóðarinnar mun
hafa sent þrjár tillögur til bygg-
ingarfulltrúa áður en hann fékk
síðustu tillöguna samþykkta.
Fyrsta tillagan gerði ráð fyrir sjö
metra háu húsi en útkoman varð
öllu lágreistari bygging. Það vek-
ur eftirtekt að Þingvallanefnd
skuli heimila að bústaður á þess-
um stað sé endurgerður og
stækkaður úr 60 fermetrum í 90
fermetra. Aðeins eru nokkur ár
síðan nefndin nýtti forkaupsrétt
sinn og greiddi á sjöundu milljón
króna fyrir bústað sem hún síðan
lét fjarlægja. Þá
sagði nefndin
það vera stefnu
sína að sumar-
bústaðir í þjóð-
garðinum næst
Valhöll hyrfu af
sjónarsviðinu.
Bústaðurinn
sem var rifinn
stóð kippkorn
frá bústaðnum
sem nú er verið
að stækka. Með-
limir Þingvalla-
nefndar eru
B jörn Bjarna-
son borgarfull-
trúi, Guðni
Ágústsson land-
búnaðarráð-
herra og Össur
Skarphéðinsson
alþingismaður.
PERSÓNAN
Tímamót hjá syninum
Yngsti sonurinn missti fyrstu tönnina á sama tíma og pabbinn
sigraði í kosningum.
Agúst Einarsson, prófessor og
fyrrum þingmaður, sem hald-
ið hefur úti vefsíðu sinni um
fjögurra ára skeið
hefur nú tilkynnt
lesendum sínum
að hann ætli sér
að hætta regluleg-
um skrifum á síð-
una. Frá því fyrsti
pistill Ágústs birt-
ist á vefnum agust.is í ágúst 1998
hafa nokkur hundr-
uð pistlar birst á
vefnum. Eftir-
minnilegastur kann
þó að vera pistill-
inn þar sem Ágúst
lagði til að flugvöll-
urinn í Reykjavík
yrði fluttur út á
Álftanes og forseta fundinn bú-
seta í Viðey. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti,
tjáði sig aldrei um
þann flutning svo
vitað sé en þó má
ímynda sér að
eitthvað hafi þetta
komið upp í tali
við helsta ráð-
gjafa þeirra beggja, Einar Karl
Haraldsson.
Sjónvarpsstöðin Sýn sýnir HM í
knattspyrnu í beinni útsend-
ingu. Nýir áskrifendur geta þó
ekki keypt áskrift á keppnina ein-
göngu, því þeir
þurfa að skrifa
undir skuldbind-
ingu upp á þrjá
mánuði þegar þeir
fá myndlykil.
Mánuðurinn kost-
ar 3.990 krónur og
tryggingargjald 670 svo það kost-
ar samtals 12.640 krónur fyrir
nýja áskrifendur að horfa á HM í
knattspyrnu.
Neslistinn á Seltjarnarnesi
vann kosningasigur á laugar-
daginn þrátt fyrir að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi haldið meirihluta
sínum. Neslistinn hefur nú þrjá af
sjö í bæjarstjórn en hafði tvo
áður. Sú hugmynd mun hafa
vaknað í Bæjarmálafélagi Sel-
tjarnarness sem býður fram
Neslistann að
bjóða Ásgerði
Halldórsdóttur,
sem skipaði annað
sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins,
upp á meirihluta-
samstarf og bæj-
arstjórastólinn um leið. Nokkuð
mun vera tekist á um þetta í röð-
um Neslistamanna en mörgum
þykir þetta koma vel til greina
enda greinir Ásgerði á við flokks-
félaga sína í sömu málum og
Neslistinn, svo sem friðun Vestur-
svæðanna og skipulagsmál á
Hrólfsskálamel.
Glögg kona sem samband hafði
við blaðið skömmu fyrir
kosningar kvaðst hafa tekið eftir
nokkur athyglisverðu við borgar-
stjóraefni sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Þóttist hún sjá að
Björn Bjarnason hefði litað á sér
hárið og fannst skjóta skökku við
að reyna að yngja sig upp með
Lúðvík Geirsson, oddviti Sam-
fylkingar í Hafnarfirði, er að
vonum kátur þessa dagana eftir
að flokkurinn felldi meirihluta
sjálfstæðismanna og framsókn-
armanna í bænum. Lúðvík telur
að gengið verði frá því á fyrsta
fundi bæjarstjórnar, 11. júní,
hver verði næsti bæjarstjóri og
segist hafa lýst því yfir að hann
sé reiðubúinn að taka starfið ef
eftir því væri leitað. „Ég þarf að
ræða þetta betur við mína fjöl-
skyldu og mitt fólk,“ sagði Lúð-
vík.
„Mín persóna var ekkert höf-
uðatriði í þessari kosningabar-
áttu heldur settum við áherslu á
málefnin. Það voru einkum tvö
atriði sem stóðu skýrt upp úr. í
fyrsta lagi mætti Samfylkingin
mjög vel undirbúin til leiks. Við
höfum byggt upp mjög samhenta
sveit og eftir því hefur verið tek-
ið. Það er ástæða til að þakka öll-
um sem þar lögðu hönd á plóginn.
í annan stað var verið að kjósa
um grundvallaratriði sem er
einkavæðingarstefna. Bæjarbúar
höfnuðu með afdráttarlausum
hætti þeirri aðferðafræði og
stefnu sem Sjálfstæðismenn hafa
verið að sigla eftir.“
Lúðvík hefur lengi verið við-
loðandi stjórnmál. „Ég er alinn
upp á heimili þar sem stjórnmál
voru stór hluti af lífinu. Karl fað-
ir minn (Geir Gunnarsson) var
þingmaður í liðlega 30 ár. Ég var
einn af fimm systkinum sem
sýndi þessum málum sérstakan
áhuga.“
Lúðvík er einnig virkur í fé-
lagsstarfi en hann var formaður
Blaðamannafélags fslands á ann-
an áratug en er nú framkvæmda-
stjóri þess. Auk þess var hann
formaður knattspyrnufélagsins
Hauka í 10 ár, þar til fyrir stuttu,
enda mikill áhugamaður um
æskulýðs- og íþróttamál. „Við
höfum lagt áherslu á gildi íþrótta
í forvarnarstarfi. Það skiptir
miklu máli hvernig er haldið á
málum sem tengjast uppeldi og
leiðsögn," segir Lúðvík en hann
og kona hans Hanna Björk Lárus-
LÚÐVÍK GEIRSSON
Lúðvlk segist hafa mjög gaman af að vera úti í náttúrunni og njóta þess að vera til. „Það
er fátt skemmtilegra en að eiga góðan dag I Hafnarfirði."
dóttir eiga þrjá syni á aldrinum 5- eru tímamót hjá honum líka,“
18 ára. „Sá yngsti var einmitt að segir Lúðvík og hlær.
missa SÍna fyrstu tönn SVO það bryndis@frettabladid.is