Suðri - 26.01.1884, Page 4
12
útsynningar með fannkomu mikilli og
stundum stórviðri. Maður kom vestan
af Fellsströnd á priðjudaginn var;
sagði hann sama tíðarfar vestur um,
fannkomur miklar, jarðleysi yfir allt
og verstu færð fvrir gangandi menn,
hvað {)á heldur fyrir hesta. Hann hitti
vestanpóstinn fyrir sunnan Norðurá,
rétt fyrir síðustu helgi, og komst hann
ekki norður yfir ána. Norðanp' stinn
hitti hann hvergi, og má ætla, að hann
hafi farið fram með Norðurá að sunn-
anverðu.
Styrkur til ekkna og ninnað-
arleysingja eptir skiptjónið mikla 8.
p. m. Hreppsnefndirnar í Akranes-og
Bessastaðahrepp hafa leitað til Lands-
höfðingjans um styrk af inu útleuda
samskotajé og gjafakorni. Eins og
vér gátum til í síðasta blaði voru, heí-
ur Landshöfðinginn orðið vel við þeim
tilmælum og veitt Akraneshrepp 250
kr. í peningum og 20 tunnur af korni
og Bessastaðahrepp 200 kr. í peningum
og 12 tunnur af korni fyrst um sinn,
Af samsöng í dómkirlcjunni, er
vér gátum um í síðasta blaði og hald-
inn var á laugardaginn var, varð á-
góðinn um 200 kr., sem gengur til
ekkna og munaðarleysingja eptir skip-
tapana, eins og vér einnig gátum um
í síðasta blaði. Samsöngurinn fór
prýðilega sem áður.
Stjörnufræðingur S. Tromholt, er
hefur dvalið hér í bænum í vetur, til
að athuga norðurljós, hélt á priðju-
daginn var fr> ðlegan og skemmtilegan
fyrirlestur um pað hvernig umhorfs
og útlits væri, naf maður karni til
tunglins.“ Annan fyrirlestur fullt eins
fróðlegan og skemmtilegan hélt hann í
gær um „solina “. Agóðinn af b;iðum
pessum fyrirlestrumáað rennatiiekkna
og munaðarleysingja eptir skiptapana.
Eigi óvíða að heyrist um samskot
í pessu sama skyni. J>annig er sagt,
að bændur hér á Seltjarnarnesi hafi
skotið saman allmiklu fé, en upphæð-
ina vitum vér ekki enn svo, að vér
porum að fara með hana.
H i 11 o g j> e t t a.
Barnaverzlnn í Neu York.
Af öllum iðnaðargreinum í inni
stærstu borg Bandaríkjanna er harna-
verzlunin einhver in einkennilegasta.
Um 50 menn par í borginni lifa á
pví að losa foreldra, sem annaðhvort
ekki hafa efni til eða vilja á að ann-
ast börn sín, við pau og láta barn-
lausa fcreldra, sem dauðlangar til að
hafa börn í kringum sig, fá pau.
Blaðamaður einn talaði fyrir skömmu
við slíkan kaupmann og sagði kaup-
maður honum greinilega frá verzlun
sinni. «j>arna sjáið pér 10 daga gaml-
an dreng» sagði hann, «ljóshærðan og
bláeygðan og svo hefur hann spékoppa
í vinstri kinninni og fyrir pá hækkar
hann æðimikið í verði. Eg læt hann
ekki fyrir minna en 100 dollara.
Stúlkuna við hliðina á honum skal eg
með ánægju láta yður eptir fyrir helm-
ing pess verðs; hún verður rauðhærð
með tímanum og stúlkubörn eru tölu-
vert lægri í verði en piltbörnin». «Af
hverju kemur pað?» spurði blaðamað-
urinn. «Eg veit ekki. En víst er um
pað, eg get aldrei, hvernig sem eg fer
að, fengið eins mikið upp úr peim og
piltbörnunum. Eg er pess vegna ekki
svo sérlega silginn i stór innkaup af
peim.» «Eru pað nokkrar sérstakar
pjóðir, sem menn einkum sækjast ept-
ir?» «Nei, pað get eg eiginlega ekki
sagt, einn biður um pessa pjóð og
annar um hina, smekkurinn er svo
ýmislegur. Stundum geta orðið tölu-
verð misgrip. Eg seldi hérna á dög-
unum dálítinn Irlending í misgripum
í staðinn fyrir j>jóðverja. En slíkt
kemur sjaldan fyrir.» «Seljið pér líka
Kínverjabörn?* «Ónei, ekki hef eg
pau nú í búðinni, en eg get útvegað
yður eitt, ef pér viljið?» «Er gott að
komast vel út af við skiptavinina og
gera peim til hæfis?» «Ójú, kvenn-
fólkið er reyndar stundum nokkuð «ó-
meðgjörlegt» og skrítið í kröfum sín-
um; pað heimtar stundum dökk augu
og Ijóst hár eða blá augu og svart
hár. j>að var hjá mér kvennmaður í
gærkveldi, sem dróg hárlokk ljósan upp
úr buddunni sinni og heimtaði pilt-
barn einmitt með svo litu hári, alveg
eins og hún ætlaði sér að kaupa alin
af lérepti og kæmi með pjötlu til að
velja eptir. j>ví miður hafði eg ekki
pann hárlit í búðinni, svo liún varð
að fara aumingja konan og pótti mér
slæmt» «Gefur verzlunin mikið af
sér?» «Ekki er hægt að kvarta und-
an pví eða berja sér mikið. Stundum
er mér ómögulegt að uppfylla allar
pær vörubænir, sem til mín koma.
En nú erum við orðnir svo margir um
petta. Hann gagnbúi minn hefur gert
mér mikið tjón. Fyrir tveim árum
gat eg heimtað 200 dollara fyrir sama
«stykki,» sem eg nú verð að láta mér
nægja 75 dollara fyrir.» «Hvaða árs-
tíð er bezt fyrir verzlun yðar?» »Sum-
arið, pá koma bændurnir hópum sam-
an utan af landinu til að «forsyna»
sig. Nú hef eg fengið ýmsar bænir
og kröfur um pess konar vörur, á
/msum aldri með allavega litum aug-
um og hári, og sem stendur hef eg
nú allar klær úti til að reyna til að
gera öllum skiptavinum mínum til
hæíis.» (Lauslega þýtt eptir „Morgenbl").
M a n u s 1 á t. Sannfrétt er, að
merkisprófasturinn séra pórður Jón-
assen 1 Reykholti andaðist aðfaranótt
14. p. m. Hans skal síðar minnst
nákvæmar.
-AxLglýsingar.
Bitstjóra „SUÐRA“, Gest
Pálsson, er að liitta í húsi Jakobs
Sveinssonar, rétt við tjörnina, nalægt
kirkjunni, hvern vírkan dag kl. 3—
4 e. m.
Útgefanda o g af gr ei ð-
anda „SUÐBA“, Einar pórðarson,
er að hitta i prentstofu hans hvern
virkan dag.
Auglýsingar eru teknar í blaðið
fyrir um hálfu minna verð en í hin
sunnlemku blöðin, 8 a. fyrir prent-
aða meginmálslínu og 10 a. fyrir
prentaða smálínu. Útbreiðslu mun
„SUÐRF hafa nokkuð líkt og hin
blöðin.
Nærsveitamenn eru
beðnir að vitja blaðs-
ins „SUÐBA“ a af-
greiðslustofu hans,í prentsmiðju und-
irskrifaðs. Rvík 18. janúar 1884.
Jeg tek verkamann á heimili
mitt til ýmissa smá-snúninga.
Einar pórðarson, prentari.
Með pví inn núverandi sótari hér
í bænum hefur sagt af sér pessum
starfa frá 15. marz næstkomandi, geta
peir, sem vilja taka pessa sýslan að
sér eptirleiðis, sótt um hana til bæjar-
stjórnarinnar innan 1. marz næstkom-
andi.
Skrifstofu bæjarfógeta í Rvík., l8/i 1884.
K. Th. Jonassen.
Rauð hryssa 7-8 vetra, mark: stand-
fjöður apt. vinstra, er í óskilum á
Torfastöðum í Grafningi, og getur rétt-
ur eigandi vitjað hennar til undirskrif-
aðs til 17. febr. p. á. gegn pví, að
greiða íýrir hirðingu, hagagöngu og
pessa augl., eptir pann tíma andvirðis
hennar til lireppstjórans hér i hreppi.
Torfastöðum 17. jan. 1S84
Guðmundur Loptsson
Málsfærsla
Cand. jur. Guðl. Gnðmnndsson tekur
að sér málsfærslu; hann er að hitta í
húsi Jóns Olafssonar við Hlíðarhúsa-
stíg kl. 8—9 f. m. og kl. 2—4.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Gestur Pálsson.
Útgefandi og prentari:
Einar pórðarson.