Fjallkonan - 08.03.1887, Qupperneq 2
26
FJALLKONAN.
hlýtr guðfræð;n að vera breytingum undirorpin, svo
sannarlega sem þeir menn eru ekki algervir að
speki. Það á að kenna börnum algildan sannleik,
enn ekki breytilegar skoðanir. E>að á að fræða um
„facta“, þ. e. um hluti, sem hafa gerzt og gerast, |
enn ekki um hluti, sem aldrei hafa gerzt, né munu j
gerast, engar hugsmíðar, ekkert, sem efi getr á leik-
ið. Þannig er t. d. viðrhlutamikið, að ég ekki segi 1 2
frekara, að fullyrða fyrir börnunum, að guð hafi frá
eilífð til eilífðar unnið að sköpunarverki í sex daga j
og síðan hvílzt og látið öllu sköpunarverki lokið ;
því að slík kenning um sköpunarverkið hefir á móti
sér alla vísindalega rannsókn og þekkingu; svo að
jafnvel sumir guðfræðingar ráða til, að láta þá tala
í þessu efni, sem rannsaka lög náttúrunnar1, og er
það skynsamlegra, þar eð biblían er ekki ætluð til
að kenna slíkt.
Auðvitað eiga slíkar kenningar barnalærdómsins
með íram rót sína í skoðun guðfræðinganna á biblí-
unni, að minsta kosti þeirri, sem þar kemr fram.
Hún er fram sett öll jafnt sem óyggjandi trúarbók,
innblásin eigi að eins eftir andanum, heldr og eftir
bókstafnunr; þjóðsögur gamla testamentisins metnar
eius og kenningar nýja testamentisins, formæiingar
Davíðs ekki síðr eun blessunarorð Krists; trúargrein-
in um djöfia íiutt með eins mikilli áherzlu og kenn-
ingin um guðs kærleika, o. s. frv. Það er sjálfsagt
ein af höfuðvillum kyrkjunnar, að hún gerir ekki
greinar mun á kenniugum ritningarinnar eða bendir
ekki á liann, og hefir það skaðleg álirif á trúarfræði [
hennar og á mentun almennings. Að vísu kennir kver- ,
ið í einu orðinu, að kristindómrinn sé hin fullkomna
trú, enn aftr í liinu orðinu, að biblían sé þóölljafut
trúarbók kristinna manna; og virðist einfeldningrinn
hljóta þar af að álykta, að Gyðingatrúin gamla liafi
einnig vorið hin fullkomna trú.
Þessir höfuðgallar barnalærdómsins, sem ég nú
hefi nefnt, að liann blandar guðfræðisleguin skoðun-
um innan um sannindi trúarinnar og greinir ekki j
gull írá eiri í biblíunni, — þeir hafa eðlilega í för j
með sér marga aðra galla. Sein við er að búast af I
slíku kyrkjutrúarágripi, verðr námið þurt og þreyt-
andi. I stað þess að glæða og vekja sálargáfur barn-
anna liættir því við að depra þær og deyfa. Þar
sem svo margt er kent, sem skilningr og hugleiðing
kemst ekki að, þá íá þessir kraftar enga livöt til að
beita sér. Það hnekkir framför skynseminnar enn j
ofþyngir minninu, og svo leiðir eðlilega þar af, að j
það sljóvgar námfýsiua. Síðan, þegar frá líðr, og
þegar maðrinn eldist og honum hefir, fyrir guðs
lijálp, vaxið sálarþroski þrátt fyrir kverið, þákvikna j
eðlilega hjá mörgum efasemdirnar, sem sumir kalla „van- |
trú þessarar aldar“. Hugsi menn ekki neitt, þá j
koma þær auðvitað ekki, því að þá er alt sálarlíf
sofandi; enn fari menn að hugleiða, verðr ekki kom-
izthjá efasemdunum. „Á að beygja sig undir þennan
bókstaf-1, spyrja þeir, „á að trúa jafnt öllu, ótrúlegu j
1) Sbr. Mynsters hugleiöingar, útg. 1853, bls. 122.
2) Martensens Dogmatik, útg. 1865, gr. 27, Anm., bendir pú
á aðra réttari skoðun i pessu efni.
sem trúlegu? Mun t. d. hinn sanni guð bjóða mann-
dráp og blóðsúthellingar. eins og Jehóva gamla testa-
mentisins er Iátinn gera? Og í annan stað : stendr
endalaus fyrirdæming í nokkuru skiljanlegu hlut-
falli við þetta veika og skammvinna líf? Hvaðan
hafa guðfræðingarnir það? Er það bygt á höfuð-
lcenningum nýja testamentisins, eða einungis á örfá-
um vafasömum greinum ? Hvernig geta þeir farið
að taka upp í barnalærdóm annað enn höfuðkenning-
ar ? Þeir ættu ekki að ætla börnum annað enn ein-
faldar og Ijósar kenningar, sem mæla með sérsjálfar.
Og þegar nú postillunum og kennimönnunum ber á
milli og segja sitt hver, á þá að trúa þeim öllum?“
Enn svo verðr sumum þessum mönnum það á, að
þeir véfeugja meir enn vera skyldi. Hafi þeir upp-
götvað villur í barnalærdómnum, hafi þeir komizt að
raun um, að vísindin eða reynslan reki aftr eitthvað
af því, sem þar stendr, þá hættir þeim því miðr við
að missa virðingu fyrir fleiru. — Á þá ekki, má ég
spyrja, kyrkjan sjálf talsverðan þátt í því, sem hún
kallar vantrú aldarinnar? Ef sú setning er sönn,
að það eitt sé sannr kristindomr, sem fullnœgir skyn-
semi og samvizku og sannri trúarþörf mannsins, fidl-
nœgir öllu því, sem dyþzt er og bezt í manneðlinu,
þá fer kyrkjan vilt í því að bera fram kenningar,
sem eigi verða samrýmdar skynsemi og samvizku,
og einkanlega í því, að troða slíkum kenningum inn
í æskulýðinn.
Fermingin er sú athöfn, sem innsiglar og til lykta
leiðir uppfræðing barna i kristindóminum. Að því
loyti sem ungum mönnum eru þá gefnar áminningar
fyrir lífið. þá er athöfnin góð og gagnleg. Enn svo
hefir hún ekki fleira til síns ágætis. Eiðtaka ung-
dómsins er barnalegr siðr og byggist á misskilningi.
Það á að vinna menn til að iðka dygðina með því,
að setja þeim fyrir sjónir élsku hins alg'oða föður og
ágæti dygðarinnar sjálfrar, enn ekki með samning-
um og svardögum. Það liggr í hlutarins eðli, að
fermingareiðrinn er óþörf athöfn; því að vér eigum
að ástunda hið góða sjílfs þess vegna; það er höfuð-
atriðið, og það höfuðatriði má ekki ryra með því að
gefa i skyn, að eiðrinn bindi oss nokkuð frekara eða
fram yfir það, sem hið g'oða sjálft gerir. Mér kenir
til hugar dæmi hins vitra Sókratesar, og gætum vér
gjarna tekið það hér til samanburðar. Þegar læri-
sveinar lians vildu gefa honum góð loforð. þá færð-
ist liann undan og svaraði: „Ef þér ástundið þetta,
sem ég alt af er að brýna fyrir yðr, og berið um-
hyggju fyrir sjálfum yðr, þá munuð þér vinna þægt
verk bæði mér og mínum og sjálfum yðr, enda þbtt
þér engu lofið. Enn ef þér vanrækið yðr sjálfa og
lagið ekki lifsferil yðar eftir því, sem vér bæði í
dag og að undanförnu höfum um talað, þá mun fyr-
ir lítið koma, þbtt þér nú heitið öUu fögru“. Hér
lýsir sér svo mikil skynsemi og nærgætni hjá þess-
um manni, að vér ættum að geta lært af því.
Anuað athugavert við ferminguna er það, hvernig
jieirri athöfn er fyrir komið. Það er naumast unt
að varna þvi að öllu leyti, að hún komi inn þeirri
skoðun hjá æskulýðnum, að þá sé öllu námi aflokið,
þá sé búið að læra alt, sem nauðsynlegt er. Og af-