Fjallkonan


Fjallkonan - 10.10.1887, Síða 1

Fjallkonan - 10.10.1887, Síða 1
Kemr út þrisvar & mán- uði, 36 blöð um árið. Arg. kostar 2 krónur. Borgist fyrir júlílok. FJALLKONAN. Valdimar Asmundarson ritstjóri þessa blaÖ9 býr 1 Þingholtsstrœti og er að hitta kl. 3—4 e. m. 30. BLAÐ. REYK.TAVÍK, 10. OKTÓBER 1887. llannalát. Auk presta þeirra er dánir eru sagð- ir í siðasta bl. ,.Fjallk.“ hafa þessir einnig dáið í sumar: Hj'&rleifr prestr Guttormsson andaðist að Lóni í Kelduhveríi 1. ágúst. Hann er fæddr á Hofi í Vopnafirði 31. maí 1807; og vóru foreldrar hans Guttormr prófastr Þorsteinsson á Hofi og Oddný Guttormsdóttir sýslumanns Hjörleifssonar. Hann lærði undir skóla hjá föður sínum, kom í Bessa- staðaskóla 1826 og útskrifaðist þaðan 1832; vígð- ist aðstoðarprestr til sira Björns Vigfússonar á Kirkjubæ 1835 og kvæntist Guðlaugu dóttur hans; fékk Skinnastaði 1849; Hvamm í Hvammssveit 1869, enn fór þangað ekki; Tjörn í Svarfaðardal 1870 og síðast Velli í Svarfaðardal 1878. Hann hætti við prestskap vorið 1884 og fluttist síðan að Lóni í Kelduhverfi til tengdasonar sins. Hann átti mörg efnileg börn, er upp komust. Hann var drengr góðr og stakr gestrisnismaðr. Þorvaldr prestr Asgeirsson að Þingeyraklaustri andaðist 24. ágúst. Hann var fæddr í Reykjavík 20. mai 1836 og vóru foreldrar hans Ásgeir bók- bindari Finnbogason (síðast á Lundum i Stafholts- tungum) og Sigríðr Þorvaldsdóttir prests Böðv- arssonar. Hann var í 8 ár í Reykjavíkrskóla og útskrifaðist þaðan 1858; útskrifaðist af prestaskól- anum 1860 og vigðist prestr að Þingmúla 1862; 1864 hafði hann brauðaskifti við síra Þorgrím Arn- órsson og fluttist að Hofteigi; fékk Hjaltabakka og og Þingeyrarklaustr 1880. Hann var tvíkvæntr. Sira Þorvaldr var gleðimaðr mikill og fjörmaðr. Snorri prestr Norðfjörð, andaðist 17. sept. Hann var fæddr í Höskuldarkoti í Njarðvíkum 14. ág. 1819, sonur Jóns bónda Jónssonar Norðfjörðs og Krist- inar Jónsdóttur. Útskrifaðist úr Bessastaðaskóla 1844; vígðist aðstoðarprestr til sira Pétrs Jónsson- ar á Kálfatjörn 1849; var siðan um hríð aðstoðar- prestr hjá Arna stiffprófasti Helgasyni í Görðum; fékk Goðdali 1858; Reynisþiug 1869; Hítarnesþing 1875 og sagði af sér í vor. Bændaöldungrinn Sigurðr Ingjaldsson í Hrólfs- skála á Seltjarnarnesi dó 6. okt., um 80 ára gamall. Fornleifafélaglð. 3. þ. m. var haldinn ársfundr félagsins (sem i lögum þess er ákveðinn 2. ágúst). Formaðr þess, Árni Thorsteinsson landfógeti, skýrði frá ástandi og athöfnum felagsins. Gat hann þess að 8 ár væru nú liðin frá því er félagið var stofn- að (15. okt. 1879). Á þessu timabili hefði félagið varið um 1800 kr. til rannsókna fornmenja á þess- um stöðum: á Þingvelli við Öxará, á Hvalfjarðar- strönd, í Breiðafjarðardölum og Þórsnesi, um Vest- fjörðu, um Árnessýslu og Rangárval]asýslu,um Vestr- Skaftafellssýslu, í Vatnsdal í Húnavatnssýslu, í Skagafirði. Þessar rannsóknir allar hefði varafor- maðr íékgsins, Sigurðr Vigfússon, leyst af hendi, og auk þess hefði enn verið rannsakaðar fornmenj- ar á tveimr stöðum, sem aðrir hefðu unnið að. Skýrslur um rannsóknirnar væru komnar út í árbók I félagsins — nema skýrslur um hina miklu rann- sókn í Rangárvalla- og Vestr-Skaftafells-sýslu 1883 —85 og í Vatnsdal og Skagafirði 1886. Til að gefa út skýrslur þessar ásamt myndablöð- um hafði félagið varið 2500 kr., er þar í talinn prentkostnaðr skýrslunnar um efnafræðislegar rann- sóknir á skyrinu úr Njáls brennu. — Maðr sá (V. Storch) er fenginn var til þeirra rannsókna og varði til þess ærnum tíma, tók enga borgun fyrir starfa sinn. Fundrinn samþykti i einu hljóði, að taka tvo menn í heiðrsskyni í ævifélaga tölu: VilhjálmFin- | sen, hæstaréttardómara og V. Storch, efnafræðing. Árni landfógeti, sem verið hefir formaðr félags- ins siðan það var stofnað, skoraðist undan að taka við kosningu. í stað hans var Sigurðr fornfræð- ingr Vigfússon kosinn formaðr; varaformaðr Eirikr Briem ; skrifari Indriði Einarsson; féhirðir Jón Jens- son (í stað landshöfðingja, er skoraðist undan kosn- ingu). Fundr þessi var heldr illa sóttr. Nokkurar frúr i og meyjar bæjarins eru í félaginu, enn þær fást vanalega ekki til að sækja fundi. Á þessum fundi var að eins ein þeirra. Skip strandaði fram undan Álftanesi 3. október; losaðist þó aftr og hleypti að Seltjarnarnesi, enn komst eigi lengra sökum leka. Það kom með salt til Thomsens verzlunar; heitir „Affines"; skipstjóri David Thomsen. Bátr fórst af Vatnsnesi 20. sept. með 4 mönn- um. Formaðr hét Jakob, ungr bóndi frá Illuga- stöðum. Goodtemplarar vígðu samkunduhús sitt í Reykja- vik 2. okt. með mikilli viðhöfn, í viðrvist lands- höfðingja og ýmsra stórmenna bæjarins. Félags- menn gengu þangað í prósessíu (þeir er um 360 hér) i einkennisbúningi sínum. Jón Ólafsson al- þingism. framkvæmdi sjálfa vigslu athöfnina (stökti í vigsluvatninu um húsið), enn jafnframt vóru sálm- ar sungnir, er Jón Ól. hafði ort til þessa tækifær- is og lesinn kafli úr biblíunni auk ræðuhalds. Hvalreki. 23. sept. rak reyðarhval hjá Stokks- eyri, 60 álna langan, enn talsvert skemdan. Tíðarfar. 26. sept. gerði norðanlands áfelli mik- ið með með frosti og fannkomu, fenti fé, og hey varð úti á mörgum stöðum. Sunnanlands var norð- ankuldi um sama leyti, enn snjókoma ekki mikil; gekk síðan í rigningar og snjóaði loks í bygð 5. þ. m., enn síðan er aftr komið þurt og gott veðr. Lauritzeil, kaupmaðr frá Newcastle, hefir rekið hér verzlun í sumar og haust. Gufuskipið „Minsk“, sem hefir legið hér um tíma, átti að taka lifandi fó fyrir verzlun hans. Sagt er honum gangi tregt

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.