Fjallkonan - 18.12.1894, Blaðsíða 4
200
FJALLKONAN.
XI 50
Tíðarfar rnjög umhleypingasamt, enn mjög frostlítið.
Fiskilaust við allan Faxaflóa, enda verðr ekki
stundað fyrir ógæftum.
Saintölf útvegsbænda. Útvegsbændr við sunnan-
verðan Faxaflöa, alla leið frá Vatnsleysum að öarð-
skaga, hafa gert samtök sín á milli, að taka ekki
útgerðarmenn í vetr fyrir meira kaup enn 8 aura af
hverjum þorski, 18 þuml. og lengri, sem veiddr er
á vertíðinni, og 3 aura af smáfiski. — Sektir liggja
við ef samtökin eru rofin. — Að undanförnu heíir
kaup útgerðarmanna á vertíðinni verið þetta frá 40
til 70 krónur, þótt þeir haíi ekki einu sinni fengið
100 fiska hlut, og er það aiment viðrkent, að þetta
ráðlauslega kaupgjald hafi átt mikinn þátt 1 að koma
útvegsbændum í stórskuldir. — Þessi samtök virðast
því eigi óþörf, og þau sýna, að félagslyndið er að
vakna hjá bændum. Munu pöntunarfélagin hafa átt
hvað mestan þátt í þvi að glæða félagslyndi manna
hér á landi á síðari árum.
Inn-nesjamenn gera líklega einhver samtök í þessa
sömu átt.
Samsöngr. „Söngfélagið frá 14. jan. 1892“ hefir
nýl. haldið samsöng 4 sinnum, sem formaðrinn, hr. Stgr.
Johnsen, stýrði. Kand. theol. Geir Sæmundsson söng
þar einraddað nýtt lag eftir Jón Laxdal verzlunarm.,
enn Stgr. Johnsen annað eftir séra Bjarna Þorsteins-
son, og þóttu bæði þessi lög góð, enn einkum þótti
Iagið eftir séra Bjarna ljómandi fallegt. — Samsöngr-
inn þótti yfir höfuð einkar skemtilegr og fara vel
fram.
Styrtkarsjóðr. Skipstjórar og stýrimenn við
Faxaflóa hafa stofnað styrktarsjóð handa skipstjórum
og stýrimönnum á skipum þeim, sem gerð eru út við
Faxaflóa svo og ekkjur þeirra og börn, og hafa feng-
ið konungsstaðfesting á skipulagsskrá sjóðsins.
Framfarasjóðr Jóns prófasts Melsteðs og frú Þór-
unnar Bjarnadóttur Melsteðs heitir sjóðr, sem hr.
kand. mag. Bogi Melsteð hefir stofnað í minning for-
eldra sinna. Hefir hann gefið til sjóðsins jörðina
Harrastaði á Fellsströnd, 11 hundruð að dýrleika.
Nokkru af vöxtum sjóðsins skal að 10 árum liðnum
verja til að styrkja bændr í Árnessýslu til vagnkaupa,
enn eftir 50 ár skal hætta að veita féð til vagn-
kaupanna, og skal síðan, þegar sjóðrinn er orðinn
25000 kr., verja honum til skógaræktar í Árnessýslu,
sem byrja skal í Klaustrhólum í Grímsnesi.
Prófastr í Suðrmúlaprófastsdæmi er orðinn séra
Jóhann Lúther Sveinbjarnarson á Hólmurn, í stað
séra Jónasar Hallgrímssonar, sem fengið hefir lausn
frá þeim starfa.
] Piano-Magazin |
„Skandinavien“,
< 30 Kongens Nytorv 30, |
Kjöbenhavn. |
j Stærsta verksmiðja í Danmörku.
Langódýrasta verð; alt selt með
l 5% afslœtti gegn peningum eða [
j gegn afborgun eftir samkomu
j lagi.
j Veiksmiðja og nægar birgðir af
Orgel-Harmonium.
j Dráttstöfuð verðskrá send ókeypis,
j
HÚS tii sölu í Reykjavík
(í miðjum bænum) með óvanalega
góðnm kjörum. Ritstj. vísar á.
Atvinnu.
við verzlun óskar maðr með góðum
hæfileikum frá 1. jan. ’95. Ritstj.
vísar á.
Tombóla
til eflingar styrktarsjóðs skip-
stjóra og stýrimanna við Faxa-
flóa verðr haldin i Goodtemplara- J
húsinu kveldin 29. og 30. þ. m.
kl. 5—7 og 8—10 e. m.
„Söngfélagið frá 14. jan. 1892“
skemtir með söng að forfallalausu.
Forstöðunefndin.
Verzlunin í Vestrgötu 12
selr:
Grjón, hveiti, kaffi, kandís, púðr-
sykr, kryddsykr, export-kaffi, kar-
töflur danskar ágætar (eru nú á
förum), lauk, epli, kaffibrauð, margar
sortir, rúsinur, sveskjur, súkkulaði,
te. pipar, kanel, gerpúiver, græn-
sápu, hvítsápu, handsápu, margar
sortir, rjól, reyktóbak, vindla, rullu
ágæta, spil ódýr o. m. fl._
Eins og kunnugt er lána ég
aldrei, eins og aðrir kaupmenn,
vörur upp á óákveðinn borgunar-
tíma, heldr einuugis til mjög stutts
tima. Aðvarast því hér með allir
þeir hér í bænum, sem árangrslaust
hafa verið krafðir um skuldir sínar,
að verði þeir ekki búnir að greiða
þær til mín fyrir næstu áramót,
þá neyðist ég til tafarlaust að lög-
sækja þá.
Reykjavík 11. desbr. 1894.
W. Ó. Breiðfjörð.
í verzlun
W. Ó. Breiöfjörðs
fæst nú til jölanna:
Fínt jólakökuhveiti. Rúsínur. Sveskj.
Gærpulver. Cardemommer. Citron-
olía. Muskatsblóm. — Barnakerti
og margs konar glysvarningr, sem
er til sýnis á jólaborðinu. Sömu-
leiðis er til úrval af svuntutaui,
kvenslipsum, allavega litum sjölum,
jólakertum. Stórt úrval af líntaui
og herraslaufum, slifsum og höttum
allavega litum. Hið viðrkenda úr-
val af svörtu klæðunum og fata-
efnunum. — Melís, kaffi, kandís.
Yin: Sherry, Oportovín, Svenskt
Banco, Lemonade, Sodavatn og
margt fleira.
í verzlun 3Iagnúsar Einarssonar
úrsmiðs á Vestdalseyri við Seyðisfjörð fást
ágæt vasaúr og margs konar vandaðar
vörur með mjög gúðu verði.
Yandað vaðmál, dökkblátt, norðl.,
hentugt í peysufót fyrir jólin, er til sölu
í Dingholtsstræti 18.
LílXdLfCla, Akreyrarútgáfan
frá 1867, óskast til kaups. Ritstj. vísar á.
Sveitalífið og Rvíkrlífið,
fyrirlestr eftir Bríet Bjarnhéðins-
dóttur, kostar 50 au. og fæst hjá
höf. og víðsvegar út um land.
Útgefandi: Yald. Ásmundarson.
Félagsprentsmiðjan.