Fjallkonan


Fjallkonan - 12.01.1898, Blaðsíða 5

Fjallkonan - 12.01.1898, Blaðsíða 5
12. janúar 1898. FJALLKONAN. 5 Bjarna Þórarinseonar, mjög mannvænlegr. — Það ern þungbærar reynslnstundir fyrir konu séra Bjarna. Suðr-Þingeyjarsýslu 18. nóv. — Vor- ið var að öllu samanlögðu eitt hið versta sem menn muna. Hríðarbálkrinn fyrst í mai er fyrir löngu nafnkunnr um land alt, og verðr þó varla getið að eins illu og hann á skilið. Eftir að hann var genginn um garð, viðraði bæri- lega fram yfir hvítasunnu. Enn skömmu síðar laust á norð-austan krapahríðum með svo miklu úrfelli, að firnum sætti og fádæmum. Allar bygðir urðu hvít- ar niðr undir sjávarlínu, enn kaffenni í fjöllum. Eggvörp gerspiltust, og fénaðr gekk sér varla að mat, enn jörðin flaut i krapa og vatni eins og í verstu hrakviðrum á hausti. Hrina sú varaði á aðra viku. Sumarið alt var votviðrasamt fram yfir höfuðdag og kvað svo ramt að, að ár og vötn voru í sífeldum vexti fyrir þær sakir. Votengjar voru afar-djúpar, svo að gras náðist ekki á sumum stöðum fyllilega. Þó mun heyskapr hafa orðið í meðallagi og nýting allgóð. Grasvöxtr var í meðallagi hér um bil, og óþurkar voru sjaldan mjög langvinnir um sinn. Oftast voru glórur í hverri viku, og voru þær hagstæðar það sem þær náðu. Frá því nokkru fyrir höfuðdag hefir haustið verið einmuna gott og veðrmilt, hlákur miklar og sunnayvindar. T. d. var jörð þíð í 3. viku vetrar, svo að vinna mátti að jarðabótum, og er það líklega dæmalaust í Norðrlandi. — 19. sept. rak á norð-vestan ofsabyl; var þá stór- hríð í óbyggðum, enn stórviðri og vonzku- hríð í byggð, enn lægði næBta dag. — Aflalaust hefir mátt heita á Skjálfanda alt þetta haust. — Verzlun er ill; kjöt- verð lágt, svo að nærri lætr, að gamal- ærkrofið fari fyrir kaffipundið ásamt öllu því sem íylgir. Þegar svo á meðalheim- ili eru 50—60 ær, og 52 vikur í árinu, enn 1 pd. af kaffi fer í bollann á vik- unni, þá þarf víst eigi öllu meira reikn- ingshöfuð enn Guðmundar Höllusonar, til þess að sjá og reikna „út“, að efna- hagrinn fer á hæli íyrir hinni sönnu og ímynduðu lífsnauðsyn, því fleira þarf líka að kaupa enn í bollann. Tóbaksát mun ekki magnast að mun, enn víndrykkja eykst ár frá ári, eins og tollskýrslurnar sýna, enda eru hér engin bindindisfélög svo ég viti. — Kíghósti hefir gengið hér um sýslu meira en missiri, en lítilli út- breiðslu náð í flestum sveitum og í sum- ar mun hann alls ekki hafa komið og er . það fyrir það, hve varasamlega menn j hafa hagað samgöngunum; sóttvarnarmeð- ul hafa líka verið hagnýtt; — messur hafa verið aflagðar — með samkomulag og kveðjuatlæti (kossar og handabönd) lögð niðr þann tímann. Fá börn létust úr hóstanum og fremr var hann vægr þar sem hann kom; þó tóku fullorðnir hann á stöku stað og jafnvel gamal- menni (að sögn). — Illa hefir gengið með lcaupfelagscörur i haust. „Alpha“ álpaðist á grunn í Hornafirði — hefir líklega tekið Hornafjarðar-mánaglætuna fyrir sólskin og ranglast af réttri leið. í því skipi voru dönsku vörurnar (rúgr járnsteypa, leirvara og munaðarvara), og komu þær loks eftir langt þref þar austr- frá, eftir vetrnætr. Enn ensku vörurn- ar eru ókomnar enn, og hefir ekkert spurzt til þeirra. — Fé var heldr rýrt í haust, enn kýr hafa reynzt í góðu meðallagi, sumar komust i 18—20 potta dagsnyt. Ég hvaifla aftr að góðviðrinu i haust Yarpar grænkuðu frá vetrnóttum fram í lok 3. viku vetrar og "fíflar og sóleyjar fundust í túnum. Skagafirði, í des. Tíðarfar inn- dælt; auð jörð til skamms tíma. — Bráða- pestin hefir gert vart við sig, enn viða hefir bólusetning verið reynd, og er tal- in draga til muna úr henní. Á öðrum kvillum á fé ber ekki til muna, nema ef vera skyldi kláði ástöku bæjum; mun hans þó hafa orðið vart of víða. Beynd- ar vóru fyrir skipaðar baðanir af amt- manni og sendar út reglur fyrir þeim. Enn illa hefir gengið að fá þeim fram- gengt; það er sagt, að heilir hreppar hafi afsagt að hlýða; aðrir berja viðbað- lyfjaskorti, af því landsskipið hafi ekki getað flutt þau í síðustu ferðinni, og hin- ir þriðju vilja ekki baða af því böðunin sé ekki almenn. Fjórði flokkrinn hlýðir og baðar, og þykir illa farið, að hinir ó- hlýðnu Bleppi órefsaðir. Nú eru menn farnir að lesa „Alþing- istiðindin", og mælast gerðir þingsins misjafnlega fyrir eins og vant er, eink- um sumar fjárveitingarnar. Engin óá- nægja heyrist út af afdrifum stjórnar- málsfrumvarpBÍns, enn margir eru óá- nægðir út af því, að frumvarpið um þjóð- jarðasölu var felt, þar sem sá hugsunar- háttr virðist koma fram, að selja jarð- irnar til að græða fyrir landssjóð, enn meta eigi að kaupendr gera jarðirnar arðsamari enn þær vóru landssjóðnum. Lögin frá þinginu um horfelli á skepn- um þykja óhagkvæm, og eigi til neinna bóta. Qullbringusýslu (sunnanv.) 20. des. Afli hefir nær enginn verið innan Skaga í alt haust, enn dálítill í köflum fyrir sunnan, enn gæftir mjög stirðar. Margir komu með létta vasa af Austfjörðum. Heldr mun þeim fækka, sem fara þang- að að leita atvinnn. — Verzlun var hin hagfeldasta í sumar; útlendar vörur með Iægsta verði, enn það hækkaði mikið í haust, og er það bágt, þegar almenningr getr ekkert birgt sig upp að sumrinu undir vetrinn. — Yont kvef hefir geng- ið hér lengi. Fáfróðri alþýðu finst töluverð ósam- kvæmni í lögskýringum lögvitringanna. Á manntalsþingum í vor bannaði sýslu- maðr stranglega allar samgöngur við botnvörpuskipin ensku, að viðlögðum sektum. Menn sneiddu því algerlega hjá þeim, að undanskildum örfáum mönn- um, sem vóru svo hugaðir, að þeir hræddust hvorki hótanir, háar sektir né sjúkdóma frá útlöndum. Þeir sóttu hvern fiakfarminn eftir annan til botn- verpinga. Þetta gramdist hinum, köll- uðu það jafnvel ganga næst landráðum og kærðu það iyrir sýslumanni. Hann dæmdi þá til að 'oorga lítilfjörlega sekt. Enn nú er sagt að landByfirréttr hafi sýknað þá algerlega. ÍSLENZKR SOGUBÁLKR. Sagnir frá móduhallærinu. Eftir hdr. séra Benidikts Þórðarsonar. Erlendr Hjálmarsson, sem var um- boðsmaðr að Munka-Þverá, var gleði- maðr og gestrisinn. Bjó þá gamall maðr í sókninni, er Jón hét; komst hann í kærleika við Erlend sökum greindar og prúðmensku. Eitt sinn hélt Erlendr jólaveizlu og sparði ekki föng til; bauð hann þar til vinum sínum, og var þá Jón einn í boði hans ; veizlan fór vel fram og urðu menn hreyfir. Spyr Erlendr þá Jón að, hvort hann nokkuru sinni setið hefði við betri krásir enn þar væru þá. „Já“, segir Jón, „ég hefi neytt miklu ljúffengari og sætari rétta enn hér eru frambornir, og þá þakkaði ég guði mín- um matinn með hiærðu hjarta og gleði- tárum, enn það geri ég ekki núna, og skortir hér þó ekkert til að vel sé veitt“. Erlendi brá við svarið, því hann vænti annars, og segir: „Er það satt Jón?“ „Já, satt er það“, segir Jón. „Nær og hvar var það?“ spurði Erlendr aftr. „Það var“, segir Jón, „þegar ég í manndauða harðindunum steikti skinnfata garmana mína og át þá þurra“. — Mælt er að

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.