Fjallkonan


Fjallkonan - 28.01.1898, Síða 2

Fjallkonan - 28.01.1898, Síða 2
 v) 14 FJALLKONAN. XV 4 kveðið er með dýrum rímnahætti, rímuna um berserkina. Aftr hef- ir honum tekizt vel að yrkja und- ir rímnahættí á öðrum stöðum (t. d. í „Glámskvæðinu“ og í 10. og 20. kvæðinu og víðar). Hann hefir á ýmsum stöðum brugðið nokkuð út af sögunni og var það varlega gerandi, af því að sagan er skoðuð sem sannsögu- leg og alþýða hefir svo miklar mætr á henni. Þó eru þessir út- úrdúrar víðast hvar í góðu sam- ræmi við eðli sögunnar. Það er svo með kvæði séra Matthíasar, að menn þykjast oft sjá á þeim misfellur, enn gallarj þessir eru smámunir einir í samanburði við skáldlegt gildi kvæðisins eða kvæð- annaí heildsinniogsvo er hér. Höf. hefir ekki sjálfr lesið prófarkir af þessari bók sinni og má því vera, að sumt af þessum smágöllum í henni séu prentvillur. Annars hefir bók þessi fengið svo mikið lof í blöð- unum, að það væri að bera í bakkafullan lækinn að bæta við, enn ef fara ætti að gagnrýna bókina til þess að gjalda Torfa-lögin sem nýtr ritdómari, yrði það oflangt mál í þessu blaði. Það er auðséð á þessari bók, eins og drepið var á fyrst í þessari grein, að séra Matthíasi er enn ekki farið að fara aftr, þó hann sé nú af bezta skeiði og hafi oft átt við örðug kjör að búa. — Þeg- ar andargiftin hrífr hann, gera þeir ekki betr yngri mennirnir; þesskonar tilþrif má einnig víða finna í „Grettisljóðum“. fyrir hálförkina, enn útgefandi „Fjallk.“ færði prófarkalestrinn niðr í 3 kr., enn þó var útgef. „ísaf.“ (og „Þjóðólfs") látinn hafa verkið eftir sem áðr. Nú á síðasta þingi gerði útgef. þessa blaðs ekkert slíkt tilboð, og er því borg- unin fyrir prófarkalestrinn hærri. Venju- lega er borgunin 3—6 kr. fyrir heila örk. Það væri ekki of mikið að borga 3—4 kr. fyrir örkina af Alþingis- tíð. ef þær væru viðunalega lesnar, enn því hefir farið fjarri. í siðasta biaði „íslands" er ritdómr um „Musikfélag Reykjavíkr11, sem virð- ist vera á góðum rökum bygðr, og ætti félagið að láta sér slikar rökstuddar að- finningar að kenningu verða, í staðinn fyrir að stökkva upp á nef sitt, sem sumra er siðr. VIÐ LESBORÐIÐ. í siðasti blaði minnist „Þjóðólfru á alþingiskostnaðinn. Hann er nú 1637 kr. hærri enn 1895, enn aftr nokkru minni enn 1893, því þá var hann yfir 40,000 kr. Hækkunin er nokkuð fólgin í prófarkalestri Alþingistíðindanna. Út- gefandi þessa blaðs hefir hvað eftir ann- að boðizt til að lesa prófarkirnar af Al- þingistiðindum fyrir miklu minna enn áðr hefir verið venja. Útgef. _ísafoldar“ lét borga sér 7 kr. eða jafnvel 10 kr. Aflalaust hvarvetna, enda stöðugar ógæftir. Kvillasamt mjög hér í bænum og nærlendis : ilt kvef, magaveiki, hettu- Bótt og fleiri kvillar. ISLENZKR SÖGUBÁLKR. Æfisaga Jóns Steingrímssonar, prófasts og prests að Prestsbakka. [Bftir eiginhandarriti. Lbs. 182, 4to]. „Bjarki flytr söguna „Snjór“ eftir Alex. Kjelland. Það eru komnar nokkr- ar blaðsíður af henni neðanmáls. Hún virðist vera vel þýdd, og betr enn „Sög- ur frá Siberíu" í Bókasafni alþýðu, enda er svo að sjá, sem tveir menn vinni að þýðingunni. í „Stefni“ hefir Páll Briem amtmaðr svarað í löngu máli örstuttri grein, sem stóð í haust í Fjallk. um tímaritið „Lög- fræðing". Honum mun bráðum verða sýnt, þessum hálærða manni, að hann er ekki eins orðhagr og hann heldr. Frost og fannkoma hefir verið öðru hvoru nú í nær hálfan mánuð. 1. Ég Jón Steingrímsson, fyrir guðs sérlega gæzku og miskunnsemi prófastr yfir Skaftafellssýslu og prestr til Kirkju- bæjarklaustrssafnaöa, er borinn og barnfæddr í þennan heim á Þverá í Blönduhlíð í Hegranessýslu eftir vors frelsara hingaðburð 1728 af guðhræddum og frómnm foreldrum: Minn fæðingardagr var 10. sept- embris, er þá bar upp á föstu- dag, sex vikum fyrir vetr. Minn góði faðir bar strax umsorgun fyrir því, að ég skyldi öðlast hei- laga skírn, hverja mér veitti sá æruverðugi og mikið velgáfaði kennimaðr Sra Björn Skúlason, er þá var prestr í Flugumýrarþing- um; mín guðfeðgin hétu Páll Skúla- son og Guðný Stephánsdóttir. Hann var þá orðinn umferðakarl; ei hafði hann mikill búsældarmaðr verið, né gefinn fyrir stundlegu, enn yfrið margfróðr og guðhræddr; tíð- um hafði hann gengið berhöfðaðr milli bæjanna, og þó gárungar, sem þeirra venja er, gerðu skimpi að honum, var hann þokkasæll hjá öllum guðelskandi mönnum. Heyrði ég oft um það getið, hvað karl þessi hefði heitt beðið fyrir mér, bæði þá er ég skírðr var og síðar. Föðurbróðir minn, Sra Sigurðr, lét heita eftir honum, so séra Páll á Holti, pró- fastr í Rangárvallasýslu ber hans nafn; enn um hitt guðfeðgin mitt skal síðar talað verða. Að van(a)legum móð nefndi ég ei í öndverðu feðra nöfn og foreldra minna, af því ég vildi sér í lagi nokkuð þar um mæla. Minn faðir hét Stein- grímr Jónsson, enn móðir mín Sigríðr Hjálmsdóttir; minn föðurfaðir var Jón Steingrímsson lögréttumaðr í Skagafirði; sá Steingrímr var Guðmundsson af ætt Finnboga lögmanns; mín föðurmóðir var Ingiríðr Aradóttir, prófasts í Hegraness-

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.