Fjallkonan - 19.04.1898, Page 3
19. apríl 1898.
FJALLKONAN.
63
Hann hafði vanizt svo góðum húsakynnum í Skotlandi, að
hann gat nú ekki lengr fengið af sér að búa í moldarkofa eða
skinntjaldi. fiann Iét þvi smiði Herrnhútta félagsins reisa sér
dálítið timbrhús með ofni og öðrum þægindum.
Ailar gjafvaxta meyjar rendu nú til hans hýrum augum og
vildu fá hann fyrir mann. Enn hann gaf þeim engan gaum;
hann ætlaði enga stúlku að eiga aðra enn Súsönnu dóttir And-
résar kaupmanns. Andrés hafði lengi Btundað dýraveiðar, enn
var nú orðinn kaupmaðr og fjáðasti maðr í héraði. Súsanna var
reyndar ekki fríð; hún var lítil, þúfunefjuð og kinnboinabermeð
rautt hár. Enn Tóka þótti hún samt inndæl, og hún var ekki
heldr fráhverf honum, enda bjóst ekki við. að eiga á miklu völ.
Enn Andrés gamli vildi ekki heyra né sjá Tóka.
Nú var Tóki orðinn íiugríkr og húseigandi. Hann réð því
af að biðja Súsönnu; karl tók honum nú betr enn áðr, enn sagði
að það stæði við það sem hann hefði einu sinni sagt. Hann
ætlaði ekki að gefa Eakimóa dóttur sína.
Tóka féll þetta þungt, og Súsanna grét svo mikið, að hún
varð rauðeygð, og jók það ekki fegrð hennar.
Tóki réð það af að fara i veiðiför upp í fjöll sér til harma-
léttis. Hann fór í skinnfötin sin og tók sér byssu í hönd; tók
bátinn sinn og sigldi upp eftir fijðtinu, og ætlaði að skjóta
tófur upp í fjöllunum.
Eiríkr rauði nefndi Qrænland þvi nafni, af þvi hann „kvað
þat mundi fýsa menn þangat, er landið héti vel.“ Gaspar
Cortereal, Portúgalsmaðr, sem fann Helluland 1501, löngu síð-
ar enn íslendingar fundu það, nefndi það „Tierra labrador“, sem
þýðir „jarðyrkjuland“; enn jarðrækt er þar engin. Þegar inn
í landið kemr, er landið að mestu ókannað, og eru þar Indiánar
á strjálingi, enn Eakimóar búa við strendrnar.
Degar Tóki var kominn hálfa þingmannaleið upp í landið,
lagði hann að landi og fól bátinn við hellismunna við íljótið;
tók byssu sína og fór á veiðar. Hann sá fjallageit og skaut á
hana, enn misti hennar. Enn rétt á eftir beyrði hann óp og kom
um leið anga á Indíána hóp; þeir höfðn heyrt skotið, og komu
hlaupandi til að drepa hann. Hann sá sér ekkert undanfæri,
enn flýði þó sem fætr toguðu. Enn það dró saman með þeim.
(Niðrl. næst.)
Uppfundningar.
Arið sem leið fleygði visindunum óvenjulega fram. Þá eru
gerðar fundningar, sem eru meðal hinna stórkostlegustu á öld-
inni. Marconi og Preece finna upp hraðfréttasendingar án þráð-
ar, farið er að nota rafmagnBléttivagna í London og París, ogafl
Niagara-fossins notað til rafmagnsframleiðslu í stærra stíl enn
áðr. — Rikið New York afréði að búa til nýjan Niagara-foss i
St. Lawrence-fljótinu til ódýrrar rafmagnsframleiðsln. Ráðgert
að nota fossana í Nil á sama hátt og fleiri fossa í Afriku. Iðn-
aðr og akryrkja á Egyptalandi mun taka miklum framförum
við þetta. Norðmenn eru farnir af alvöru að hugsa um að nota
sína fossa. Það á að raflýsa bæinn í Niðarósi (Þrándheimi)
með fossafli.
Amerskr úrsmiðr hefir fundið nýtt ljósmyndaáhald; með
þvi má taka Ijósmyndir í fjarska með aðstoð fréttaþráðarins.
Nú hefir líka tekizt að gera ijósmyndir með náttúrlegum litum,
og fara þær nú bráðum að tíðkast. Á Parisarsýninguna 1900
á að koma ijósmyndaáhald, sem stýrt er af gangverki og tekr
hvíldarlaust augnabliksmyndir af því sem fyrir er, svo fljótt, að
það verðr sem ein mynd. Eigaudi þess þarf t. d. ekki annað
enn láta það í gluggann hjá aér þegar hann fer út; sér hann
þá, þegar hann kemr aftr, alt sem við heiir borið meðan hann
var burtu.
Amerskr maðr, dr. Emmens, þykist hafa fundið aðferðina
að búa til gull úr silfri (mexíkönskum silfrdölum, með saltpétr-
sýru). Guílið er þá ekki frumefni út af fyrír Big, heldr sam-
steypa úr aigengum efnum, eins og demantinn er ekki annað
enn kol.
Gerðr hefir verið stjörnukíkir (Granwichs), sem dregr tungl-
ið svo að sjónum manna, sem það væri að eins í 40 kílometra
(rúmra 5 milna) fjarlægð. — Sjónauka heflr dr. Gates í Ame-
riku gert svo fullkominn, að hann stækkar 100,000,000 sinnum
eða meira. Hann ber jafnlangt af beztu sjónaukum, er áðr voru,
8em þeir bera af mannlegu auga og lýkr því upp nær óendanlegum
nýjum heimi.
Þessi mikla stækkun verðr á þann hátt, að myndin, sem
skoða á, er fyrst Btækkuð í öðrum sjónauka, og sú mynd sem
þá kemr fram aftr stækkuð. Með þessum sjónauka má sjá ný-
jar ókunnar lífmyndanir, sem enginn hafði áðr hugmynd nm, og
i annan stað má setja sjónaukann í samband við hinar stærstu
stjörnusjónpipur og taka þannig ljósmyndir af himinhnöttunum.
Með þessu móti heflr þegar tekizt að taka svo glöggvar myndir
af jarðstjörnunni Mars, að sjá má á þeim kletta og hæðir, sem
ekki eru meira enn 40 fet á breidd, og með lítiili umbót er
talið víst, að sjá megi með þessum áhöldum manuabygðina á
Mars.
Prentarar í Ameríku eru farnir að hafa á bðkum þá letr-
gerð, sem tíðkuð var í Svartaskóla; bækrnar eru prentaðar með
ljósletri, sem lesa má i myrkri, enn það þykir ekki holt fyrir
augun.
Maðr í Ameríku, Niekum að nafni, í Logansport, Indiana,
á að hafa fundið ljós, sem er bjartara enn rafljós og líkast
sjálfu sólarljósinu. Það á að vera búið til á efnafræðilegan
hátt, og má láta það í flöskur og bera það í vasa sínum. Með
því að það á að verða mjög ódýrt, er sagt að það muni útrýma
rafljósi, gasi og steinolíu um allan heim.
Köntgens-geislarnir hafa verið notaðir með góðum árangri
við að finna kúlur og beinbrot, sem annars hefði ekki verið
hægt að finna, og sömuleiðis af tollgæzlumönnum, til að skoða i
læstar hirzlur. — Síðast hefir læknum á Frakklandi tekizt að
finna lungnaberkia (tæringarveiki) í byrjun með þess konar á-
höldum, og er þá hægra að gera við þeirri veiki.
Loks má ekki gleyma því, að blaðið New Yoi k Times (eitt
helzta blaðið í Ameríku) heflr nýiega skýrt frá því, að i vetr
er prófessor Jeremias Macdonald i rikinu New-York var eitt
sinn á ferð heim til sín, sá hann glóandi flein fljúga úr hálofti
til jarðar. Hann leitaði á staðnum, þar sem honum sýndist
þetta detta niðr, og fann þar hálfbráðinn málmklepp, enn innan
í honum var plata með rúnum á, sem enginn gat lesið. Pró-
fessorinn gizkaði á, að þetta mundi vera nýárs-óskaspjald
(„gratulationskort") frá íbúunum á Mars. — Hvenær ætli jarð-
arbúar verði þeir menn, að geta sent þeim sömu kurteisis
kveðju?
Leiðrétting: Þar sem talað var um sólvél Teslas um
daginn, var misprentað að hún mundi útrýma Bteinolíunni, á að
vera steinkolunum.
Dvergaborg í Peru. Árið 1888—1892 fór ameiskr
prófessor, Emery White, í rannsókuaferð á hálendið í Peru. Þar
fann hann leifar af fornu þorpi, og leifar af íbúunum, sem ailir
höfðu verið dvergar.
Nú fyrir skömmu fór sami maðr að vitja um þessa dvergaborg
ásamt nokkurum rithöfundum. Hefir hanu nú skýrt frá ferð
sinni í hinu stóra amereka blaði „The World".
Dvergaborgin hafði verið bygð á hán fjalli, þar sem ilt var
að sækja að. Dvergarnir hafa þurft að verjast Indíánum, sem
munu vera síðari innflytjendr þar í landi, og hafa átt i ófriði
við dvergana og yíirunnið þá að mestu leyti; fáeinir af þeim
hafa að líkindum komizt af og blandazt við Indíána, því Indí-
ánar, sem nú búa þar í kring, eru minni vexti enn alment
gerist.
Kringum dvergaborgina er hár raúrveggr, um hálfa (enska)
mílu á lengd. Göturnar eru mjóar, svo að naumast geta tveir
riðið þær samhiiða. Á borgaruiúrunum eru nokkur h!ið, og eitt
hlið er fram undan þyi húsi, sem virðist hafa verið konuugshöilin.