Fjallkonan


Fjallkonan - 07.09.1898, Blaðsíða 4

Fjallkonan - 07.09.1898, Blaðsíða 4
140 FJALLKO NAN. XV 35 bágborin í samanburði við tilkostnaðinn. — Laxvríði hefir næstum algerlega brugðist, svo að fá eða engin dæmi munu til slíks í manna minnum, t. d. hvað Hvítá snertir. Að eins örlítill hluti kostnaðar hefir náðst upp“. ÍSLENZKOR SÖGUBÁLKUR. Æflsaga Jóns Steingrímssonar, prðfasts og prests að Prestsbakka. [Eftir eiginhandarriti. Landsbókas. 182, 4to]. (Frh.) 19. Árið þar eftir, þá eg var á Beynistað, fór ég enn aust- ur á iand til fiskikanpa. Varð eg onn kunuugri góðum og mis- jöfuum mönnum, og þó eg fengi nógan fisk keyptan undir Eyjafjöllum, var hann hjá flestnm þeim svo húsrakr, með öðru fleiru, að ei gat Btaðið sína vikt þá norður kom; eg varð því heldur að fara út í Vestmanneyjar, og eiga nndir von með teppur. Þá komst eg í kunningsskap við þær góðu konur: Quðbjörgu Pálsdóttur á Keldum og Qnðnýju Þorsteinsdóttnr í Skógum (er var) höfðingi í allri raun og veru. Áður sálaðist bað hún mig fyrir börn sín að láta þau ei sín gjalda, því eitt- hvað af þeim mundí nærri mér verða, hvað og varð þá son- ur hennar, sra Þorsteinn, varð mér samtíða í Mýrdalnum; gaf og guð mér þá nóg efni til þess að bjarga honum þá honum lá á; sakna eg hans enn í dag. ’Betri eru hót enn gjafir£ — Hinn þriðja höfðingskona er eg komst í viðskifti við og kunn- ingsskap var sú stórmikla kvinna Jórunn Skúladóttir á Hlíðar- enda, húsfrú sr. Brynjólfs Þórðarsonar Thorlacius. Eg var til hans sendr með bréf og reikninga að norðan, þvi klaustrhald- ari sr. Jón Vigfússon og hann höfðu jarðaafgjaldaskifti. Tjald- aði eg að kveldi á réttarbakkanum fyrir framan bæinn og ána. Um sólaruppkomu morguninn eftir var eg kominn á flakk; sé eg að rýkur heima. Sæki hest minn, tek með mér bréfin og varningspoka minn og ríð heim. Eldhús var austast af staðn- um; þaðan sé eg að kemur tii mín vestur fyrir kirkjuna á hlað- ið öldruð kona, augnfögur, en ófríð að öðru, með óhreint skuplu- korn á höfði, bláþryktan smádropaklút á höfði og trefil eins litan um háls, í sortaðri gamall^ og skörnugri hempu með dökkum kraga, sem brettist með geiflum upp um hálsinn. Skó- fatnaður var að þessu skapi. Hvort heilsar öðru. Hún spyr hvaðan eg sé og hvert mitt erindi sé þangað. Eg segist eiga að færa húsbóndanum bréf og spyr hvort hann Bé á fætur kom- in, Hún neitar því og Begir það verði ekki fyrr enn um dag- mál. „En fá þú mér bréfin, eg skal koma þeim til hans“. Eg neita því og segi: „Mér var uppálagt að fá honum þau á eigin hönd, og breyti eg ei út af því að forfallalausu, enda sýnist mér þú vera svo skörnng eldabuska — slæ nú upp á gaman — að eg vil ei né voga að fá þér þau í hendr“. — Hún hlær við og segir: „Ekki lízt þér hreinlega á mig; sona eru nú eld- húskerlingarnar hér, en trúa máttu mér fyrir bréfunum, því trúað hefði hann mér fyrir þeim“. Eg segi það megi vel vera, og spyr hana hvað lengi hún hafi hjá þeim góðu hjónum verið. Húu svarar: „Hér um 60 ár“. „Áuðséð er það, segi eg, að stórærlega húsbændr átt þú, að þú ert so lengi búin að vera hjá þeim í Boddan sýsli sem hér kvað vera, enda er einhver nýti- leg taug í þér, að þú skulir þola hér svo lengi“. (Framh.). OTTO MÖNSTEDS Margarine iáðleggjum vér öllum að r.ota. Það er hið bezta og ljúffengasta smjörlíki, sem mögulegt er að búa til Biöjiö þvi œtlQ um OTTO M0NSTEDS Margarine, aem fæst keypt lijá kaupinönnunum. 1871 — Jubileum — 1896 Hinn eini ekta (Heilbrigðis matbitter). í öll þau mörgu ár, sem almenningr hefir notað bitter þenna, hefir hánii rutt sér í fremstu röð sem matarlyf og lofstír hans breiðst út um allan heim. Honum hafa hlotnazt hæstu verðlaun. Þegar Brama-lífs-elixir hefir verið brúkaðr, eykst öllum líkamanum þróttr og þol, scílin endrlifnar og fjörgast, maðr verðr glaðlyndr, hug- ralckr og starffús, skilningarvitin verða nœmari ogmennhafa meiri ánœgju af gæðum lífsins. Enginn bitter hefir sýnt betr að hann beri nafn með rentu enn Brama-lífs-elixír, enn sú hylli sem hann hefirnáð hjá almenningi. hefir gefið tilefni til einskisnýtra eftirlíkinga, og viljum vér vara menn við þeim. Kaupið Brama-lífs-elixír vorn einungis hjá útsölum. þeim sem fengið hafa umboð frá oss, sem eru þessir: Akreyri: Hr. Carl Röepfner. ---- Oránufélagið. Borgames: Hr. Johan Lange. Dýrafjörðr : Hr. N. Chr. Gram Húsavík: Örum & Wulff’s verslun. Keflavík: H. P. Duus verslun. ---- Knudtzon's verslun. Reykjavík: Hr. W. Fischer. Raufarhöfn: Oránufélagíð. Sauðárkrókr: ------- Seyðisfjörðr: ------ SSglufjörðr: ------ Stykkishólmr: Hr. N. Chr. Oram. Vestmannaeyjar: Hr. J. P. T. Bryde. Vík pr. Vestm.eyjar: Hr. Ealldór Jóntson. Ærlækjarsel: Hr. Sigurðr Gunnlögsson. Einkenni: Bl&tt Ijón og gullinnhanik einkennismiðanum. Mansfeld-Búllner & Lassen. hinir einu Bem búa til hinn verðlaunaða Brama-lífs-elixír. Kaupmannahöfn, Nörregade 6. Brúkuð reiðtygi hnakka og söðla með ensku lagi, sel eg mót allri gjaldgengri vöru íil 30. október næstkom- andi. Samúel Ólafsson söðlasmiður. r X verzlun Magnúsar Einars- sonar á Seyðisíirði fást ágæt vasaúr og margskonar smekklegar, fáséðar og vandaðar vörur með mjög sanngjörnu verði' Kaupendur „Evennablaðsins" eru beðnir að afsaka, að ágúst-blaðið getur ekki orðið sent fyr enn með landpósti í september vegna fjarveru útgefandans. Ullarband er til sölu í Þingholtsstræti 18. Einar Oiiiinarssoit^; tekur að sér að kenna reiltnms ódýrt, fljótt og vei. Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. med. J. Jónassen, sem einnig gefr þeim, sem vilja tryggja lífsitt, allar nauðsynlegar upp- lýsingar. Útgefaudi: Vald. Ásnmndarson. F éíagsprentsmiðjan.

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.