Fjallkonan


Fjallkonan - 06.10.1898, Qupperneq 1

Fjallkonan - 06.10.1898, Qupperneq 1
Kemr tlt um miöja viku. Árg. 3 kr. (erlendis 4 kr.) Auglýsingar 6dýrar. FJALLKONAN. Gjalddagi 15. júli. Upp- sögn skrifleg fyrir 1. okt Afgr.: Þingholtsstrœti 18 XV, 39. Reykjavtk, 6. október. 1898. Um landsins gagn og nauðsynjar, Eftir Dalbúa. I. Ég veit, að þú, ritstjóri góður, kastar ekki í papp- írskörfuna þína hugleiðingum gamals manns um landsins gagn og nauðsynjar. Þær verða að fá. að fígúrera fyrir almenningnum, og hver að taka sér til inntektar það sem liann vill, og ætla ég þá fyrst að taka fjárhag landsins og ástæður almennings, eink- um sveitabóndans. Yér erum nú bráðum búnir að hafa stjórnarskrána fjórðnug aldar og fjárhagsráðin yíir 20 ár. Á fyrsta fjárhagstímabilinu 1876 og 77, — þetta vóru nú fyrstu búskaparárin, — var f.-trið hægt og gætilega í allar sakir. Þá vóru útgjöldin áætluð 452,000 kr. eða rúmlega 3 kr. á mann árlega, ef landsbúar eru taldir 72,000. Þessi gætni hélst fyrst framan af bú- skaparárunum, þó að útgjöidiu eðliiega jykust nokk- uð. Landsmenn þurftu mörgu að kippa í lag og við margt að gera. En síðan 1893, eða síðan seiuustu kosningar fóru fram, hafa útgjöldin aukist óskaplega eftir okkar efnum og ástæðum. Á síðustu fjárlögun um eru útgjöldin áætluð 1,466,000 kr. og tekjuhall- inn 158,000 kr., sem auðvitað verður að taka af við- lagasjóði. En útgjöldin vorða í raun og veru miklu meiri enn þetta. Á Ligarfljót á að leggja brú fyrir 75,000 kr., kaupa pósthús fyrir 30,000 kr. Tvenn aukafjáriög, landssjóðskirkjur, sein til stendur að söfnuðir taki við, brúin á Örnólfsdaisá, holdsveiki- spítalinn og styrkur til þriggja prestakaila, eyða á fjárhagstímabilinu, fram yfir það sem áætlað er á fjárlögunum, um 70,000 kr. Þetta er til samaas 175,000 kr. Að vísu má teija frá tillagið á fjáriög- unum til telegraffsins 35,000 kr., en samt verður tekjuþurðin á seinasta fjárhagstímabilinu fuliar 300,000 kr., sem taka verður úr viðlagasjóðnum. Útgjöldin verða þetta yfirstandandi fjárhagstímabil meir enn 11 kr. á hvert mannsbarn landsins árlega. Þau hafa því fast að því fjórfaldast á rúmum 20 árum. Hin auðuga Danmörk hefir hækkað útgjöld sín til iands- þarfa um 10 °/o & sama tíma sem hið snauða ísland hefir aukið þau hjá sér um 70 °/o eða 7 sinnum meira að tiltölu. Útgjöldin hafa því aukist frá því sem áður var á seinssta fjárhagstímabilinu uta nær þvi 300,000 kr. Hvar lendir þetta, ef þessi eyðsla helzt áfram? Það er sýnilegt, að viðlagasjóðurinn verður með þessu lagi étinn upp á fáum árum, og að þvi búau verður aðleggja háan skatt eða toll á lands- menn, líklega sem svaraði 3—400,000 kr. á ári, eða kannske meira. En kannske efnahagur, framfarir og allar ástæður landsmanna þoli vel þessa fjáreyðsla? Það skuium vér skoða. Á síðustu 20 árum hafa ýms gjöld, önnur enn til landssjóðs, komið á landsmenn, svo sem hreppavega- gjaid, sem nú verður að borga í peningum, styrktar- sjóðsgjaid og borgun til skoðunarmannanna, sem hor- fellislögin frá síðasta þingi skipa fyrir að kjósa skuli í hverjum hreppi. Auk þess vaxa stöðugt nokkuð gjöld til sýslusjóðanna. Á síðustu 20 árum hefir vinnufólkskaup hækkað framt að helmingi, en afurðirnar, einkum af land- búnaðinum, lækkað stórkostlega í verði, t. d. kjöt, ull og smjör, og er þetta alt saman einhver tilfinnanleg- asti hnekkirinn fyrir afkomuna. Á seinni árum er lítt mögulegt orðið að fá peninga. Að vísu var kú- peningur framt að 2,000 fleiri og sauðfé rúmum 100,000 fleira 1895 en það var að meðaltali á árunum 1871 —1880; en þessi hækkun vegur þó naumast upp verðfallið á afurðunum, og þjóðin er fráleitt nú fær- ari um að bera hærri gjöld, en hún var þegar iandið byrjaði búskap sinn. En hvernig stendur nú á því, að þessi mikla eyðsla á sér stað og það svona snögglega, eins og áður er tekið fram, án þess landsmenn eða kjósendurnir finni að því? Það liggur alt í hreppapólitíkinni, hreppa- pólitíkinni, sem gengur eins og rauður þráður alt frá hinni aumustu hreppsnefnd landsins upptilhinna virðulegu þingmanna. Einn þingmaðurinn hefir veg- spotta í sýsluvegi á samvizkunni, annar flutninga- brautarkafla, þriðji brú, fjórði skóla, fimti bitling handa kunningja o. s. frv., og hver berst fyrir kjör- dæmið sitt af alefli, án tillits til þess, hvar nauðsyn- in er mest til endurbóta á landinu; og sagan segir jafnvel, að þingmenn lofi hver öðrum fylgi til að koma fjárbænunum fram, en kjósendurnlr gef t eyðslu- belgnum kvittua, þegar heim kemur, hafi honum tekist að krækja í eitthvað fyrir þá. Þó þessi at- kvæða-hrossakaup þingmannanna sé nú að ölium lík- um munnmæli, þá eru samt sem áður sumar fjárveit- ingar á þinginu lítt sklljanlegar, svo eru þær ástæðu- lausar. Auðvitað fylgja frelsinu auknar byrðar, og það er ekki nema sjáífsagt, að útgjöldin aukist, ef nokkru á að kippa í lag. Strjálbygðin hér á landi gerir all- ar endnrbætur svo dýrar. Alt. verður að styrkja af landssjóðnum, ekkert borgar sig beinlínis. En það er vandinn, að meta hvað á móti öðru, á eina hlið- ina nauðsyn framfaranna og endurbótanna og gjald- þol landsmanna hinum megin. Þetta þurfa þingmenn og þetta þurfa kjósendur jafnan að hafa hugfast. En það er sýnilegt, að eyðslan á seinni árum fer svo úr hófi, að ekki líður langt um, að hún fer langt fram úr gjaldþoli iaudsmanna, ef þessu fer fram, og landið kemst í mestu fjárþröng. Viðlagasjóðinn ætti aldrei að skerða, heldur auka hann iítið eitt á hverju fjár- hagstímabili, t. d. um 10,000 kr., og landinu ætti aldrei að hleypa í skuld, heldur ætti að leggja á nýja tolla. Við erum svo fáir og smáir og náttúran hér svo erfið, að við megum ekki við skuldum sem þjóð; það er nög, að einstaklingarnir skuldi og eigi margur hver ekki á sig skyrtuna. Sú tíð þarf að

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.