Fjallkonan - 30.11.1898, Side 4
188
FJALLKONAN.
47.
sængum eða annari ábreiðslu eftir ástæðum. Þarna
kúrir barnið „daglúrinn" sinn í vellandi hita, og er
eins og „blóðatykki" þegar það vaknar. Það hefir
þörf fyrir að anda að eér svalara lofti, og sé það
komið á fót, langar það að komast út. Eun þá verðr
að varna því þess, eða þi vefja það í hlý sjöl og klúta
til að verja það fyrir „forkjölelse“, svo ég noti
kaupstaða orðið, = innkulsi. Það fær því hvorki inni
né úti að anda að sér kalda loftinu til að styrkja
lungu sin og lífga blóðið. Eu brjósttæring (tuber-
kulose) eykst og útbreiðist ár frá ári að áliti lækn-
anna. Mun það ekki að sumu leyti afleiðing af slík-
um lifnaðarháttum?
Það ætti að vera ætlunarverk hinna „lærðu“
lækua að leiðbeina mönnum í öllu því, sem að vernd-
un heilsunnar lýtur. Að sönnu verður þetta ekki
heimtað af þeim nema sera siðferðis-skylda. Og það
er mikið mein að læknar skuli ekki vera svo vel
launaðir, að þeir þyrftu ekki að taka aukaborgun
fyriir verk síu; þá væri þeim mestur hagur að því, að
menn væru sem hraustastir.
Eg þori líka að fullyrða, að margir örsnauðir
menn veigra sér við að leita læknis vegna þess að
þeir treysta sér ekki til að borga honum ómakið og
kaupa þar á ofau „reci;pt“ og meðul í lyfjabúðinni.
Það er oftast orsökin til að hinna „ólærðu“ lækna
(,,skottulæknanna“) er leitað fremur en aðal-læknanna;
þeir eru eigi eins kaupdýrir, enn koma þó oft að liði.
„Náttúran er námi betri“.
Það væri engin vanþörf á, að litið væri eftir
aðbúnaði manna hér í mörgum smábýlum í og við
E 'ykjavík, og svo kann víðar að vera, einkum í
sjávarsveitunum; hygg ég að með litlum eða engum
kostnaði mætti margt laga. ef á það væri bent
af mönnum, sem vit og lag hafa á að gera það
og almenningur virti þess, að taka orð þeirra til
greina. Eyúlfur Þorsteinsson.
4
„ Lands “ -s ví virðingin.
I.
Blaðið ísland hefir fundið ástæðu til að minnast
á greinir Dalbúa í Fjállk. og segir að þær séa „eitt-
hvað af því fátæklegasta, sem íslenzku blöðin hafa
flutt nú Iengi“. Það sé „heldur engin nýlunda, þótt
einhver þröngsýnn kotkarlinn stígi í stólinn í Fjallk.
og helli þar út vizku sinni“. „Þessar greinar líkjast
því helzt“, segir blaðið enn, „að þær væru soðnar
saman af gömlum ómentuðum sveitakarli“.
Eg hefi hér tilfært þessi orð blaðnefnunnar orð-
rétt með einkennismerkjum, enda hefir það aldrei
verið siður Fjallk., að rangfæra og snúa út úr orð-
um annara blaða og falsa tilvitnanir, eins og „ísl.“
„Dagskrá" og önnur óráðvönd blöð gera.
Með þessum orðum gefur Þorsteinn Gíslason í
skyn, að hinar fátæklegustu ritgerðir, þær sem lýsa
mestri fákænsku, sé frá sveitakörlum, sem hann kall-
ar svo. „Sveitamenn11 þykir honum auðvitað of veg-
legt nafn handa þessum skríl, sem hann álítur. Það
er eins og hann hafi öðrum fremur rekið sig á fá-
kænsku sveitamanna, og getur það vel verið, því fá-
kænska er það sannarlega af sveitamönnam, að kaupa
jafn fánýtt bl^ð og „ídland“ er. En nú býst eg við
að 8veitamennirnir fari að meta þetta blað að verð-
leikum, ekki sízt þegar þeit sjá hvers það virðir þá.
,Svo má brýna deigt járn að bíti‘, og þolinmæði okkar
ómentuðu sveitakarlanna fer að verða nóg boðið að
halda nppi höfðinu á þessari blað-afmán.
Það hefir lengi verið einkenni á einstökum upp-
skafaings óþokkum, sem hröklast hafa með skömm
gegnum latínuskólann og orðið stúdentaaefnur, kand.
fil. eða búðarlokur, að þeir hafa fyrirlitið sveitamenn
og alla alþýðu. Óðar enn þessi óféti eru komin úr
skóla, svívirða þeir og fyrirlíta alþýðuna, sem oftast
hefir álið þá upp og kostað nám þeirra að miklu
leyti, hina sömu alþýðu sem þeir ætla sér að lifa á.
Þokkapilturinn Þorsteinn Gíslason er einn af þeim
sem drítur þannig í sitt eigið hreiður. Einn vinur og
mikill samverkamaður Þorst. við blaðið Island, sem líka
er kand. fil. að nafnbót, hefir ort kvæði um ættjörð
sina sem heitir „Þokuvísur“, og er þar talað um „peisu-
lega bændaskrílinn“ á íslandi.
(Framhald síðar.)
OTTO MÖNSTEDS Margarine
ráðleggjum vér öllum að nota. Það er hið bezta og ljúffengasta
smjörlíki, sem mögulegt er að búa til
BiSjiS þvl œtíö um
OTTO M0NSTEDS Margarine,
sem fæst keypt hji kaupmönnunum.
Dðkkmórautt ullarband og |
ljósgrátt, þrinnað og úr þeli, er til
sölu í Þingholtsstr. 18.
Nýir kaupendur „Fjallk.“ 1899
geta fengið „FJALLKONUNA“
senda sér ÓKEYPIS frá byrj-
un októberraánaðar þ. á.
Jónsbók, lögbókina, prentaða
á Hólum 1578, og allar aðrar
bækur frá prentsmiðju Q-uðbrands
biskups (1578 — 1630) nema bibl-
íuna (Q-uðbrandsbiblíu), kaupir út-
gefandi Fjallk. háu verði.
Höj Fortjencste ved en paten-
teret Opfindelse. Ingen Butik.
Ingen Driftskapital.
A. L. Bethe. Barmen.
Svartur hvolpur, fallegur
verður keyptur i Þingholtsatr. 18.
Norðlenzkt vaðrnál, vandað
peisufataefni, er til sölu i Þing-
holtsstr. 18.
Náttúrusafiiið
er lokað í skammdeginu, frá 27.
þessa mánaðar.
Ben. Gröndal.
Útgefandi: Yald. Ásmundarson.
Félagsprentsmiðjan.