Fjallkonan - 23.12.1898, Page 2
198
FJALLKONAN.
60.
Alþýðlegar fræðigreinir,
Bak teríur.
(Niðorl.).
Æxlun.
Bakteríurnar æxlast annaðhvort þannig, að þær
skiftast í sundur, eða með fræjum. Þegar ein bakte-
ría hefír skift sér í tvo hluti, iíða að eins 20 til 30
mínútur þangað til þeir eru fullþroskaðir. Bakterí-
an getur orðið langafi á einum klukkutíma. Á sól-
arhringi getur ein baktería aukið kyn sitt upp í 20
miljónir, og væru ekki nokkrar hindranir til fyrir-
stöðu, mundi kyn honnar fylla öll heimshöfin á nokkr-
um vikum. Til allrar hamingju eru fjölgun þeirra
settar skorður.
Störf bakteríaima.
Vér höfum séð af því sem að framan er sagt, að
bakteríurnar hafa margbreytt áhrif á líf manna, og
því betur sem menn þekkja þær, því Ijósara verður
mönnum, hve oft og víða bakteriurnar suerta líf vort.
Þess hefir verið getið, að rotnuu, súrnun, gerð o.
s. frv., stafar af bakteríum, og að mikilsverðar iðn-
aðargreinir og tilbúningur ýmsra fæðutegunda og
nautnar-efna styðst við þær efnabreytingar, sem bakte-
ríurnar valda. Bakteríurnar hjálpa okkur líka til
að melta fæðuna. Sumar af þeim bakteríum, sem
eru í þörmunura, gera mjög mikið gagn. Þær valda
að nokkru leyti þeim efnabreytingum, sem eru nauð-
synlegar til þess að fæðan geti komið líkamanum að
haldi.
Eftir dauðann taka bakteríurnar við líkama manns-
ins. Þær framkvæma boðið : „að jörðu skaltu aft-
ur verða“.
En víst er það, að þær gera mönnum meiri skaða
enn gagn. Þær eru hvarvetna í kringum okkur og
sæta færi að gera okkur skaða. Ef maður sker sig
í fingurinn, má búast við að þær komi og geri bólgu
í sárið o. s. frv. Við bindum um sárin til að ver-
jast bakteríunum, en ekki til þess að verjast kulda.
Þær geta lika komist inn í líkamann í ryki í
andardrættinum (því er hreint loft svo nauðsynlegt),
i fæðunni og neyzluvatninu. Þannig fá menn lungna-
tæring, af því að anda að sér lofti, sem í eru bakte-
ríur úr þornuðum uppgangi, kóleru og taugaveiki af
neyzluvatni eða fæði, sem bakteriur eru 1.
Þó margar bakteríur sé óskaðlegar, eru hinar, sem
sjúkdómunum valda, nógu m&rgar og hættulegar til'
þess, að mönnum ætti að standa stuggur af þeim.
Af þeim stafa s/g allra mannaláta, og enn meira af
sjúkdómum og þjáningum.
Af bakteríum koma meðal annara þessir sjúkdóm-
ar: miltisbrandur, lungnatæring, og önnur berkla-
veiki, heimakoma, kólera, barnaveiki (difteritis),
holdsveiki, lungnabólga, taugaveiki, bóla, influenza
(rússneskt kvef), sárafeber, blóðeitrun, kýli, barns-
farasótt, franzós, mislingar, gulu-pest og austur-
lenzka pestin (svartidauði) o. s. frv.
Á Norðurlöndnm er lungaveikin tíðust af öllum
þessum sjúkdómum. Af berklabakteríunni, sem veid-
ur henni, er mesti grúi i uppgangi brjóstveikra manna,
og sóttnæmið breiðist mest út af þoruuðum hrákum
eins og áður er sagt.
Hrækið þvi aldrei á gólfið!
Hafið nægiiega hrákadalla í herbergjunum með
vatni í, og hrækið æfinlega í þá, því þó sá sem upp-
ganginn hefir hafi ekki lungnatæringu, eru þó æfin-
lega bakteríur í uppganginum, sem geta verið hættu-
legar.
Hreinsið því hrákadallana vandlega á hverjum degi
með sjóðandi vatni.
Landsstjómin í hvers manns koppi.
Það sem ertir menn nú hvað mest og gremur í
sveitunum er hið gagnslausa skoðana kák af ýmsum
tegundum, sem menn hafa engan frið fyrir, og sem
leiðir af sér næstum eins mikinn kostnað eins og
framfærsla allra ómaga í hreppnum. Ég vil hér sýna
dæmi af afskiftasemi, en því miður einnig óskynsemi
landstjórnar vorrar, sem nú hefir nefið niðri í hvers
manns koppi.
Fyrsta skipun: „Alt fé skal baða“,(og löggiltir eft-
írlitsmenn standa þar hjá og og horfa á!!)
Alveg þýðingarlaus skipun frá yfirvaldanna hlið;
verður að koma frá bændunum sjálfum ef nauðsyn
krefur. Það er kunnugt, hvaða gagn, réttara sagt
ógagn, varð að þessari skipun í fyrra. Kostaði þáí
meðalhrepp 400 —500 krónur. öagnsemin verður víst
sama enn.
Önnur skipun: „Tveir menn skulu fara um og
setja á í öllum hreppnum í nóv.“
Gaman, sem gæti ekki kostað minna enn 50—60
kr., væri skoðun heyja, húsa og fjár í nokkru lagi.
En hver maður, sem nasasjón hefir af búskaparvíti,
veit að þessí yfirferð er gagnslaus, því það er ó-
mögulegt að segja neitt um heygæði og fl. á þeim
tima.
Þriðja skipun: „Skoða skal alt sauðfé kláðaskoð-
un heízt fyrir jól“.
Kostar líklega um 60 kr. Of dýrt vegna þess, að
svo koma víst engar vanalega framkvæmdir á eftir,
þó citthvað væri athugavert, sem varla kemur fyrir á
þessum tíma Framkvæmda kák að engu gangi; —
nafnið eitt.
Fjórða skipun: „Tveir mennfari um allan hrepp-
inn eftir miðjan vetur að setja á að nýju“.
Sú ferð gæti komið að einhverju gagní á stöku
stað, ef vel væri áhaldið og ekki hugsað eingöngu
um að koma nafni á.
Allar þessar yfirferðir og baðkák til engra eða
efasamrar nytsemdar kosta medalhrepp 600—700
krónur, auk þess sem beina þarf þessum löggilta
flökkulýð og hestum þeirra; því ekki er nú labbað
í slíkum lystitúrum.
Allar skoðanir á þrifum, húsum, heyfeng o. s. frv.
eiga að vera gerðar að ráðstöfun sveitarstjórnarinn-
ar og búnaðarfélagastjórnanna, að svo miklu leyti
sem þær sjá þess þörf; það yrði þá t. a. m. samein-
uð kláðaskoðunar- og ásetningarferð; og ekki gerður
ieíkur til að eyða fé almennings. En nú er auðsætt,
að ekkert er tilsparað til þess að leggja smiðshöggið
á með að eyðileggja sauðfjárræktina og iandbúskap-
inn yfir höfuð, — það þarf heldur ekki stór högg í
því efni. E.