Fjallkonan

Eksemplar

Fjallkonan - 10.12.1906, Side 1

Fjallkonan - 10.12.1906, Side 1
Kemur út einn sinni og tvisvar í viku, alls 70 bl. um árið. Verð árgangsins 4 krðnur (erlendia 5 krónur eða l'/j dollar), borgist fyrir 1. júlí (erlendis fyrirfram). B Æ XI) A B L A Ð TJppsðgn (skrifieg) bund- in við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyr- ir 1. október, enda hafi kaupandi þá borgað blaðið. Afgreiðsla: Stýrimannastíg 6. VEKZLUXABBLAÐ XXILI. árg. Reykjavík, 10. desember 1906. Nr. 65 Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þriðjudag í hverjum mán. kl. 2—3 í spítalanum. Forngripasafn opið á mvd. og ld. 11—12. Hlutabankinn opinn kl. 10—2‘/«og 5*/,—7. K. F. TJ. M. Lestrar- og skrifstofa op- in á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 síðd. Almennir fundir á hverjn fóstudags- og suunudagskveldi kl. 81/, siðd. Landakotskirkja. Guð3þjónuBta kl. 9'/j og kl. 6 á hverjum helgum degi. Betel sd. 2 og 61/, mvd. 8, ld. 11 f. h. Landakotsspítali opinn fyrir gjúkravit- jendur kl. 10‘/,—12 og 4—6. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 10—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag kl. 12—3 og kl. 6—8. Landsskjalasafnið opið á þrd., fimtud. ld. kl.12-1. Lœkningar ókeypis i læknaskólanum á hverjum þriðjudegi og fóstudegi kl. 11—12. Náttúrugripasafnið, Vesturg. 10, opið á sunnud. kl. 2—3. Tannlœkning ókeypis í Pósthússtræti 14 og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Margarinið makalausa. Mörg hundruð pund nýkomin í með 8/s „(xambetta. Alveg ferskar skökur — eins og bezta kúasmjör. Þar fæst líka Yega Plantefedt. var 1. júlí. Útgefandi tekur því með miklum þökkum, að áskrifendur borgi sem fyrst. „Ekki eins og þessi toilheimtumaður!“ Nýtt Kirkjublað flytur eftirfarandi ágrip af fyrirlestri, sem einn af prest- um hins vestur-íslenska kirkjufélags, síra Björn B. Jónsson, hélt á siðasta þingi félagsins: „Síra Björn talar um „íslenska óbíl- girni.“ Hún kemur fram í pólitisku illdeilunum hér heima. Ræðumaður segir að Vestur-íslendingar hafi tek- ið allmiklum stakkaskiftum síðari ár- in óbilgirnin íslenzka hafi orðið að lúta í tægra haldi fyrir nýrri amer- ískri menning. Menn ekki jafn-upp- stökkir nú, fylgja eigi jafnt í blindni, og leiðtogarnir eruað verða umburð- arlyndari. Skoðanamunur leiðir nú ekki út í hatur og illdeilur. Þetta Iiafa þeir lært í skólunum vesti-a yngri mennirnir. „Með þetta fyrir augunum er ekk- ert að hneykslast á því þótt til séu þeir menn, sem farnir eru í alvöru að spyrja,hvort eigi yæri það holl- ast fyrir oss (Vestur lslendinga) og afkomendur vora, að vér algjörlega segðum skilið við ísland og öll áhrif þaðan?“ í blöðum og tímaritum ber- ast vestur „frækorn úlfúðar, sundur- lyndisogmannhaturs," og svo bætist við hvað kristindómsóvildin víða skín út úr blöðunum heima. „Er það ekki beinlínis skylda vor að forða börn- um vorum frá slíkum áhrifum, og beina þeim á brautir nýrrar og feg- uri, menningar,sem við þeim bros- ir hér í landi og býður þeim faðm- inn?„ Ræðum. vill þó eigi „aðsvokomnu máli“ svara því játandi: „Vér meg- um, ekki enn hugsa til að slíta öllu sambandi við ísland. Vér erum því sjálfir enn ekki vaxnir.“ N. Kbl. tlytur þetta fyrirlestrar-á- grip athugasemdalaust. Vér efumst um‘ að blaðið hefði gert það, ef rit- stjórunum hefði verið kunnugt um það, sem hefir verið að gerast í sumar í blaðamenskunni með Vest- ur-íslendingum. Sami pósturinn, sem flutti hingað til lands, í Áraamótum, þessa hörðu áminningu vestan að og þessa yfir- lýsing um það, hve miklubetri Vest- ur-íslendingar séu, en vér hér heima, flutti jafnframt mikið af ís- lenzkum blöðum, þar á meðal elztu og öflugustu blöðin, Sameininguna, Heimskringlu og Lögberg. Þar hafa í sumar farið fram um- ræður, sem ekki er ófróðlegt að at- huga í sambandi við áminningu síra B. B. J., sem er flutt af svo miklu andlegu valdi. Þær umræður hófust með þeim hætti, að síra Jón Bjarnason skor- aði i mánaðarriti kirkjufélagsins, Sameiningunni, á íslenzka kirkju og kristindómsvini vestan hafs að skjóta saman fé til þess að koma upp húsi handa heimatrúboðsmönnum hér í Reykjavík. Ritstjóri Heimskringlu mælti móti þessum samskotum í blaði sínu, tjáði sig andvígan heima- trúboðsstefnunni. Þeim mótmælum svaraði sira J.B. í Sam. Þau mótmæli byrja á erind- ishelmingnum í Ulfarsrímum; Enginn bað þig'orð til hneigja illur þrællþú máttir þegja. Eftir þessu upphafi er alt orða- lagið í grein síra Jóns. Alveg er víst óhætt að fullyrða, að i engu kirkju - og trúmálariti í neirni hafi svipuð grein birzt, né heldur hefði svipúð grein getað birzt, nema í kirkjnmálariti Vestur-Islendinga Sam- einingunni. Mergurinn málsins þar annars, að ritstjóri Heimskringlu, hr B. L. Baldvinsson, hafi engan rétt til þess að ræða um annað eins og þetta, af því hann sé ekki kristinn maður I Ritstj. Heimsk. svaraði aftur með afar-harðorðri grein með fyrirsögn- inni: „Það lekur úr honum afa.“ Meðal margs annars bregður hann þar síra J. B. um, að hann sé bil- aður á geðsmunum, að hann hafi viljað spilla fyrir mannskaða-samskot- unum, og að hann beri ekki skyn á sorg þeirra, sem fyrir ástvinamissi hafi orðið, því að hann hafi aldrei neitt barn eignast. Þó kastar tólfunum, þegar Lög- berg kemur til sögunnar, fer að taka þátt í þessum umræðum. Þar rek- ur hver svívirðingargreinin aðra um B. L. Baldvinsson ritstjóra. En einna magnmest er það, sem Sigfús nokkur Benediktsson ritar þar. Hann hefir um mörg ár ritað í Heims- kringlu hinar svæsnustu skammir um Lögberg og vestur-íslenzku prestana. Nú er hann orðinn stórreiður ritstj. Heimskringlu, af því að blaðið hafði farið nokkuð hörðum orðum um ljóðabók eftir hann, bók sem ekki gæti komið til nokkarra mála að bjóða hér á landi, vegna þess, hve ruddaskapurinn er takmarkalaus, auk þess sem hún er að langmestu leyti furðu-leiðinlegur leirburður. Þessi maður tekur nú upp þykkjuna fyrir síra J. B. í Lögbergi, fyllir fjölda- marga dálka af máli um B. L. B. og kveður sér hljóðs með þessu snyrti- lega erindi: Hans er sál af klámi kýld, kroppurinn sem á gandi, alinn upp á sjávarsíld soðinni í hlandi.“ Rétt á eftir er það tekið fram til frekari áréttingar, að maðurinn, sem hér sé átt við, sé nefndur B. L. Bald- vinsson, en að faðerni hans sé mjög vafasamt, og að síldin, sem hann hafi verið alinn upp á, hafi verið soð- in í stæku hlandi! Vér hyggjum ekki þörf á að skýra nákvæmar frá þessari ritgjörð. Hún er öll nokkuð svipuð upphafinu. Þann veg er þá háttað umræðun- um í helztu blöðum Vestur-íslend- inga, sérstaklega þeim blöðum, sem standa kirkjufélaginu næst. Og svo þykir prestinum þar von, að menn vilji forðast „frækorn úlfúðar, sund- urlyndis og mannhaturs,“ sem ber- ist í blöðum og tímaritum héðan af landi, þar sem menn séu þar vestra orðnir svo miklu umburðarlyndari og skoðanamunur valdi þar ekki hatri og illeilum! í gamalli bók, sem leiðtogar vestur- ísl.kirkjufélagsins hafa miklar mætur á, er til saga um mann, sem þakkaði guði fyrir, að hann væri ekki eins og aðrir menn og ekki eins og þessi tollheimtumaður. Síra B. B. J. hefir tekist ágætlega að rifja þá sögu upp fyrir lesendum sinum. En óneitanlega á nokkuð annan veg en hann sennilega ætlast til. Prestar og keimarar. Tillögur frá presti um giigngerðar breyti ugar. Niðurl. Meðmæli höf. með aðalatriðinu í tillögunum prentum vér hér á eftir með einni örstuttri úrfelling. „Að gera presta að kennurum og kermara að prestum, það uggir mig, að mörgum muni þykja skrítin eða fáránleg eða fráleit hugmynd. En þessi hugmynd heíir nú samt fæðst og glæðst hjá mér og ýmsum fieir- um einmitt útaf nú verandi og ein- kanlega út af almentbolJalögðu skipu- lagi kristindóms og alþýðumentamála landsins. Og tilgangur þessararar tillögu um, að sameina prests- og alþýðukennarastaríið, er sá fyrst, að endurreisa til fullrar nytsemdar og viðurkenningar hina gömlu og grónu stétt í þessu landi, prestastéttina, og gjöra henni nú bæði skylt og ljúft og fært að vinna sem allra mest og bezt það starf, sem hún lengst af, og allra stétta bezt hefir unnið hér o: að kristilegri og borgaralegri menuing og uppbygging alþýðunnar; og í öðru lagi er tilgangurinn sá, að spara þjóðinni heila fjölmenna sérstaka stétt manna: alþýðukennara stéttina, sem til þessa hetir verið, og mun enn lengi vera, mjög ófull- komin, og geysi dýr eftir afnotum, og mundi kosta of fjár, ef hún ætti að verða vel fullnægjandi til verulegr- ar almennrar alþýðumentunar og

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.