Norðurljósið - 01.08.1913, Qupperneq 1
JMorðurljósið
— JVIÁNAÐARLEGT HEIMILISBLAÐ —
..I......* * *............f • •••
II. árg. • Ágúst 1913 • 8
HIÐ LEYNDA OPINBERAÐ.
Stúlka á saumastofu einni í Glasgow fann einu sinni
til sárinda í hendinni, sem uxu dag frá degi, uns hún
þoldi ekki lengur við og leitaði læknis. Hann
skoðaði höndina en gat ékki fundið hvað gekk
að henni. Hún sagði lækninum frá því, að sjer
hefði horfið örlítil saumnál, sem hún notaði við vinnu
sína, en það virtist ómögulegt að
setja það í samband við sárindin
í hendinni, því ekkert sást á henni.
En eymslin uxu svo, að læknirinn
afrjeð að skoða höndina með
Röntgens-geislum, til að vita hvort
nálin hefði ekki einhvernveginn
komist inn í hana.
Þessir undrunarverðu geislar voru
reyndir, og þá sást það, sem lækn-
arnir gátu ómögulega sjeð án þeirra
hjálpar. Þar var saumnálin, langt
inn í þumalfingrinum! Hafði hún
orsakað alla þrautina. Hún var
þegar tekin í burtu og stúlkunni
batnaði.
* +
Maður nokkur var gritnaður um
að hafa stolið gullpeningi og var
hafin rannsókn fyrirvaralaust inni
í herbergi hans. Hann var sekur,
en vildi fyrir alla muni kom-
ast hjá því, að verða uppvís.
Hann gat ekki fleygt peningnum út urn gluggann
án þess að lögreglumennirnir, sem framkvæmdu
rannsóknina, sæju það; en hann notaði tækifærið,
á meðati þeir voru báðir að rannsaka skúffur og
skápa, að ná í peninginn og stinga honum upp í
sig. Lögreglumennirnir fóru síðan að rannsaka mann-
inn sjálfan og báðu hann að lofa sjer að líta upp í
hann. Maðurinn var í ráðaléysi, en þorði þó ekki að
kannast við sekt sína og gleypti peninginn án þess að
hugsa um, hverjar afleiðingarnar gætu orðið.
En lögreglumennirnir þóttust vita hvað maðurinn
hefði gert og Ijetu taka mynd af brjósti hans, með
Röntgens-geislum. Þegar myndin var fullger, sást pen-
ingttrinn greinilega þar sem hann hafði sest að!
Fyrir hjer um bil httndrað árum,
þegar víkingaskip voru altíð við
austurstrendur Bandaríkjanna, var
eitt slíkt skip, sem hjet »Nancy«,
á víkingaferð, þegar breskt herskip
bar að, sem hjet *Sparrow«. Vissi
foringinn hverskonar skip »Nancy«
var og fór að elta það. Hann náði
henni, en gat ekki fundið neitt á
skipinu nje heldur í skjölum þess,
sem væri athugavert. Var hann
samt ekki vel ánægður, því hann
grunaði að skjölin væru fölsuð,
og ljet skipið fylgja sjer til næstu
hafnar, Kingston í Jamaica, til
þess að málið yrði frekar rann-
sakað.
En það var annað herskip, sem
sigldi sama sjó og hjet »Aberga-
venny«. Einn dag tók foringinn
eftir dauðu nauti, sem lá t fjör-
unni og var umkringt af hákörl-
um. Hann Ijet menn sína taka
nautsskrokkinn og draga hann á eftir sjer, til þess að
reyna að veiða hákarlana. Þeir náðu einum stórum
hákarli og drógu hann upp á þilfar. Þegar menn fóru
að skera upp hákarlinn, fanst skjalaböggull í maga
hans og var bundið Utanum hann með spotta. Innan í
bögglinum voru skipsskjöl frá skipi, sem »Nancy« hjet,
og áleit foringinn að þau mundu geta komið að ein-
hverjti gagni, ef hann geymdi þau. Næsta höfn, sem
hann kom í, var einmitt Kingston í Jamaica, og her-
Mynd tekin mcð Rontgens-gcislum.