Norðurljósið


Norðurljósið - 01.09.1913, Síða 3

Norðurljósið - 01.09.1913, Síða 3
NORÐURLJOSItí 67 Biblíari er ekki dauð ennþá! Á meðan efunarmennirnir sitja í hægindastólum sín- um og spinna upp nýjar aðfinningar gegn biblíunni, nota margir aðrir hana til þess að hjálpa og göfga þá, sem fallnir eru í synd og freistni, og sjest það á árangr- inum, hvort bókin er af Guði eða ekki. Það er nóg að vitna aðeins til áhrifa biblíunnar í einni borg til að sanna það, að ritningin er ekki þetta úrelta, útdauða sögusafn, sem »biblíugagnrýnendur« virðast benda á. í fyrra vetur hjelt alkunnur trúboði, að nafni »Gipsy Smithc (Smith sígaunari) vakningarsamkomur í borginni Los Angeles á Kyrrahafsströnd. Gipsy Smith er mjög gáfaður ræðu- og söngmaður, en var umkomulítill, ó- mentaður sígaunaradrengur, þegar kærleikur Guðs hreif hjarta hans og kallaði hann til þess að verða þjónn hans. Seinna meir fjekk hann köllun frá Guði til að boða Krist og hann krossfestan og hefir hann síðan eflaust unnið nokkur þúsund sálir Drotni til handa. Hinir ýmsu söfnuðir í Los Angeles buðu Gipsy Smith sameiginlega að koma og halda samkomur í borg þeirra, og leigðu samkomusal fyrir kvöldsamkomurnar með sætum handa 6,000 mönnum og annan sal fyrir hádegissamkomur, sem hafði sæti handa 3,500. En að- sóknin varð svo mikil, að það hefði mátt fylla sal, sem var þrisvar sinnum stærri! Árangurinn af þessum samkomum varð sá, að milli 5 og 6,000 manna játuðu Krist sem frelsara sinn og gengu inn i einhvern af söfnuðunum þar í borginni. Annan sunnudaginn, sem trúboðinn var þar, gengu 10,000 karlmenn i skrúðgöngu um götur borgarinnar og hafði hver þeirra bibliu í hendi. í þessari sömu borg (Los Angeles) eru menn að reisa afarstóran Biblíuskóla, þar sem trúboðaefni og aðrir, sem ætla á einhvern hátt að starfa fyrir Guð, geta feng- ið rækilega tilsögn í kenningum biblíunnar. Rektor skólans verður Dr. Torrey, höfundur bókarinnar: »Krist- ur, biblían og vantrúin«, sem hefir komið út á íslensku, og það verður tveggja ára námskeið. Mönnum verður þar ekki kend nein hálfvolg únitaratrú, eins og far- ið er að kenna hjer á landi, heldur fnun »gömlu stefnunni« verða fylgt af lífi og sálu. Stærsti salurinn í þessari byggingu hefir 4,500 sæti, og það verða 700 svefnherbergi handa nemendum. í öðrum sal eiga að verða um 900 sæti, og verða margar kenslustofur. Það lítur ekki út fyrir að biblíutrúin sje alveg að deyja út, eins og sumir guðfræðingar í Reykjavík eru að telja mönnum trú um! Því síður er það satt, sem hefir sjest oftar en einusinni í íslenskum blöðum, að allir guðfræðingar, sem nokkuð kveður að, hafi yfirgef- ið hina gömlu skoðun á biblíunni. /\thugasemdir ritstjórans. Menn hafa stundum spurt ritstjórann um það, hvaða trúarflokki hann tilheyri og hverri stefnu hann fylgi. Síðari spurningunni er best svarað, með því að benda á »Norðurljósið«, því öllum lesendum hlýtur að vera Ijóst hver stefnan er. En um hina fyrri er það að segja, að hann hefir lengi skilið ritninguna þannig, að Guð hafi ekki ætlast til að börn sín skyldu skifta sjer í flokka, (sbr. Jóh. 10. 16.; Jóh. 11. 52.; 1. Kor. 1. 11.-13.: L Kor. 3. 1.—4.), heldur að þau skyldu verða eitt, (Jóh. 17. 21.), eins og þau voru í byrjun kristninnar. Þessi sann- færing hefir bannað honum að vera í neinum trúarflokki, en hann hefir álitið alla, sem elska Drottin Jesúm af einlægu hjarta, sem bræður sína. Guðs orð sjálft gefur oss allar nauðsynlegar leiðbeiningar um safnaðarskipun og hegðun Guðs barna að öllu leyti; og það er betra að eiga Guð sjálfan að, en að treysta á menn með upp- eldi sitt. Samfjelag það, sem Jesús Kristur kannaðist við og. heyrði til, var undravíðtækt. -Sjerhver, sem gerir vilja föður míns á himnum, hann er bróðir minn og systir og móðir.« Getum vjér kosið betra bræðralag en þetta? * ♦ * Lesendur muna eflaust eftir greininni: »Spaða fimm«, sem birtist í júní-blaðinu og vakti töluverða eftirtekt. Þessi grein er nú sjerprentuð í litlu broti, og er ritið þannig brotið saman, að það lítur út eins og spiL Mega allir lesendur blaðsins, sem vilja, fá 20 eintök af ritinu send með pósti, fyrir 10 au. (í frímerkjum ef vill), ef þeir vilja útbýta þeim á meðal kunningja sinna ókeypis. * * • Ritstjórinn biður menn misvirða það ekki, þó þetta blað komi út á eftir tímanum. Valda því óvenjulega miklar annir síðustu mánuðina. Október-blaðið kemur iit svo fljótt sem unt er. Ritstjórinn þakkar mjög vel fyrir öll brjef, sem hann hefir fengið frá lesendum og treystir þeim að taka því ekki illa, þó hann svari að- eins þeim brjefum, sem nauðsynlega þurfa svars. Hin eru altaf afgreidd samviskusamlega og oftast með næsta pósti, og menn eru sjerstaklega beðnir um að láta rit- stjórann vita, ef ritin eða meðölin, sem þeir biðja um, koma ekki með góðum skilum.

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.