Norðurljósið


Norðurljósið - 01.10.1913, Qupperneq 1

Norðurljósið - 01.10.1913, Qupperneq 1
PJORÐURLJÓSIÐ — JVIÁNAÐARLEGT HEIMILISBLAÐ — II. árg. • Október 1913 •• 10 »Skerið taugina og látið mig falla!« Það fara margar sög- ur af fjallgöngumönn- um á Svisslandi og eru margir fylgdarmenn orðnir frægir fyrir af- reksverk sín. Mörgum ríkismönnum frá Eng- landi, Frakklandi og Þýskalandi þykir engin skemtun á við þessa fjallaleiðangra, en því miður* koma slysfarir þar alloft fyrir. Frakkneskur ferða- maður sagði eftirfylgj- andi sögu í fyrirlestri, sem hann flutti nýlega. Fjórir ferðamenn og tveir fylgdarmenn voru á ferð upp fjallið Matt- erhorn. Þegar degi var farið að halla voru þeir sex á ferð yfir mjög hættulegan fjallhrygg, og voru þeir bundnir saman með sterkri taug. Fylgdarmaðurinn, sem fremstur var, var að þreifa sig áfram fet fyrir fet, en þegar minst varði, datt hann ofan fyrir þverhnípt bjarg og hjekk í lausu lofti á tauginni. Honum varð það . strax ljóst, hvílík hætta fjelögum hans stóð af falli hans og vissi að hann gat dregið þá alla á eftir sjer út í dauð- ann. Með dæmafárri fárnbrautarvagn, sem jer niður Pitatus-fjall (7290 fet), Sviss. [Það eru margar járnbrautir nú orðið í Alpafjöllunum, og fara sumar nærri því alla leið upp fjöllin. Rafmagn er aflið, sem knýr. lestirnar upp hina bröttu braut. Hvenær fáum vjer slíka járn- braut á Islandi?] hugrekki og sjálfsaf- neitun kallaði hann upp: »Skerið taugina og lát- ið mig falla, annars förumst við allirU Vjer getum ímyndað oss, hvað það kostaði hann að segja þetta, þegar hann hugsaði um konu sína og barn niðri 'í dalnum, sem líklega mundu ekki svo mikið sem fá að sjá lík hans. Á því augna- bliki, á méðan hann beið þess, að skorið var í taugina, rann öll æfi hans upp fyrir aug- um hans, eins og í sýn, syndir, sem lengi höfðu legið í gleymsku, hugsanir, orð og verk, sem enginn maður vissi urn, komu nú fram fyr- ir hugsjónaraugu hans tneð mikilli nákvæmni. Ferðamennirnir vildu þó ómögulega sleppa honum að svo komnu, heldur gerðu alt, sem í þeirra valdi stóð, til að draga fylgdarmanninn upp aftur. En þeim gekk seint, því að það var afartorvelt að fá góða fótfestu. Loksins gat fylgdarmaðurinn náð í hnífinn sinn, tók hann upp og skar sjálfur í sundur taugina, svo að hann fjell ofan í

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.