Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 10
10
NORÐURLJÓSIÐ
fannst honum, að kona hans og börn væru því til hindrunar, að
bann gæti drukkið eins og hann vildi. Þetta var aðeins ímyndun
sj álfs hans, segir hann. Kona hans jagaðist aldrei í honum út af vín-
nautn hans. Hún kom aldrei illa fram við hann á nokkurn hátt. Samt
yfirgaf hann fjölskyldu sína og fla'kkaði um sídrúkkinn í tvö ár. Þá
hafnaði hann í fangaklefa. Þar komst hann í kynni við biblíuna, las
hana, leitaði á fund Krists og tók á móti honum sem frelsara sínum.
Sumar þeirra ritningargreina, sem hjálpuðu honum mest, nefnir
hann í bók sinni. Skrifið Róm.. 10. 13., því að í Rómverjabrófinu
10. kafla og 13. grein standa þessi orð: „Hver, sem ákallar nafnið
Drottins, mun hólpinn verða,“ mun frelsast. Ritið ennfremur Jóh.
1. 12., því að í Jóhannesar guðspjalli, 1. kafla og 12. grein standa
þessi orð: „Ollum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að
verða Guðs börn; þeim, sem trúa á nafn hans.“ Ritið líka Jóh. 5.
24., því að þar stendur: „Sá, sem heyrir mitt orð og trúir þeim, sem
sendi mig, hefir eilíft líf o.g kemur ekk i til dóms, heldur hefir hann
stigið yfir frá dauðanuim ti'l lífsins.“
Jerry G. Dunn trúði þessum orðum og öðrum líkum þeim. Hann
tók Krist á orðinu, kom til hans, tók á móti honum sem frelsara sín-
um og Drottni. Hann endurfæddist, varð nýr maður, ný sköpun, ný
skepna, eins og það er þýtt í okkar biblíuþýðingu. Hið gamla varð
að engu, allt varð nýtt í Kristi, í trúnni ó hann. Ritið 2 Kor. 5. 14.—-
17., því að í 2. Korintubréfi 5. kafla er talað uim þessa nýsköpun
mannsins fyrir trú á Krist.
Nú var Jerry kominn í sömu spor og Zakkeus, sem tók á móti
Kristi. Eins og hann varð Jerry að fara að gera upp við mennina,
bæta fyrir hið liðna. Fyrst af öllu sneri hann heim til fjölskyldu
sinnar til að fá fyrirgefningu konu sinnar, sem hafði særzt djúpu
sári, er maðurinn yfirgaf hana. Sama var að segja um eldri son
hans. En gerbreytt framkoma hans á öllum sviðum og stöðugar bæn-
ir hans til Guðs fyrir konu og syni unnu sigur að lokum. Konan
hans, sem bafði þj'áðst svo mikið af völdum hans, leitaði líka á fund
frelsarans, endurnýjaði samband sitt við hann og fékk fulla lækning
á sárinu mikla, og sonur hans sætfist einnig við föður sinn.
Þannig verður maður, sem leitar Krists, að gera upp, bæta fyrir
hið liðna af fremsta megni. Hann getur það, þegar hann er orðinn
nýr maður. Hann fær nýjan kraft til að breyta rétt og til að elska