Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 12
12
NORÐURLJOSIÐ
í Marikúsar guðspjallli, upphafi 2. kafla, er oikkur sagt frá fjór-
um mönnum, seim báru lama mann til Jesú. Þeir trúðu því, að Jesús
mundi lækna hann, ef þeir aðieins gætu komið 'honum til Jesú. Þeir
létu ekkert tálma sér. Jesús sá trú þeirra og læknaði manninn, —
fyrirgaf honum syndir hans og læknaði hann. Það hefði verið ein-
nm manni ofraun að framkvæma þetta verk kærleikans. Sameinað
átak fjögrurra manna dugði.
Ég er stundum beðinn að biðja fyrir mönnuim, sem oínautn
áfengis hefir fært í fjötra. Ég get búizt við, að ég fái flieiri slíkar
beiðnir. Hverjir vilja hjálpa mér? Hverjir vilja skrifa mér og bjóða
fram þátttöku í þessari þjónustu, mynda það, sem kallað er bæna-
hringur? Ég vil geta þess, að með bænabeiðnir er farið sem trún-
aðarmál.
Ritið nú að lokurn Matt. 11. 28.—30., því að í guðspjalli Matteus-
ar, 11. kafla, niðurlagi hans, er þetta tilboð frelsarans: „Komið til
mín, allir þér, sem erfiðið ag þunga eruð hiaðnir, og ég miun veita
yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið a;f mér, því að ég jer hóg-
vær og af Jrjarta lítillátur, og þá skuluð þér finna sálum yðar hvíld;
því að mitt ok er indælt og byrði mín létt.“ Hugleiðið þessi orð og
hin, sem þið hafið ritað.
Drottinn Jesús býður oikkur öllum að koma till sín, koma með
þreytu okkar og þungar byrðar lífsins, vandamál okkar og von-
brigði, koma með særðan buga, hjarta'kvalir og hrygga sál. Vitnis-
burður minn er: „Ég kom til Jesú, sár af synd, af sorg, af þreytu og
kvöl; og nú er þreytta hjartað Jivílt, og horfið allt mitt böl.“
Hafi þökk þeir, sem blýddu. Komið til Jesú.
EFTIRSPJALL.
Síðan ofanskráð erindi var flutt, hefi ég fengið það staðfest bet-
ur en nokkru sinni fyrr, hve mikilvægt er fólki, sem losna vill úr
fjötrum ofnautna;r áfengis, að það einsetji sér aS skilja þetta: „Ég
má aldrei framar bragða áfengi.“ Fólk má ekki fremur víkja frá
þessari varðstöð sinni en slökkvilið frá eldi, meðan enn logar eða
rýkur úr húsi, sem kviknað hefir í. „Aldrei framar að eilífu með
Guðs hjálp. Akfrei framar í nafni Drottins míns Jesú Krists.“ Þetta
er einbeitt afstaða. Guð blessar þeim hana, sem taka hana. Hún er
honum þóknanleg. S. G. J.