Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 62
62
NORÐTJRLJ ÓSIÐ
húsið, sem við búum í. Við höfum líkami, en við erum sálir. Mikill
fjöldi fólks, sem er ekki þreytt líkamlega, þarf að bera ádeilur skyn-
seminnar, ásakanir samvizkunnar og svíðandi hjarta.
Sumu fólki virðist lífið tómt, fánýtt fyrirtæki, sem varla svarar
kostnaði. Þeir eru vonsviknir og vonlausir. Svipurinn getur verið
broshýr. En maðurinn bak við andlitið er allt annað en hýr! Fólk
er þreytt af að vita ekki, til hvers það er í heiminum. \
Aðrir menn eru þreyttir af óvissu um framtíðina. Þeir vita, að á
bak við gröfina er eitthvað, en þeir eru ekki reiðubúnir. Á þeim
stundum, þegar þeir hugsa alvarlega, setja þeir ósjálfrátt dauðann og
lífið eftir hann í samband við guðlegan dóm, og þeim líður illa.
Ágizkanir og vonir — eða ótti —- gagna ek'ki.
Aðrir hafa þreytzt á að leita ánægju í lystisemdum lífsins. Þeir
hafa reynt margt, sjá nú fánýti þess og eru vonsviknir.
Aðrir eru orðnir þreyttir á siðferðislegum ósigrum sínum. Ein-
hver löstur drottnar yfir þeim. Þeir hafa barizt við hann, en ekki
unnið istríðið. Kjarkur og von eru hnigin niður, ráðþrota og ör-
magna.
Aðrir eru að reyna að sættast við Guð með eigin mætti og verð-
leikum. Meðan þeir eru á þeirri braut, öðlast þeir aldrei frið eða
öryggi.
Lækning er til við öllum tegundum þreytutilfinningar. Þú veizt,
hvar hana er að finna. Utanbókar kannt þú orðin, sem boða hvíld
þeim, er byrðar bera: „Komið til min allir þér, sem erfiðið og þunga
eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.“ Þessi hvíld getur orðið
þín eign.
En það er eitt skilyrði, sem þú verður að ganga að, en hefir ekki
gengið að hingað til: Þú verður að koma til Drottins Jesú, gefa þig
alveg á vald hans og treysta honum.
Á þann hátt, og aðeins á þann hátt, muntu öðlast hvíld frá ádeil-
um skynseminnar, ásökunum samvizkunnar, frá svíðandi hjarta. Þú
munt öðlast fyrirgefningu syndanna. Nýtt innra frelsi og styrk munt
þú eignast. Þér hlotnast markmið í lífinu og fullvissa um eilífa vel-
ferð þína.
Innra með þér munt þú eiga nýtt líf, sem er líkt og vatnslindin í
sálinni, óþrjótandi uppspretta endalausrar fullnægju.
(Þýtt úr „The Sword of the Lord“.)