Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 68
68
NORÐURLJÓSIÐ
og stjórnist af honum — að leiðrétta hann og endurreisa hann og
setja hann inn aftur, án nokkurrar tilfinningar um yfirburði og
með fullri ljúfmennsku, og hafðu vakandi auga á sjálfum þér, svo
að þú skulir ekki freistast líka.)
Til þess að svara spurningunni nægilega vel, þyrfti ég að þekkja
allar kringumstæður, (þegar beita þarf gagnrýni.) Ef, til dæmis,
verkstjóri eða skrifstofustjóri finnur að starfsmanni, þá er það oft-
ast skylda hans að gera það. Hann er ráðinn til þess að gera þetta,
og undirmenn hans vita, að þetta er einn þáttur starfs hans, svo að
þeir búast við því. Eigi að síður ætti þetta að vera gert í réttbm
anda.
„Dæmið ekki eftir ásýndum, heldur dæmið réttlátan dóm.“ (Jóh.
7. 24.) (í Ampl. Bible: Verið heiðarleg ir í dómum ykkar og gefið
eikki úrskurð á svipstundu — yfirborðskennt og eftir útliti; — en
dæmið sanngjarnt og réttvíslega.)
Herra Davis, til dæmis, var bráðskarpur framkvæmdastjóri, og
góður fjárhagur fyrirtækis hans var mikið honum að þakka. En
þegar hann átti við starfsmenn sína og undirmenn, var hann eins
og þjösni. Hann var svo aðfinnslusamur, að hann vakti andúð,
jafnvel áður en hann byrjaði á þeim. Ollum hans starfsmönnum féll
því illa við hann, þar sem þeir fundu þennan rangláta gagnrýni-
anda, þótt það geti verið, að þeir hafi þarfnazt leiðréttingar. Auð-
vitað hafði hann engin áhrif, og starfsmenn hans bættu ekki úr
göllum sínum.
Hins vegar, ef þú ert kvæntur maður eða gift kona, þá er inn-
byrðis afstaðan önnur. Fyrst af öllu verður þú að skilja konuna eða
manninn, sem þú gagnrýnir. Vera má, að hún eða hann liafi ekki
öðru kynnzt en aðfinnslum á ævinni. Gagnrýnin getur því orðið
„stráið, sem sligar úlfaldann." Aðfinnslum verður því að beita á
þann hátt, að þær styðji og uppörvi.
Rikki, maðurinn hennar Kötu, var frábærlega aðfinnslusamur.
Ógerningur virtist að gera honum nokkuð til hæfis. Kata varð svo
vön gagnrýni hans, að hún hætti að gefa henni gaum. Af því leiddi,
að hún lagaði ekki galla sína, og Rikki hélt aðfinnslum sinum
áfram. Af þessu leiddi, að hjónabandið var í hættu: að leysast upp,
unz ráðgefandi sérfræðingur gat látið þau sjá, að bæði yrðu þau
að breyta um stefnu og fara að laga sig hvort eftir öðru.
Ef þú setur út á son þinn eða dóttur, þá vebður það einnig að