Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 74
74
NORÐURLJ OSIÐ
„Það er dæmisaga,“ segja menn. Sé það, hvað er henni ætlað
að kenna? Greinilega það, að menn hafa fulla meðvitund eftir
dauðann, þegar þeir eru komnir í dánarheima. Hafi hinir dánu,
sem sagt er frá í sögunni, sofið án meðvitundar, þá hefði Drott-
inn Jesús Kristur ekki átt að segja þessa sögu.
En sagan er ekki dæmisaga. Hún lýsir raunveruleik. Það sýna
fylgjandi staðreyndir:
1. Lúkas hafði „rannsakað allt kostgæfilega frá upphafi.“ Hann
var mjög nákvæmur sagnritari.
2. Bók hans var innhlásin af heilögum Anda eins og aðrar bæk-
ur heilagrar ritningar. Þess vegna er farið rétt með allt, sem sagt
er frá, hvort sem sagt er frá réttu eða röngu, illu eða góðu.
3. Andi Guðs lét Lúkas nota orðið „dæmisaga“ 16 sinnum í
guðspjallinu. Það orð er ekki notað í sambandi við þessa sögu eða
neitt í henni.
4. J 15. og 16. kafla Lúkasar guðspjalls eru fimm sögur. Hin
fyrsta er kölluð dæmisaga. Hún er um týnda sauðinn. Hún lýsir
þremur staðreyndum: Sauðir voru til, gátu týnzt og hirðir þeirra
leitaði þess, sem týndist.
Það er staðreynd, að konur í Gyðingalandi áttu 10 drökmur.
Þær voru gjöf brúðgumans, er þau giftust.
Það er staðreynd, að ungir menn fara stundum að heiman og
lenda í óreglu og eyða fé sínu. Fundizt hefir bréf frá svipuðum
tíma og dögum Krists. Það er frá ungum manni, sem eytt hefir
öllu fé sínu fjarri heimili sínu og biður leyfis að mega koma heim.
Sagan af rangláta ráðsmanninum lýsir staðreynd. Fjárdráttur
var til á dögum Krists. Hann er til enn í dag. Sagan lýsir því, sem
gerist í lífinu.
Fimmta sagan er svo af ríka manninum og Lazarusi. Var til fá-
taökt og ríkidæmi á dögum Krists? Vitaskuld. Mennirnir, ríki mað-
urinn og Lazarus, fara báðir í dánarheima. Eru dánarheimar til:
Biblían segir það og talar margsinnis um þá.
5. Abraham var sannsögulegur maður. Hann var í dánarheim-
um. Lazarus var borinn í faðm hans af englum.
6. Ríki maðurinn átti fimm bræður á lífi. Honum var annt um,
að þeir kæmu ekki í þann kvalastað, þar sem hann var. Ef ríki
maðurinn svaf í gröf sinni meðvitundarlaus, ef hann var ekki í