Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 78
78
NORÐURLJÓSIÐ
því viljið, að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera.“
Sú saga er sögð, að læða nokkur lá á kettlingi sínum í stofu í
húsi einu. Kom þar inn fólk, sem fór að reykja. I>á reis kisa upp,
tók kettlinginn milli tanna sér og bar hann út úr stofunni. Hún
flúði úr tóbaksreyknum með barnið sitt. Það er hart, að mennskir
menn hafi ekki 'kattarvit, svo að þeir hlífi afkvæmum sínum við
eitruðum tóbaksreyk. — S. G. J.
Fagnaðarerindið boðað með talplötum
Hvað eru mörg tungumál töluð í heiminum? 2000? 5000? 7000?
Enginn veit það í raun og veru, af því að í hverjum mánuði finnast
einhvers staðar nýjar kynkvíslir, sem tala mál, er enginn hefir þekkt
áður.
Einhver biblíurit hafa verið þýdd á meira en 1200 tungumál. Svo
að þeir, sem lesið geta þessi mál og geta náð í eintak af orði Guðs,
geta sjálfir lært þar um Drottinn Jesúm Krist.
Hvað á þá að segja um hina, sem geta ekki lesið eða talað tungu-
mál, sem ekki hafa verið ritfest?
Fyrir nálega 30 árum fékk kventrúboði nokkur þá hugmynd, að
búnar væru til grammófónplötur, sem flyttu fagnaðarerindið. Hún
byrjaði með spönsku, og plöturnar voru notaðar í mörgum löndum
Mið- og Suður-Ameríku.
Þegar fólk hlustaði aftur og aftur á sama boðskapinn, fóru menn
að byrja að skilja, að þeir væru syndarar og að Guð elskaði þá.
Margir urðu sannkristnir menn.
Á nálega 3500 tungumálum. er nú fagnaðarerindið flutt af tal-
plötum. Hugsið um allt þetta sannkristna fólk, á öllum þessum mis-
munandi málum!
Plöturnar eru spilaðar á sterka, vélarlausa „Fónettu“, smáfón,
sem er mjög ódýrt að búa til. Engu skiptir, hve hratt er snúið sveif-
inni. Orðin eru skýr og heyrast vel.
Það kostar 8—10 stunda vinnu að geta talað inn á eina talplötu,
sem er spiluð á þremur og hálfri mínútu. Orðin eru töluð inn á plöt-
una af manni, sem er af þeirri þjóð eða kynkvísl, sem platan er
ætluð.