Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 84
84
NORÐURLJÓSIÐ
ir eru friðsemjendur.“ Það vegsamar enginn Guð með því, að koma
viljandi af stað stríði og þrætum. Það hjálpar engum til að frelsast.
Skuldir eru skaðteg byrði.
„Ég kom í bankann hér um daginn,“ segir dr. Bill Rice, „og þeir
spurðu um efnahag minn, hvernig hann stæði. ,Ég lét ykkur hafa
efnahagsyfirlit mitt í fyrra eða árið þar áður.‘ “
Þeir spurðu: ,Hve mikla peninga skuldið þér?‘
,Ég skulda ekkert. Ég skulda engum peninga.*
,Nokkrir læknareikningar ógreiddir?1 ,Nei, herra.‘
,Skuldir hjá tannlækni.' ,Nei.‘
,Skuldið þér nok’kuð í matvöruverzlunum? Hafið þér þar mán-
aðarreikninga ? ‘
,Nei, herra, ég skulda hvergi eyri.‘
„Ég er hvergi í mánaðarreikningi hjá matvöruverzlunum eða
benzínsölum. Ég segi ekki, að rangt sé að hafa mánaðarreikninga.
En það er fátt í þessum heimi, sem ég er eins hræddur við og skuld-
ir. Ég sé ekkert rangt við það, að kaupa með afborgunum. Ég
kaupi stundum bifreið þannig, af því að hún er trygging fyrir
skuldinni.
„Ég hefi margsinnis haldið vakningarsamkomur, þar sem mér
var ekki unnt að vinna nokkurn mann úr viðskiptaheiminum Kristi
til handa, af því að presturinn, safnaðarhirðirinn, eða einhver
annar var alstaðar skuldugur og gat ekki borgað.
„Hefir þú nokkru sinni reynt að tala við mann um Jesúm Krist,
mann, sem þú skuldar peninga og getur ekki borgað? Reyndu það.
Þú munt komast að raun um, að skuldin er byrði.“
Vegna Jesú.
„Beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúar-
innar.“ Ef við gerðum það, sem við gerum, vegna Jesú, það mundi
gerbreyta ævi okkar, hvötum okkar, viðhorfi okkar, afstöðu okkar.
Setjum svo, að milljónamæringur sé á ferðalagi og lendi í ein-
hverjum töfum og fái ekkert að borða í tvo eða þrjá daga. Mundi
honum finnast öll ósköp til um það? Hann veit, að óþægindin vara
aðeins um stundarsakir. Hann á sínar milljónir. Hví þá að fárast
yfir þessu? Þetta stendur svo stutt.
Sannkristið fólk ætti að hafa það á tilfinningunni, að allt hér
neðra er skammvinnt. Lífið er skammvinnt. Hvað? Ég á himnesk-