Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 91
NORÐURLJÓSIÐ
91
Molar frá borði Meistarans
(Greinir handa lærisveinum Krists.)
1.
HIÐ SIGURSÆLA LÍF.
Eftir Arthur Gook.
Sern afmœlisgrein á fimmtíu, ára afmœli Norðurljóssins er „Hið
sigursœla líf“ endurprentað hér úr 2. og 3. árg. þess. Eru þrjár
ástœður fyrir þessu.
1. Efnið er sígilt, á alltaj erindi til Guðs harna.
2. „Hið sigursœla líf“ gerhreytti lífsstefnu og þar með œvi nú-
verandi ritstjóra Nlj.
3. Þetta er birt til að heiðra minningu höfundarins, míns and-
lega föður og frœðara, en ég er í þakkarskuld við hann, sem eigi
verður goldin. — S. G. J.
Allir trúaðir, sem hafa öðlazt nokkra reynslu og hafa þekkt mörg
önnur Guðs börn, hljóta að hafa tekið eftir auðsjáanlegum mun á
lífi trúaðra manna. Hjá sumum er kraftur, sem hinir þekkja ekki.
Það er glampi í augum þeirra, gleðibros á andliti þeirra, sem aðrir
skilja ekki; þeir eru bjartsýnir og finna eitthvað gott í öllu, sem
kemur fyrir. Þeir eru sjaldan óánægðir, þeim. þykir gaman að öllu
starfi, sem þeir þurfa að gera, og það er yndi þeirra að lesa eða
heyra Guðs orð eða tala við Guð í bæn. Þeir eru ekki stundum kát-
ir og brosandi og stundum þungbúnir og leiðinlegir, heldur er lífs-
gleði þeirra eins og straumur, sem rennur svo djúpt, að varla heyr-
ist niður eða sést gári. Þeir eru ekki fullkomnir, en kannast hrein-
skilnislega við það, ef þeim verður á. Þeir berjast góðu baráttunni
gegn synd og freistni með einbeittum vilja, enda sýnir breytni
þeirra, að þeir eru að brjóta á bak aftur sérhverja freisting, sem
hefir, ef til vill, tekið þá til fanga áður en þeir þekktu Krist.
Hvað er það, sem greinir þessa menn frá öðrum, jafnvel öðrum
trúuðum? Hver er þessi kraftur, sem þeir virðast hafa fram yfir
aðra?
Það er ósk höfundarins, að sýna í þessari stuttú ritgerð: að þessi