Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 102
102
NORÐURLJÓSIÐ
Ég veit vel, að „heimurinn“ skilur ekki þessa kenningu og telur
hana auðvitað „þröngsýni“ eina. En hlutverk vort er að þóknast
Drottni, ekki heiminum.
Heyrt hefi ég þá mótbáru, að vér getum betur unnið heimsins
börn fyrir Krist, ef vér samlögumst þeim meir. Einkennilegir þjón-
ar erum vér, ef vér ætlum að þjóna vorum alvitra Drottni með því,
að þverbrjóta skipun hans! Auk þess er það alveg ósatt, að þeir
vinni heimsins börn fyrir Krist, sem skeyta ekkert þessari kenningu.
Saga kristninnar og reynsla núlifandi þjóna Guðs, sem hafa unnið
flest fólk fyrir Krist, sýna glöggt, að maður, sem gengur mjóa veg-
inn og samlagar sig ekki heimsins börnum, hefir alltaf haft meiri
áhrif á þau til góðs heldur en hinn, sem þykist þekkja betri starfs-
aðferð en meistari hans fyrirskipar. Hver voru áhrif Lots á íbúa
Sódómu? Hefði ekki Abraham, hinn „þröngsýni" (!) orðið þeim
að meira gagni, hefði nokkur réttlátur maður fundizt lijá þeim?
Yfirleitt hafa trúaðir menn á íslandi, því miður fylgt stefnu Lots,
en ekki Abrahams. Þess vegna virðast þeir hafa nærri því engin
áhrif á þjóðina i heild, svo að ísland er víst eina menningarþjóðin,
þar sem aldrei hefir risið andleg vakningar alda.
Ætlar þú, lesari minn, að fylgja þessari óhlýðnistefnu?
„Guð hefir gefið þeim heilagan Anda, sem honum hlýða.“ (Post.
5. 32.)
4.
Tak þá þá föstu ákvörðun, að þá viljir aldrei leyfa, að nokkuð
eif'i sér stað í líji þínu, sem þá ert ekki jás til að tala um við Guð í
bœn. Án þeirrar ákvörðunar verður enginn sigur. Bænin er sá próf-
steinn, sem á að prófa allt með, sem gera skal. Menn verða í vafa um
margt, og ritningin kennir oss, (Róm. 14. kap.), að það sé synd að
gera nokkuð það, sem vér erum í vafa um, hvort sé leyfilegt eða ekki.
Vér eigum að ganga úr skugga um það, áður en vér gerum það,
með því að lesa Guðs orð og biðja Guð innilega um leiðbeiningu. Ef
vér höfum einlæga, hreina löngun eftir því, að þekkja vilja Guðs og
gera hann, þá fáum vér fljótlega leiðbeiningu. En ef vér höfum innst
í hjartanu ákveðið með sjálfum oss, hvað vér ætlum að gera, þá er
ekki til neins að leita leiðbeiningar hjá Drottni. Maður nokkur
kom til mín og sagðist óska leiðbeiningar úr ritningunni um visst
efni, sem hann var í vafa um. Ég opnaði 'biblíuna og las nokkra
kafla viðvíkjandi því máli, sem hann vildi fá leiðbeiningar um.