Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 115
NORÐURLJÓSIÐ
115
Kristi“, mun tungan oft loða föst í munni vorum þannig, að vér
berum ekki óþarfar sögur um náungann eða tölum illa um hann.
Jesús talaði sjö sinnum frá krossinum, þegar þess gerðist þörf,
þannig munum vér og tala skýrt og hreinlega, þegar trúfesti við
málefni Drottins krefst þess.
Drottinn Jesús sigraði með því að deyja; og það er einmitt með
því að „krossfesta holdið með ástríðum þess og girndum,“ (Gal.
5.24.), að vér lifum sigursælu lífi.
10.
Lendar yðar séu gyrtar og lampar yðar logandi, og verir sjálfir
líkir mönnum, sem bíða eftir húsbónda sínum. (Lúk. 12.35, 36.)
Með þessum orðum og mörgum öðrum brýnir Drottinn Jesús
fyrir lærisveinum sínum, að þeir eiga að lifa í voninni um endur-
komu hans. Englarnir sögðu, þegar Drottinn fór upp til himins:
„Þessi Jesús, sem var upp numinn frá yður til himins, mun koma
á sama hátt og þér sáuð ihann fara til himins“ (Post. 1.11.). Postul-
arnir vitna oft og einatt í bréfum sínum um endurkomu Krists, sem
er „hin sæla von“ safnaðarins. Hvert sinn sem kristnir menn minn-
ast Drottins síns við kvöldmáltíðina, gera þeir það, „þangað til
hann kemur,“ (1 Kor. 11.26.)
Það er mjög lítið talað og ritað um endurkomu Kfists, og menn
leggja yfirleitt litla stund á að skilja spádómana um hana. Þó er
ekki erfitt að skilja helztu atriðin í þessum spádómum, og þar sem
það er augljós vilji Guðs, að kristnir menn „vænti sonar hans frá
himnum“ (2 Þess. 1.10.), hlýtur jafnvel minnsta barni Guðs að
vera létt að skilja aðalatriðin.
Menn verða að gera greinarmun: á komu Krists til að hrífa
„söfnuðinn“ til sín, þegar hann kemur „sem þjófur á nóttu“, án
þess að syndugur heimur sjái hann, og á opinberun hans, þegar
hann kemur MEÐ sínum heilógum“ til að dæma heiminn, þegar
„hvert auga mun sjá hann.“ Geri þeir þennan greinarmun, komast
þeir hjá öllum þeiin erfiðleikum, sem þeir hafa þótzt sjá í þessari
kenningu.
Það er ekkert, sem getur haft eins helgandi, hreinsandi, göfgandi
áhrif á sálu trúaðs manns og það: að vita, að hann getur á einu
andartaki verið kominn í sýnilega nálægð Drottins Jesú Krists,
horft í auglit hans og heyrt raust hans, — og að ihann muni aldrei