Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 125
NORÐURLJÓSIÐ
125
inn verður að deyja sjólfum sér, eigin vilja, svo að hann geti með
sönnu sagt með Páli postula: „Ég er krossfestur með Kristi. Sjálfur
lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér“ (Gal. 2. 20.). Páll dó
syndinni (Róm. 6. 2.). Fyrir lögmálið dó hann lögmálinu til að lifa
Guði. Allt hans líf stefndi að einu marki: að lifa Guði, af því að
Kristur var orðinn líf hans (Kól. 3. 3., 4.).
Ég er Ijós í heiminn komið, til þess að hver, sem ó mig trúir, sé
ekki í myrkrinu, heldur hafi ljós lífsins (Jóh. 12. 47.).
Aðeins þeir, sem trúa á Drottin Jesúm, geta skilið tilgang eða
markmið lífsins. Þeir geta fundið það í lífinu, sem öðrum er dulið.
Faðirinn, sem í mér er, hann gerir verk sín (Jóh. 14. 10.).
Máttarverkin, sem Kristur gerði, framkvæmdi hann, af því að
Faðirinn var í honum og framkvæmdi þau.
Verið (dveljið, verið stöðugir) í mér og ég í yður. (Bókstafl.
þýð.) Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema
hún sé á (sé kyrr á, dvelji á) vínviðinum, þannig ekki heldur þér,
nema þér séuð í mér. Eg er víoviðurinn, þér eruð greinarnar; sá
sem er í mér og ég í honum, hann ber mikinn ávöxt; því að án mín
(fráskildir mér) getið þér alls ekkert gert (Jóh. 15. 4., 5.).
Eins og maðurinn getur ekki haft eilíft líf — þekkinguna ó Guði
og þeim, sem hann sendi Jesú Kristi — í sér, nema með því að veita
Kristi viðtöku, þannig getur ekki lærisveinn Jesú borið Guði ávöxt,
nema hann sé í Kristi og Kristur í honum. Ef maðurinn gæti borið
Guði ávöxt án Jesú Krists, borið ávöxt af eigin mætti, vizku og
lífi, þá hefði Drottinn Jesús aldrei þurft að koma, deyja og rísa upp.
Greinin er sífellt að draga til sín næringu af stofni trésins, sem.
hún er á. Þannig er það aðeins fyrir órofið samband og samfélag
við Drottin Jesúm, að við getum borið ávöxt og vegsamað Föður-
inn með því (Jóh. 15. 8.).
Ef þér eruð (dveljið) í mér og orð mín eru (dvelja) í yður, þá
biðjið um hvað, sem þér viljið, og það mun veitast yður. Jóh. 15. 7.
Þetta fyrirheit er háð því skilyrði, að orð Drottins Jesú séu í okk-
ur, það er: að þeim hafi verið trúað, þau íhuguð og breytt sé eftir
þeim.
Eins og Faðirinn hefir elskað mig, eins hefi ég elskað yður;
standið stöðugir (dveljið, verið kyrrir) í elsku minni Jóh. 15. 9.
Það er boðorð, fyrirmæli, Drottins Jesú, að við stöndum stöðug,
dveljum í elsku hans. Hvernig gerum við það?