Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 129
NORÐURLJ OSIÐ
129
„Sælir eru hógværir, því að þeir munu landið erfa.“
Var ég alltaf hógvær? Bregzt ég alltaf vel við, þegar sett er út á
mig og fundið að mér? Ekki vildi samvizkan viðurkenna, að það
væri alltaf.
„Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að
þeir munu saddir verða.“ Ekki gat ég sagt, að ég fyndi hjá mér
hungur og þorsta eftir réttlætinu, þótt ég vilji breyta rétt.
„Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.“
Var ég alltaf miskunnsamur? Hafði ég ekki vanrækt að tala við
fólk, aðvara það, og látið það deyja án þess að reyna að segja því
frá frelsaranum? Það var ekki miskunnsemi. Ég stóðst ekki þetta
próf.
„Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.“
Gat ég staðizt þetta próf? Ég vissi, að Guð hefir fyrir trúna á
Krist hreinsað hjarta mitt að svo miklu leyti sem það er hreint. Það
var ekki sjálfs mín dyggð.
„Sælir eru friðflytjendur (friðsemjendur, betri þýðing), því að
þeir munu Guðs synir kallaðir verða.“
Gat ég sagt, að ég væri í hópi þeirra manna, er semja frið með
öðrum? Hefir mér ekki verið sagt, að það stafi af mér ófriður og
ósamkomulag?
„Sælir eru þeir, sem ofsóttir verða fyrir réttlætis sakir, því að
þeirra er himnaríki.“ Hvar voru eða eru þær ofsóknir, sem ég hefi
fengið að reyna, vegna réttlætis? Satt er það, að ýmislegt hefir ver-
ið um mig sagt, af því að ég hefi viljað fara eftir því einu, sem ég
finn ritað í heilagri ritningu. En ofsókn? Nei. Ég stóðst ekki þetta
próf.
Er ég hafði lesið og hugsað á þá leið, sem ég hefi lýst hér, sá ég,
að orð Drottins sýndu mér, að ég hafði syndgað, ég náði ekki
rnáli, ég uppfyllti ekki skilyrði sæluboðana Krists. Þessu fylgdi óró-
leiki hið innra með mér.
Þá kom orð í hjarta mér, kom eins hljóðlaust og döggin, þegar
hún fellur á þyrsta jörð: „Kristur dó fyrir óguðlega.“ (Róm. 5. 6.:
Því að meðan vér enn vorum óstyrkir, dó Kristur á tilteknum tíma
fyrir óguðlega.) Þetta orð færði hjarta mínu frið, eins og það hefir
áður gert, en aldrei meir en einmitt nú. Þetta: Kristur dó fyrir
óguðlega, hefir einmitt verið akkerið, er sálarskip mitt hefir legið
við í 35 til 40 ár að minnsta kosti.