Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 172
172
N ORÐURLJ OSIÐ
„Fuglinn með flugvæng brotinn44
Eg sat við orgelið í salnum á Sjónarhæð og var að blaða í
enskri sálmabók með nótum. Þá rakst ég á sálm, sem varð mér
ógleymanlegur. Hann sagði frá fugli, er sveif um loftið frjáls og
glaður.
Þá henti hann slys. Hann vængbrotnaði. Brotið greri, en:
„Fuglinn með flugvæng brotinn
flaug aldrei svo hátt sem fyrr.“
Þessi orð snurtu mig óþægilega. Þetta voru aðvörunarorð. En
þau geymdu enga von um fullkomna lækning, fullkomna frelsun,
handa þeim, sem líkt og ég höfðu brotið vænginn sinn, brugðizt
æðstu hugsjón sinni, brugðizt Guði og mönnum.
Síðar meir las ég þá sögu, sem ég endursegi hér með.
Ungur maður var að starfa fyrir Drottin. Hann átti heima í
Bandaríkjunum. Hann heimsótti fangelsi og fékk að tala yfir föng-
unum.
Eitt sinn, er hann heimsótti fangelsi, söng hann ó eftir ræðu sinni
þennan sálm. Er hann söng síðast: „Fuglinn með flugvæng brotinn
flaug aldrei svo hátt sem fyrr,“ þá gall við angistaróp frá einum
fanganum: „Þá er engin von um mig.“
Óp mannsins smaug í hjarta ræðumannsins. Það bergmálaði þar
og ómaði nætur og daga. Hann hugsaði og bað. Loksins lukust upp
augu hans: Það var von um þennan mann, sérhvern mann, sem
verður ný sköpun í Kristi. Kristur gefur meira en syndin tekur.
Hann gefur æðra líf, nægtir æðra lífs en við getum átt án hans.
Þegar trúboðanum var orðið þetta ljóst, bætti hann einu versi
við sálminn, fór síðan í fangelsið, boðaði föngunum frelsið og lífið
í Kristi og söng að endingu sálminn, sem nú var orðinn vonar-
sálmur að lokum.
Mörg ár liðu, mig minnir þrjátíu ár. Þá mætti maður trúboðan-
um á götu og sagði honum, að hann væri maðurinn, sem forðum
rak upp ópið í fangelsinu. Þegar síðasta versið, viðbótarversið, var
sungið, þá rann upp ný von í hjarta hans. Hann veitti Kristi við-
töku, helgaði líf sitt honum, gaf sig honum algerlega.
Hvað hafði gerzt? Þessi mikla dásemd, að fyrir kraft Krists
flaug hann hærra en fyrr. Drottinn hafði blessað hann dásamlega,
gefið honum það líf, sem enginn eða ekkert getur gefið nema liann.