Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 178
178
NORÐURLJÓSIÐ
TRÉ í AFRÍKU
I Mið-Afríku kemur það stundum fyrir, að fuglar bera trjáafræ,
og það fellur í kverkina, sem myndast á milli greinar og bols á
öðru tré. Er þurrkatíminn kemur, verður fræið hulið af ryki og
visnum Iaufblöðum. Þegar svo regntíminn liyrjar, tekur fræið að
spíra. Smám saman vex þarna ofurlítið tré. Rætur þess breiðast út
og leita jarðvegsins, sem er stundum tuttugu fetum neðar.
Hr. H. W. Griffiths, sem var kristniboði í Angola í fimmtíu ár,
segir þannig frá: „Við höfðum eitt slíkt tré á lóðinni bakvið heimili
okkar í Boma. Er mánuðirnir liðu, veittum við því athygli, að
ræturnar urðu lengri og lengri. Þær uxu utan um trjábolinn. Þá
tókum við eftir því, að stóra, gamla tréð fór að deyja. Líf þess var
kramið burt af nýja trénu, sem tekið hafði sér bólstað á því.
Það var fimmtán ára drengur í heimavistarskólanum okkar. Hann
hafði nýlega fest traust á Drottni Jesú sem frelsara sínum. Dag
nokkurn fór ég með hann til að skoða tréð. „Sér þú, hvað er að
gerast, Andre?“ sagði ég. „Ræturnar hafa náð til jarðar, og þeim
eru að vaxa kraftar til að sigra stóra tréð. Sérðu, hvernig nýja
tréð er að þjóta upp og er farið að laufgast og vaxa litlar greinar?“
„Það minnir mig á þig, Andre. Þegar þú gafst Drottni Jesú hjarta
þitt, gaf hann þér nýtt líf fyrir heilagan Anda. Nú er nýja lífið að
kremja gamla líf syndarinnar. Við erum að byrja að sjá árangur
af þessu, þar sem þú ert ört að vaxa í náð og lætur aðra sjá kær-
leika þinn til Drottins. Á þennan hátt starfar Guð í hjörtum þeirra,
sem festa traust sitt á honum.“
(Þýtt úr „From Other Lands“, Bath, Englandi.)
FYRIRHEIT DROTTINS.
„Akalla mig á degi neyðarinnar; og ég mun frelsa þig, og þú skalt
vegsama mig.“ (Sálm. 50. 15.)
„Hver, sem ákallar nafnið Drottins, mun hólpinn verða." (Róm.
10. 15.)