Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 179
NORÐURLJ ÓSIÐ
179
BOÐSKAPUR TIL ALLRA MANNA
Höfundur þessa boðskaps, sem öllum mönnum er ætlaður, er
æðri hverjum forseta, konungi og keisara. Guð sjálfur, skapari al-
heimsins, sendir hann.
Hver er þá boðskapur Guðs? „Nú boðar hann mönnunum, að
þeir allir skulu alstaðar gera iðrun.“ (Post. 17. 30.)
Hvað er iðrun? Hugarfarsbreyting, stefnubreyting á lífsbraut-
inni, snúið frá röngu að réltu, hætt að ganga brott frá Guði, en snú-
ið við til hans.
Hvers vegna þurfa allir að gera iðrun?
Af því að „allir hafa syndgað“ og gera vilja sinn í staðinn fyrir
að gera vilja Guðs, sem er „hið góða, fagra og ftdlkomna.“ (Róm.
12. 2.) Ef allir gerðu vilja Guðs, liði öllum vel.
Hvers vegna vill Guð, að allir geri iðrun?
Af því að hann er kærleikur. Hann vill oss mönnum allt hið bezta.
Hann þráir, að vér komum aftur til hans, þráir það meir en móðir-
in fund litla barnsins týnda eða mærin komu unnusta síns.
Hvernig gera menn iðrun?
Vér skulum snöggvast hugsa oss vilja Guðs sem beina, slétta og
breiða akbraut, ævi vora sem bifreið, sjálf erum vér bifreiðarstjór-
inn, sem gáir sín ekki og ekur útaf í ófæru. Hjálparlaust verður
ekki komizt á veginn aftur né gert við skemmdir. Guð hefir frábær-
an viðgerðamann til að hjálpa oss. Hið eina, sem vér þurfum að
gera, er að kalla til hans með talstöð vorri, segja honum frá,
hvernig komið er fyrir oss og biðja hann um aðstoð, að bjarga
öllu við. Talstöðin heitir bœn og viðgerðamaðurinn Jesús Kristur.
Enginn þekkir tölu þeirra, sem kallað hafa hann sér til hjálpar.
Hann hefir gert við það, sem bilað var og komið þeim aftur á veg
vilja Guðs. Aksturinn verður samt ekki öruggur, nema hann sé
beðinn að taka stýrið og stjórna honum alla leiðina óförnu.
Skiptir miklu máli, sé þessum boðskap ekki hlýtt?
Hvað gerir lögreglan við ónothæfar bifreiðir, skildar eftir hér og
þar, t. d í .Reykjavík? Hún lætur fjarlægja þær og flytja á rusla-
haug. Guð hefir ákveðið dag, eins konar hreinsunardag, þegar hann
lætur Jesúm Krist, Drottin vorn, „dæma heimsbyggðina með rétt-
vísi, og hefir hann veitt öllum fullvissu um það, með því að hann
reisti hann frá dauðum.“ (Post. 17. 31.) Þá hreinsar Guð heiminn,