Norðurljósið - 01.01.1969, Blaðsíða 186
186
NORÐURLJÓSIÐ
Hve margir þurfa að vera viðstaddir til að geta haft þetta umi
hönd? Drottinn Jesús sagði: „Hvar sem tveir eða þrír eru saraan
komnir í mínu nafni (til míns nafns), þar er ég mitt á meðal þeirra.“
(Matt. 18. 20.) Tveir eru nægilega margir, svo að trúuð hjón t. d.,
í afskekktri sveit eða kauptúni, geta brotið brauðið saman í minn-
ingu Drottins. Þau eru, ef til vill, einu endurfæddu manneskjurnar á
stóru svæði. Þau eru þessvegna allur söfnuður Krists á þeim stað.
Sjálfur hefi ég einstöku sinnum á ævinni brotið brauðið aleinn,
ef sérstakar kringumstæður réttlættu það. Sumarið, sem ég var við
smíði skálans við Astjörn átti ég þar þess engan kost að geta neytt
drottinlegrar máltíðar með öðrum börnum Guðs. Ég vildi samt
minnast Drottins á sama hátt og gert var heima ,og hafði með mér
brauð og vín. Ég leitaði Drottins og samfélags hans með þessu móti,
og frá þeirri stundu tók trúarlíf milt nýjum framförum.
Hver á að stjórna athöfninni? Heilagur Andi Guðs, sem býr í
hverju barni Guðs. Þeir, sem viðstaddir eru, eiga að reiða sig á
hjálp hans, því að hlutverk hans er að vegsama Drottin Jesúm, er
hann tekur af því, sem Jesú er og kunngerir lærisveinum hans. (Jóh.
16. 14.) Án virkrar þátttöku Andans verður athöfnin ekki Drottni
Jesú til þeirrar vegsemdar, sem henni er ætlað að vera.
Á fyrirfram að skipuleggja, hverjir biðji upphátt, lesi kafla úr
ritningunni eða færi þakkir fyrir brauðið og vínið?
Ritningin gerir ekki ráð fyrir neinu slíku, og þetta mun hindra
starf og stjórn Andans, þegar komið er saman. „Vér hertökum
hverja hugsun til hlýðni við Krist.“ (2. Kor. 10. 5.) Hugsanir, sem
koma til okkar, en eru ekki í samræmi við markmið samkomunnar,
ber að reka á brott.
Ef einhver biður, les úr orði Guðs eða talar, og sé hið flutta eins
og út í hött, óviðeigandi, ber einhverjum bróður, sem betur skilur
tilgang og markmið drottinlegrar máltíðar að tala við hann í anda
hógværðar og kærleika og útlista rækilegar fyrir honum, hvað drott-
inleg máltíð er og biðja Guð að gefa honum vizku og skilning og
undirgefni við stjórn og leiðsögn Anda Guðs. „Allt hjá yður sé í
kærleika gert.“
Hve oft á að hafa drottinlega máltíð um hönd?
Menn greinir á um það eins og annað, sem lýtur að þessari minn-
ingu Drottins. Margir skilja ritninguna svo, að minningin sé höfð
um hönd hvern fyrsta dag vikunnar. Sá dagur var samkomudagur