Heimskringla - 05.01.1895, Blaðsíða 1
I
j,g puiiiXjnjv;
gg uBf uosuof snjðxs
IX. ÁR.
NR. 1.
WINNIPEG
Busintss College.
Vorið viðbúin <að nota ykkur kveld-
skólann, sem lialdinn verður í sam-
bandi við XVinnipeg Business College
og Shortliand-skólann, 482 Main Str.
J>ar verður kennt, þeim sem vilja,
ensku-lestur, réttritun, málfræði, reikn-
ingur og skript. — Skólinn byrjur
snemma í Nóvember.
Viðvíkjandi kennsluskilmólum snú-
ið ykkur brétlega eða munnlega til
kennaranna.
C. A. Fleming & Co.
Til Nýárs-sólarinnar.
Þú milda nýjárs morgunsól !
Þú mesta ársins hjólp og skjól.
Þú veist um alt sem vantar yl,
Þú vekur alt sem finnur til,
Þú sendir glóbjart geislaskin
Á gröf, sem hylur látinn vin;
Og upp um klakans kulda-háls
Þú kærleiks-arma leggur frjáls.
Og hrestu og vermdu hvern þann rann
Sem himninum og Ijósi ann.
Og legðu varma lófann þinn
Á litla skýlið, — kofann minn.
IvR. StefáXSSOX.
FRÉTTIR.
Allsherjar vínsýning verður liöfð
að sumri í Bordeaux á Frakklandi.
Verða þar sýndir alls konar drykkir
áfengir og ekki áfengir.
TJmboðsmaður Bandaríkjastjórnar,
er sendur var til Þýzkalands til að
rannsaka ástæður fyrir banninu að
flytja þangað lifandi naut, eða nauta-
kjöt frá Bandaríkjunum, segir eflaust
að gripirnir hafi verið sjúkir og að
bannið verði ekki upphafið nema Banda-
ríkiastjórn kosti þýzka dýralækna í
hafnstöðunum, til að rannsaka gripina
og ketið. Sama bannið er nú á kom-
ið í Danmörku og í Hollaudi.
Eldsumbrot í Rauiierí Post-Intell-
igencer prentfél. 1 Seatle sendi fyrir
skömmu 6 menn til uppgöngu á Rai-
nier-fjallið, til að rannsaka breytingar
sem á því eru orðnar. Á jóladaginn
sendu fjallgöngumenn þessir dúfu með
bréf til blaðsins. Sögðust þeir þá vera
komnir miðja vegu upp á fjallið og
hefðu oft sóð bæði reyk og gufustólpa
standa í loft upp úr fjallinu.
Það eru flestir, en þó ekki allir,
eindregnir fylgismenn málsins um að
safna minningarsjóði með almennum
samskotum handa ekkju og börni^m
Sir Johns Thompsons. Einna stæk-
astur andvígismaður fyrirtækisins er
franskur maður í Montreal, sem meðal
annars finnur Sir John það til van-
virðu, að liann hafi svift kaþólska
menn bæði tungumáli og trú í (Mani-
toba.)
Lestaferð eftir Kyrraliafsjárnbraut
Rússa var hafin sólstöðudaginn síð-
asta (21. Des.) Austurendi hennar er
fullverður og lestafær á 235 milna
sviöi vestur um landið frá Viadivostok
við Kyrrahafið og verður sá stúfur
notaður framvegis.
Þing Japaníta var sett í Tokio
á aðfangadag jóla og gekk ávarp keis-
arans einkum út á aó stæra sig af
sigurvinningunum í Kina. Eftir því
sem fram kemur á þinginu síðan, er
fjöldi þingmanna andvígur öllum frið-
arsamningnum, vilja að minnsta kosti
sjá Peking falla áður en talað er um
frið.
Tiðin var tiltölulega miklu vetrar-
legri í Suður-Bandaríkjum á milli jóla
og nýárs, heldur en hér nyrðra. Hér
var milt veður og stillingar, en syðra
ofsaveður með snjóburði og frosti. FóU
þá snjór frá 4 til 12 þuml. djúpur i
suðurríkjunum hvervetna, alt að tak-
mörkum Louisiana-ríkis. Á Florida-
skaga féll ekki snjór, en þar kom frost
svo mikið, að eyðilögðust aldini og á-
vextir alls konar og er tjón það met-
ið fleiri milj. dollara virði. Er svo
sagt að í Florida hafi ekki komið jafn
kalt veður síðan 1835. Kuldakastið
hélzt 3 daga, til gamlársdags.
Fundur tfl að ræða um friðarsamn-
inga milli Japaníta og Kínverja verður
settur í Hiroshima í Japan 10.—12. þ.
m. Mæta þar erindrekar og fulltrúar
Kínverja, sem nú eru á ferðinni þang-
að. Er nú sagt að Japanítar muni
heimta að tafailaust verði tekið til
star.’a, en þá verða Kínverjar ekki til-
búnir, því fyrir fáum dögum siðan
sendu þeir skeyti til XVashington og
beiddu John W. Foster, fyrverandi ut-
anríkisstjóra, Bandaríkja (í ráðane.vti
Harrisons) að koma austur tafailaust
og gerast ráðgjafi Kínverja á sátta-
þinginu. Foster brá strax við og siglir
meðC. P. R. skipi frá Vancouver, B.
C.. 6. þ. ni. Er hann því væntanlegur
til Yokohatna í fyrsta lagi 19. þ. m. og
þaðan verður hann 2 sólarhringa á ferð-
inni til Hiroshinta. Eftir nú verandi
útliti í Japan er óttast ftð öll von um
frið í bráð verði úti, er Foster kemur
austur, af því Japanítar muui neita að
fresta fundi lengur.
Utför Sir Johns Thompsons fór
fraín í Halifax 3. þ. m. í viðurvist lík-
lega meiri mannfjölda, en nokkru sinni
hefir áður satnan kornið í Halifax. Hið
mikla herskip Blenheim, ’er flutti líkið
ylir hafið, hafnaði sig á nýársdag um
hádegi í þoku og stórrigningu. Líkið
.var strax fiutt í þinghús fylkisstjórnar-
innar og stóð þar uppi til þess það var
flutt íkaþólsku dómkyrkjuna að morgui
þess 3.
Á fj>rra helmingi yfirstandandi fjár-
liagsárs urðu tekjur Bandarikjastjórnar
281 tnilj. doll. minni en gjöldin á sama
tímabili. Gull í fjáihirzlctnni að kveldi
þess 29. Des, var alls 801, mili. doll., oða
$13 milj. rninna en lögin heimta.
Hótel brann í Albany, N. Y., á
gamlársdag og fórust 13 menn í eldin-
um. Eignatjón um $250,000.
Stjórnarformaður Mackenzie Bowell
var á nýársdag sæmdur heiðursnafnbót-
inni Sir,—riddari Mikaels og Georgs orð-
unnar.
Eftir nýkomnum fregnum að
dæma, til félags í Boston hafa um
15,000 Armeníu-tuenn fallið fyrir morð-
vopnum Tyrkja í haust og vetur og
yíir 30 þorp lögð í rústir.
Lexow’s-nofndin svo kallaða, sem
svo lengi og vel hefir unnið að land-
hreinsun í pólitískum skilningi í New
York, undir formennsku Dr. Ch. H.
Parkhursts, er nú að kiofna, og séra
Parkliurst orðíun andvígismaður henn-
ar. Ástæðan er sögð sú, að borgar-
stjórinn nýkosni, W.R. Strong, er Park-
hurst barðist mest fyrir, vill að sögn
hlífa lögreglustjóranum o. fl., sem
fremst eiga að hafa gengið í að fótum
troða lög og rétt.
í Nýfuudnalandí er alt á trófótum
og sem stendur í uppnámi. Formenn
eins bankafélagsins, er varð gjaldþroia
um jdaginn, hafa verið teknir fastir,
kærðir fyrir að hafa Igefið út falsaðar
skýrslur utn ástand bankans. Á meðal
þcirra er fyrverandi stjórnarformaður
Goodridge. Öllu þessu er blandað inn í
pólitískar deilur á þinginu og í deilum
út of því 2. þ. m. gekk stjórnarflokkur-
inn svo langt. að neita andvigismönn-
um sínum um orðið. Blöðin á Eng-
landi mæla með að eyjan gangi í fylkja-
samband Canada, segja að ! ún standist
ekki annars.
Sú fregn er komin frá Lundúnum,
að dominion-ráöaneytið hafi vald til að
ljá kaþólíkum í Manitoba lið sem und-
irokuðum minnihluta, Sé það rétt,
virðist skólamálið ^vera komi sitt
upprunalega horf. þ. e., að öll baráttan
só fyrir hendi aftur. Edw. Blake og
John S. Ewart fiuttu þetta mál fyrir
leyndarráði Breta.
Þessa dagana verður byrjað að
móta 22 milj. doll. virði af óslegnu gulli
sem Bandaríkjastjórn á geymt í pen-
ingamótunar-húsinu í Philadelphia.
Verður mótun gullsins haldið áfram
þangað til þessar (22 milj. eru upp-
gengnar.
VKITT
HÆSTU VEHÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNNl
•S>55L*
Oblönduð vinberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
ðnnur óholl efni.
40 ára reynzlu.
EldsVoði á Seyðisfirði.
Rétt eftir hádegi á lauvardaginn
24. Nóvembor siðastl. kom upp eldur i
afhúsi aftnr af Gránufélagsbúðinni á
Vestdalseyri, og eftir 2—3 klukkustund-
ir voru öll Gránufélagsln’isin brunnin
til kaldra kola og varð litlu sem engu
bjargað af vörum. Er skaðinn metinn
um 150,000 lcrónur, en mikið af eignun-
um sagt í eldsábyrgð. Erþettaóofað
langstærsti húsbruninn á íslandi.
I bréfi til herra Odds Jónssonar,
hér í bænmn, er þannig sagt frá eldin-
um : '‘Eldurinn byrjaði í “pakk-kam-
ersi” og orsakaðist þannig, að einn af
þjónunum Kveikti á eldspítu og kastaði
henrii á gólfið, en gekk svo út. Að
vörmu spori heyrðist brestur, og er
hann vildi ganga inn aftur til að vita
uin ástæður, gaus logi í andlit honum,
er hann opnaði liurðiua. Það haföi
kviknað i olíutunnu, er þar var inni, og
þá ekki að tala um að slökkva eldinn.
Eftir 5 mínútur stóð húsið í björtu báli
og brunnu siðan öll “pakkhúsin” og
öiuiuv úthýsi, og varð litlu som engu
bjargað. Með herkjum varð vertshús-
ið varið fyrir bruna, en þó skemdist
það svo, að enginn mun vilja gefa moir
en 500 krónur fyrir það eins og það
stendur. “Faktorinn” missti næstum
alla innanhússmúni, er voru ekki í elds-
ábyrgð, og stendur því uppi að heita má
eignalaus. Verzlunarþjónarnir misstu
að sögu öll sín föt o. fl.”.
/
Islands-fréttir.
Eftir STEFNIR.
Fyrirlestur vm Ameríku hélt Jónas
Jónsson (Sinluvikur-Jónas) hér á Ak-
ureyri 7. þ. m. Iíann dvaldi í Ameríku
í 9 ár, lengst af i Dakota, og kom
hingað fyrir rúmu ári siðan. Lýsti
hann högum og lifnaðarháttum ís-
lendinga í Dakota og sagði kosti og
lesti á Ameríku, sem eru bæði marg-
ir og stóxdr eftir hans áliti. Varð
ekki annað heyrt en að frásögn hans
væri mjög hlutdrægnislaus og sönn,
enda er Jónas sannorður maður og vel
gi-eindur.
I hinu danska blaði “National
Tidende” stóð 17. September s. 1. svo-
látandi gi-ein : '
"EilraStir r/úpur. Frá Rvík er oss
skrifaö, að liið nýendaða alþingi hafi
samþykt lög, sem veiti ísl. bændum
leyfi til að eitra rjúpur fyrir tóur,
en jafnframt er þeim gert að skyldu
ad stýfa helmirig af hægra væng hinn-
ar eitruðu rjúpu, varðar það 20—200
króna sekt ef útaf er brugðið. — Það
leiðir af sjálfu sér, að menn hafa alls
enga trygging fyrir þvi, að þessum
í-eglum verði fylgt og þess vegua á-
minuist almenningur um, að kaupa
okki íslenzkar rjúpur. Eitrið, som
brúkað er, er strychnin (í-efakokur).”
Að líkindum er nú fyrir aðgerð-
ir þingsins algjörlega eyðilögð öll rjúpna
sala Islendinga til útlanda. Nokkrar
þúsundir króna er borgandi fyrir þann
greiða þó lítill sé !
EFTIR ÍSL. BLÖÐUM.
í Stefnir er þess getið, að Eyfirð-
ingar og Þingeyingar hafi ætlað að
halda fund á Akureyri 24. Nóv. síð-
astl. til að ræða uin gufuskipaferðir
á Eyjafirði og fyrir norðurlandi. For-
göngumenn málsins eru þeir Klemens
Jónsson sýslum. og Eggert Laxdal.
Hetjulegt kvæði um “auðvaldið”
i Ameríku er í Stefnir 9. Nóv., eftir
Pál Jónssoú.
í Austra er þess getið, að Otto
Wathne sé í undirbúningi með að
byi'ja á stórkaupaverzlun við Seyðis-
fjörð. Auglýsir hann í blaðinu, að
hann verði tilbúinn að byrja 1. Apr.
nasstk., ef is hindrar ekki skipagöng-
ut, og að hann ætli sér að láta lít-
ið gufuskip flytja vörurnar til xdð-
skiftamanna siuna, milli Langaness og
Hornafjarðar og íaka frá þeim inn-
lendu vöruna og flytja til Seyðisfjarð-
ar. Er liann að sögn tilbúinn að láta
strandskipið fara alt til Akureyrar,
ef kaupmenn svo langt að vilja panta
vörur hjá honum.Þetta mun vera fyrsta
tilraun til stórkaupastofnunar áíslandi.
Erfðafé er auglýst i Austra, 2808
kr. 91 eyrir, í sparisjóði í Khöfn. Eig-
andi fjárins var Ólafur nokkur Tómas-
son, fyrrutn í þjónustu hinnar konung-
legu grænlenzku verzlunar. NúerÓl-
afur þessi sagður dauður, og því skor-
að á ei'fingja hans að gefa sig frau).
Skafti Jósefsson ritstj., á Seyöisfirði
gefur nauðsynlegar upplýsingar.
Sildveiði segir Austri að liafi ver-
ið góð á Suðurfjörðuin í haust. — Tíð
góð og hlý 10. Nóv., en rigningasöm
mjög fyrstu daga mánaðai'ins.
FRÁ LÖNDUM.
BARDAL. P. O. MAN., 22. DES. 1894.
Eg bcfi veriö að draga að senda
blaöi þinn fróttir héðan i.ð vistun
fyrr en ég gæti sagt af hið ljósasta
um gjörvalt það er nýlendu þessa
snertir.
Eg liefi. nú heímsótt nærri alla
búcndur bygöar þossarar og veit því
gjör um hag mnnna hér eu áöur.
Hcita má að mönnum llði hér
vel o. sjálfsagt eins vel og hvar ann-
arstaðar í fylki þessu, auðvitað kemur
harðærið hfr við eins og annarstaðar.
Hvaö.nýlendu þessa snertir þá
álít ég hana eins gott land eins og
viðast þar sem ég hefi séð í Mani-
toba, og Territoriunum” hefi ég ekk-
ert land enn séö æskilegra aðundan,
tekinni QÁappelle-nýlendunni. Mér er
þó sagt að hér fyrir vestan takmörk
Manitoba séu betri lönd, en það hefi
ég okki ei'u séð. En alla lfið frá
Melita vestur fyrir Alaineda og ýafn-
vel vestur aö kolanámunum er engu
betra. larid.en liér. En austan vert
við Moose" Mountains kvað vera fall-
egt land xem er opið enn Það svæði
er mitt á millum brauta, og þessi
nýja auka'óraut frá Glentxiro hlýtur
að fara þar í gegn.
Hér er aðallega einn stór ókostur,
þaö er : e) liviðarleysi. Héðan um 25
inilur burtp er liægt að fá sináhrís
og laust spreka-rusl og xainalt. af-
kvisti, en aöal-skógur er yfir 50 mílur
héðan, það er Moose Mountain, þar er
góður skógur fyi'ír alla. Það er því
hagræöi fyrir landneina, sein settust
aö fyrir vestan fylkis takmörkin og
þess vestar sem þeir settust að þess
nær væru Jxeir skógi.
Vatn má heita að sé hér allstað-
ar, en þó eru dæmi til aö það hefir
brugðist, lækir renna hér til og frá
um landið, og eru þeir stórt hagræði
á sumrin sérstaklega, það eru i þeim
tjarnir raeð uppsprettuin í og er því
vatnið i lækjum þessuin altaf ferskt
og lifaiKli, og engin hætta á aö
vatniö úldni og verði postnæint.
Hér or jörð víða nokkuð grýtt,
sumstaðar liræöiloga, cn meiri partur
af lönduin er þó brx’iklegt fyrir þaö.
Þau lönd, sem íslendiugar hafa tekið
hér, mega heita fremur góð. Gripa-
lan<; er hór gotc, hagar hintr beztu
og heyskapur töluverður. Sumstaðar
hagar svo til að eru járnbrautarlönd
seni eru svo grýtt, að nauinast verða
keypt, en góður heyskapur á þeim;
eru þau stórt hagræði að búa nálægt
þeim sðkum heyskapar og beitar. Það
er rétt eins og að búa I grend við
vasa á góðri stjórn. Þeir seui þekkja
það, skilja þessa dæmisöru. Tilakui-
yrkju er þetta land í góðu ineðallagi;
gamlir og reyndir bændur hór í kring
segja að jörðiii sé fremur endingar-
góð, en víða er luin fremur létt og of
þur. En hér er viss uppskera þegar
rignir vel, því þessi sandkenda mold
er svo fijót að þorna, og því vatns-
frek. Það væri gott að hafa stjórn
sein kæmi hér á íót heppilegunx vatns-
veltinguin. En til þcss þyrftum vér
agent sem væri reglulegur stjórnar-
seppi og hefði alla ástundun á að “setla”
landa. Ætli það geröi nokkuð- þó
hann væri bæði heimskur og hégóma-
gjarn ?
í nýlendunni eru lS búendur (land-
eigendur), fólkstalan samtals 66.
Gripaoignin er þessi : Naut 161,
kindur 16, hestar 12, svín 6, hænsn 216.
Ekrur plægðar um 220. — Verkfæri :
vagnar 12. s'eðar 3, plógar 20, herfi 3,
sjálfbindari 1, sláttuvélar 4, lirífur 4,
sáðvél 1, Boggy 2. Þess má geta, að
hr. Kristján J. Bárdal á 5 af hestun-
um, 17 naut og alt sem nauðsynlegt
er af jarðyrkjuverkfærum. Hann kom
fyrir hálfu öðru ári úr Argyle, er nú
búinn að plægja um 60 ekrur og koma
upp miklum byggingum. Hann fékk
um 15 bush. af ekrunni I haust, var
það því næst það besta hér umhverfis
og svo þaðan af minna alt niður í 7
bush. af ekrunni. Kr. B. unir vel
liag sínutn og saknar litt að vera far-
inn frá Argyle.
Landar hér eru flestir á góðum
vegi í efnalegu tilliti.
Hér kom hroðalegur sléttueldur í
haust sem gerði viða skaða, brendi
hey manna og kofa. Landi vor Frið-
rik AbraliamsBon varð fyrir verstum
skaða af þeim sem ég lieyrði af. Hann
ínisti fjós, alt sitt hey og þrjá riaut-
gripi og er hann fátækur barnamaður.
Lika misti Ásmundur Guðjónsson kofa
sinn er hann hafði búið í, alt hey sitt.
föt og fleira clót, og dálitla peninga.
Hann er einhleypur maður.
Friöriki liefir verið gefið talsvert
upp í skaöaun; Jóhann Jóhannsson gaf
houum kú.
Hér var haldin almenn skemtisam-
koma í haust; stofnaði lir. Ásmundur
Guðjónsson aðallega til hennar og bauð
svo allri nýlendunni; til boösins kom
fieiri parturiun. Samkoman var hin
myndarlegasta, veitingar góðar, og gef-
ins. Skemtanir töluverðar, dans nátt-
úrlega, eins og allsstaðar, og svo sitt af
..en hið Ega verð á.
YFIRH0FNUM
Karlmanna, Drengja, Unglinga og Barnafötum, Ullar-
nærfötnm, Yíirskyrtum, Vetlingum, Glófum,
Moccasins o. s. frv. — Alt verður selt íin
-------- tillits til verðs í -
Vér höfum nýlega fengið mikið af karlmanna og drengja yfirhöfnum
sem verða seldar fyrir ótrúlega lítið. Það þarf jekki stóra peninga-
uþphæð til að kauþa sér heilmikið af fatnaði frá því í dag og út næstu
vikti í WALSH’S CLOTJIING HOUSE.Eininj^ höfum vér ný
karlmannaföt úr fínu svörtu Worsted og skozku vaðmáli, og verðið á
öllum þessum varningi er óhejTÍlega lágt. Þetta ár höfum vér meira
og margbrej’ttara upplag af drengja og barnafötum en nokkrusinni áðr.
Goimr vfirhafnir verða um ti’inn seidar fyrir
$3.75. Agætar vetraryfiihafiiir úr Frieze og
Nap, með kragaog belii og fóðraðar með bezta
fóðri verða se’dar á $<.50.
WALSH’S Clothing House.
T. M. WALSH.
515 og 517 Main Str. gegnt City Hall.
hvorju. Og áreiöanlega fór fólkið heim
í góðu skapi eftir góða skemtun. Ás-
mundi var rækilega þakkað fyrir sitt
stórmannlega veglyndi.
Tiðarfaiið hefir verið hið bo-ita a.lt
til þessa, og í fyrradag var íslen/.k
hláka og sólbráð. •
Hveitiverðið er lágt og heldur hörð
kjör liveiti-bændanna. Hart gengið
eftir skuldum o. s. frv.
Að bera þessa nýlcndu sarnan við
Nýja Island; það er bágt að segja liver
myndi taka prisinn, því það sem önn-
ur liefir ekki, það liefir hiu. I Nýja ís-
landi er eldiviður og fiskur; stærstu
kostir; hér er landið í verði, gott gripa-
land, hveitiland, góður markaður fyrir
alt, sem hægt er að framleiða, Nýja Is-
land er illt gripaland, illur markaður og
landiö, þó skógurinn væri ruddur, að
mestu leyti óbrúkandi fj'rir hveitirækt.
Og svo lielv. flugurnar. Stærsti kost-
urinn hér er þó ótalinn enn, en það er
að hér er enginri “guðspjalla-gaukur”
til að spilla friði og eitra félagslifið og
trylla fáfróða trúar-aumingja.
Hér virðist aö menn ekki séu allir
sáttir með nafn það, sem hr. A. Guð-
jónsson gaf nýlendu þessari í sumar í
Lögb., hann nefndi hana "Laufás-ný-
lendn”. Datt mér því í hug að stinga
upp á nafni, sem ínenn geta svo skrafað
uin og samþykkt eða neitað eða gefið
annað, og mun ég þá skýra ;frá þvi
nafni í næsta sinn sem ég skrifa, sem
samþykkt verður, hvort heldur það
verður Jietta eða annað. Nafnið er
"Breiðablik”; ég liiröi ekki um aö mæla
með því að þessu sinni.
Eg vona að fólkið skilji það, að af
því ég er hér, þá er ég ekki lengur í
Nýja ís^indi, og hlýt ég þvi að hafa
farið það.in til að komazt liingað. Og
það sem rak mig úr Nýja Islandi var,
að mig langaði til að eignast land,
sem væri einhvers virði, því í Nýja
íslandi eru þau einskis virði nema
til að gjalda af þeim. Að öðru undi ég
vel hag minuin þar eftir vonum. Og
ég álit að það scm náttúran hefir að
bjóða í Nýja íslandi só vel lífvænlegt.
Og hér kaun ég ver við mig, mér bregð-
ur svo við skógana—Þar höfðu þeirhit-
ann úr.
Ég bið alla þá, sem báðu mig og
konuna mína aö skrifa sér lýsingu af
þessari nýlendu. að gera svo vel og lesa
þessa fréttagrein; það er samvizkusam-
leg, hlutdrægnislaus lýsing, oins rétt og
ég tet mögulega fengið hana. En rang-
hermi ,ég nokkuð sem nokkru varðar,
þá er mér þökk á að hver sem réttara
kanu frá að segja, leiðrétti mig vinsam-
lega.
S. B. Bbnedictsson.
Lííið var þungbært.
MERKILEG SAGA SJÚKLINGS
EINS.
Afleiðingar af influenza urðu að lungna-
bólgu og langvarandi barkabólgu.
Eftir fjögra ára þjáningar náði
hann þó heilsu aftur, þótt mjög
imdailegt væii.
í ekið eftir “Le Monde,” MontreaL
Mrs. Sarah Cloutier, sem býr að Nr.
405 Montcalm Str., Montreal, hefir þá
sögu að segja, sem vert er að gera al-
menningi kunna, þeim til gapns, sem á
þurfa að halda. Þangað til fyrír fjórum
árurn hafði Mrs. Cloutier verið heilsu-
hraust, en um það leyti fékk hún hina
alræmdu veiki, influenza, og síðan hefir
hún á liverju hausti, þrátt fyrir hina
mestu varasemi, fengið ákafa lungna-
bólgu svo hún hefir oft verið komin í
dauðann, ogað síðustu fór að bera á á-
kafri bHrkabólgu, lungnapipurnar urðu
svo stiflaðar, að hún náði naumast and-
anum, og ef kælu lagði að henni, fékk
hún ávalt slæman hósta. Mrs. Cloutier
sagði við fregnritann : “Eg ha(/>i stöð-
ugt hryglu i hálsinum, og eins og ég var
á mig komin hefði dauðinn verið mér
velkominn gestur. Eg gat ekki sint
neinu, hvorki heiinilisverkum né öðru,
og ef ég heföi ekki haft frændkonu mína
til hjálpar, veit ég ekki hvað um mig
hefði orðið. ÖIl þau ir.eðöl er ég reyndi
eftir ráðleggingum ýmsra lækna, komu
mér að engu haldi, og þegar ég reikna
saman hvað þau kostuðu, þá getég ekki
annað en iðrast eftir að hafa brúkað þau
Eg hafði oft lesið um, að Dr. Williams
Pink Pills hefðu reynst mjög vel, og ég
þóttist viss um að það væri satt því ef
það væri ekki, mundi enginn þora að til-
greina nöfriog heimili þeirra, sem hefðu
brúkað þær, og læknast af þeim, eftir
því sem blöðin sögðu. Ég afréð því að
reyna Pink Pills, og engir nema þeir
sem vissu hvernig ég var farin áður en
égfór til.þess, geta gert sér hugmynd
um, hve góðar afleiðingar þær hafa haft.
Eg brúkaði þær þangað til mér var al-
veg batnað, og því til sönnunar að þær
læknuðu mig, get ég sagt það, að fyrst
þegar ég fór út eftir leguna, gekk ég
tvær mílur vegar upp á móti, án þessað
þreytast eða verða örðugt um andar-
drátt, og síðan hefi ég ávalt verið við
góða heilsu.
Síðastl. haust var ég lirædd um að
ég mundi fá Jungnabólgu, eins og und-
anfarin ár, en þá bar þó ekkert á því,
og ég var hin hraustasta. Þér getið í-
myndað lyður hve þakklát ég er Dr.
William’s Pink Pills fyrir feiuma heilsu
og ég mæli með þeim af lieilum hug, án
þess þó að geta gert það eins vel og
kröftuglega eins og vert er.
Kjarnlaust blóð og veiklað tauea-
kerfi eru aðaluppspretturnar til hinna
margvíslegu sjúkdóma, sem þjá fólk,
og öllurn þeim sem þannig cr ástatt fyr-
ír, bjóðuin vér Pink Pills með þeirri
V^SS.U' sé hið eina óyggj-
andi lyf við þesskonar sjúkdómum, ef
þær eru brúkaðar réttilega.
Pink Pills eru seldar hjá öllum lyf-
sölum og sendar með pósti, fj-rir 50 cts.
askjan, eða 6 öskjur fyrir $2,50, frá Dr
William’s Medicine Cö., Brockville, Ont.
eða Scheuec’ady, N. Y.
Gáið að eftirstælingum og hrossa-
lyfjum, sem sögö eru alveg eins góð.