Heimskringla - 12.01.1895, Blaðsíða 1
IX. ÁR
WINNIPEG, MAN., 12. JANÚAR 1895.
WINNIPEG
Bus/ness College.
Vcrið viðbúin að nota ykkur kveld-
skólann, sem haldinn verður í sam-
bandi við Winnipeg Business Coliege
og Shorthand-slcólann, 482 Main Str.
E>ar verður kennt, þeim sem vilja,
ensku-lestur, réttritun, málfræði, reikn-
ingur og skript. — Skólinn byrjar
snemma í Nóvember.
Viðvíkjandi kennsluskilmálum snú-
ið ykkur bréflega eða munnlega til
kennaranna.
C. A. Fleming & Co.
Línan.
Lausleg þýðing úr ensku.
I bókinni sálarlaust blaða ég vann,
Það blikaði á kantinnsvo gullfágaðaun.
Mér birtist ein hending,ein lina—ei löng,
Semljóða mér ávalt þann himneskasöng.
Hve yndælt og blítt hljóðar setningin sú:
"Jlcesadt vceriað Ufu, hefðir eiskað miy þú".
En aldrei var byrði nein erviðari en sú,
Hin eilífa vissa, að mér tapaðist þú.
Þessi lína, svo einföld og orðin svo fá ;
En, O, hversu mikið þau hjartanu tjá,
Hve hörð er þá sagan, er hermir svo
bist,
Hinar helgustu vonir og lífsgleðin mist.
Hveyndælt og blitt hljóðar setningin sú
’‘Hve sælt væri’ að lifa hefðir elskað mig
þú”.
Það hörmunga-gap ekkihylur nein brú,
Þá helund neitt græðir, að tapaðist þú.
Það skeður svo þrávalt i skáldanna óð,
Að skerast lífs þræðir og negg springa
af móð.
Það lif, sem er alvara, leið sína fer,
I logandi hjartsárin tíminn smyrsl ber.
Hveyndælt og blítt hljóðar setningin sú
“Hve sælt væri að lifa hefðir elskað
mig þú”.
Mín æfl er fullslétt, en hve yndæl mætti
sú,
Ef ástar þinnar Ijósi hana blessað hefð-
ir þú.
En áfram alt líður í lífstíðar straum,
Og líkist svo vakandi, hverfandidraum.
En straumurinn bólgnar og ber upp að
strönd
Hinar barnslegu vonir frá þreyjandi
önd.
Hveyndæltog blítt hljóðar setningin sú:
‘Hve sælt væri að lifa’ hefðir elskað
mig þú”.
Það eitt sinn gat verið.það ei verður nú,
Uin eilífð ég veit að mér tapaðist þú.
Maögie Benedictson.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
LAUGARDAG, 5. JAN.
Minnesota Governorinn, Knútur
Nelson, liefir nú auglýst, að hann sæki
um að verða þjóðþings-senator. And-
sækjandi hans er núverandi senator
Wm. D. Washburn. Fær Nelson ákúr-
nr miklar fyrir þetta af þeirri ástæðu,
Rð hann hafði fyrir ári síðan lofað
Washburn að sækja ekki á móti honum.
Þjóðþing Bandarikja kom
aftur, eftir uppihaldið um hát:
flmtudaginn 8. þ. m. í neðri de
þegar tekið til, “þar sem fyrr i
horfið”, að ræða bankalagafrum
í efri deild var Nicaragua-skuri
aðal-umræðuefni.
Tekjuskatts-lög Bandaríkja, er sam
þykkt voru 28. Ágúst síðastl. gengu i
gildi 1. Jan. þ. á Til bráðabyrgðar
verða settir 63 þessir skattheimtumenn
ogþeim send 300,000 eyðublöð tilút-
hýtingar. Á þeim eiga væntanlegir
gjaldendur að sýna upp á cent hvað
tekjur þeirra voru miklar á síðastl. ári,
alt framtalið, og fylgir eiður, sem þeir
verða að vinna.
Þjóðverjar, Austurríkismenn og
Frakkar hafa sent klaganir yfir sykur-
tollinum til Bandaríkjastjórnar og lofa
nflegum launum, ef hann veröur ekki
numinn í gildi, eða einiiverjar breyting
ar gerðar þeim í vil.
Nýtt frumvarp um seðil-peninga
^tgáfu var framborið á þjóðþingi
^andaríkja í dag.
200 fiskimenn er mælt að hafi farizt
við strendur Bretlands í storminum, er
*ddi þar um áramótin.
Páfinn hefir bannað kaþólskum
monnum í Bandaríkjunum að standa í
teynifélögum, en þeir neita að lilýða.
Einum háttstandandi manni í her-
stjórn Tyrkja, Zekki Pasha að riafni, er
nú kennt um öll ódáðaverkin í Armo-
niu.
Belgíu-stjórn liefir að sösn ákveðið
að kasta eign sinni á Congo-ríkið i
Afríku. Frumv. þess efnis verður lagt
fyrir þingið bráðlega, og kveðst stjóru-
in eiga meit'i hluta atkvæða vísan með
því.
Jarðskjálftar gerðu vart við sig í
mörgum stöðum á Ítalíu í dag.
Afleiðingin af mútumála-rannsókn-
unum í Toronto í sambandi við stræta-
brautamálið er sú, að dómarinn segir 8
menn seka, 3 fyrverandi bæjarráðs-
menn og 3 sem nú eru ístjórninui, 1 skrif-
stofuþjón bæjarstjórnarinnar og 1 hlut-
liafa í strætisbrautafélaginu. 6 þessir
menn hafa nú verið teknir [fastir, en 2
eru flúnir suður í Bandaríki.
MÁNUDAG, 7. JAN.
Á sunnudagsmorguninn brann
skrautbyggingin prentsmiðja blaðsins
Gloiíe í Toronto, Canada, og fóru þar
allar eignir blaðsins, árgangar blaðsius
allir frá upphafi, og sem að vissu -leyti
er tilfinnanlegasta tjónið. Eignatjón
blaðfólagsins nemur 8160,000. Aðrar
byggingar í grendinni brunnu oinnig
og er eignatjónið alls metið yfir íj milj.
doll. Tveir eða þrír brunaliðsmenn
biðu bana við eldinn. — -‘Globe”-bygg-
ingin var fullgerð fyrir tveimur eða svo
árum og var skrautleg mjög, 6 tasíur á
hæð með 3 turnum app af. Blafið
kom út á mánudagsmorguninn samt
sem áður. Empire-felagið hljóp undir
bagga, léði hús og áhöld.
Montreal-banka-fólagið er að stofn-
setja grein af banka sinum í Nýfundna-
landi, og er þess þörf, þar sem 2 aðal-
bankarnir á eynni eru gjaldþrota.
Eftir fregnum frá Shánghai að
dæma, sem borizt hafa stjórn Breta,
eru litlar líkur til að sættir komist á
með Japanítum og Kinverjum í bráð.
Japanítar eru sannfærðir um að Kín-
verjar þurfi enn meiri ráðningu áður en
þeir viðurkenna sig yfirkomna.
I Victoria, Brit, Col., er venð að
efna til stöðugra gufuskipaferða milli
Victoria og Mexico, Kyrraliafs-megin.
I efri deild þjóðþings var Cleveland
forseti á föstudaginn kærður fyrir vit-
orð, ef ekki greinilega tilraun að hjálpa
samsærismönnum í Havai til að endur-
reisa konungsvaldið. Cleveland hofir nú
svarað kærunni og sýnt að hann er
saklaus.
Steinolía er fundin í Quebec-fylki
austast, nálægt Gaspó-firði. Bunan
gaus 30 fet í loft upp og týndust 500
tunnur af olíu áður en við varö ráðið.
Kuldar miklir og snjófall á Frakk-
landi. Snjór hefir enda fallið langt suð-
ur á Spáni.
ÞRIÐJUDAG 8. JAN.
Herstjóri Canada, Ivar John Cado-
roc Herbert, yfirgefur þá stöðu sína
þessa dagana og fær lítið lof fyrir
frammistöðu sína. Hann sagði af sér
fyrir löngu síðan vegna misklíðar
útaf þvi, að hann beitti valdi sínu
óróttvíslega, það svo að hermálastjór-
inn tók fram fyrir höndurnar á honum
og lét það ekki hafa framgang er Her-
bert vildi.
Nicaragua-skurðs-málið er aðal-
umrroðuefni i efri deild þjóðþingsins
á hverjum degi, en ekKert gengur,
því jafnmargir virðast með því og
móti, að Bandarikjastjórn takist verk-
á hendur, eða leggi nokkuð til þess.
I millitíðinni hafa enskir auðmenn
boðið fram fé sem þarf til að full-
gera skurðinn. Þiggja formenn félags-
ins það boð, ef þjóðþingið gerir ekk-
ert, en þá um leið verður skurðurinn
í höndum Englendinga, eins og Suez-
skurðurinn. Ef t.il vill hefir þetta áhrif á
þingmenn, því þeir vilja ekki sleppa
skurðinum við Englendinga, enda þó
þeir vilji ekki að almantia fé só varið
til að grafa hann.
Þeir eru farnir að jafna sig aftur
Cleveland forseti og senator D. B. Hill
og á laugardagskvöldið var þáði Hill
heimboð í l-hvíta-húsinu.” Af því var
almennt ráðið, að þeir sóu í þann
veginn að verða vinir aftur, þrátt
fyrir alt undangengið.
Dánarbú Jay Goulds er metiö á
873,221,517,08, að frádregnum öllum
skuldum og gjöfum ánöfnuðum i erfða-
slcránni til annara en lögerfingja.
Jarðskjálftar á Sikiley ollu tals-
verðu eignatjóni i gær.
Gamli Gladstone er svo heilsugóður
nú þrátt fyrir að hann er kominn á
80, árið, að hann hefir getað skemt
sér annan spretinn í seinni tíð við
skóiarhögg.
Skemtiskip sprakk í loft upp á
l.öfninni í Rio de Janeiro í Brasilíu
í gær og rýudu þar Hti yfir 100 manns.
Bæja og sveitakosningar fóru fram
hvervetna í Ontario í gær.
Landsreikningar Canada, fyrir
fjárh. árið síðasta, 30. Júní 1894, eru
útkomnir og eru að sumuleyti alt
annað en glæsilegir. Rikisskuldin
jókst um $8,300,000 á árinu, en eigujr
til^ að mæta þeim jukust lika um
3,798,000, og eru þar með taldar gaml-
ar skuldir afborgaðar með nýju láni.
Skuldaraukinn er því netto $1,502.000.
— Alls voru tekjurnar $36,374,693, en
gjöldin $37.585,025. Tekjulialli því $1,-
210,000. Eins og vant er varð tekju-
hallirin fyrir póstflutning mikill. Tekj-
urnar $2,809,301, en gjöldiu $3,517,261.
Tekjuhalli í þeirri deild þessvegna $707,-
000.
MIÐVIKUDAG 9. JAN.
Fregn frá Ottawa segir, að leyfi
heilsa stjórnarformannsins það (hann
hefir verið lasinn siðan um nýár)
veröi ráðaneytisfuu ’ ir haldinn í þess-
ari viku og að þar verði afráðið hvert
þing verður kallað. eða það verður
rofið. Fregnritinn segir að formaður-
inn sé helzt á að efna til kosninga
og fá þannig úrskurð um það hvort
alþýða só ánægð með ráð sín, er hann
tókst formennsku stjórnarinnar á
liendur.* Þar eð nýju kjörskrárnar
verða tilbúnar í Febr. er mögulegt að
hafa kosningarnar innan tveggja eða
þriggja mánaða.
Líkur þykja til að óstjórninni og
óárinu í Nýfundnalandi lykti, bráðlega
með því, að eyjan gangi í fylkjasam-
band Canada.
Hraðfrétt frá stjórnarsetrinu i
Kóreu segir, að í gær hafi konung-
urinn formlega auglýst Kóreu sjálf-
stætt og óháð konungsríki. Samdæg-
urs segja skeyti frá Kína, að sátt-
semjarar Kínverja í .Tapan hafi ekki
umboð til að ganga að nokkrnm samn-
•ingunr, er fari frum A að Japairítar fai
eignarrétt yfir nokkruin hluta Kína-
veldis.
Flóð mikil og óvanaleg á þessum
tíma eru í Ohio-ánni í Ohio-ríkinu.
Áin er bakkafull og að vaxa og full
af ísjökum og krapa. Skaði nú þegar
orðinn stórmikill.
E. V. Debs fór í fangelsi í gær
og er ætlast til að hann sitji þar 6
mánuði, samkvæmt dómsúrskurði, en
kappsamlega er unnið aö því, að inálið
verði tekið fyrir þessa dagana og sá
dómur ónýttur. Debs sjálfur vonar
að Cleveland forseti skerist í leikinn
og gefi þeim félögum upp sakir.
FIMTUDAG 10. JAN.
Fjárveitingar upp á 91 milj. dollara
voru samþyktar á þjóðþingi Bandaríkja
í gær. Samdægurs var i einu hljóði
samþykt að setja 2 Bandaríkjakonsúla í
Armeníu. Samdægurs var og gengið til
atkvæða um, hvort samþykt skyldi til-
laga frá þingreglu-nefndinni um, að
veita bankalaga frumvarpinu forsæti,
og var tillagan feld ineð 130 gegn 124
atkv. Þykir það boða helför trumvarps-
ins, er til kemur að samþykkja það eða
fella.
Repúblíkar halda fram, að nauðsyn-
legt sé að hækka tollinn um 15—20% og
hækka um helming, úr $1 f $2, verk-
stæðistollinn á hverri tunnu af öli.
Þetta segja þeir eina sýnilega ráöið til
að koma í veg fyrir sívaxandi tekjuhalla
stjórnarinnar.
Sagt er að féhirðir Suður-Dakota
stjórnarinnar sé flúinn úr landi með
meginhlutann af árstekjum ríkisins. I
sjóði áttu að vora $350,000, en ekki eftir
nema $15.000, Féhirðirinn var í New
York er síðast fréttist. Ábyrgðarmenn
hans eru skyldir að borga ríkinu alt að
$350,000, en sagt ómðgulegt að inn-
lieimta meira en helming þeirrar upp-
hæðar. Ríkið er því í vandræðum sem
stendur, því skuld þess er nú þegar eins
mikil og lögin leyfa hæzt.
Canadamenn seldu nrerri 821 milj.
virði meira af varningi á Englandi síö-
astl. ár, en árið 1893, en keyptu rneir en
$6 milj. virði minna af vörum þar en ár-
ið áður, vegna sparneytninnar almennu
i harðærinu.
Laurence-fljótið er í vexti og stend-
ur svo hátt i Montreal, að vatn er farið
að ganga í dýpstu kjallara.
C. P. R. félagið hefir rekið svo þús-
undum manna skiftir úr vinnu, með-
fram allri brautinni. Verzlunardeyfð
og þurð vöruflutninga veldur,
FÖSTUDAG, 11. Jan.
Jarðskjálftavart varð á ýmsum
stöí um í Ontario í fyrriuótt og gærdag.
Kerskipið Blenlieim, er flutti lík Sir
Jolius ThompsonS vostur .yfir hafið,
létti ukkerumígær og hélt af stað ti; «
Engiands.
Leyndarráð Breta hefir enn ekki
kon ð með úrskurð í Manitoba skóla-
málinu.
f dag ætla þeir Sifton og McMillan
að bafa tal af dominion-ráðaneytinu og
legg;a fram kröfu sína um aukatillag úr
savrniandssjóði. Halda þvi fram, að nú
sóu :u0,000 íbúar í Manitoba, og vilja fá
$40,i'00 meira tillag en til þe'ssa heílr
veiið veilt.
’ildur kom upp í Toronto í gær-
kvelii, þar sem stórcldurinn um dag-
iun endaði. Eignatjón af völdum þess-
ara.vbrennu yfir $1 milj.
Ofsaveður rneð miklu snjófalii æddi
yfir Austurriki, Ítalíu og Spán í gær.
Utunrð með járnbrautum bönnuð,
jafi.-- el á Spáni. Fjöldi mauns týndi
lífi í stórhríðinni á Italíu.
Öll bréfin, sem farið hafa á milli
Havai-stjórnar og Bandaríkjastjórnar,
voru lögð fyrir þjóðþingið i gær.
ársfundur Great Northern járnbr,-
fél.igsins var v halditm í St. Paul í vær.
Allir fyrverandi stjórnendur voru end-
urkosnir.
Suður-Dakota-stjórnin býður þeim
$20'>0 verðl iun, som höndlar íéhirðir
hennar, þann er strauk. Er nú sagt að
li»i‘ i hafi farið með full 350,000 dollars
af fó ríkisins.
Norður-Dakota-þingið kom sanrnn
á þnðjudaginn 8. þ. m.
Minnesota-þingið kom saman á mið-
vikudaginn 9. þ. m.
Hvað gott framferði áorkar.
Ég get með sanni sagt að minn
verkahringur nær yfir allt Canada-riki
nú sem stendur. Samt, sem áður var
ég ráðinn af verzlunarmanni einum
til að vinna í fjarlægu þorpi meðal
tólki iem að elns liaföi heyrt.minnar
frægðar getið. Kaupmaðurinn full-
vissaði mig um að mér yrði tekið
með mestu virtum. Hann sagði að
tveir verkbræður mínir hefðu verið
rejmdir þar, en að þeir hefðu reynst
svo illa að þeir mistu atvinnuna. Ég
fór með kaupmanninum sem þegar
gerði mig kunnugan íólkinu, og sjáðu
nú til! Ég er efstur á blaði í allri
þeirri sveit. Ég er kallaður hinn val-
inkunni og dyggi Diamond Dye og
það vill engan annan hafa.
I
FRl LÖNDUM.
GEYSIR P. O., MAN., 2. Jan. 1895.
Gamla árið kvaddi okkur hérna
með töluverðum pólitiskum vindbelg-
ingi. Og þess mun varla dæmi í sögu
mannkynsins, að annar eins blástur
haíi orðið út af einföldum sveitakosn-
ingum. Það var engu likara hér um
tima, en að umsóknin væri um æðri
völd, en eina lítilfjörlega oddvitastöðu
og tvö smá meðráðenda-sæti; því sann-
ast að segja var hér unnið eins og um
sambandsþingskosningar hefði verið að
ræða. En blástur þessi er búinn og
komið blíðalogn. að minnsta kosti von-
ar maður það.
Heilsufar var hér með lakara móti
í liaust. E'nkum ollu því mislingar
sem geysuðu yfir vesturpart bygðar-
innar, og komu óvenjulega þungt nið-
ur á unglingum. Hr. Þorsteinn M.
Borgfjörð misti tvær stúlkur, Oddnýu
10 mánaða gamla (dó 9. Nóv.), og
Helgu Þórunni Octaviu 3 ára gamla
(dó 20. Nóv.). Um sama leyti misti
hr. Antoníus Jónsson Sigríði dóttur
sina, 8. ára gamla, efnilegt og gott
barn. Mörg börn urðu mjög þungt
haldin. Nú er veiki þessi hér alger-
lega útdauð.
Milli jóla og nýárs var skemtun
haldin við fljótið af Goodtemplurum
þar; er sú samkoma álitin hreint sú
bezta, sem haldin hefir verið við fljót-
ið í langa tíð. Smá-sjónleikur var þar
leikinn á ensku, og mun það ekki hafa
verið fyr gert í nýlendu þessari. Sam-
koma var og haldin á gamlárskveld í
Mikleynni. Á jóladagskveld hélt hr.
Stefán Sigurðsson privat samkomu í
húsi sinu í Breiðuvík; var þar ágætis
skemtun og bestu veitingar.
Nemendur við Baldurskóla gáfu
kennara sinum, J. M. Bjarnrsyni,
vandað og fallegt album i jólagjöf.
Mr. og Mrs. B. H. Sigurgeirsson
frá Mikley dvöldu liér um jólin hjá
NR. 2.
cn hið lága verð á........
YFIRH0FNUM
Karlmanna, Drengja, Unglinga og Barnafötum, Ullar-
nærfötiun, Yfirskyrtum, Vetlingum, Glófum,
Moccasins o. s. frv. — Alt verður selt án
-------- tillits til verðs í -
Vér höfum nýlega fengið mikið af karlmanna og drengja yfirhöfnum
sem verða seldar fyrir ótrúlega lítiö. Það þarf .ekki stóra peninga-
uþphæð til að kauþa sér heilmikið af fatnaði frá því í dag og út næstu
viku í WALSH’S CLOTHlNG HOUSE. — Einnig höfum vér ný
karlmannaföt úr fínu svörtu Worsted og skozku vaðmáli, og verðið á
öllum þessum varningi er óheyrilega lágt. Þetta ár höfum vér rneira
og margbreyttara upplag af drengja og barnafötum en nokkrusinni áðr.
IGóðar yfirhafnir verða um tíma seldar fyrir
$3.75. Ágætar vetraryfírhafnir úr Frieze og
■ Nap, með kraga og belti og fóðraðar með bezta
fóðri verða se’dar á $7.50.
WALSH’S Clothing House.
T. M. WALSH.
515 og 517 Main Str. gegnt City HalL
. M. Bjarnasyni. í orði er að Mrs.
igurgeirsson kenní hér við skólann
m tíma i vetur.
I'regnriti Hkr.
SPANISH FORK, 1. Jan. 1895.
(Frá fregnrita vorum).
Héðan úr umdæininu er nú sem
stendur fréttalítið. Tíðin hefir mátt
heita hið mesta öndvegi, það sem af er
þesum vetri. Fyrsti snjór féll hér hinn
6. des., bara lítið föl sem tók upp undir-
einsaftur; svo kom aftur snjór sem enn
liggur á jörðu, rétt um jólin. Frost
hafa einlægt verið mjög væg í vetur.
Veikindi hafa gengið hér í vetur,
bæði í börnum og fullorðnuin, og hafa
nokkuð margir dáið, en þó engir meðal
landa vorra.
Pólitikinni líður allvel, hún hefir nú
hvílt sig síðan i haust í bilnum góða,
þegar flesta demókratana fenti. Á morg-
un taka allir liinir nýkjörnu embættis-
menn við embættum sinum.
Árið 1891, sem kvaddi oss í gær,
hefir að mörgu leyti verið söguríkt ár,
hér í þessu territory, þótt lítið hafi skeð
nf opinberingum, þá hefir samt margt
það skeð, sem lengi mun í minnum haft
fram eftir öldunum. Á þessu ári liefir
verið meira lif og fjör í pólitikinni, en
menn hafa átt að venjast áður. Á þessu
ári leið algerlega undir lok hinn svo kall
aði Leberal-flokkur, sem um mörg ár
hefir valdið sundrung og gremju liér á
meðal hinna “siðustu daga heilögu.” Á
þessu ári kom saman hið fyrsta repú-
blikanska lögejafarþing hér í Utah, og
á þe°su ári komust repúblíkar fyrst til
valda hér. Á þessu ári gekk i gegn á
þjóðþingi voru lagafrumvarpið um inn-
töku Uta'n í ríkjasambandið.sem i fjöru-
tíu ár hefir að margra hyggju verið
nokkurs konar þrepskjöldur á framfara-
vegi Utah, að hún hefir ekki verið tekin
inn. Á þessu ári voru opnaðar 6,000,000
ekra af frægasta búlandi hér til upptöku
fyrir hvitt fólk ; Indíánar eiga landið og
hafa búið á þvi lengi. Þetta umliðna ár
hefir skilið eftir hinar bestu framtið-
arhorfur, þrátt fyrir verzlunardeyfð oí
atvinnuskort, sem hér hefir verið líkt og
annarstaðar ; samt or oss óhætt að segja
að hér hafi þó á.standið verið tiltölulega
betra en í mörgum öðruin fylkjum hér í
kring.
Járnbrautaskrúfan mikla olli að
visu töluverðu óliagræði liér eins og
annaistaðar, en þó varð það minna en
út leit fyrir í fyrstu.
Flökkuher Coxeys og Indíánar, sem
óðu hingað inn i haust frá Colorado,
gerðu oss einnig talsvert ónæði, en þó
gátum vér losast við þá hvorutveggja
án stríðs eða blóðsúthcllinga.
Hinum fátæku sem með oss búa,
hefir á þessu ári drengilega verið lijálp-
að af ýmsum mannvinum og mannúðar-
félögum, og alment mun sú tilfinning
rikja hjá fólki, að árið sem leið hafi ver-
ið oss heilla og blessunarríkt ár, jafn-
framt því sem það hefir verið sögu og
viðburðaríkt. Hið nýa ár brosir nú við
oss og spáir farsælustu framtíð.
COLD SPRINGS, MAN., 5. Jan.
Af því að svo sjaldan sjást fréttir
héðan, dettur mér í hug að senda fáar
línur. Mér þykir leiðinlegt, að enginn
skuli taka sér fram með að skrifa fréttir
héðan úr Álftavatnsnýlendunni, því óef-
að er það, að hér ber ýmislegt til tíðinda
ekki síður en í öðrum bygðarlögum.
Héðan er að frétta almenna velliðan
og allflestir við fremur góða heilsu, og
áhugi manna með félagsskap er frekar í
góðu lagi. Samkomuhús okkar, sem
staðið hefir í smíðum, er nú fullgert og
hafa flest allir bændur atutt að upp-
komu þess mjög drengilega. Tvær sam-
komur hafa verið haldnar í húsinu;
fyrri samkoman var haldin í Nóvem-
ber af nokkrum konum, sem gengust
fyrir að safna hlutum til hlutaveltu
eða tombólu og stýrði þeirri samkomu
Mrs. Ingibjörg Lindal, sem er alþekt
fyrir greind og dugnað. Ágóðinn af
samkomunni urðu $16 og gáfu þær
þá upphæð til hússins. Hin samkom-
án var haldin á gamlárskveld, inn-
gangur þá ókeppis. Skemtanir voru
söngur og ræðuhöld og svo hlutavelta
og fyrir það kom inn $8. Síðast var
skemt sér með dans og hljóðfæraslætti
fram á nótt. Allir fóru ánægðir heim.
F. Oddson.
VEITT
HÆSTU VERDLAUN A HEIM8SÝNINGUNNJ
BMNfi
Pilfiffi
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynzlu.