Heimskringla - 01.03.1895, Page 1
IX. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 1. MARZ 1895.
NR. 9.
Fylkisþingið.
Fimtudaq 21. Febr.
Þingið kom saman kl. 3. e, h. og
voru fyrst fram bornar nokkrar bæn-
arskrár, þar á meðal 2, sin frá bvorri
sveitarstjórn, er biðja um breytingu
á sveitarlögunum að því er snertir
skyldu-vinnu að vegagerð. Þá var
lögð fyrir þingið reglugerð menta-
málastjórnarinnar, er samþykt hafði
verið á árinu 1891. — Var þá á ný
tekið að ræða um ávarpið og var
þakklætis-vottorðið samþykt stuttu
áður en fundi var frestað. — Að um-
ræðunum loknu bað þingm, T. Duncan
(frá Morden) að fyrir þingið yrðu lögð
öll bréfaskifti stjórnarinnar áhrærandi
Sifton-sveitarmálið, ásamt skýrslu
Smarts yfirskoðara. Þingm. Fisher
æskti eftir meira í þessu sambandi, vildi
að þinginu yrði kunngert alt sem stjórn
inni eða einhverjum meðlimum hennar
væri kunnugt í því máli. Lofaði Sif-
ton dómsmálastjóri að svo skyldi vera.
—Þá lagði jdómsmálastjórinn fyrir
þingið skýrslu þá, er um hafði verið
beðið, um tölu kaþólskra skólahéraða,
er hlýðnast ^hefðu lögunum frá 1890.
Sýndi skýrslan að tala þeirra er 30 alls.
Höfðu 5 gengið að boði stjórnarinnar
1891, 3 1892, 4 1894 og 18 á síðastl, ári.
—Þá var þingm. R. H. Myers (Minne-
dosa) veitt leyfi til að bera fram og fá
lesin í fyrsta skifti tvö lagafrumvörp,
annað Um breyting á eldsvarnar-lög-
unum 0g liitt um breyting á County
Court lögunum. Fundi frestað kl. 6 til
mánudags 25. Febr.
MáNUDAG 25. Febh.
Þingið kom sarnan kl. 7. e. h. og
voru þá áheyranda pallarnir þéttsett-
ir, því kunnugt var, að fram mundi
borin ársskýrsla féhirðisins, enda var
áætlunin um tekjur og gjöld á ný-
byrjuðu ári undireins framlögð auk
ýmsra annara skýrslna. Aætlunin sýn-
ir tekjur alls $718,089,75 (104,995,50
tteira en á síðastl. ári) og af þeirri
upphæð vonast fylkið eftir $505,000
hr sambandsstjórnarsjóði. Gjöldin eru
áætluð $716,274,63. Er þannig búizt
tekjuafgangi er nemur $1,815.12.
við
* útgjaldadálkinum eru $39,400 ætl-
aðir til styrktar sveitarstjornum og
til opinberra starfa í fýlkinu, vega-
gerðar o. s. frv. Til menntastofnana
eru alls veittir $123,600, þar af til
“Dominion” skólakonnara félagsins
$100, til Manitoba liáskólans $3,500,
til allra annara skóla $120.000. Til
innflutnings-starfa er okki í þetta skifti
varið nema $6,000 9,000 minna en í
fyrra. Undireins og féhirðirinn hafði
flutt skýrslu sýna og ræðu í því sam-
bandi var umræðum um það mél frest-
að til þriðjudags, svo að önnur mál
kæmust að. — A þessum fundi var enn
spurthvert búiðværi að kveðja til þing-
kosninga í LansdoMne og svaraði forseti
sem fyrri—nei.Minnti þá þingm. Fisher
þingið á, að lögin hiðu þingforseta
tafarlaust (forthwith) að kveðja til
kosninga, en nú væru liðnir 11 dagar
síðan kjördæmið varð þingmannslaust.
Forseti kvað dráttinn á engan hátt
sér að kenna. — Þá var í annað skifti
lesið frumvarp dómsmálastjórans um
breytingar á meðferð mála fyrir yfir-
rétti og eftir litlar umræður var 11
manna nefnd skipuð til að yfirvega
það.
Á meðal annara skýrslna, er lagð-
ar voru fyrir þingið, var ein frá heilsu-
umsjónarnefnd fylkisins. Er þess þar
getið að á árinu hafi einungis eitt
bóluveikis tilfelli átt sér stað, en að
6,967 manns hafi verið bólusettir.
Sjúkdómstilfelli sóttnæmra sjúkdóma
voru alls 1,255 í fylkinu á árinu og
skiftast í flokka þannig:
Taugaveiki......................... 568
Skarlat-sótt....................... 224
Barnaveiki (Diptheria).............. 82
Mislingar........................... 28
Tuberculosis........................ 85
Hettusótt........................... 21
Kíghósti........................... 122
Pétursbóla(?) (Chickenpox)......... 115
1.22'5
Þridjudag 26. Febr.
Þingið koin saman kl. 3, e. h. og
gekk meginhluti dagsins til að ræða
um fjárveitingalögin — áætlunina, er
fram var lögð í gærkveldi. í ræðu
sinni sagði þingm. Fisher að þrátt
fyrir að stjórnin hefði gert miklar
breytingar til batnaðar í fjárhagslegu
tilliti, væri þó horfurnar í hæzta máta
alvarlegar. Síðan 1888 hefði stjórnin
tekið til láns $2J milj. og þegar búið
væri að draga frá þeirri upphæð öll
aukagjöld stjórnarinnar á þessu tíma-
bih kæmi í ljós að stjórnin hefði mátt
til með að brúka um $250,000 af þessu
láns fé til að mæta sínum almennu
gjöldum. Umræðum var lokið áður
en fundi var frestað og nefnd skip-
uð til að yfirfara skýrsluna. — Þingm.
Fisher bað um öll bréfaskifti fylkis
og dominion-stjórna áhrærandi tillags-
auka, síðan 1885. Sami þingm. til-
kynnti nokkru síðar, að á fimtudag-
inn ætlaði hann að bera fram uppá-
stungu þess efnis, að fylkisstjóra em-
bættið só óþörf tilvera, að annar mað-
ur í annari stöðu gæti leyst af hendi
fylkisstjóra störfin án þess í nokkru
að rýra hina sönnu tign stöðunnar;
að landstjóranum í Canada sé ritað
um þetta mál og að stjórnarformönn-
um fylkjanna í Canada só send afskrift
af því bréfi, í því skyni að leita álits
þeirra á málinu. — Þingm. Prendergast
bar fram frumvarp til laga áhrærandi
breytingar á meðferð vissra mála fyrir
dómstólum, og var það lesið í fyrsta
skifti. Meðþessumlögum ætlar hann að
fyrirbyggja að dómsúrskurður gefi ein-
um hærri rétt en öðrum, (til að ná í
eignir gjaldþrota manna til dæmis.) —
Beðið var um skýrslu er sýndu hvaða
sveitir hefðu fengið styrk úr fylkissjóði
til verðlauna fyrir úlfadráp og hve
mikla upphæð liver hefði fengið.
Mibvikudag, 27. FEáR.
Þingið kom saman kl. 3 e. h. og
var fyrst á dagskrá uppástunga þingm.
Fishers um tilhliðrunarsemi við kaþól-
íka í skólamálinu, samkvæmt úrskurði
leyndarráðsins brezka. Um þetta var
rifist til kl. 6 og frá kl. 7 aftur til kl.
rúmlega 12 aðfaranótt fimtudagsins.
Var þáfeld uppástunga Fishers með
22 gegn 10 atkv. og breytingaruppá-
stunga Siftons viðtekin með sama atkv.
fjölda. Var hún í þá átt, að fylkið
skuli með lagalegu móti neyta allra
krafta sinna til að andæfa tilraunum,
ef gerðar verði, í þá átt að rýra gildi
núgildandi skólalaga í Manitoba. Að
þessu loknu var þingi tafarlaust frestað,
endaklukkan þá langt gengin eitt.
dagbók.
FÖSTUDAG 22. FEBR.
Hinn nafntogaði mælskumaður og
stjórnfræðingur, svertinginn Frederick
Douglass, er nýl4(jnI1 að heimili sínu
í Washington 78 ára gamall — fæddur
í Febrúar 1817 í Maryland-ríkinu.
Faðir hans var hvitur maður, en móð-
ir hans óblandinn svortingi og var
hann að sjálfsögðu fæddur ánauðugur
þræll, eign húsbóndans en for-
eldranna, og ólst þannig upp f þræl-
dómi til þess er hann strauk úr ánauð
árið 1838, 21 árs gamall, komst til
Massachusotts og settist þar að. Tók
þá William Lloyd Garrison hann und-
ir verndarvæng sinn og hjálpaði hon-
um til að afla sér mentunar. Arið
1841 flutti hann svo merka ræðu
almennum fundi undir forstöðu félags
í Massachusetts, er vann að afnánii
þrælahaldsins, að honum var boðin
stjórn þess félags. Þá var hann kom-
MIÐVIKUDAG, 27. FEBR.
I gær var samþykt frumvarp til
laga á þjóðþingi Bandaríkja, er skipar
þriggja manna nefnd, sem æðsta dóm-
stól, til að útkljá öll þrætumál milli
vinnuveitenda og vinnuþiggjenda, þau
er hlutaðeigendur geta ekki einir út af
fyrir sig útkljáð. í þessum lögum er
ákveðið að formaður stjórnardeildarinn-
AMidnightWalk;
with a colicy baby or a colicy stomach 4
isn’t plcasant. Either can be avoided
by keeping a bottle of Perry Davis’
Pain Ku.r.RR on the medicine shelf. It
is invaluable in sudden attacks of Cramps,
Cholera Morbus, Dyscntcry and Diarrhœa.
Just as valuable for all external pains. - ^
I Uosg—Onc tt^pponful ln a halfKÍasHofwator or mllk (wnrrn Ifconvenfpnt).
á rekspölinn og hélt hann áfram
upp á við eftir það alt til dauða-
dags. Síðasta opinbera staða hans var
ráðherrastaða Bandaríkja í Hayti-lýð-
veldinu litla og það starf leysti hann
svo vel af hendi, að Hayti-stjórn,
gerði hann sinn aðal-umboðsmann á
Chicaeo-sýningunni. Síðan henni lauk
hefir hann ekkert gert, en haldið kyrru
fyrir Washington. Hann var tvíkvænt
ur og var seinni kona hans,er lifir hann,
af Evrópu ættbálki.
Ontario-fylkisþingið kom saman í
gær. Flokkskiftingin á þingi er þann-
ig: stjórn.arsinnar 52, conservatívar
26, Patrons 14, — og eftir að kjósa í 2
kjördæmum.
Vinnustöðvun all mikilfengleg er
hafln í INT ew York. Rafmagnsvéla-
smiðir allir hættu vinnu og heimtuðu
liærra kaup og þeim til hjálpar hættu
þá einnig allir eða flestir, sem að
húsabyggingum vinna, en það eru um
10,000 manns alls.
LAUGARDAG 23. FEBR.
Theodor Davie fyrrverandi stjórn-
arformaður í British Columbia hefir
verið skipaður háyfirdómari við fylk-
isyfirréttiun.
Suður-Dakota þingið neitaði í gær
með 40 gegn 34 atkv. að veita kvenn-
fólki kosningarétt og kjörgengi.
Sagt er að svertingjar hafi ráðist
á herflokk franskan í Afríku og drepið
300 manns.
í gær voru reyndar til þrauta, f
grend við Wasbington, herskipabrynj-
urnar, sem Carnegie fél. smíðar. Skild-
irnir reyndir, voru 17 þuml. þykkir
og festir á tré, er svöruðu til innviða
skipsins. Svo voru fallbyssttr hlaðnar
og skotunum hleypt á skjöldinn, og þó
ferð kúlunnar væri 1850 fet á hverri
sekúndu, sá ekkert á stálinu. Var þá
aukin lileðslan sem mest mátti, 500
punda kúla og 241 pund af púðri. Var
þá ferðhraði kúlunnar 1940 fet á se-
kúndu, og boraðihún litla holu í slcjöld-
inn, en skemdi hann ekki að öðru leyti.
Var þá tekin enn stærri fallbyssa og
hlaðin sem mest mátti, svo ferðhraði
kúlunnar nam 1850 fetum á sekúndu.
Boraði sú kúla gat í gegnum skjöldinn,
en ekki orkaði hún að sprangja hann,
eða saka á annan hátt, Enginn sams-
konar skjöldur hefir áður þolað slíka
raun.
MÁNUDAG, 25. FEBR.
Stjórn Breta hefir ákveðið að koma
upp kúlna og skothylkja verkstæði í
Quebec city.
Stjórnin á Frakklandi hofir fengið
áskorun frá kaupmannafélagi f Bour
deaux um að lej’fa aðflutning cana-
diskrar steinolíu og leggja eK.ki á hana
nema lægsta toll,
Þing Japaníta hefir mótmælalaust
samþykt að taka nýtt herkosttiaðarlán,
100 milj. ye/is = (dollars). Auk þessa
neflr það veitt stjórn Japaníta leyfi til
að útvega Koreu-stjórn $15 milj. lán.
Að þessu'láni meðtöldu er herkostnað-
ur Japaníta orðinn $250 milj. “yens'
Sambandsstjórnin í Canada hefir
auglýst, að með vissum skilyrðum fái
Indíánarnír í Manitoba atkvæðisrétt
eftir 3 ár.
Fregnir frá Havai segja að alls
hafi 381 manns verið liandteknir og
kærðir fyrir landráð í sambandi við upp
reistina litlu í Jan. Meðal þeirra er
fyrrverandi drottning og er hún nú
dæind í 5 ára fangelsi, en þó gefin
kostur að yfirgefa eyjarnar fyrir fullt
°S Rlt, ef hún vill það heldur.
ÞRIDJUDAG, 27. FEBR. *
Miðsvetrarhátíðin venjuloga í New
Orleans var hafín í gær með óvenjulegri
viðhöfn og miklmn mannsöfnuði.
General Herbert, yfirherforingi í
Canada, sem fyrir skömmu var sagt að
hefði sagt af sér. fór af stað til Eng-
lands í gær. Ofan á er látið Jlieita að
hann hafi fengið burtveru leyfi, en sagt
að hann muni ekki koma aftur.
Á laugardaginn var ákvað stjórnar-
ráð Frakklands að banna allan innflutn
ing nautpenings frá Bandaríkjum.
Skeyti frá Kristianiu í Norogi seg-
ir, að Óskar Svfa konungur liafi í hug
að binda enda á deilur N orðmanna og
Svía með því, að gera son sinn, þann er
um árið afsalaði sér erfðarétti til kon-
ungsvalds í Svíaríki, að konungi yfir
Noregi.
Nú er sagt að Tolstoi greífi sé höf-
undur ávarpsins skoriuorða, sem út
kom á Rússlandi um daginn eftir að
keisarinn auglýsti, að engin vón væri
til stjórnarbótar.
ar, sem fjallar um atvinnumál, skuli
tvisvar á mánuði gefa út skýrslur yfir
störf þessarar nefndar.
Fyrir áskorun Daltons McCarty,
er tók að sér að flytja mál Manitoba-
stjórnarinnar á fundinum i Ottawa í
gær,var umræðum um skólamálið góða
frestað þangað til á mánudaginn kemur
(4. Marz).
Á þingi Breta var í gær samþykt
að stjórn Breta skyldi taka þátt í al-
þjóðafundi. ef til kæmi, til að'ræða um
og ef kostur er að búa til eða ákveða
eitthvert jafnvægi gull og silfur pen-
inga, sem lögeyris.
Hveitimylna og kornhlaða 'Hudson
Bay fél. í Prince Albert brann til rústa
á mánudagskvöldið var. Eignatjón
$25,000. — í gær brann pósthúsið og á-
föst búð í Carberry, Man. Eignatjón
$14,000.
Læknirinn, Dr. A. Demartigny, er
Quebec-stjórnin fyrir skömmu sendi til
Frakklands til að rannsaka bólusetning-
arefnið gegn diptheria, er heim kominn
og lætur vel af því, en efni það sem til
þessa hefir verið búið til í New York
segir hann sé langt frá því að vera full-
komið.
FIMTUDAG 28. FEBR.
í Halifax brann í gær innflytjenda-
húsið, hryggja mikil, kornhlaða, vöru-
hús og ýms önnur hús. F.ignatjón um
eða yfir $1 milj. Skaðinn kemurþyngst
niður á sambandsstjórnina og engar af
eignum hennar voru í sérstakri eldsá-
byrgð.
Stjórnbyltinga tilraunir eru í bruggi
á eynni Cuba og óeirðarsögur berast
þaðan á hverjum degi, en engar mark-
verðar. Erindrekar uppreistarmanna
hafa verið að safna samskotum í New
York og enda fá þar liðsmenn til að
brjóta af eynni ok Spánverja.
Eitt þorpið til í útjöðrnm Chicago
gekk í bæjar-samband í gær, og er nú
flatarmál Chicago orðið 187js ferh.míla.
Foringi SHuhjálparhersins, Rev.
Wm. Booth, kvaddi Ameriku í gær og
fór af stað heimleiðis frá New York.
Þjóðþing Bandaríkja hefir neitað
að hlýða úrskurði Parísar nefndarinn-
ar í fyrra, er ákvað Canadamönnum
$125,000 skaðabætur frá Bandar.stjórn.
íslands-fréttir.
Eftir Fjadukonunni.
Reykjavík, 5. Desemher 1894.
FrímannB. Anderson, Ameríku-Í s
lendingur, fór nú með “Laura” alfarinn
til Ameríku aftur. Hann hefir, sem
kunnugt er, verið aðreyna að fá Reyk-
víkinga , einkum bæjarstjórnina, til að
að hugsa um raflýsing (og rafhitun)
bæjarins og gera eitthvað í þá átt. Áð-
ur en hann fór mun hann hafa afhent
einum bæjarfulltrúanum áætlanir um
fyrirtækiö frá amiriskum og enskum
félögum. En fyrir fyrirhöfn sína og á-
liugft á þessu máli hefir hann að eins
fengið óþökk og skammir hjá sumum í
bæjarstjórninni.
Nú eru útlendingar þegar farnir að
athuga þetta mál. Þýzkt félag hefir
leitaö fræðslu í Kauimiannaliöfn um
vatnskraft Elliðaárfossanna og mun
ætla að gera tilboð um það að lýsa
Reykjavík.
27. Des.
Koennnblað. Það er orðið heyrum
kunuugt, að kona útgefanda þessa blaðs
Bríet Bjarnhéðinsdóttir, ætlar að fara
að gefa úl blað fyrir kvennfólkið hér á
landi. Það á að verða sem mest prakt-
iskt að efni með tilsögnum í ymsu, bú-
ráðum og húsráðum, og ennfreiuur sög-
ur og annað til skemtunar. Af því
sem sjá má af boðsbréfum þeim, sem
endursend liafa verið enn, lítur út fyrir
að þetta blað fái boztu uudirtektir, og
má því telja víst að blaðið kemur út.
enn ekki getur 1. blaðið komið út fyrr
enn nokkuð löngu eftir nýár, því híða
verður eftir áskrifendum.
10. Jan.
Lögunum um kjörgengi kvenna, er
samþykt voru á alþingi 1893, hefir nú
stjórnin synjað um staðfestingu, af
þeirri ástæðu, að lögin mundu vera ó-
þörf, þar setn kvennfólkið sjálft hefði
ekkert látið til sín heyra um það, að
það æslcti þessara réttinda, enda legði
lögin konum skyldur á herðar, sem ó-
vist væri að þær vildu gegna, og enn-
fremur væri samskonar lög okki á kom-
in á Norðurlöndum, eða í þeim löndum
er líkust væri íslandi að þjóðháttum. —
Það var reyndar aldrei við að búast, að
stjórnin mundi samþykkja þessi lög,
meðau dönskum konum eru ekki veitt
sömu réttindi, enda virðast þau ekki
bráðnauðsj-nleg. Þau munu vera meic-
laus og gagnslitil. — Öðru máli er að
gegna um fjárráðs-réttindi liftra
kvenna. sem aiþingi hefir verið að fjalla
um og vonandi er að lög verði samþykt
um á næsta þingi. Sú réttarbót mundi
hafa mikla þýðingu.
AJlabrögð eru nú engin hér sunnan-
lands. Á Stokkseyri var nýlega róið og
varð naumast fiskvart. Suður í Garð-
sjó varð og naumast var; síðast er róið
var þar til fiskjar.
Brdðapeslin heldur áfram að drepa
fé víða hér sunnanlands. — Á Fjalli á
Skeiðum hefir pestin drepið um 150 fjár.
Skaftafellssýslu (Mýrdal) 23. Des. 1894:
“Hóðan eru litlar fréttír núna sem
stendur. Tíðarfar hefir verið alloftast
sífeldir umhleypingar og hafáttir með
miklum úrkomum. En alt að þessum
tíma mjög lítil snjóköma, þangað til
núna dreif snjó21. þ. m. og gerði blota
svo haglítið er og sauðfénaði ölium gef-
ið. — Vart hefir orðið við plankreka hér
á Mýrdalsfjörum og sömuleiðis hefir
rekið sauði. Róið var hér um allan
Mýrdalinn í liaust og varð enginn fisk-
var, og er það óvani hér, þó lítið hafi
áður verið, og valda því að likindum
hin útlendu fiskiskip, som liggja hér
fyrir framan alt sumarid til hausts, og
slíta og rífa hverja skepnu sem fyrir
þeim verður, því fiskurinn tekur frem-
ur þeirra veiðarfæri heldur en síldar-
lausa og kolryðgaða önglana. — Bráða-
pestin hefir verið með langmosta móti í
haust og allstaðar sem til fréttist. —
Heilbrigði manna hefir verið fremur
góð. Enginn hefir nafnkendur dáið”.
liafmagnslýsing Reykjavikur. Þess
var getið um daginn að þýzkt félag
(Siemens’ f Berlín), sem býr til raf-
magnsvélar, hefði leitað upplýsinga í
Kaupmannahöfn um vatnsaflið í Ell-
iðaárfossunum og að því hefði verið
sendir reikningar hr. Sæmundar Eyj-
ólfssonar i íslenzku blöðunum. Jafn-
framt vildi félagið fá að vita, hvort mik
il brögð væri að því, að árnar frysu á
vetrum. En um það atriði mun það
engar upplýsingar hafa fengið.
23. Jan.
Aflabrðgð. Á Eyrarbakka og Stokks-
eyri hefir að undanförnu afiast allvel af
ýsu, þegar gefið hefir að róa. Fiski-
laust við Faxaflóa.
Árnersýslu, (Eyrarbakka), 7. Jan:
“Taugaveiki er að stinga sérniðurá
stöku bæ, en fáir hafa þó dáið. —Þjórs-
árbrúar-efnið er nú komið upp að brú-
arstæðinu og gekk alt vel og slysalaust
með flutning á því. Fremur þóttu
vinnulaun lág við aksturinn, ogmun
það hafa verið því að kenna, hve þeir
sömdu um lág “akkorð”, er fyrir flutn-
ingnum stóðu neðri hlutann af leið-
inni......”.
I. Febr.
l'íðarfar er alt af óstöðugt mjög
Nú sem stendur eru hlákur og mun
hafa tekið upp snjó í sveitunum. En að
undanförnu liafa verið frost mikil, 12—
14 C.
Ishúsið hér í bænum er nú fuflgert
fyrir nokkru og hefir verið fluttur í það
ís af Tjörninni. Isinn reyndist góður
og betri enn ísinn í Elliðaánum, sem
hafdur er í íshús Thomsens kaupmanns
þar við árnar. En því miður er litið
til að geyma í íshúsi þessu ennsem kom
ið er ; vonandi að úr því rætist áður
langt liður.
Baðfélag er stofnað hér í bænum
með hlutabrófum og ætlar að koma böð
um á fót í prentsmiðjuhúsinu gamla
Aðalstræti. Það verða venjuleg böð
heit og köld, steypiböð, rússnesk blöð o.
s. frv. Þetta er þarft fyrirtæki og von
andi að það þrífist vel.
Abyrgðarfdag þilskipa er nú komið
á fót hér fyrir milligöngu Tr. Gunnars
sonar bankastjóra. Eru gengnir i það
allir þilskipaeigendur í Reykjavík og
Seltjarnarnesi, nema Eyþór Eelixsson
sem liefir skip sín í ábyrgð erlendis, og
Geir Zoega, sem að sögn hefir verið
tregari að ganga í félagið fyrir þá sök
að skip hans munu vera betur útbúin
en flest hin skipin.
4, Febr.
Skagafjarðarsýslu, 12. Jan. “Veðr
áttan mjög óstöðug, svellalög mikil og
því haglítið orðið. — Bráðapestin hefir
verið hér óvanalega skæð, víða hér
sveitum drepið 40—70 á bæ. — Pöntun
arfélag Skagfirðinga, fékk 20 þús. kr
peningum í liaust fyrir selt fé. Fjár
sölunni verður haldið áfram í félaginu
en líklega í minni stíl, því hún þykir
ekki svara kostnaði, þegar ekki selst
betur en í liaust. — Nú er byrjað að
byggja hi'úna á iHóraðsvötnin.
Cure Biliousness, Sick Head-
ache, Dyspepsia, Sluggish Liver
and all Stomach Troublcs.
Are Purely Vegetable,
elegantly Sugar-Coatedj and do
not gripe or sicken.
Act gently but promptly and
thoroughly. “The safest family
medicine.” All Druggists keep
Samgöngur milli Reykjavikur og út-
landa eru nú orðnar miklu strjálari en
samgöngur milli Austfjarða og útlanda.
Austfirðingar hafa nú í vet.ur haft stöð-
ugar gufuskipaferðir til Noregs. —
Reykjavík er þannig orðin á eftir smá-
kauptúnum út um landið hvað sam-
göngur snertir, og kemur það af því, að
hór láta menn sér nægja, að vera ein-
göngu komnir upp á gufuskipafélagið
danska. Það eru ekki Danir, sem hafa
bsptt samgöngurnar við Austurland,
það er Otto Wathne, hinn alkunni dugn-
aðarmaður, sem telur sig nú sem ís-
lending. — Skaði, að ekki hefir tekizt
að semja við hann um strandferðirnar
kringum landið. Það mál ætti að
verða betur undirbúið til næsta þings,
enn það hefir verið að undanföJnu.
Eftir Þjóðólfi.
Reykjavík, 4. Janúar.
Skaðar af cfviðri. Aðfaranóttina
28. Des. var hér syðra ofsarok af út-
suðri með geysicftiklum sjávargangi af
stórstraumsfióði, svo að ^elztu menn
þykjast varla muna jafnmikið hafrót
og sterkviðri. Urðu allmiklar skemdir
af því hér í bænum : tveimur bryggjum
sópaði alveg burtu, en flestar skemdust
til muna, þar á meðal hin marglaskaða
hæjarbryggja. Kolageymsluskúr við
W. Christensens verzlun féll gersam-
lega að grunni, og hliðin á “bryggju-
liúsinu” brotnaði annarsvegar og tók
iar út nokkrar vörur. Búð Helga
kaupm. Helgasonar beið þó einna mest-
ar skemdir, brotnuðu hliðveggirnir
beggja megin að neðanverðu og skemd-
ist þar allmikið af vörum, 50—60 sekkir
af mjöli, nokkuð af kafíi og sykri m. fl.
Fiskiskútuna “Sleipni”, eign Guðna
bónda á Vatnsnesi, tók út af stakk-
stæði og rak upp annarsstaðar, allmik-
ið brotna. Hjá Jóni bónda í Skildinga-
nesi .brotnaði sexmannafar í spón og
tveir bátar til muna. Víðar urðu skemd
ir á skipum og sjávargarðar löskuðust
meira og minna. Geymsluhús í Hvassa-
hrauni skekktist í hafrótinu og tók þar
út allmikið af matbjörg jarðarábúend-
anna. Um fjárskaða í veðri þessu hef-
ir ekki frétzt, nema ihjá Jóni bónda
Ólafssyni á Bústöðum, fátækum manni.
Hann misti um 20—30 fjár, er rotaðist í
fjörunni undir klettunum í Fossvogi. —
A.ustanfjalls (á Eyrarbakka og þar í
grend) kváðu ekki hafa orðið neinar
verulegar skemdir af veðrinu, enda
kveðið þar miklu minna að því.
Brdðafár 1 sauðfó hefir verið óvenju
lega mikið næstl. haust, einkum á Suð-
urlandi og Vesturlandi, en niiklu minna
nyrðra og minst á Austurlandi. Hefir
það lagzt einna mest á unglömb og
[Framhald á 4. bls.j
VKITT
BÆSTU VERULAUN A HEIMSSÝNINGUNNI
TT“. '■"!> •
im
lill
t-Mmu m
IÐ BEZT TILBÚNÁ.
Oblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynzlu.