Heimskringla - 01.03.1895, Blaðsíða 4
4
IltlMSKKINGLA 1. MAI5Z 1?>95
Winnipeg.
Hr. Kristján Lífmann á Gimli
heilsaði upp á oss núna í vikunni.
Miss Halldóra Thomson, yflrsetu-
kona, kom heim aftur um fyrri helgi,
eftir dvöl nokkraí Álftavatnsnýlendu.
Catarrh.—Brúkaðu Nasal Balm.
Fljót og viss leekuing ; linandi, hreins-
andi, læknandi. (2
Þessu blaði fylgir Febrúarhefti
Aldarinnar og erum vér þannig búnir
að “ná upp” þeim tveimur mánuðum
sem Öldin hefir verið á eftir timanum
að undanförnu. Framvegis mun hún
koma út í tæka tíð.
Meðlimum stúkunnar “ísafold” I.
O. F. tilkynnist hér með að fyrst um
sinn verður læknir nefndrar stúku Dr.
Latimer 337 Ross Ave.
Telephone ‘295.
1 F. T?, see.
Dr. Blakely fór á miðvikudaginn af
stað til Ottawa, til þess að gefa ýmsar
upplýsingar áhrærandi skólamálið á
fundinryn á mánudaginn kemur.
Hinn ItTFebr. síðastl.gekk Jóh. G.
Davíðsson, verzlunarþjónn í Milton, N.
Dak., aðeigaungfrú Hildi Björnsdótt-
ur frá Grafton, N. Dak. Hkr. óskar
hinum ungu hjónum allra heilla.
Laugardaginn 16. Febr. þ. á. gaf
séra Hafsteinn Pétursson saman í
hjónaband Mr. Jón Þorsteinsson og
Miss G uðrúnu Jóhannesdóttir, bæði til
heimilis hér í bænum.
Pappírs-heildsölufélögin O’Lough-
lin Bros. og Parsons, Bell & Co., hér í
bænum eru um það að sameina sig.
Verzlunarstöð hins sameínaða félags
verður á horninu á Princess Street og
Notre Danie Ave.
Verkmannafélög bæjarins samþyktu
á almennum fundi í gærkveldi að
mjmda sérstakan, óháðann flokk, er
ástunda skuli að koma verkmannafull-
trúum á sambands- og fylkisþing og í
bæjarstjórnina. __________^
Herra Sveinn Björnsson, járnsmið-
ur í Glenboro, hefir verið á sjúkrahús-
inu hér í bænum um nokkra daga.
Hafði höggið sig og varð að taka af
honum eina tána. Sagt að hann muni
gróinn að hálfum mánuði liðnum.
Svo mild var tíðin meginhluta
síðastl. Febrúar, að tvisvar rigndi lítið
eitt, nokkuð sem er sjaldgæft í Mani-
toba um þetta leyti árs. Það kom
litill skúr aðfaranótt hins 20. og aftur
aðfaranótt hins 25, en af því ís og
snjór var á jörðinni umhverfðust regn-
droparnir í ís, er þeir komu niður.
Ur bréfi frá WESTDOURNE, MAN.
18. Febr.
Héðait er fátt að frétta. Almenn
heilbrigði, góð tið alloftast, mjög harð-
an kafla gerði þó síðastl. mánuð, er
hélzt fram til þess 10. þ. m. Blíða og
besta tíð siðan. — Mjög tregt gengur
hvítfisksveiðin og átakanlega lágir
prísar ; var byrjað með 3 cent, en er nú
komið ofan í 2 cent pundið. Menn
eru því farnir að taka net sín upp.
Skemtisamkoma
kvennfélagsins í Fort Rouge, verður
haldin í McMillan Terrace (4. dyrum
frá Pembina Str.),
Langardagskveldið 4, Marz.
PROGRAMM:
1. Rev. H. Pétursson : Ræða.
2. Dr. ÓL Stephensen : Solo.
3. Mr. St. Þórðarson : Upplestur.
4. Mr. G. Hjaltalin : Monologue.
Dans og ágætur hljóðfærasláttur.
Veitingar ókeypis.
Inngangur 25 cts. — Byrjar kl. 8 e. h.
Jaraes Farquhar.
Húsflutningamaður.
Ábyrgist verkið vel af hendi leyst og
eins ódýrt og ódýrast gerist.
Heimili: 859 Main Street.
Lesið auglýsing kvennfélagsins í
Fourt Rouge á öðrum stað í blaðinu.
Félag þetta er nýstofnað og er þetta í
fyrsta skifti að það býður mönnum á
samkomu. ísl. í suður hluta bæjarins
hafa drengilega sótt samkomur her
nyrðra í bænum og vonast þessvegna
eftir að menn gjaldi nú líku hkt f jöl-
menni á þessa fyrstu samkomu í suður-
enda bæjarins.
Iívert var erindið ? Þegar þingi var
frestáð á fimtudaginn var, til mánudags,
fóru flestir utan bæjar þingm. heim .til
sín. Meðal þeirra, sem auglýst var að
hefðu farið heim (til Brandon) var Sifton
dómsmálastjóri. Síðarmeir komst upp
að hann fór á föstudaginn til Minneap-
olis, dvaldi þar á laugardaginn og kom
hingað aftur á sunnudag. Sumir geta
til að Rockafeller eða erindreki hans
hafi verið staddur í Minneapolis.
Vér leyfum oss að leiða athygli
landa vorra í Dakota og Minnesota að
auglýsing Mr. E. Hjörleifssonar, á öðr-
um stað í blaðinu. Það eru sjálfsagt
fjölda margir ísl. sem ekki hafa séð Mr.
Hjörleifsson, þó þeir fyTÍr hansopinberu
stöðu séu honum svo vel kunnugir. Nú
gefst þeim tækifæri, til að sjá hann, ef
till það fyrsta og seinasta, þar semhann
innan skamms yfirgefur vorn nýja heim
og flytur til íslands. Forvitnin ein ætti
þessvegna að knýja marga til að sækja
fundi hans, en svo má hver og einn
ganga úr skugga um það, að fyrirlestur
hans verður góðra 25 centa virði.
Únitarar hér í bænum eru að und-
irbúa ágæta skemtisamkomu, sem á að
haldast laugardaginn 9. þ. m. Aðal-
efni samkomunnar mun eiga að verða
kappræða milli Mr. M. Brynjólfssonar
lögmanns frá Cavalier ogMr. W. H.
Paulson, um eitt af “dagsins brennandi
spursmálum” hjá oss íslendingum hér
vestan hafs. Auk þess mun óg verða
þar söngur o. fl. til skemtunar. — Að-
göngumiðar verða til sölu hjá Mr. A.
Fredrikson, Mr. J. W. Finney, Mrs.
Olson, Notre Dame Ave. og víðar, alla
næstu viku.
Prógramið verður nákvæmar aug-
lýst í næsta blaði.
Ekta-vorveður það sem af er vik-
unni. Sunnan og suðvestan þíðvindar
á hverjum degi, svo að snjór er mjög
síginn orðinn og vatnsósa, sleðafæri um
það úti í verzlunarhluta bæjarins. í dag
(fimtucjag 28. Febr.) norðvestan rosi. en
frostlaust. Snjólegt útlit, hvað sem
verður.
Tvær sendinefndir fóru á fund fylk-
isráðaneytisins á miðvikudaginn. Verk-
mannafélögin sendu nefnd til að biðja
um lagabreytingar verkmönnum til
hagnaðar. Bæjarstjórnin sendi nefnd
til að biðja um ýmsar lagabreytingar
að því er snertir stjórn bæjarins. Meðal
annars vill bærinn fá leyfi til að koma
upp gasgerðarverkstæði og leiða gas um
bæinn til lýsinga og hitunar.
Mjólkursalar í bænum ætla að
heimta að fylkisstjórninni allsherjar
rannsóknir kúa í fylkinu. Halda þeir
fram, sem lika virðist eðlilegt, að sé
einhver lungnaveiki í kúm í bænum, þá
sé hún að komin úr sveitunum, og alls-
herjar rannsókn þess vegna nauðsynleg.
Þeir vilja og fá að vita hvaða skaða-
bóta þeir megi vænta, ef svo og svo
margar af kúm þeirra verða dæmdar ó-
lífar.
Yeglynt félag.
Fyrir 9 árum síðan gerði Geo. E.
Tuckett & Sons tóbaksgerðarfél. (Ltd.) í
Hamilton, Ont., sér að reglu að gefa
sínum elzta vinnumanni (þeim sem
lengztliafði unnið hjá því) eignbréf fyr-
ir bæjarlóð í jólagjöf. Á síðastl. jólum
var það hlutskifti Mr. Thomas Milligans
að öðlast þessa veglegu gjöf; hann hafðí
unnið hjá félaginu í samfleytt 21 ár.
Auk lóðarinnar fékk hann einnig frá fé-
laginu að gjöf ríflega ávísun á banka.
Allir starfsmenn félagsins fengu þá
sem endranær jólagjafir. Daglauna-
mennirnir fengu vikukaup gefins hver,
en þeir sem vinna upp á ákveðna borg-
un fyrir ákveðið verk fengu þriflega
Turkey til jólasteikar. Fyrir nokkru
síðan breyttu eigendurnir félaginu í
lilutafélag og tóku í félagið marga af
vinnumönnum sínum. Er það vottur
þess að félaginu er annt um hag manna
sinna og vill að þeir einnig verði aðnjót-
andi ágóðans af þessari arðsömu stofn-
un. Mun það að réttu enn meir auka
vinsældir og hylli þessa félags út í frá,
öldungis eins og það eykur áhuga allra,
sem hjá félaginu vinna.
íslands-fréttir.
[Niðurlag frá 1. bls.]
veturgamalt. í Árnesi í Hornafirði var
dautt um 100 f jár snemma í Desbr. í
Árnessýslu hefir fárið verið einna skæð-
ast á Skeiðum og í Grímsnesi. Er skrif
að þaðan, að Gunnlaugur bóndi á Kiðja
bergi hafi misst nálega öll lömb sín. í
Kjósinni hefir fárið gert afarmikinn
usla, drepið t. d. helming alls fjár hjá
sumum bændum t. d. hjá Guðna bónda
í Eyjum. Úr Dalasýslu er ritað 14.
Des., að á allmörgum bæjum þar hafi
drepizt 40—70 og jafnvel 80—90 kindur.
Sagt er og, að Bjarni á Reykhólum hafi
mist um 100 fjár, — Sá maður ætti mik-
il laun skilið, er gæti fundið nokkurn
veginn óyggjandi meðal gegn þessari
landplágu, er veldur slíku stórtjóni á
eignum manna.
18. Jan.
Sjálfsmorð. Unglingsmaður á Ak-
ureyri, Friðrik Guðjónsson _aö nafni,
réð sér bana 76. Des. á þann hátt, að
liann hnýtti axlaböndum sínum saman
og herti svo að hálsinum með handafli.
Hann hafði sömu nóttina verið tekinn
höndum, við innbrot í vörugeymsluhús
Sigfúsar kaupmanns Jónssonar, og
hafði alllengi áður stolið þaðan á þann
hátt.
Dáinn 14. Des. f. á. Sveinn Sveins-
son hreppstjóri í Haganesi í Fljótum
eftir langa og þungð banalegu, merkur
maður í sinni stétt.
4. Febr.
Vœntanlegar ráðstafanir. Fregnir,
sem telja má áreiðanlegar, hafa Þjóð-
ólfi borizt frá Höfn um það, að í ráði
sé að senda hingað til lands í ár auk
"Diönu” örskreiðan fallbyssubát “Guld
borgsund” til eftirlita með fiskveiðun-
um (sérstaklega botnvörpuveiðunum,
og að líkindum muni kapt. A. Hov-
gaard, sem mörgum löndúm vorum er
að góðu kunnur, ;verða skipaður yfir-
maður þess skips, en bróðir hans, pre-
mierlautenant G. Hovgaard, yfirmaður
á “Thyra” í stað Garke’s, er ásamt
lieut. Ellbrecht muni eiga að mæla upp-
siglinguna á Hvammsfjörð.
Dr. JShlers. Kyrkju- og kennslu-
málaráðaneytið hefir í dönsku fjárlög-
unum stungið upp á 3000 kr. styrk
handa holdsveikislækninum dr. Elilers
til að halda áfram rannsóknum sinum
hér þetta ár, og verði sú fjárveiting
samþykt er dr. Ehlers væntanlegur
hingað í sumar, og mun þá sérstaklega
rannsaka veikina við Eyjafjörð (í
Höfðahverfi, Ólafsfirði og Svarfaðardal).
Rektor lærða skólans dr. Jón Þor-
kelsson hefir sótt um lausn frá embætti
frá 1. Okt. þ. á. að telja, Hann er nú
á 73. aldursári og hefir gengt rektors-
störfum 23 ár.
Eftir Austka.
23. Jan.
FÍ8kiaili er enn þá hinn besti á
Reyðarfirði öllnm, og ánnundir fjarð-
arbotni tvíhlaða menn af vænum þorski
Síldarajli er og þar enn góður, og
höfðu menn Wathnes nýlega kastað
fyrir síld.
Fyrir utan þá Wathne, Tulinius,
Randulph og Clausen, er allir hafa i
vetur aflað sild vel, hefir Hans bóndi
Beck á Sómastöðum aflað töluvert af
síld, er hann mun hafa selt mesta til
Fr. Wathne. — Eru það mikil auðæfi,
sem komið hafa uppúr Reyðar og Eski-
firði í vetur, og hafa nú einnig notast
vel fyrir hina betri síldarprísa erlendis.
30. Jan.
Gufuskipið uEgill" kom hingað frá
Stafangri í gær. Fer þegar suður á
Reýðarfjörð og tekur þar síld; heldur
síðan tafarlaust til útlanda. Með því
sigla til útland eigandinn Otto Wathne
og vice-konsul I. M. Hansen.
ÞjÓÐVIIiJINN ungi.
ísafirði, 31. Desember 1894.
Sektaður var ritstjóri ísafoldar 29.
f. m. í meiðyrðamáli því, er ritstjóri
Þjóðólfs hafði höfðað gegn honum, út af
meiðyrðum í 32. tölubl. Isafoldar þ. á.;
var sektin ákveðin 20 kr., eða til vara
6 daga einfalt fangelsi, orð ritstjórans
dæmd ómerk, og hann dæmdur í máls-
kostnað.
Æfllok “ Greltis". í öndverðum nó-
vembermán. þ. á. höfðaði ritstjóri
Þjóðviljans unga mál gegn barnakenn-
aranum Grími Jónssyni á ísafirði, rit-
stjóra “Gretás”, út af ýmsum lygum,
skömmum og ókvæðis-orðum, er í því
blaðkrýli hafa staðið ; en jafnskjótt sem
fyrir sáttanefndina kom, fórst ritstjóra
“Grettis” eigi grettislegar en Svo, að
hann beiddi sér griða, og voru það hans
fyrstu orð, að sjálfsagt væri að taka
alt saman aftur; en jafnframt mæltist
hann og til þess, að vér gerðum sér f jár-
útlátin til fátækra sem minst, og að sér
yrði gjaldfrestur veittur fram yfir ára-
mótin, af því að svo örðugt væri um
fjárhaginn !
Málalok þessi létum vér síðan stefnu-
vottana skora á ritstj. “Grettis” að
birta í blaði sinu, sbr. 11. gr. tilskipun-
unar 9. Maí 1&55, svo að lesendur hans
gætu séð, hve heiðarlegt (!) blað hans
hefði verið ; en—síðan hefir “Grettir”
ekki sézt á rjátli, ekki komið út í 8—9
vikur, og segja því gárungarnir, að
hann hafi sálazt úr ofáti, ritstjórinn
hafi ofreynzt af því, að éta allan blaða-
óþverran ofan í sig aftur.
Málalok. Kærði cand. theol. Grím-
ur Jónssoii á ísafirði, lýsir því hér með
yfir, að hann afturkallar öll þau meið-
andi og móðgandi orð og ummæli um
kærandann, sem finnast í hinum um-
stefndu tölublöðum “Grettis”, nefnil. í
6. og 9. tölubl., í 8. tbl. og í 13., 14. og
17. tölubl. Hann greiðir og, fyrir næst
kómandi Jan.mán.lok, 60 ;kr.—í sekt í
bæjarsjóð ísafjarðarkaupstaðar, og á-
fallinn málskostnað til kæranda þegar
í stað, og eru þessi mál þar með niður
fallin”, og undirrituðU báðir málsaðilar
sætt þessa til staðfestu,
Versta ótíð hefir haldizt liér vestra
um jólin, stöðugir hríðarbyljir frá 25.
til 28. þ. m.. en síðan 29. þ. m. hefir
verið hríðarlaust veður, en frost nokk-
urt.
Fmrlestir
ISLEHDIH GABY GDUSUM.
EINAR HJÖRLEIFSSON
HELDUR
Fyrirlestur
OG —
les nokkra skemtilega kafla
4
*
n
$
*
%
á þeim stöðum og tíma, er
nú skal greina :
PEMBINA, N. D. :
mánud. 4. Marz kl. 8 e. h.
GARÐAR, N. D. :
miðvikud. 6. Marz kl. 5 e. h.
EYFORD, N. D. :
fimtud. 7. Marz kl. 2 e. h.
MOUNTAIN, N. D. :
fimtud. 7. Marz kl. 7 e. h.
| HALLSON, N. D. :
föstud. 8. Marz kl. 4 e. h.
í samkomuhúsinu á Sandhæð-
* unum fyrir norðan Tungá :
^ ■ föstud. 8. Marz kl. 7 e. h.
2 í samkomuhúsinu hjá kyrkju
3 Vídalínssafnaðar á Sandhæð-
unum, N. D. :
2 laugard. 9. Marz kl. 4 e. h.
MARSHALL, MINN.
^ miðv.d. 13. Marz kl. 7,30 e. h.
| .MINNEOTA, MINN. :
^ fimtud. 14. Marz kl. 7,30 e.h. jj:
^ í íslendingabygðinni í Lincoln ^
í County, Minn. :
föstud. 15. Marz kl. 1 e. h.
| í AUSTURBYGÐ, MINN.: £
4J laugard. 16. Marz kl. 1 e. h. *
Inngangur að hverri samkomu
*
*
*
*
£
í*
£
í
*
*
*
Bújörð til sölu
Tvær mílur frá Gimli ; á landinu
eru hús og fjós, 60 tons af heyi og 16
ekrur hreinsaðar, nógur viður og vatn,
og nokkrar girðingar.
Lysthafendur snúi sér til eigandans.
Asmundur Quðlaugsson..
Gimli, Man.
Tyggid
T uckett’s
T & B
“MAHOGANY”
og “BLACK”
Munntobak.
Tiliiúid af
Tiie Geo. E. Tuckett & Son Co., Ltd.
HAMILTON, ONT.
OV 10 nrr^O e^ta Confede-
J U Og L\J rations-seðlar
seldir á 5 cents hver seðill, 8100 og 850
seðlar 10 cent hver, 25 og 50 centa seðl-
ar á 10 cent hver,§t,00og $2,00 seðlar 25
cents hver. Pantanir sendar í góðum
umbúðum, ef poningar fylgja pöntun.
Sendið til Chass & Bakkek,
West Atlanta, Ga.
TIL SÖLU
er brikkhús með lóð 50 + 132 fet. Hús-
ið er rétt við rafmagnssporveginn, að
sunnanverðu við Central Ave., verð
$1650. Gott tækifæri fyrir þá sem vilja
ná ná sér í fasteign sem árlega stígur
í verði. Upplýsingar viðkomandi söl-
unni fást hjá
J. H. OLDFIELD,
450 Main Str., Winnipeg,
eða H, G. JULIUS.
Hallson P. O., N. Dak.
FEÆ.
Nú er tíminn til að panta og kaupa
hið bezta FRÆ sem fáanlegt er.
Farið í þess konar erindagerðum
til hins alkunna og áreiðanlega ; fræ-
sala.
J. M. PERKINS,
241 Main Str.
WINNIPEG.
Landar 1 Selkirk.
Ef þið þurfið málaflutningsmanns við,
þá reynið
John O’Reilly, B. A.,
Barrister, Attorney Etc.
Skrifstofa í Dagg-Block.
SELKIRK, MAN.
Ég sendi varning til allra
staða í landin.
Athugið vel
hvers þið þarfnist fyrir jólin
og nýjárið.
Sparið peninga.
Að spara peninga er sama sem
aö innvinna sér peninga.
Kaupið vindla og vín í inni alkunnu búð
H. L. CHABOT
Gegnt City Hall--513 Main Str.
Til Nýja Islands.
GEO. DICKINSON
sem flytur póstflutning milli West
Selkirk og Nýja íslands, flytur og fólk
í stórum, rúmgóðum, ofnhituðum hús-
sleða.
Hr. Kristján Sigvalflason
fer póstferðirnar og lætur sér einkar
annt um vell.'ðan farþegjanna. Eng-
inn maður hefir nokkru sinni haft
sviplíkt eiris góðan útbúnað á þessari
braut.
Sleðinn fer frá W. Selkirk kl. 7
árdegis á þriðjudögum og kemur til
Icelandic River á Miðvikudagskveld;
fer þaðan aftur á Fimtudagsmorgun
og kemur til West Selkirk á Föstudags
kveld.
CAIV 1 OBTAIN A PATENT? For a
prompt answer and an honest opinion, write to
MUNN & CO.* who have had nearly flfty years'
experience in the patent business. Coramunica-
tions strictly confldentiaJ. A Ilandbnok of In-
forraation conceming I'ntenta and bow to oh-
tain them sent free. Also a catalogue of mechau-
ical and sclentiflc books sent free.
Patents taken through Munn & Co. receivo
epecial notlcein tho Hcientific Americnn, and
thus are brought widely before tlie public with-
out cost to the inventor. This splendid paper,
issued weekly, elegantly illustrated, has by far tho
larpest circulation of any scientiflc work iu tho
world. S3 a year. Sample copies sent free.
Building Edition, monthly, $2.50 a year. Singlo
copios, cents. Every number contains beau-
tiful plates, in colors, and photOKraphs of new
houses, with plans, enabling builders to ahow the
latest. designs and securo contracts. Address
$1UNN & CO., Nkw Youk, 301 Buoadway,
160 Valdimar munkur.
ur, en í það skiftið kannaðist ég ekki við hann.
Ég spurði hann livað hann væri að gera hér, en
hann svaraði því einu, að ég mætti ekki hafa
liátt. Hver var hann, sonminn?”
Greifanum fiaug fvrst í bug að segja ekki
satt. frá, en sá sig þó um hönd og sagði honum að
það hefði verið Rúrik Nevel. Skálkurinn lézt
vera alveg hissa á því, að sá maður skyldi koma
þangað. Urzen, sem ekki vissi neitt hvað gerzt
hafði, tók sig þá til og sagði hreinskilnislega í
hvaða erindum hann hofði komið og hverjar af-
leiðingar hefðu orðið. Savatano lézt verða öld-
ungis hissa, en þó fagnandi og glaður og þakk-
aði guði fyrir þá sátt.
“En hvernig gerðist þessa mikla breyting á
gjúkdömi þínurn r” spurði svo prestur, eftir að
sáttamálíð var úttalað. “Læknarnír héldu þú
værir kominn að andlátinu þegar ég frétti síð-
ast”.
“Já, mér er kunnugt um það”, svaraði greif-
inn og hrylti við kroppinbak. “En það var feug-
jnu nýr iæknir og hann fyrirsagði nýja tegund
meðala. Sagði þau gagnslaus, er ég hafði haft
og f ér þú nú árangurinn”.
“Já, ég sé bann”, svaraði Savatano, “og af
því þ'r líður svo vel og befir skemtilegan mann
til að ræða við, ætla ég að yfirgefa þig aftur. Eg
þarf víða við að koma ,aður en kvöldið kemur”.
Greifinn svaraði eogu og er prestur fékk
ekki áskorun um að sitja lengur, hafði liann sig
afstað. Eitthvaö var hann þó ad hugsa um að
Valdimar munkur. 165
af því sweði ekki gera manni mein. Hann er
helzt til langt frá manuabygðum til þess".
“Hvar er hanu gejmdur?”
“Þar sem þú stakzt upp á. I fjarlægustu
hvelfingunni undir gamia baðhúsinu þínu. Og
hann er ekai auðfundinn í þeiin stað”.
“En hvað geturðu svo gert við líkamann 7”
“Það er vandalaust að losast við hann. Það
máhvljahann í gamla ræsinu. Þú veizt aðþað
er til enn og ef til vill er það sumstaðar óskemmt
alveg irilli hússins og árinnar, þó það nndir hús
inu og í grend við það se hrunið saman og úr
lagi, Það má grafa hann svo djúpt að engin lykt
finnist að sumarlaginu til, jafnvel ekki í hvelf-
ingunum sjálfum. Af því sérðu að hér eru eng-
in vandræði”.
-Ja, láttu þá verkið hafa framgang uudireins
—í kvöld til dæmis”.
“Annaðkveld ættí að nægja herra minn, því
í kvöld er ég vant við kominn”.
“Jæja, annaðkvöld þá. En gættu þess: að
þetta er fast ákveðið. Svo er ekkert meira nm
það mál. Þegar ég sé þig næst, vona ég að þú
hafir enga afsökun fram að bera til fyrirstöðu
því, að Rúrik Nevel yrði rýmt úr vegi”.
“Það þarftu ekki að óttast, |herra minn. Þú
mátt álíta byssusmiðinn úr sögunni þess
vegna”.
“Þaðer rélt! Svo sé það líka”.
Þannig réði Olga hertogi Rúrik Nevel af
dögum. Hætti hann þá samtalinu um stund
164 Valdimar munkur.
fyrir kroppinbak og spurði. hvort nokkuð væri
ervitt að ráða hann afdögum, og svaraði Savo-
tano því, að enginn hlutur væri auðveldari.
“Mundi það komast upp?” spurði hertog-
inn.
“Alveg ómögulega”.
“Þá.......”
“Hálft orð”. tók Savotano fram í. “Mig
grunar stórlega, að það s6 þessi byssusmiður, er
‘uppgötvaði um meðala-blöndunina. Ef svo hef-
ir verið, þá verður þú grunaður fyrr en ég”.
“Hvað ? Hvernig dettur þér það 1 bug 7”
“Mér dettur það í hug af því, að hann er
bráðskarpur maður og þarf ekki að láta segja sér
alt, t.il þess að sjá ganginu. Hann hefir oft kom-
ið hinguð og frá þessu liúsi fór hann beina leið
til greifans. Honum er nú kunnugt um hver
valdur var að einvíginu, og bafi bann þó ekki
nema helming þeirra gáfna, er ég ætla honum,
þá veit hatm líka að þú ert orsök í meðalablönd
unínni. Um jpetta þykist ég sannfærður”.
“Þú segir satt, Savotano. Láttu bann
deyja!”
“Það hafði ég hugsað heppilegasta ráðið.
Því yrði hann látinn laus síðar, yrði þér ætíð
og allstaðar hætta búin”.
“Geturðu unnið svo á honum, að ekki lieyrist
til ykkar og enginn verði var við ferð ykkar?”
"Já, það hugsaég!” svaraði Savotano og
brosti. “Að minnsta kosti mundi háreystin, sem
Valdimar munkur, 161
seyja meira, því hann stanzaði tvisvar áðnr en
hann komst íram að dyrunum, en sasði þó ekk-
ert er til kom. Undireins og hann kom út, tók
hann stryk upp í efri deild borgarinnar og nam
hvergi staðar fyrr en hann kom að húsdyrum
liertogans af Tula. Dyravörðurinn leyfði honmn
orðalanst að ganga inn og í forsalnum spurði
prestur þjóna nokkra eftir liertoganum. Einn
þjónanna fór þegar að leita að liertoganum, kom
innan skamms aftur og bað kroppinbak að fylgja
sér inn í prívatstofu lians.
“Hvað er í fréttum, Savotano? Hefirðu séð
greifann nú nýlega?” spurði’Olga undireins og
þjúuninn'var gengin út.
“Já, ég kem fra honum rakleiðis, en fátt
kann ég af góðum íréttum. Fanturinn er að
raknavið!” „
“Að rakna við?” tók Olga upp og var hissa.
“Þú sem fullvissaðir míg um að hann væri þeg-
ar frá”.
“Og það var satt. Hann var nærri farinn, en
nú er liann a batavegi”.
“Hvernig víkur því við?”
•‘Hann segist hafa fengið nýjan læknir, sem
sagði ónýt öll bin fyrri meðul og fyrirskipaði
önnur frábrugðiu”.
“Og þessi nýju meðul eru að bæta honum ?”
Savotanto sagði að svo væri víst.
‘Hefirðu þá ekki gert tilraun til að gera þessi
nýju meðul úr gárði eins og þarí? Þú veizt það,