Heimskringla - 12.04.1895, Blaðsíða 1
M\J **
56
9 \ya\%v3.fö$
aosio ‘a
IX. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 12. APRÍL 1895.
NR. 15.
Til Einars Hjörleifssonar.
Flutt í samkvsemi 4. Apríl 1895.
FRETTIR.
Dagar ár og aldir líða,
aldrei snúa við né bíða;
altaf jafnt um alheims ból
áfram rennur tímans hjól.
Yndið svása, sorgin stríða,
sðmu lögum verða að hlýða,
berast tímans iðu af
eilíft fcam í gleymsku haf.
Eitt þó tíminn ei fær grafið
eða gleymsku-skýjum vafið,
það er nafn hins merka manns,
minning æ því vaiir hans.
Forlög eru—flestir segja—•
fæðast, lifa, stríða, deyja.
Loks svo eftir lífsins þraut
ljúft að hníga’ í móöur skaut.
Frjálsræðis og forlaganna
furðudjúp ei má ég kanna ;
hygg þó margt í sjálfsvald sett
sé, ef þessvér gætum rétt.
Heim til Fróns þú ætlar aftur,
en að hulinn norna kraftur
valdi sliku, vinur minn,
vafasamt ég nokkuð finn.
Sjaldan alt að óskum gengur,
ei þín fáum notið lengur ;
virða tíðum vonin sveik ;
Verðandi er hulin reyk.
Þér skal dýrstu þakkir róma,
þú hefir æ til gagns og sóma,
starfað vorri þjóð og þér ;
þess er skylt að minnumst vér.
Hér með oss þú hefir þolað
heitt og kalt, en aldrei volað.
Þú hefir tapað, þú hefir grætt.
Þér hefir sorg og gleði mætt.
Þú hefir hér með þreki barizt,
þú hefir bæði sótt og varizt,
óbilugt með andans þor
aldrei stigið flóttaspor,
Og með beittu andans sverði
arga sigrað lygamerði
þá, sem dygða’ og æru án
okkur gera hugðu smán.
Farðu vel til feðra garða,
farðu vel, þótt nái skarða
litla vina hópinn hér.
Heilög gæfan fylgi þér.
Nafn þitt, Einar, alla daga
okkar geymir landnámssaga,
logagyltu letri skráð,
lengd sem tímans fær ei máð.
‘ S. J. JÓHANNBSSON.
Hugh Armstrong
var kjörinn þingmannsefni Conserva-
tíva í Selkirk-kjördæmi á fundi hér í
bænum á þriðjudaginn var. Það eru
engar ýkjur þó sagt sé, að fylgismenn
Bradbury’s séu óánægðir með þau úr-
slit. Á fundinum mættu 85 erindrekar
og áður en fundur var settur taldi
Bradbury sérvísan meirihluta atkv.;
en svo fór atkvæðagreiðslan þannig, að
Armstrong fékk 54 atkv., Bradbury 25
og \V. J. McLean 3. Síðar var látið
heita að útnefningin væri 'gerð í einu
hljóði. Á fundinum mættu 6 Islending-
ar: frá Álftavatnsnýlendu Nikulás Th.
Snædal, frá Nýja íslandi Stefán Sig-
urðsson, Jóhann Straumfjörð, Sigurður
Nordal, Andrés J. Skagfeld, Kristján
Lifman.
Á fundinum lét Bradbury í ljósi að
hann mundi hlíta úrskurðinum, en lét
jafnframt í ljósi óánægju yfir því, að 10
af sínum atkvæðum hefðu verið gerð ó-
nýt á fundinum—erindrekarnir mættu
ekki, en sendu atkvæði.
Cure Biliousness, Sick Head-
ache, Dyspepsia, Sluggish Liver
and all Stomach Troubles.
Are Purely Vcgetable,
elegantly Sugar-Coated, and do
not gripe or sicken.
Act gently but promptly and
thoroughly. “The safest family
» medicine.” All Druggists keep
BRISTOL'S
PILLS
.••••<
-••••-
-••••-
.••••-
■••••••<
►••••-
■••••-
►••••■<
>••••<
>••••<
DAGBÓK.
FÖSTHDAG.5. APRÍL.
Það er alment álit að Tyrkjastjórn
gangist fremur fyrir illu en góðu. Og í
þeim tilgangi, að hjálpa stórveldunum
til að ógna lienni hefir Bandaríkjastjórn
ákveðið að senda herskip til Smyrna og
láta það liggja þar um stund. Er stjórn-
in að hugsa um að gera Smyrna að her-
skipastöð fyrir flota sinn á Miðjarðar-
hafi, hafa þar kolageymslu hús o. s. frv.
60 mílna langa járnbraut á að
byggja í sumar frá Calgary norðaustur,
— að kolanámum í Red Deer-ár dainum.
Herflutningur frá Spáni til Cuba
heldur áfram.
LAUGARDAG 6. APRÍL.
Tekjur Canadastjórnar í síðastl.
Marzmán. voru $1 milj. minni en í fyrra
og gjöldin $200,000 minni.
Indiáni einn í Alberta vestra skaut
Indíána-agent á fimtudagskveldið og
flúði svo. Lögregluþjónar eltu hann, en
liann varðist og skutu þeir hann að lykt-
um.
Hæstiréttur Bandaríkja hefir lamað
tekjuskattslögin nýju svo, að þau eru
alt að því dauður bókstafur, svo mörg
atriði í þeim stríða inóti grundvallarlög-
unum. Það er og úrskurður sumra
hæstaréttardómaranna, að sú lagaheild
öll sé mótstríðandi grundvallarlögunum.
I New York er verið að stofna nýtt
telefónfélag, "The Standard,” til að
keppa við Bell telefón-einveldið. Þetta
nýja félag getur að sögn lagt fram $360
milj. sem höfuðstól, ef á þarf að halda.
Etlun þess er, að leigja telefón fyrir
$25 um árið hvar sem er í landinu, og
ætlar það að leggja það alt undir sig frá
norðurjaðri Canada til suðurtakmarka
Mexico.
MÁNUDAG 8. APRÍL.
Herafli Spánverja í Cuba er nú orð-
inn um 12,000. Á ferðinni til Cuba er
nú einnig hinn nafnkunni spænski her-
stjóri, Martinez Campos, til að taka við
herstjórninni, með $2 milj. í vasanum og
það þykir Cubamönnum langmest var-
ið.
Á Arkansasþingi yar sú kæra fram
borin á laugardaginn, að járnbrautarfé-
lag eitt hefði keypt atkv. þinginanna
fyrir $100 hvert og var nafn governorsins
bendlað þar við. Reiddist hann af því
og heimsótti kærandann, hræktií andlit
hans. flaugst á við liann og hefði að
lyktum drepið hann með skammbyssu-
skoti, því þingmaðurinn var vopnlaus,
hefðu tveir menn ekki komið til hjálpar.
Dáindis laglegur governor.
ÞRIÐJUDAG 9. APRÍL.
Hérlend blöð flest eru nú full af
kynjasögum þess efnis, að stríð milli
Norðmanna og Svía sé í nánd, og að
Þýzkalandskeisari muni ljá Svíum fylgi,
hati heitið Oskar konungi því.
Fregn frá Japan segir sár Li-Hung-
Chang gersamlega gróið.
Nokkrir þingmenn Breta hafa viljað
að stjórnin sklfti sér eitthvað af máli og
vandkvæðum fyrvórandi Havai-drottn-
ingar, sem nú situr í fangelsi. í gær
svaraði stjórnin því að hún gæti ekki
átt neitt við það mál.
MIÐVIKUDAG 10. APRÍL.
Um eða yfir 20 manns biðu bana í
kolanámum skamt frá New Whatcom í
Washington-ríki vestra, á mánudags-
kveldið.
Cleveland forseti hafði fund með
ráðaneyti sínu í gær, tii að ræða um
hæztaréttarúrskurðinn áhrærandi tekju-
skattslögin. Er sagt að við svo búið
sitji fyrst um sinn, en að stjórnin hafi í
huga að búa út nýtt málsatriði fyrir
hæstarétt áhrærandi skatt af landskuld-
. Rétturinn hefir sagt að ekki verði
lieimtaður skattur af slíkum tekjum, en
stjórninni fellur illa að kannast við, að
það sé rétt, og hugsar sér svo að gera
nýja tilraun.
Japanitar eru að víggirða alla þjóð-
vegi yfir landamæri Kóreumanna og
Rússa.
Horfur eru á að saman gangi með
Nýfundnalandsmönnum og Canada
Gangi eyjan í sambandið senclir hún !
fulltrúa á Dominionþing.
FIMTUDAG, 11, APRÍL.
Fölsuð Bandaríkja frímerki eru á
gangi í ríkjunum, en verkstæðið er að
sögn í Hamilton, Ontario.
SuðurBandaríkjamenn fagna yfir
uppgangi uppreistarmanna á Cuba og
er haft við orð að hjálparliðsflokkur sé
í myndun á Floridaskaga og fullyrt að
vopn hafi verið send til eyjarinnar frá
Philadelphia.
Skeyti frá Khöfn segir að Fólks-
þingskosningar séu nýafstaðnar i Dan-
mörku, og vinstrimenn og sósíalist-
ar hafi í þeirri sókn aukið lið sitt á
þinginu svo nemi 15 manns.
{\ DrengirJ
** ^ sjáið •
\ j SHETLAND-
• 4'^.'%>'%> »•»•-%>
#
HESTINN. I
Walsh's Glothing House
515 og 517 Main Street.
{ Skoðið
# vandlesra
>•••••
t:
• Yerðlauoa-
# fötin
• •
#
MIKIL VERDLAUN FYRIR GflDA
Hver sem kaupir hjá oss drengjafatnað frá þessum degi til hins 25. Maí, heíir tækifæri til að fá
Shetlandhest eða alfatnað af besta tagi fyrir ekkert.
\ Verfllaimaliestr falsli’s lellie Blf Tiibod Waish’s.
ÖNNUR VERÐLAUN
FALLEGr FÖT.
#
)
í
i
*
I
#
l
m
©
i
#
é
©
t
+
Vér bjóðum þessi tvenn verðlaun þeim
sem fara næst um þyngd hestsins.
Lesitl I Lessiíl I
Setjið nú upp spádómsgrímnna, drengir og
farið að vinna. Shetland-hesturinn og alfatn-
aðurinn er til sýnis í búðarglugganum. Far-
ið inn og sjáið gripinn og hugsið ykkur hvað
hann vegur. Sá sem fer næst um þyngd
hestsins, fær hann að gjöf. Sá sem verður
næst-beztur fær alfatnaðinn. Þetta nær til
allra sem kaupa drengja-altatnað hjá oss.
Eyðublöð til að skrifa tilgáturnav á, er til
taks í búðinni. Tilgáturnar byrjuðu kl. 8 f.
m. laugard. 6. April, og enda 25. Maí, kl. 11
e. m. — Undir eins og tíminn er liðinn, verð-
ur hesturinn veginn opinberlega og þeim sem
næst hafa farið um þyngd haus, Verða afhent
verðlaunin kl. 10 næsta mánudagsmorgun og
nöfn þeirra auglýst í mánudags-morgun. og
kveldbiaðinu.
Engin verd-
hreyting.
Þó vér bjóðum þessi ágætis verð-
laun, breytum vér ekkert verði á
vörum í búðinni. Vér ábyrgjumst
að allar vörur eru 10 til 30% ódýrri
en annarstaðar. Stuttbuxur fyr-
ir drengi 35 c., 40 Ci og 50 c.
Drengja *’Sailor”-föt90c., $1,25 til
$2,00. Vaðmálsföt handa drencj-
um $1,50 til $3,50. Svört Worsted
föt fyrir drengi $2,50 til $4,00.
Drengja og barna hattar og húf-
ur 25cts. og yfir.
515 OG 517
8
MAIN STREET
Andspænis City Hall.
T. M. Walsh.
••••-*
Kjorkaup
á karlmannafötum os;
vor-yfirhöfnum.
Hattar! Hattar!
Takið eftir hattadeildinni. Að
eins á laugardaginn verða hattar
seldir fyrir hálfvirði. Vér höfum
aldrei áður haft. jafnmikiðaf hött-
um sem nú. — Vér höfum allar
tegundir af liöttum, með hvaða
lagi sem er. — Hvernig sem höfuð
þitt er lagað, þá getum vér selt
þér hatt sem passar. — Vér stær-
um oss af hattabyrgdum vorum,
og það er þess vert.
>••• • '^>'^>» C ••^>"%> •••••••• "
t
t
#
t
©
i
i
t
m
m
m
m
\
m
m
5
m
i
W. C. Gully, þingm. fyrir Carlisle
kjördæmi, var í gær kjörinn þingfor-
soti Breta ífitað Arthur W. Peels, er
formlega sagði af sér þvi embætti 8.
þ. m.
Frumvarp til laga verður lagt fyrir
þing Breta er gefur dómurum í Canada
og öðrum útríkjum Bretaleyfi tilað sitja
sem dómarar í dómsmáladeild leyndar-
ráðsins brezka.
Útflúttar verzlunarvörur úr Can-
ada til Bandaríkja vorn yfir $i milj.
meiri í síðastl. Marz, en á Sarna tíma
fyrra. Er það Wilson toll-lögunum
að þakka.
Francis Kossuth, sonur gamla þjóð-
skörungsins ungverska, var f gær kjör-
inn þingmaður á ríkisþingi Ungverja.
Eftir áætlunarskrá akuryrkjustjórn
ardeildarinnar i Washington, sem út
kom í gær, voru uppskeruliorfur í
Bandaríkjunum ekki eins vænlegar í
lok Marzmán. eins og á sama tímabili í
fyrra. Snjóleysi í vetur og þurkur í
vor er orsökin.
Limafallssýki.
SJÚKDÓMUR SEM LÆKNAR HAFA
ÁLITIÐ ÓLÆKNANDI.
VKtTT
HÆSTU VBUÖLAUN A HEIMSSÝNINGUNNI
•sa
IÐ BEZT TILBUNA.
Oblðnduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára *eynzlu.
Það er rétt kallaður hfandi dauði.
Sjúklingurinn ósjálfbjarga. Kval-
irnar óbærilegar — Hægðirnar
koma sjúklingnum óafvitandi,
og hann þarf alt af mann til að
hagræða sér og passa. Meðal
við þessuin sjúkdómi fundið.
Mr. James McLean frá Lefrog,
Simcoe County Ont. er þekktur af
öllum gömlum og ungum þar í grend-
inni, og allir vita að hann hefir um mörg
ár liöið hinar mestu þjáningar. Mr. Mc-
Lean segir frá meiðsli sínu þannig og
frá því hvernig hann læknaðist af hinum
hræðilega sjúkdómi limafallssýki á þessa
leið :
Árið 1880 féll ég ofan af bygginguog
kom niður á bakið í grjóthaug. Eg
moiddist f jarskalega, og var nærri dauð-
ur. Það voru brúkaðir við mig bakstr-
ar og vefjur, og batnaði mér ögn viðþað
En þaö varaði ekki lengi. Eg fór að finná
til fótakulda sem virtist vera ómögulegt-
að lækna. Þetta færði sig smám saman
upp í lærin og eftir lítinn tíma var ég
allur undirlagður fyrir neðan mitti. Eg
hafði óbærilega fijúgandi verki, um fæt-
urnaoglærin, sem ollu hinum liræði-
legustu þjáningum, bæði nótt og dag.
Það var ekkert til sem linaði kvalirnar
nema Morphine. Ég var undir umsjá
sex lækna, sem að því er mér virtist,
vissu ekki hvað að mér gekk, og gátu
því ekkert aðgert. Sumir læknarnir
sögðu það væri gigt sem að mér gengi,
en aðrir sögðu að það væri mænusjúk-
dómur, og um leið létu þeir á skilja að
mér mundi versna, og að sjúkdómurinn
færi bráðlega að gera vart við sigíhand-
leggjunum,*
Þetta reyndist lika satt vinstri hend-
in varð máttlaus um úlfliðin, og visnaði
upp. Brunaplástur og rafmagn var reynt
við mig, en það kom að engu haldi. Þar
næst fór ég að fá brunaverk í magann,
með velgju og uppköstum sem þjáðumig
svo að ég hélt að ég mundi ekki lifa deg-
inum lengur. Það hefir komið fyrir að
óg liefi legið með uppköstum í 36 kl.tíma
og ekkert gat linað þjáningar mínar
nema morphine eða chloroform. En það
átti ekki staðar að nema þarna. Hægðir
og þvag komu mér óafvitandi og ég var
nauðbeygður til að hafa alt af mann við
hendina til að líta eftir mér. Það mátti
nú segja að ég þjáðist af óbærilegum
kvölum frá kvirfli til ylja. Ég varð að
hafa augun stöðugt á jörðunni til þess
að mig svimaði ekki, því undireins og
ég leit upp fyrir mig riðaði ég á beinun-
um og hefði dottið ef óg hefði ekki verið
studdur, og í dimmu gat ég ekki stigið
eitt fótmál. í níu ár leið ég allar þess-
ar hörmungar. Árið 1889 var ég tekinn
inn á opinbert sjúkrahús i Toronto, og
var ég þar í þrjá mánuði. Mór var sagt
að sjúkdómur minn væri limal'allssýki
sem væri ólæknandi og snóri ég þaðan
heimleiðis engu betri. Eftir að ég kom
heim til mín hrúkaði ég enn ýms meðul,
en það reyndist sem fyrr árángurslaust
og að lokum fékk ég eftirfylgjaudi vott-
orð um það að ég væri ólæknandi.
Churchill July 27th 1898.
Hór með vottast að James McLean
hefir mænusjúkdóm (ólæknandi) sem
veldur því að hann getur ekki unnið sór
brauð.
A. T. Tittle M. D.
Um þessar mundir var mjög hart
lagt að mér með að reyna Dr. Williams
Pink Pills, og ég segi það satt að ég
vildi að ég liefði gcrt það fyrir mörgum
árum síðan. Hve miklar þjáningar og
angist hefði ég ekki með því losast við !
Skömmu eftir að ég fór að hrúka Pink
Pills fór ég að finna til bata; kvalirnar
linuðust og ég gat hætt að brúka mor-
phine. Innyflin fóru að viuna reglulega
og líf og f jör fór smám saman að færast
í útlimina. Nú get ég gengið án hækju
eða stafs, og get stigið töluvert langt til.
Maginn vinnur nú reglulega og ég get
borðað mat minn með góðri list. Vinir
mínir sem aldrei bjuggust við aðsjá mig
á fótum aftur eru alveg hissa yfir því
live vel mér hefir batnað af Dr. Wilhams
Pink Pills. Þegar ég byrjaði að brúka
pillurnar var ég orðinn að eins 135 pd. á
þynjgd, en nú er ég 166. Ég er alveg eins
°g nýr maður og ég get enganveginn
lofað yðar ágæta meðal éins og það á
skilið. Konan mín tekur undir með mér
í að lofa Dr. Williams Pink Pills; hún
segir að það hafi verið gleðirík stund
fyrir sig Jiegar ég fór að brúka þær, þar
eð hún hafi síðan hafthvíld frá aðstunda
mig eins og áður. Ég hefl þá von að
að þeir sem þjást af þeim sjúkdómi megi
fá tækifæri til að ná í þetta ágæta lyf
yðar.
Yðar þakklátur
James McLean.
Dr. Williams Pink Pills eru óyggj-
andi við öllum eftirfylgjandi sjúkdóm-
um : riðu, limafalls-ýki, gigt, mjaðma-
gigt, eftirstöðvar af influenza, lystar-
lej'si, höfuðverk, svima, langvarandi
heimakomu, og kirtlaveiki. Þær eru
einnig óyggjandi viðsjúkdómumsemeru
einkennilegir fyrir kvennfólk koma hf-
færunum í lag og láta þau vinna sitt
verk. Þær gera útlitið fallegt og bæta
blóðið, styrkja liko-mann og gora liann
hraustan.
Á karlmönnum eru þær óyggjandi
við ofþreytu eða óhófi af hvaða tagi sem
er. Þær eru seldar í öskjum með merki
félagsins á umbúðunum (prentað með
rauðu hleki) og fást hjá öllum lyfsölum,
eða með pósti frá Dr. Wifliams Medicine
Co. Brockville Ont. eða Schenectady N.
Y. fyrir 50 cts. askjan, eða sex öskjur
fyrir $2.50.