Heimskringla - 19.04.1895, Side 1
•9A-V «1^13 689
56 UBf U08IO '9 'IUJV
IX. ÁR.
WINNIPEGr, MAN., 19. APRÍL 1895
NR. 16.
FRÉTTIR.
DAGrBÓK.
FÖSTUDAG 12. APRÍL.
Ontario-stjórnin hefir veitt $3,000
á míluna fyrir 45 mílur meira af Rainy
River-járnbrautinni, sem er að smá
þumlungast vestur þangad frá Port Ar-
thur.
Steinolía er að hœkka í verði við olíu-
brunnana í Bandaríkjum. Steig upp
svo nam 30 cents tunnan í gær.
c
Fjárglæframaðurinn og blaðastjór-
inn í Quebec, Ernst Pacaud, var í gær
dæmdur til að greiða Hon. Mr. Angers
akuryrkjumálaráðherranum í Canada
$5000 skaðabætur fyrir að hafa flutt um
hann ýmsar meiðandi greinar í blaði
sínu “Le Electuer.”
LAUGARDAG 13. APRÍL.
Tillaga hefir verið borin fram á Illi-
nois-ríkisþingi þess efnis, að Cook co-
unty, sem bærinn Chicago er í, sé skilið
frá ríkinu og veitt ríkisréttindi. Skub
almenningur fella þessa tillögu eða sam-
þykkja við næstu almennar ríkiskosn-
ingar. Ástæðan tií þessarar tillögu er
hinn ógn-hraði vöxtur borgarinnar og
það, að þarfir hennar eru oft andvígar
þörfum ríkisheildarinnar.
Friðarsamningur Japaníta og Kín-
verja er að sögn um það fullgerður.
Dað eru enn ekki fengnar greinilegar
fregnir um það, hvernig samningunum
er háttað, en sagt að Japanítar hafi
slakað til fyrir þrábeiðni Kínverja. Er
sagt að tilslökunin rnuni einkum innifal-
in í þvi, að minkuð sé upphæðin er Jap-
anítar heimta sem skaðabætur og að það
fé megi greiða í silfri, en upphaflega
vildu Japanítar hafa gull. — Samtímis
koma hótanír frá Pétursborg þess efnis,
að leyfi Englendingar Japanítum að ná
ráðum yfir Kóreu og Manchuria, skuli
Rússar gera Japanítum örðugt aö verja
landamæri sín að norðan.
Yfirherforingi Frakka lét í haf í gær
frá Marseilles til að taka við herstjórn á
Madagaskar-eyju.
Nautaket er óðum að hækka í verði
á stórmörkuðunum öllum í Bandaríkj-
om. Ástæðan er sögð sú, að nautgripir
hafa fækkað mjög á síðastl. ári og þar
afleiðandi þurð í búi hjá ketniðursuðu-
fólögunum.
MÁNUDAG 15. APRÍL.
Eldur kom upp í Illinois-þinghúss-
kyggingunni, í Springfield, á laugar-
úagskvöldið og varð ekki slöktur fyrren
kann hafði valdið eignatjóni er nemur
—2 milj.
Konungleg auglýsing með falsaðri
Undirskrift kínverska keisarans hefir
verið fest upp víða í borgum Kínlands
°S vekur óeirðir miklar. Segir auglýs-
ingin að keisaraveldið sé ekki lengur til,
s-ú keisarinn ráði ekkert við sína kyn-
tnörgu þegna. Leynifélögum er kerit
þessa fals-útgáfu.
Fregn frá Tacoma í Wash. segir að
1 morgun hafi sézt greinilegur reykjar-
stólpi upp úr hinu mikla fjalli Rainier;
hafi mökkurinn stundum verið kolsvart-
nr, en stundum Ijósleitur, likari gufu-
mekki.
Skeyti frá Cuba í dag segir að upp-
reistarmenn þar séu algerlega yfirunnir.
ÞRIÐJUDÁG 16. APRÍL.
Friðarsamningur Jápaníta og Kín-
Verja var samþyktur í gær, að því er
skeyti til “Times” i Lundúnum segir.
Skilmálar eru sagðir þessir : 1,) Kórea
er sjálfstætt ríki ; 2) Japan skal halda
herteknum köstulum ; 3) Japan heldur
fandspildu fyrir austan fljótið Liao ; 4)
i-yjan Formosa skal verða æfinleg eign
Japaníta; 5) Kínverjar skulu greiða
Japanítum 100 milj. dollars í peningum;
G) Japanítar og Kínverjar skulu ganga í
sóknar og varnar-samband.
Alberta-húar heimta að sambands-
stjórn sjálfsforræði algert og inngöngu
í sambandið sem fylki og í tilefni af því
hefir nú sambandsstjórn skipað varðlið-
®u vestra að taka þar manntal, er lokið
skuli 9. Mai næstk., svo að bænin verði
veitt á þessu þingi, ef héraðið er nógu
mannmargt.
Jarðskjálfti olli miklu lifs og eigna-
tjóni á sunnudaginn var á Ítalíu og
Austurríki sunnanverðu.
A yfirstandandi fjárh. ári, til Marz
foka, er útfluftur varningur úr Banda-
rikjum $87 milj. minni en á sama tíma
1 fyrra, en aðfluttur varningur $55 milj.
meiri, að verðhæð. — Á 9 mánuðunum
sem þá voru af fjárh.árinu komu 153,177
innflytjendur til Bandaríkja — 65,547
íterri en á sama tíma í fyrra.
{{Drengir#
; • sjúíð •
f 5 SHETLAKD-
!
HESTIffl. J
%••••%%%«
Waísh’s Glothing House
515 og 517 Main Street.
•
íí
• •
• •
••••%%%« •
Skoðið
vandlega
•Yerðlauaa-
t fötin. £ •
f f •
C%%%««M%V%< •
0
*
IIKIL VERDLAUN FYRIR GODA AGIZKUN!
Hver sem kaupir hjá oss drengjafatnað frá þessum degi til liins 25. Maí, hefir tækifæri til að fá
Shetlandhest eða alfatnað af hesta tagi fyrir ekkert.
I Yerfllaunaliestr f alslís “
Tilbod Walsh’s.
©
•
}
*
t
Lessicl !
Lesid I
Vér bjóðum þessi tvenn verðiaun þe
sem fara næst um þyngd hestsins.
ím
Engin verd-
breyting. 1
•
Þó vér hjóðum þessi ágætis verð- ©
laun, breytum vér ekkert verði á @
vörum í búðinni. Vér ábyrgjumst J
að allar vörur eru 10 til 30% ódýrri •
en annarstaöar. Stuttbuxur fyr- ®
ir drengi 35 c., 40 c. og 50 c. — •
Drengja “Sailor”-föt 90c., $1,25 til •
$2,00, Vaðmálsföt handa drengj- •
um $1,50 t.il $3,50. Svört Worsted *
föt fyrir drengi $2,50 til $4,00. •
Drengja og barna hattar og húf- •
ur 25cts. og yfir. «
515 OG 517 MAIN STREET
Andspænis City Hall.
T. M. Walsh.
ÖNNUR VERÐLAUN
FALLEG FÖT.
Setjið nú upp spádómsgrímuna, drengir og
farið að vinna. Shetland-hesturinn og alfatn-
aðurinn er til sýnis í búðarglugganum. Far-
ið inn og sjáið gripinn og hugsið ykkur hvað
hann vegur. Sá sem fer næst um þyngd
hestsins, fær hann að gjöf. Sá sem verður
næst-beztur fær alfatnaðinn. Þetta nær til
allra sem kaupa drengja-altatnað hjá oss.
Eyðublöð til að skrifa tilgáturnar á, er til
taks í búðinni. Tilgáturnar byrjuðu kl. 8 f.
m. laugard. 6. April, og enda 25. Maí, kl. 11
e. m. — Undir eins og tíminn er liðinn, verð-
ur hesturinn veginn opinberlega og þeim sem
næst hafa farið um þyngd hans, verða afhent
verðlaunin kl. 10 næsta mánudagsmorgun og
nöfn þeirra auglýst í mánudags-morgun og
kveldblaðinu.
0
t
*
*
\
*
*
}
*
4
Kjorkaup $
á karlmannafötum og •
vor-yfirhöfnum. |
Hattar! Hattar ! ®
Takið eftir hattadeildinni. Að •
eins á laugardaginn verða hattar •
seldir fyrir hálfvirði. Vér höfum f
aldrei áður haft jafnmikið af hött- á
um sem nú. — Vór höfum allar 1
tegundir af höttum, með hvaða
lagi sem er. — Hvernig sem höfuð
þitt er lagað, þá getum vér selt
þér hatt sem passar. — Vér stær-
um oss af hattabyrgðum vorum,
og það er þess vert.
*
\
. 0*80 51 © -%>• •%»•••-%■• ® O C -
■••••-
.••••-
>••••
MIÐVIKUDAG 17. APRÍL.
Bretar eiga í stríði — orða-stríði,
við Nicaraguastjórn. Síðastl. sumar
hrakti Nicaragua-stjórn brezkan erind-
reka úr landi og gerði önnur glappaskot,
sem Bretum féll illa. Heimtuðu þeir þá
$75,000 skaðahætur fyrir, en Nicaragua-
menn þráast við að borga. Bandaríkja-
stjórn hefir tekið í streng með Nicara
gua-mönnum og telur aðfarir Breta brot
gegn Monroe-reglunni. Bretar halda
sínu fram eftir sem áður og hóta að
heimta skuldina með valdi, ef hún verði
ekki tafarlaust greidd.
FIMTUDAG 18. APRÍL.
Dominion þingið kemur saman í
dag,
Jarðskjálfta vart í gær i ýmsum
stöðum í suðausturhluta Quebec-fylkis.
Evrópu-þjóðir óánægðar með Jap-
an-Kína samninginn.
Fjórar Dominion auka-kosningar
fóru fram í gær. Unnu conservatives
i tueimur en liberals í tveimur. Mest
voru ósköpin í Haldimand, Ont., þar
sem einn ráðhefranna leitaði eftir endur-
kosning. Hann vann með 646 atkv. um-
fram gagnsækjanda.
Stjórn Breta hefir leizt 2 stærstu og
ferðmestu gufuskipin á Atlantshafi,
“Lucania” og “Campania,” sem viðlaga
herskip, hvenær sem á þarf að halda.
Voða-glæpur.
Aðfaranótt laugardagsins fyrir páska
var gerð tilraun til að kveikja í íbúðar-
húsi á Ross Ave., rétt fyrir austan Isa-
bel Str., hér í bænum, og hefðu áreiðan-
lega farist 5 manns í eldinum, koná og 4
börn, hefði eldurinn kviknað. Steinolíu
hafði verið helt á húsgólfið hér og þar, í
stigann upp á loftið og á dyraþrepin.
Maður konunnar og faðir barnanna,
vélastjóri hjá C. P. R. fólaginu, William
Farr að nafni, var grunaður um að hafa
gert tilraun þessa, og var hann tekinn
fastur á laugardaginn. Aðfaranótt
páskadagsins slapp hann ur fangelsinu,
hafði brotið gluggann á klefanum og
heygt járngrindurnar þangað til hann
komst út á milli þcirra. Fór hann þá
heim til sín, fann könu sína og lofaði
henni að gefast upp og sanna sakleysi
sitt fyrir réttinum, eftir að hafa aiiokið
litlu erindi. Hann skifti um búning og
rauk svo út í myrkrið og hefir ekki sézt
síðan. þegar þotta er skrifað (miðvikud.)
Er sagt, að hann muni hafa stolist burt
með vagnlest, er fór úr bænum vestur í
land kl 3 um nóttina. Ástæðan til þessa
voða-verks virðist hafa verið sú, að
liann hefir haft hjákonu í 5 ár og altaf
tekist að telja henni trú um að hann
væri ógiftur, en væri fyrirvinna hjá
ekkju bróður síns. Stúlkan hafði upp á
síðkastið gengið ríkt eftir að hann
kvongaðist sér og hafði hanu lofað því,
að sögn, eftir mánaðartíma. Það er og
sagt að rótt nýlega hafi hann keypt $10-
000 lífsábyrgð á konu sína og aukið um
helming eldsábyrgð á innanhússmunum
sínum. Só það satt, bendir það til, að
alt þetta hafi verið með ráði gert. .
Sparsamar mæður geta klætt
börnin sín hreinlega
fyrir lítið.
Sparsamar mæður kaupa sjaldan
ný föt handa hörnum sinum, en þrátt
fyrir það geta þau verið laglega klædd í
skólum og kyrkjum. Þetta er afleið-
ingin af að brúka Diamond Dye, sem
gefur alla mögalega liti með lítilli fyrir-
höfn. Drengjaföt og treyjur og blússur
litlu stúlknanna, sem hafa upplitast,
má á litlum tíma gera nýlega að útliti
með Diamond Dye. Þessir fráhæru lit-
ir kosta að eins 10 cents pakkinn. Þeir
eru auðveldir í meðförum og nærri því
hvert barnið getur litað úr þeim svo vel
fari. Diamond litir eru sterkir og á-
sjálegir og að mörgu lepti betri en þeir
litir, sem eru brúkaðir í stórum litunar-
húsum. Þegar þú kanpir lit fyrir
heimilið þá vertu viss um að fá Dia-
mond Dye. — Eftirstælingar og ódýrir
litir eyðileggja það sem litast á og auka
fyrirhöfnina:
Tryggúr á taðhaug.
Annab brép.
Motto :
Þú ert fól ei fyrnist það,
fær þér hól ei nokkur :
skörnugt tól við skeinisblað
skamma-spólurokkur.
Rétt er það sem mælt er, að það
er bágt eða seint, að kenna gömlum
hundi að sitja. Það sér ekki á, að yður
hafi farið mikið fram, við “sendibréfið”
er ég bað Heimskringlu að flytja yður
um daginn. Þér hafið aftur farið að
“moka,” í 14. nr. L.b., alveg sama
saurnum og fyi'ri. Minnist ekki hálf-
yrði á málefni það, er þér reiddust ut
af, í Þjóðólfi, og gerið engum lesanda
L.b. kunnugt, hvað ég hafi sagt — bara
andskotist eins og hlótneyti á mér, fyrir
að hafa sagt nokkuð.
Bezti vegurinn fyrír yður var, —
úr því þér voruð orðlaust skauð — að
reyna að fá einhvern klíku-iindil til að
senna við um rndlrfnið. 1 ’á gátu lesend-
ur blaðanna séð, að lokum, hver fór með
rétt mál og hver það var, sem prjónaði
lyga-loddann.
Að dylja lesendurna hins sanna, er
fölsk og sviksamleg ritstjórn.
Ég sé á þessu 14. nr. L.b., að þér á-
lítið skyldu réttvísinnar, að hegna
“morðingjum, þjðfum. ræningjum,” etc.
og ætlist til að almenningur fái þá skoð-
un á yður, að þér talið þannig af tómri
sannleiksást. En, þorri íslendinga læt-
ur ekki sig véla. Þegar menn fletta upp
á tilhneigingar-tilraunum yðar í Sifton-
sveitar þjófnaðarmálinn, verða menn
varir við úlfinn í lambsgærunni. Og
allir vita, að það c,r skylda réttvísinnar
að hegna ölluni bófum, að þvx leiti ma
viðurkenna, að “oft ratast kjöftugum
satt af munni.”
Því eins heíi ég nokkrum sinnum
ixxinnst á framkomu L.b.inga, að það er
hjartans sannfæring mín, að mönnum
beri að gera öll verkleg og andleg
hrekkjabrögð opinbrr. Ég stend einnig
þótt með þeim, er óslca itinilega, að t. d.
fylkisráðið og rakkar þess, fengju lag-
lega á baukinn fyrir stelvisi og þjófnað-
aryfirhilmingu.
Þá er nú að minnast á hitt.
Þér setjið í taðhaug yðar, að ég
gangi undir “stolnu” lávárðsnafni. Það
mun náttúrlega vera nafnið “Eldon”
sem þér bendið til V Þér munuð síður
kalla nafnið “Jón” “stolið,” af því að
lúterskur klerltur sotti það á mig. Þór
hafið lengi ætlast til, að fólk teldi yður
heiðvirðan, af því þér nuddið yður upp
við alt hið kyrkjulega. O, jæja.
Mér þykir nú við eiga, að gera þeim
kunnugt, sem ‘ ‘Hkr.” lesa og ekki vissu
áður hvei'nig nafnið -‘Eldon” ertilorðið;
þetta nafn, sem yður er svo óþægt
Sigtr. sæll og sem þér og fyrri ritarar
L.-klíkunnar hafa verið að reyna að
gera skiljanlegt, að tekið væri upp, eftir
að ég kom hér í land og svo — “stolið.’
Þctta geri óg mest til, að vara menn við
forhertum L.b.-lygurum, sem aldrei, að
eilifu, vilja aðliyllast neinn mnnleika.
Ég var samtíða dreng á 4. ári, mörg-
um árum áður en ég fór af Islandi. Ég
var af heimafólki, venjulega ávarpaður
með föðurnafni. En litli drengurinn,
sem ég unni mikið, gat ekkinefntskýrt:
Erlendson, heldur varð það “Eldon.”
Hérumbil annarhvor stafur úr föður-
nafninu. Svo fór fólkið á bænum, að
hafa þetta eftir og ég kunni nafninu vel,
sérstakl. af því, að það var geíið af þess-
um unga, saklausa vini. Drengurinn
er dáinn, en ég ber nafnið er hann gaf
mér, sem mjög kærar menjar, á meðan
ég lifi, og ekkert er líklegra, en að það
gangi að erfðum langt fram í aldir.
Faðir litla, dána drengsins, er góður
bóndi, vestur í Argyle, Andrés Andrés-
son að nafni, og þar eru fleiri nánir ætt-
ingjar nafngefanda míns, er ég var sam-
tíða, og hljóta að skoða yður sem stað-
lausann lygara að því, að ég gangi undir
“stolnu” nat’ni!
Hvað sjálfan mig snertir. skoða ég
yður ekkert meiri eða skaðlegri lygara
að þessu, heldur en hverju einasta orði
öðru er þér hafiö sagt eða segja kunnið.
Að sönnu svertið þór annan meira en
mig með þessari snotru útgáfu. Það
var nl. litli, dáni drengurinn, sem gaf
mér nafnið. Yiljið þér segja, að hunn
væri þjófur að því'? Eða, þó einhver
dirfðist að taka sér kenningarnafn. —
svona einhverntíma á æfinni — væri
hann endilega þjófur að því ? Var t. d.
Páll Sigurgeirsson, samfélagi yðar þjóf-
ur að nafnina “Bardal,” sem hann tók
sór, sem kjörnafn, eftir að hann komhór
í land ? Og hafa svo systkyni lians far-
ið stelandi hendi eftir sama nafni: Öll
kalla þau sig “Bardal”? Eða dettur
yður í hug, að kalla Jón Jónsson, yega-
hótastúf*, sem gengur undir nafninu
“Július” — getur gjarnan verið skírnar-
nafn (?) — nafnþjóf, þótt hann kallist
eins og rómvevskur keisari ? Og eru þá
öll systkyni hans nafn-þjófsnautar. Öll
kallast: “Július”? Þá er eitt enn. Svíf-
ist þér að drótta nafn-þýfi eða þjófsneyti
að hinum framhðna, lieiðraða tengda-
föður yðar vitandi fullvel, að
fyrsti “Briem” dró það nafn af bænum
Jírjdnnlæk. en. var ekki prestnefndur svo?
í einu orði: þér œtluð, að minnsta kosti,
að vita svo mikið, að það er altítt frá
alda öðli að taka npp kenningarnöfn,
sem hver vill kjósa og eins hitt: að
þyggia þau.
í þessum fræði-pósti, ættuð þér að
geta orðið bænarfær næst. En við sjá-
um nú til samt.
Á öðrum stað kemur uppúr taðhaug
yðar, að ég eigi að hafa þá “ónáttúru,”
að ljúga upp á íslendinga, vestan hafs.
Hverjaþá?! Yerið ekki sú bleiða, að
þora eigi að segja það! Eða því hefir
ekki, L b. ráðið, fyrr né siðar, rekið
neina “lygi” ofan í mig og er þó alla tíð
að dylgja í líka átt ogþér? Aumingja
vesahngarnir ! Þið getið ekki meira, en
þið hafið gect, bara að ausa mig níðs-
yrðum. Þið vitið fullvel, að ég hefi alt-
af sagt lireinan og heinan sannleika um
yður, þótt svartur hafi verið á stundum.
Og ég skal nú gera tilraun að hjálpa
yður út úr rógs- og mannorðs-þýfisklíp-
unum : Takið nú þann veg, að segja al-
menningi, það seoi er, og það sem stað-
haft verður nl. þetta : að ég hafi endur
og eins, talað nokkuð ófagurt, sérstakl.
um L.b.inga, en að það standi allt
ólirakið þann dagídag; að ég hafi,—
þótt ég fyrirlíti dálítinn slatta af þeim—
ætíð talað við þá með fyllstu einurð og
kurteisi, enda þó ég hafi orðið að láta á
mér skilja, að þeir væru fiestu fólki, hér
*) Siðan Jón valt úr Heimskringlu
fél. inn í Lögb., hafa kátir strakar
stundum einkennt hann svona. Það
kemur til af því, held ég, að Jóner æfin-
lega látinn hlaupa í vegagerð, áður en
þingkosningar fara fram í N.“ Islandi.
En oft eru vegabæturnar stuttir stúfar.
J. E. E.
vestan hafs, til niðurdreps bölvunar; að
mér hafi ofboðið, að sjá fjölda jingra og
ósjálfstæðra sálna. beygja kné fyrir
klíkunnar kúgunarveldi og fylgja
‘ ‘klikkungum,” gegnum þykkt og þunnt,
út um alla helviska glapstiga, en brenni-
merkja sig jafnharðan með hlóðdropum
Krists og bleyta sig eins og skinnsokka
í kyrkjunnar sakramentum; að ég hafi,
eins og flestir vitrir menn, stórskömm á
öðru eins blaði og Lögberg er, sem nær
því eingöngu innihindur þetta tvennt:
Argasta mann-níð og lygar um mót-
parta sína eða hina hlægilegustu mann-
dýrkun um eigin sauði, hversu maLalaus
siðferðisþrot sem þeir eru.
Þetta er satt og þessu megið þér
gjarnan flíka heimsendanna á milli.
í bráðina synojum við þá útgöngu-
vessið :
“Ég verdþveginn,” japlaði Tryggur,
“ég skal vcra Lygbelgi dyggur —
svo stend ég í söfnuði líka.
Sæl og blessuð toöfalda klika”!
J. E. Ei.don.
VKíTT
HÆSTU VBUÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNNJ.
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynzlu.