Heimskringla - 26.04.1895, Síða 1
IX. ÁR.
NR. 17.
WINNIPEG, MAN., 26. APRÍL 1895.
Gull og silfur^gripir.
Hin nýja skrautgripabúð
Q. Thomas,
Manuf. Jeweller.
534 Itlniu Street
Ég hefl nú fengið nýjar og ágœtar
birgðir af allskonar Jewellry. Þeir
sem þurfa að kaupa sér
Giftinga-hringi
geta hvergi fengið samskonar hringi
fyrir jafnlitið verð eins og hjá mér.
Einnig liefl ég
Úr og klukkur
og allskonar gull og silfurgripi við
lægri verði en ykkur hefir nokkurn-
tima dreymt um.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
FÖSTUDAG 19. APRÍL.
Bandaríkjastjórn hefir ákveðið að
senda 4 sín mestu og beztu herskip :
“New York,” “Columbia,” “San Fran-
cisco” og “Marblehead” til Þýzkalands í
næstk. Júní til að taka þútt í vigsluhú-
tíð skipaskurðarins mikla milli Elba og
Kjalar við Eystrasalt.
Framvegis fá ekki farþegjar á skip-
um að stíga á land í Bandaríkjum, ef
þeir koma að bryggjunni eftir sólsetur.
Svo segir spán ný reglugerð stjórnar-
innar.
í París er uppkomið samsæri til að
ráða F aure lýðveldis forseta af dögum.
Fregnir frá New York segja að J.
J. Hill, forseti Great Northern-járn-
brautarfélagsins sé um það að ná al-
gerðum umráðum yfir öllum eignum
Northern Pacific-félagsins.
Þegar Dominion-þing var sett í gær
tók Hon. Geo. E. Foster, fjármólastjóri,
við forustu i neðri deild þingsinp.
LAUGARDAG 20. APRíl.
Fregn frá Kína segir opinbert orðið,
a& Kínverjar haíi uppfylt allar, eða þvi
næst allar kröfur Japaníta á frið-
arEundinum. Eina markverða krafan
sena þeír neituðu og sem Japanitar þá
gengu ekki svo ríkt eftir, hafi verið sú,
a^ slá skyldi opnum hliðum höfuðborg-
al llluuL' Peking fyrir alþjóðaverzlun og
viðskifturn. Þau borgarhlið eru þcss-
vegna lukt eftir sem áður. — Rússar
virðast öllum mönnum óánægðari með
gerðan samning og hafa helzt í hyggju
að gera hann ónýtan, ef unt er. Þeir
vilja undir engum kringumstæðum hafa
Japaníta fyrir nábúa á meginlandi Asíu
og hvað sem það svo þýðir, þá eru þeir
nú í óða önn að útbúa herflokka og
senda austur til Kyrrahafshafnar sinn-
ar : Vladivostok.
Framvegis ætla sykurgerðarfélögin
á Havai-eyjum að senda sykur þaðan
með skipum alla loið til New York;
reynist miklu ódýrara en að senda það
til vesturstrandarinnar og austur um
land með járnbraut.
Fullyrt er að í sumar ætli C. P. R.
félagið að byggja Duluth og Winnipeg
járnbrautina norðvestur til Emerson í
Manitoba og þaðan vestur til Morden.
Fæst þá bein braut fráDuluthtilWinni-
peg vestur um land alt til Kyrraliafs og
Verði brautin bygð til Morden verður
brautin svo gott sem tvöföld, svo að far-
þeginn getur sjálfur kosið hvert heldur
hann vill fara vestur um Winnipeg eða
Estevan og þaðan með “Soo”-brautinni
til Moose Jaw í Assiniboia.
MÁNUDAG 22. APRIL.
Nýfundnalands-nefndin, sem send
var til Canada til að ræða um inngöngu
eyjarinnar í fylkjasambandið, kom heim
þangað í gær. Auðvitað segja nefndar-
mennirnir ekki hvað gerðist, en láta vel
yfir því í heild sinni og segja skilmála
þannig, að báðir málspartar megi vel
Við una. Segir skeytið að hætta þyki á
að eyjarstjórnin ætli að leggja samning-
inn fyrir þingið er situr og fá hann
staðfestan, en að eyjarskeggjar flestir
ósld eftir, að iiatin verði lagður fyrir al-
bienning svo að almenn atkvæðagreiðsla
É kjörþingum felli hann eða samþykki.
Skeyti til blaðs í Lundúnum segir
aó á laugardaginn 20. þ. m. liafi keisari
”apaníta staðfest friðarsamninginn við
Kinverja. — Li-Hung-Chang er nú á
e'nfleið og er nú svo um breytt orðið
Jrir honum, aðhann er nú í meiri háveg-
j*11 bafður en þegar bezt lét áður, af
þ^&nuna frá Peking að dæma. — í
fróð^ borg er lýðurinn gersainlega ó-
Ur nm innihald samningsins.
, °a8t er að Prinzinn af Wales muni
þeiinÍÍÍ' ^0ma ^ Ameríku, aðallega i
n ^Kangi að vera viðstaddur jakta
^bs‘gling á New York höfn o^víðar.
i sci, ntl ^om ^'1 Ámeríku seinast árið
, ’ ferðaðist þá viða um landið,
bæði Bandarikin 0g Canada.
ÞRIÐJUDAG 23. APRÍL.
Ávarp mikið til lýðsins í Japan gaf
keisari Japaníta út í gær, og þakkar þar
öllum, háum og lágum, fyrir drengilega
hjálp á meðan á hornaðinum stóð. Hrós-
ar hann hermönnunum mjög og segir ó-
mögulegt að meta framkomu þeirra alla
og dugnað eins og vera ber. Það sé hin-
um almennu samtökum landsmanna að
þakka, að þjóðin hafi unnið jafn frægan
sigur og þýðingarmikinn. Jafnframt
varar hann þjóðina við drambi og of-
metnaði, en óskar að öll stund verði lögð
á að útbreiða almenna þekkingu í keis-
aradæminu.
Þing Breta kom saman aftur í gær,
eftir páska-fríið, og tók þá hinn nýkjörni
þingforseti við sínu tignaða starfi.
Fimm lávarðar settu hann í embættið
með venjulegum seremoníum.
Frá Rússlandi og ýmsum Norður-
álfurikjum koma nú fregnir á hverjum
degi, sem allar eru þess efnis, að Rússa-
stjórn hafi ákveðið að beita ofbeldi held-
ur en láta viðgangast, að Japanítar nái
tangarlialdi á nokkrum landskika á meg-
inlandi Asíu. Að því er séð verður eru
öll stórveldin, að Rússum undantekn-
um, ánægð með sainninginn eins og
hann en Þó er það sannast, að stöku
smáfregnir segja horfur á, að Frakkar
og enda Þjóðverjar sláist í lið með Rúss-
um ef til kemur, en þær eru taldar á-
stæðulausar sögur.
Jarðskjálftar í Austurríki aftur í
gær og gerðu töluverðan skaöa.
Kinverjar biðja um $260 milj. lán á
jwmingamöi'kuðum Noröurálfu, á Eng-
landi, Þýzkalandi og Frakklandi, til að
borga Japanítum ákveðnar skaðabætur.
Fyrverandi þingforseti Breta, Art-
hur W ellessly Peel, hefir verið veitt sæti
í lávarðastofunni og fylgir nafnbótin :
Viscount.
MIÐVIKUDAG 24. APRÍL.
Fyrir fáum mánuðum keypti al-
kunnur hlaðamaður tvö stórblöð demó-
krata í Chicago, Times og Herald og
sameinaði í eitt undir nafninu Tiines-
Herald. Fyrir eitthvað 8 vikuui lézt
svo eigandinn og hefir nú repúblíka sinni
keypt blaðið og umhverfir auðvitað
stefnu þess. Þannig eru 2 aðal málgögn
'demókrata i Chicago gengin úr greipum
þeirra.
Nýtt ríki er talað um að sjóða sam-
an úr skekli af Michigan (hyrnunni fyr-
ir vestan Michigan-vatn), norðuroddan-
um af Wisconsin (effcir boinu striki frá
austri til vesturs um Chippewa Falls,
og norðaustur fjórðungnum af Minne-
sota. Er hugmyndin að hið nýja ríki
heiti Superior (eftir vatninu). Sneið
þess af Minnesota yrði um 100 mílur á
hreidd frá austri til vesturs, alt frá
Canada landamærum að norðan að
striki um 40 mílur fyrir norðan Minnoa-
polis. — Duluth langar til að verða rík-
isstjórnarsetur, enda mundi hún vel
settur höfuðstaður þessa ríltis, — sem
næst miðbiki þess á langveginn.
Illa fór það. í Quebec West fóru
fram aukakosningar um daginn og voru
2 Conservatívar í kjöri, en fleiri ekki,
annar þeirra ærlegur maður R. R. Do-
bell að nafni, en hinn fjárglreframaður-
inn Thos. McGreevy. McGreevy varð
undir, ien munaði bara 7 atkv. og
heimtaði hann að talin værn upp aftur
atkv.; græddi liann þá svo, að nú er
hann sagður róttkjörinn. Þessi kosn-
iug er Quebec-ingum ekki til neins heið-
urs.
Ófriðarhorfur. Sjóliðsmenn Rússa
við Kyrrahafið hafa fengið skipun ' um
að yfirgefa ekki skip sin og foringjunum
skipað að vera viðbúnum að létta akk-
erum með 12 stunda fyrirvara.
FIMTUDAG, 25. APRÍL.
Núkemnr fregn frá St. Paul, sem
segir það sé gamii Northern Pacific-for-
maðurinn Henry Villard, en ekki J. S.
Hill. sem búinn á að vera að ná tangar-
haldi á Northern Pacific-brautinni og
öllum oignum þess félags.
ísinn, sem var útifyrir Port Arth-
ur höfninni og hindraði skipaferð, brotn
aði upp í gærdag og eru því siglingar
byrjaðar um alt Efravatn.
í gær samþykktí New York ríkis-
þingið að senda congressi bænarskrá
þess efnis, aðleitast sé við að fá Canada
í Bandaríkja-sambandið.
Fregn frá Ottawa segir að þeir fé-
lagarnir Mann, Isbester og McKenzie,
er auglýst liöfðu «ð þeir hefðu tekið að
sér að byggja Hudsonflóabrautina, séu
nú hættír við það, en sagt að Donald
Grant í St. Paul, Minn, er mest hygði
af C. P. R. um árið, ætli að takast það j
starf á hendur, svo framarlega þó lík- i
lega, að sainan gangi með ráðaneytinu
og þingi áhrærandi styrkinn.
í gær var Nicaragua-stjórn afhent
skeytifrá utanríkisráðlierra Breta, þar
sem henni er gefin 3 daga frestur til að
greiða ákveðnar skaðabætur. Geri liún
það ekki verði brezlc herskip látin loka
höfninni í Corento og hermenu sendir á
land til að hertaka bæinn.
Furðu-kraftur i tíu centum.
' Fyrir nokkrum dögum sagði lyfsali
einn í Ontario: Kvenfólkið kaupir meira
af Diamond Dye nú heldur en um sama
loyti í fyrra. Þær koma til mín og kaupa
einn pakka til reynslu, og komast þá að
því, að það er svo auðvelt að brúka hann
að þær lita alla gömlu kjólana sína og
gera þá eins og nýja, o? sama gera þær
við föt allra í familíunni. Ég verð aö
segja fyrir þá 20 ára reynslu sem ég hefi
að Diamond Dyes eru hinn eini af þeim
litum senr seldir eru í pökkum sem hafa
verið í brúki svona lengi og með alinenn-
ings hylli. Gjaldið varhuga við eftir-
stælingum sem seldar eru í álíka pökk-
um, en eru að cins svik, og eru ekki
nema til fyrirhafnar. Biðjið um Dia-
mond Dye og' gáið að því að nafnið Dia-
mond Dye sé á hverjum pakka. Neitið
að taka aðra lit-i hversu hart sem að yð-
ur kann að vera lagt.
Mands-fréttir.
Eftir Stepni.
Akureyri, 25. I’ebr.
Tiðarfar hefir yfirleitt mátt heita
afbragðs gott allan þorrann. Fyrir j
miðjan þ. m. korn hér bezta hláka og
gerði næstum öríst. Síðan hefir haldizt
mikið blíðviðri, oft frostkali um nætur,
en pítt á daginn. Sama veðurgæzka
um allar sveitir hér nyrðra.
Afli hefir oft verið ágætur hér á
Pollinum þ. m., bæði síld og þorskur.
Mest hefir verið dregið af fiskinum upp
um isinn, suma dagana hafa staðið lrér
á ísnum við veiði 50—80 manns. Minni
er afliun út á Örðiuum.
Drukknun. Þann 14. þ. m. sigldu
liéðan af Akureyri á bát í sunnanveðri
5menu,eráttu heima út á Árskógs-
strönd. Innan við Hjalteyri fylti bát-
inn og hvolfdi síðan. Einn maðurinn
komst á kjöl, en 2 liéldu sór uppi á net-
jaflám, sem höfðu verið í bátnum, þar
til þeim varð bjargað ; hinir 2 drukkn-
uðu. Hétannar þeirraVigfús Magnús-
son frá Kálfsskinni, kvæntur maður,
en hinn Hólm Þorsteinsson frá Litlu-
Hámundarstöðum, ókvæntur.
Þairn 7. þ. m. andaðist önnur elzta
konan i Eyjafjarðarsýslu, Guðrún Jóns
dóttir í Syðra Krossanesi, fædd 13.
Des. 1798, ekkja Stefáns Jónssonar írá
llraukbæ (d. 1885).
Eftir Þjóðviljanum unoa.
ísatírði, 11. Febr. 1895.
Tíöarfar. Framan af þessum máu-
uði var einmuna góð tíð hér vestra,
stillur og hreinviðri, og frost lítið; en að
k völdi 6. þ. m. gekk hann upp með norð-
an-hvassviðri, sem síðan hafa haldist
öðru hvoru, ineð smá-hríðar-jeljum, en
vægu frosti.
Kaupfélagifundur var haldinn hér i
kaupstaðnum 2. Þ- m., og mættu þar
fulltrúar frá'öllum (14) deildum kaup-
élagsins.
Kaupfélagsstjóri var endurkosinn :
Skúli Thoroddsen,
og endurskoðunarmenn :
Jón bóndi Guðmundsson í Eyrar-
dal og Jón bóndi Einarsson á
Garðstöðum.
Ályktað var, að fólagið skyldi senda
tvo fiskfarma til útlanda í sumar, eins
og í fyrra, eða samtals um 2000 skpd. af
fiski.
Aukafund var ákveðið að halda um
sýslufundar leytið í vetur, til þess að
ræða um salt-pöntun o. fl.
Aflabrögö voru prýðisgóð hér við
Djúpið, meðan gæftirnaa voru fyrstu
viku þ. m., oft 4—6 hundruð á bát á
dag, og og góður afli hjá öllum almenn-
ingi.
22. Febr.
Niels Finten landi vor, sonur Fin-
sens heitins amtmanns á Færeyjum.
heldur áfram rannsóknum sínum um á-
hrif ljóssins á hörundið, og gerir ýmsar
uppgötvanir; ætla Danir að veita hon-
um 3000 kr. styrk á ári í 3 ár til rann-
sókna þessara.
Aðal-uppgötvun Finsen’s er sú, að
ef lierbergi það, sem bóluveikir menn
liggja í, er allt tjaldað rauðu, bæði
gluggar og annað, sem hirtu ber um, þá
fá sjúklingarnir engin bólu-ör.
Tíðarfar. 14.—16. þ. m. gerði suð-
vestan rosa með all-mikilli rigningu, en
síðan hafa haldist hér blíðviðri, eins og
á vordegi.
Aflabrögö. Eftir vestan-rokið kippti
talsvert úr hinum prýðis-góðu aíla-
brögðum, sem verið hafa hér við Djúp-
ið; en þó hafa margir aflað um 1—2
hundruö þá dagana, sem róið hefir verið
í þessari viku, og af Snæfjallaströndinni
er enn sagður mjög góður afli.
Eftir Þjóðólfi.
8. Marz.
Borgarfirði 24. Fehr. — Veturinn
hefir verið hér einkar góður og hagasam-
ur, einkum síðan nýár, og má heita vor-
bljpa nú alllangan tíma, oftast logn og
frostlaust, úrkomulaust og snjólaust
upp undir jökla. Bráðapest hefir gert
hér geysimikinn usla : drepið sumstað-
ar alt að helming sauðfjár. — M jóg víða
eru he.yhlöður býgðar járni þaktar og
fjölga þær ár frá ári, hafa sumir hændur
hlöður yfir öll sín hey. Timburhús hafa
og verið bygð á nokkrum stöðum, eink-
um upp með Hvítá, enda er þar hægast
t.il aðdráttar. Annars verður því miður
langt nokkuð að biða, þar til menn geta
alinent komið upp slíkum húsum, þvi að
aðkeypt byggingaefni verður æði dýrt,
þegar búið er að flytja það tvo og þrjá
áfanga upp í sveit. Er það mein, að hér
í sýslu er hvergi nýtilegt byggingagrjót
alt tómt blágrýti óvinnandi öllum verk-
færum. — Heldur virðist vera að vakna
áhuginn með kynbætur sauðfjár, en satt
er það, að bráðapestin er versti þrösk-
uldur í þeim vegi; liún er ætíð viss að
drepa hið fallegasta og vænsta úr unga
fénu, og á meðan er tómt mál að tala
um kynbætur.
Prvfatlar skipaðir : í Snðurmúlas.
séra Jóliann Lúter Sveinbjörnsson á
Hólmum, 10. nóv. f. á. og í Snæfellsnes-
j sýslu séra Sigurður Gunnarsson í Stykk
! isliólmi, 22. f. m.
Um Qrímsey sækir séra Jón Jónsson
á Hofi á Skagaströnd.
Aflabrögð. Á Miðnesi, Höfnum og
Grindavik hvað nú vera kominn nokkur
afli, ok því dágóðar horfur um vertíðar-
afla hér við flóann, að ætlun sjómanna.
Frétzt hefir og um besta afla í Mýrdal
Vestmannaeyjum. Á Eyrarbakk og
Þorlákshöfn lítill afli enn.
15. Marz.
Kvennfélagið. 26. f. m. var stofnuð
kveunfélagsdeild fyrir Strönd og Voga
með 32 meðlimum. Forseti doildarinn-
ar var kosinn húsfrú Ingibjörg Sigurð-
ardóttir á Kálfatjörn, og í stjórn með
henni húsfrú Arndís Sigurðardóttir á
Brunnastöðum, Sessolja Ólafsdóttir yflr-
setukona, húsfrú Jósefína JónsdótGr f
Stóru-Yogum og ungfrú Gnðrún Árna-
dóttir í Hábæ.
Þá er og stofnuð kvennfélagsdeild á
Húsavik með 14 meðlimum; forseti
deildatinnar er húsfrú Elísabet Jóns-
dóttir, skrifari ungfrú Herdís Jakobs-
dóttir og féhirðir húsfrú Sveinbjörg
Laxdal. — Mælt er að kvennfélagsdeild-
in á Húsavík ætU að leika sjónleiki, og
eigi helmingur ágóðans að renna í deild-
arsjóð en hinn helmingurinn til styrkt-
ar barnaskólahússbyggingu. n.
Þingrallafundur. Að því er séð
verður af ýmsum bréfurn, er “Þjóðólfi”
hafa borist nú með póstum, virðist al-
menningur yfir höfuð vera hlynntur
Þingvallafundi i vor, og eru því miklar
likur fj’rir að fundurinn verði haldinn,
enda bæri það vott um frámunalegt
dáðleysi og rænuleysi landsmanna, ef
fundarhaldið færist fyrir. Vestfirðing-
ar hafa í hyggju að halda eins konar
fjórðungsfund á Kollabúðum 6. Júní
(sbr. auglýsingu hér aftar í blaðinu), og
er auðvitað ekkert á móti því. Sá fund-
ur getur ekki gert Þingvallafund óþarf-
an, heldur raiklu fremur stutt að því,
að haun verði haldinn.
óvenjuleg reöurblíða hefir verið nú á
degi hverjum langan tíma, og sömu á-
gætistíð er nú að frétta um land allt.
Slytfarir. 8. f. m. drukknaðimaður
ofan um ís á Akureyrarhöfn, Kristján
Bjarnason að nafni frá Geldingsá.
14. s. m. drukknuðu á Eyjafirði 2
meun af Árskógsströnd, Vigfús Magn-
ússon frá Kálfskinni og Hólm Þor-
steinsson fr.á Litlu-Hámundarstöðum.
Voru þeir alls 5 á bát, en 3 varð bjarg-
að.
Hin mikla aflfallasala
A Karlmanna, Dreng-ja, Ilnglinga «g Barna
- FATNADI -
•__ • | •_•
• • jí • •
Hf ALSHS |)IG 0LOTHINC ||0USE
er fjörugri en nokkur önnur verzlun í Winnipeg. Það hefir gengið svo vel út
hjá oss, að vér bjuggumst hreint ekki við öði'u eins. Siðan við byrjuðum, hefir
fólk úr öllum pörtum bæjarins komið til okkar. íbúar norðurbæjarins komu og
fóru heim ánægðir. íbúar vesturbæjarins komu og voru hissa á hve ódýrt alt
var. Margir hafa komið til okkar utan af lancli, og ýmsir hafa sent skriflegar
pantanir, bæði stórar og smáar ; vór afgreiðum hinar smæi'ri eins fljótt og hin-
ar stærri. Við setjum okkur það mark og mið, að uppfylla það sem við lofum
og halda við það sem við auglýsum. Við vitum að allir sem eiga viðskifti við
okkur viðurkenna, að vörurnar séu eins góðar eins og þær eru sagðar, að þær
séu ódýrar og að þær séu “móðins.”
Karimannaföt.
Vér höfum ekki rúm til að segja mikið
um þessi föt. Vér höfum hér um bil
3000 alfatnadi úr kanadisku vaðmáli,
rúðóttu, röndóttu og marglitu. Einnig
Worsteds og Cheviots tvíhneft og ein
hneft á $3,30, $4,50, $5,50, $6,50, $7,75 og
$8,75. Hvert af þessum fötum er ágætt
ög sá sem á annað borð vill fá sór föt,
sleppir ekki þessu tækifæri.
WALSITS
drengja og barna-föt
Vér höfum sérlega mikið af drengjaföt-
um af öllum tegundum. Drengjaföt
með löngum buxum, skólaföt og sunnu-
dagaföt. Stuttbuxur á 35, 40 og 50 cts.
Sailorföt 90c. $1,25 og $2,00. Vaðmáls-
föt $1,50 til $3,50. Svört Worsted-föt
$2,50 til $4,50. Drengja og barna hatt-
ar og húfur 25c. og yfir.
WALSH’S
515 og 517 Main Str. —
Tilgátu-verðlaunin.
Gleymið ekki verölaunahestinum. Sá
sem kemst næst um þunga liaus, fær
hestinn. Og sá þar næsti fær vandaðan
drengjaklæðnað. — Allir sem kaupa
drengja eða barnaföt, eiga heimting á að
gera tilgátu. Tilgátum lokað 25. Maí.
Hattar! Iíattar !
Stórkostleg kjörkaup.
Mikið að skoða í hattadeildinni, Vér
höfum aldrei áður haft jafnmikið af hött-
um eins og nú. Allir með nýjasta lagi.
Þér getið fengið livers konar hatt sem
þór vÖjið. $1.00 hattar nú á 50c., $1.50
hattar nú á 75c., $2,00 hattar að eins
$1,00, $2,50 hattar á $1,75, $3,00 hattar á
$2,00 og $4,00 hattar á $2,75. Skyrtur
og annað þess konar fyrir drengi og full-
orðna með afarlágu verði. Flannelette
yfirskyrtur að eins 20c., axlabönd 10c.,
hvítar skyrtur að eins 65c. Karlmanna-
hanzkar 75c., kostuðu $1.50. Hálsbindi
á 5, 10 og 15c., kosta helmingi meira.
Vér verðum að minka fatabyrgðirn-
ar og á meðaii á því stendur lokum vér
augunum fyrir hinu rótta verði vörunn-
ar og seljum liana íyrir það sem fæst
fyrir hana alt fram að 25, Maí. Á með-
an á þessu stendur verður það regluleiit
flóð af fatnaði sem fer út úr búð Walshs
á aðalstrætinu.
fatasolubud
— — — Gegnt City Hall.
24. s. m. drukknaði 16 ára gamall
piltur frá Reynivöllum í Suðursveit,
Steindór Björnsson að nafni.
19. Marz.
Fithifli enginn enn hér við flóann,
og í Höfnum og á Miðnesi hefir sárlitið
aflast til þessa, en dálítið betra í Grinda-
vík. Austanfjalls kominn dálítill reit-
ingur að sögn. Mun allhart orðið manna
á miUi hér við sjóinn, og er því mjög ilt
útlit, ef vertíðin bregst algerlega.
23. Marz.
Dókmentafélagsfundur var lialdinn
hór í bænum 18. þ. m. Forseti (Dr. B.
M. Olsen) lagði fram reikninga félagsins
og skýrði frá efnahag þess. Samkvæmt
því er félagsdeildin hér nú í nál. 4000 kr.
skuld.....
Aflabrögð. Enn sem komið er varla
fiskvart á opnum skipum hér við flóann,
en 2 þilskip, er komu inn aftur nú í vik-
unni, höfðu aflað nokkuð utanflóa, ann-
að þeirra um 1100, on hit.t um 700 á ör-
stuttum tíma. í Grindavík hefir aflast
vel (hæst 90 í hlut) og á Eyrarbakka og
Stokkseyri einnig nokkuð af ísu.
Veitt prestakall. Mýrdalsþing eru
veitt séra Gísla Kjartanssyni í Eyvind-
arliólum, þótt kosning yrði ekki lögmæt
29. Marz.
Slysfarir. Frótzt hefir að 2 menn
hafi druknað af skipi í lendingu við
Þykkvabæ í Rangárvallasýslu. — Um
sama leyti varð úti 4 ára gamalt barn
frá Dagverðarnesi á Rangárvöllum; var
seut að næsta bæ, Koti; ófandið enn.
Veðrálta hefir verið mjög storma-
söin síðan um næsliðna lielgi, og gæftir
því engar.
Aflabrögð. 22. þ. m. fékk Erlendur
erlendsson á Breiðabólstöðum á Álfta-
nesi 40 r hlut af þorski og rsu, ekki réru
aðrir þatin dag, enda sjóveður ilt.
Mannalút á Islandi.
Seint í Okt. lézt að heimili sinu Hring
við Stóru-Akra í Skagaf., konan Ragn-
lieiður Oddsdóttir Gíslasonar Jónssonar
frá Merkigarði. — 20. Nóv. að Vöglum
í Skagaf. bóndinn Jón Þorvaldsson Jóns-
sonar frá Naustum við Eyjafjörð. — 7.
Des. að Ulfsstöðum í Blönduhlíð Guðni
Jónsson. — Um miðjan Des. á Hólakoti
á Reykjaströnd María Guðmundsdóttir
Sölvasonar frá Sjáarhorg. — 27. Des. að
Skúfi í Norðurárdal í Húnavatnssýslu
Kristján Guðlaugsson, fyrrum bóndi í
Hjaltadal i Skagaf. — Um miðjan Jan.
þ. á. að Hvammi í Höfðahverfi Sveinn
Sveinsson Tómassonar Sveinssonar af
ætt Sveins rika á Illhugastöðum. — 27.
Eebr. í Reykjavík Halldór Melsted, amt-
skrifari, albróðir Páls Melsteds sagn-
fræðings og Sigurðar Melsteds f. lektors,
á 63. aldursári. — Druknaður í Leirá í
Borgarfirði (í Febr.) Stefán Lýðsson af
Akranesi. — 28. Febr. að Elliðavatni
séra Kjartan Jónsson, uppgjafaprestur.
á 89. aldursári. — 2. Marz í Reyjavík
Guðmundur Thorgrimsen, r. af. dbr. á
78. aldursári. — 25. Febr. í Hrappsey á
Breiðafirði húsfrú Hlíf Jónsdóttir, kona
Skúla bónda Sivertsens, á sjötugs aldri.
— 16. Febr. á Höfða á Höfðaströnd
ekkjan Anna Guðbrandsdóttir. — 23.
Marz í Reykjavík ungfrú Jórunn ísleifs-
dóttir (fjTrum prests í Arnarbæli, Gísla-
sonar), rúmlega tvítug.
Bráðapestin. í ritgerð í Þjóðólfi er
þess getið, að í Árnessýslu einni hafi í
vetur farist um eða yfir 6000 fjár úr
bráðapestinni.
VEITT
HÆSTU VEUBLAUN A HEIMSSÝNING UNNl
I r v
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vlnberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára seynzlu.