Heimskringla - 03.05.1895, Blaðsíða 4
4
HF-IMSKRTNGT-A 3. MAÍ 1895.
Winnipeg.
Trjáplöntunardagur í dag.
Sveinn Sveinsson á bréf á skrifstofu
Hkr.
í kvöld kl. 8 heldur Tjaldbúðarsöfn-
uður safnaðarfund í Tjaldbúðinni. Allir
safnaðarmenn eru beðnir að mæta á
fundi þessum.
Sunnudaginn 28. f. m. gaf séra
Hafsteinn Pétursson saman í hjóna-
band i Tjaldbúðinni Mr. Jens Júlíus
Eiríksson og Miss Guðrúnu Björnsdótt-
ir, bæði til heimilis í Cold Springs P. O.,
Man.
Winnipeg Dairy Association heldur
fund að 330 Main Str. laugardagskveld-
ið 4. Maí kl 8.
í umboði félagsins,
Jónas G. Dalman.
Á þeim tíma þegar hætta er við
hitaveiki og öðrum áþekka sjúkdómum
er ómissandi að styrkja likamann með
Ayer’s Sarsaparilla. Þeir sem eru veik-
bygðir og hafa lélegt blóð fá hvaða helzt
veiki sem á gangi er.
Illræðismaðurinn Wm. Farr, er um
daginn gerði tilraun til að brenna konu
sína og börn, en slapp svo úr haldi, er
ófundin enn og finnst að líkum ekki
héðan af fyrst um sinn. Kvennmaður
þóttist hafa séð hann í Victoria, British
Columbia, í fyrri viku, þá á leið til
San Francisco.
Á bæjarstjórnarfundi á mánudags-
kvöldið var mætti nefnd frá Trades
and Labor Council og æskti eftir að
bæjarstjórnin sæi um aðbæjar-contrac-
tors gjaldi almen n daglaun þeim sem
hjá þeim vinna. Nefnd var skipuð til
að rannsaka það ; í henni eru bæjar-
ráðsmenn : Andrews, Wilson, Craig og
McCreary.
Það er orðinn almennur siður í
mörgum bæjum í Bandarikjum að út-
vega fátæklingum óbygðar bæjarlóðir i
utanverðum bæjunum til að rækta þær,
sá í þær kartöflum og garðávöxtum.—
Bæjarstjórnin hér er nú að hugsa um
að reyna þetta líka, og samþykti á
mánudazskvöldið var, að allir sem vildu
reyna þetta skyldu gefa sig fram við
umsjónarmann fátæklinga í City Hall
ekki seinna en 15. þ. m.
Sigurður bóndi Einarsson frá Gard-
ar, N. Dak., kom til bæjarins á sunnu-
daginn var og býzt við að dvelja hér
um tima. Hveitisáning var um það um
garð gengin hvervetna í Dakota um síð-
ustu helgi, og aðfaranótt sunnudagsins
hafði komið dynjandi regn, eitt hið
mesta er þar hefir komið lengi. Þar
sem annarstaðar hér vestra eru þvíupp-
skeru horfur vænlegar, að því leyti að
minsta kosti hve snemma sáning er úti.
Nýr hornleikendaflokkur hefir verið
organiseraður hér i bænum rétt nýlega
og heitir ''Evans Concert Band”. í
flokknum eru 25 menn alls og þar af
8 íslendingar: Friðrik Stephenson,
Hjörtur Lárusson og Sigurður Melsted.
Kom flokkurinn fyrst fram opinberlega
á föstudagskveldið var við Oddfellows-
skrúðgöngu, og þótti honum takast vel.
—í dag (föstudag 3. Maí) hefir flokkur
þessi fengið leigðan skemtigarðinn Fort
Garry Park og spilar þar bæði í dag og
kvöld. Aðgangur 1Ö cents.
Þrír efnabændur úr Minneota-ný-
lendunni í Minnesota, Arngríraur Jóns-
son, Jósep Arngrímsson og Einar Jóns-
son, heilsuðu upp á oss á föstudaginn
var. Komu að sunnan á fimtudags-
kvöldið. Þeir eru á sameinaðri skemti-
og forvitnis-ferð og ætla að ferðast um
Alberta-liéraðið vestra, norður tii Ed-
monton og ef til vill suður og suðaust-
ur frá Calgary líka — svæði sem enginn
íslsndingur hefir kannað enn. Þeir
héldu áfram ferðinni vestur á föstudag-
inn.
BRISTOL’S PILLS
Cure Biliousness, Sick Head- ache, Dyspepsia, Sluggish Liver and all Stomach Troubles.
BHISTOL’S PILLS
Are Purely Vegetable, elegantly Sugar-Coated^ and do not gripe or sicken.
BRISTOXi’S PILLS
Act gently but promptly and thoroughly. “The safest family medicine.” All Druggists keep
BRISTOL’S PILLS
jq 5he. /V33ackache
r\S\ feel§ §ore.ache§
wifli mu§cularftiri§.arid
lia§ju§tpur oflrtral'
BanigHerofBackache§
Jíú Menthol
J. McLacelan. Point au Chene, writea r Noth-
ing better for Lame Back and Lumbago than the
D. & L. Menthol Plaeter.
A. E. MacLean writes from Windeor: “The D.
& L. Menthol Plaster ia curing Sore Backs and
Eheumatiam at a preat rate in this vicinity.
25c. each in air-tiyht tin box.
Með tveimur inntökum af Ayer’s
Cherry Pectoral tekst að lækna barn af
barnaveiki. Barn í nágrenninu dó úr
sömu veiki meðan faðir þess var að
sækja læknir. Af þessu sést að það er
nauðsynlegt að hafa Ayer’s Cherry Pec-
toral í húsi sínu.
Fylkisþingið kemur saman aftur á
fimtudaginn kemur og lýkur við ýms
hálfunnin störf auk þess að ræða um
skólamálið. — I sambandi við þetta má
geta þess, aðallskonar slúðursögur hafa
veriðá gangi um undanfarinn hálfsmán
aðartima áhrærandi fylkisstjórnina.—
Fyrst sauð einhver fregnriti í Ottawa
saman langa gre n—og svo margar út-
gáfur af henni dag frá degi—þess efnis,
að fylkisstjóri Schultz liefði i huga að
reka Greenway frá, eða viðurkenna
ekki stjórn hans, en kalla andvígismenn
hans til formennsku. Þetta er tilhæfu-
laust, en að því er virðist uppfundið til
að æsa menn upp móti fylkisstjóranum
og skapa meðaumkunaranda hjáfólkinu
til Greenway’s í þessum raunum hans !
Næsta slúðursagan (frá Toronto) var
þess efnis, að 8. þ. m., daginn áður en
fylkisþingið skyldi koma saman, ætlaði
Greenway að rjúfa þingið og efna til
nýrra kosninga. Þessi saga virðist
vera á sama grundvelli bygð og hin um
Schultz gamla.
Carpenters Union
heldur almennan fund á Trades Hall á
mánudagskvöldið kemur 6. Maí. Á
þriðjudagskvöldið hinn 7. s. m. verður
samskonar fundur í Verkamannafélags-
húsinu á Elgin Ave. Þeir sem vilja
ganga i félagið hafa tækifæri til þess
kveld hins 6. eftir fundian á Trades
Hall. Islenzkir smiðir beðnir að sækja
fundinn sem best.
Fundarboð.
Á fundi hins íslenzka verkamanna-
fél. í Winnipeg, sem haldinn var þann
27. f. m. var samþykt að haldnir yrðu
aukafundir fyrir alla íslenzka daglauna-
menn í þessum bæ laugardagskvöldin
þann 4. og 18 Maí og 1., 15. og 29. Júni
næstk., tilað ræða um ýmisleg nauð-
synjamál, sem beinlinis snertir verka-
menn. Og er vonandi að sem flestir
sæki þessa fj-rirhuguðu fundi vel og
rækilega. Fundirnir byrja kl, 8. e. m.
í Verkamannafél. húsinu á Elgin Ave.
Winnipeg 1. Maí 1895.
Jónas J. Danielsson ritari.
Eftir mörg' ár.
MERKILEG SAGA ALÞEKTS
SÖNGMANNS.
Þrautir af margra ára gömlu meiðsli. —
Var hafður til meðferða í sjúkra-
húsum á tveimur meginlöndum,
og álitinn ólæknandi. — Sjúkling-
ur sem honum var samtíða benti
honum á lyfið s<>m bætti.
Tekið eftir Owen Sound Times-
Hið óviðjafnanlega ágæti Dr. Willi
ams Pink Pills hefir enn komið í ljós í
þessum bæ. Times bendir á hvernig
Mr. Wm. Belrose, alkunnur bæjarbúi
hafi komist til heilsu og sömuleiðis
hvernig Mrs. Monnell á Peel stræti sem
hafði verið talin af, læknaðist á sama
hátt.
Fyrir nokkrum dögum var fregnriti
blaðsins Times á gangi eftir Division
Str. og gáði hann þá að því að Mr. Dick
Cousby, einn af Cousby-ættinni, sem
búið hafði í Owen Sound í hálfa öld,
hafði sett þar upp rakarabúð. Fregn-
ritinn vissi að Mr. Cousby hafði verið
mjög veikur síðast er hann kom frá
Englandi, fyrir fáeinum mánuðum, og
hafði þá haft litla von um afturbata.
Fregnritinn fór inn í búðina til að tala
við eigandann, og áður en langt leið var
hann orðinn þess vísari að Dr. Williams
Pink Pills höfðu unnið eitt kraftaverkið
í viðbót við þau sem hann hafði heyrt
getið um áður.
In the syHtcra, Btrains thc Iungs and
■ preparesa way for pneumonia, offen-
times consumption.
PYNY-PECTORAL
positively cures ooughs and colda io a
•urprisingly short time. It’a a scien-
tiflc certainty, tried and true, sooth-
ing and healing in its effecta. *
LARGE BOTTLE, ONLY 25 CENTS,
“Við skulum byrja á upphafinn,”
sagði Mr. Cousby, þégar fregnritinn fór
að leita eftir upplýsingum. “Fyrir tutt-
ugu og einu ári síðan hætti ég við skóla-
nám og gerðist meðlimur söngflokks
eins, og síðan hefi ég verið með ýmsum
söngflokkum og fengist við leiki og
dansa. Vorið 1887 gekk ég inn á að
vera í “circus”-flokki Hall & Bengley
það sumar, sem þá áttu að fara um
vesturhluta Bandaríkjanna. Einn morg-
un þegar við vorum í mesta flýtir að
setja upp stóra sýningartjaldið félltjald-
súla á mig um mjóhrygginn. Eg fann
talsvert til í bráðina, en tilfinningín leið
frá og gaf ég því svo engan gaum. Viku
síðar fór ég að fá verk í mjóhi'igginn sem
líktist mjaðmagigt. Mér var að versna
í heilt ár, og að lokum varð ég að fara
í rúmið. Egvar þá í Milwaukee. Nokkru
síðar fór ég til St. Paul og reyndi þar
rafmagnslækningu, og fanst mér þá að
ég vera alheill, Eg réði mig hjá Lew
Johnston söngflokknum og komst með
þeim til Seattle. Fyrir þremur árum
réði ég mig hjá Bowes og Farijuharson
og átti ég þá að fara til Evrópu með
hinum ‘ mikla ameríkanska söngflokki.”
Áður en ég fór frá New York leið ég af
kvölum milli herðanna, en gaf því samt
lítinn gaum, en þegar ég kom til Glas-
gow gat ég naumast gengið. Eg var í
þessu ástandi þangað til ég komtilMan-
chester, þar sem ég fékk meðal sem mér
batnaði af um stund. I tvö ár varð ég
að brúka þessi meðöl stöðugt til þess að
hafa viðþol. I Maí mánuði 1893, meðan
ég var í Birmingham ágerðist veikin, og
liélt áfram að versna alt sumarið. Mér
var boðin umsjónarmanns staða við
Onsley’s leikflokkinn og fór ég með þeim
en eftir þriggja vikna tíma var ég orð-
inn svo slæmur að ég varð að gefast
upp. Allan þennan tíma var ég undir
umsjá læknis sem var álitinn að vera
sérlega heppinn við álíka sjúkdóma, en
það kom fyrir ekkert. Vatnsbað’ og
annað þesskonar var brúkað, en alt til
einskis. Að lokum var ég alveg yfir-
kominn og fór ég þá á Royal-sjúkra-
húsið í Manchester 12. Desember 1893,
og sögðu læknarnir þar að sjúkdómur
minn væri langvarandi mænnsýki. Eft-
ir fimm mánaða dvöl í sjúkrahúsinu
fóru fæturnir á mér að verða máttlausir
og Dr. Newby sem ætíð sýndi mór hina
mestu umhyggjusemi. sagði mér að ég
yrði örkumslaður alla æfi. Til þess að
gera breytingu á högum mínum var óg
sendur til sjúkrahússins Cheadle, og
varð þá að bera mig út í vagninn sem
flutti mig til járnbrautarstöðvanna.
Eftir viku dvöl þar sagði einn af sjúk-
lingunum, sem þar var, mér frá því að
hann hefði eitt sinn læknað sig með Dr.
Williams Pink Pills. Þar eð ég var orð-
inn vonlaus um bata bað ég um að fá að
fara af sjúkrahúsinu, og var ég þáaftur
sendur til Manchester. Ég byrjaði þeg-
ar að brúka pillurnar, og eftir að hafa
brúkað þær nokkurn tíma fór mér að
batna í fótunum. Þegar þarna var kom-
ið fór ég af stað til Canada til að hitta
kunningja mína þar. Eg hélt áfram
með pillurnar og fór alt af batnandi-
Eg hefi engin önnur meðöl brúkað síðan
ég fór að brúka pillurnar, og ég erí eng-
um efa um hvað læknaði mig. Eg er
nú eins heilbrigður eins og óg hefi nokk-
urn tíma verið, og get nú stundað rak-
ara iðn mína, eins og óg var áður vanur
að gera á sumrin. Þegar ég hugsa út í
það sem læknarnir sögðu mér, að ég
yrði örkumsla maður alla æfi, get ég
ekki annað en álitið lækningu mína
hreinasta kraftaverk. Þegar Mr. Cous-
by var að segja frá þessu skein út úr
hinu yfirlitsfallega andliti hans þakk-
lætissemi og ánægja.
Þessi maður er svo alþektur og svo
vel metinn meðal nábúa sinna að blaðið
áleit þýðingarlaust að leita frekari upp-
lýsinga í þessu máli.
bessar pillur eru óyggjandi við öll-
um sjúkdómum sem koma af skemdu
blóði og veikluðu taugakerfi. Þær eru
seldar hjá öllum lyfsölum og hjá Dr.
William’s Medicine Co. Brockville, Ont.
og Schenectady N. Y. fyrir 50 cts, askj-
an eða sex öskjur fyrir $2.50. Það eru
til ýmsar eftirlikingar sem menn eru
varaðir við að kaupa.
KJORKAUP.
liolir.
Eg hefi nú fengið mikið upplag af vorog sum-
ar vörum, og eru þar á meðal hinir inndælu
“Watchspring”-bolir, sem öllum íslenzkum
.stúlkum líka svo vel. Þeir eru úr betra efni
en nokkru sinni áður, og 25 cts. ódýrri. —
$uiiiri'1>a1íi' eru bolir með nýju lagi og
mjög ódýrir.—Ilress Iinprovcr eru einn-
ig bolir eftir nýustu tízku, sem allir “dress-
makers” mæla með. Þeir eru 50 cts. ódýrri
en nokkru sinni áður.
Ilœmalaus kjorkaup.
60 pakkar af inndælu kjólaefni. Þetta kjóla-
efni er 25 til 50 cts. virði, en verður selt þessa
viku á 17J til 35 cents.
Kegnhlifar og regnkapur.
Af þessum vörum höfum vér meira en búast
má við að hægt verði að selja fyrir vanalegt verð, og verðum vér því að selja
þær mjög ódýrt til að losna við þær.
Solikar og hanzkar.
Vér höfum meira af þessu en nokkurn tíme. áður. Þetta eru sérlega vand-
ar vörur í öflu tifliti og verðið lægra en nokkurntímu áður hefir þekst.
Karlmannaskyrtur.
Þær eru makalaust ódýrar. Góðar skyrtur á 25 cts., mikið betri á 35 cents,
ágætar á 50 cents og reglulegt afbragð á 65 og 75 cents.
Sumarföt fjrir drengi.
Vér höfnm þau nú fyrir 31,25. Karlmannafatnaði, vaxkápur, nærföt, háls-
bindi, hatta og húfur með ákaflega lágu verði. — Vér hjóðum alla velkomna
að koma og skoða vörurnar ádur en þeir kaupa annarstaðar.
Q. Johnson,
Souih-west corner fíoss & Isabel Str.
Gull og silfur=gripir.
Hin nýja skrautgripabúð
G. Thomas,
Manuf. Jeweller.
534 Hlnin Street
Eg hefi nú fengið nýjar og ágætar
birgðir af allskonar Jewellry. Þeir
sem þurfa að kaupa sér
Griftinga-hringi
geta hvergi fengið samskonar hringi
fyrir jafnlítið verð eins og hjá mér.
Einnig hefi ég
Úr og klukkur
og aflskonar gufl og silfurgripi við
lægri verði en ykkur hefir nokkurn-
tíma dreymt um.
131 Higgin Street
gefur hverjum sem hafa vill _ „1. sem sannað getur að
mjöl, gripafóður og eldivið ^ U }lann sejjj ekki ódýr-
ari vörur, eftir gæðum, en nokkur annar í þessum bæ.
\
*
*
L
l/Vatertown Marble & Granite Works.
Selur marmara og granit minnisvarða, bautasteina, jámgirðingar,
blómpotta, Etc.,
Legsteinarnir kosta $12,00 til $300,00. Fjögra — fimm feta háir
legsteinar kosta $50.00 til $100,00, uppsettir í kyrkjugarðinum af
umboðsmanni félagsins án aukagjads. Mismunandi verð eftir stærð
og frágangi.
Aðal-umboðsmaður félagsins er
ISL. V. LEIFUR,
Glasston, N. Dak.
gamkepnin
karðnar
Tle Blne Store
MERKI : BLÁ STJARNA
434 Main Street.
Selur ætíð með sægsta verði.
Hið ágæta upplag vort af nýjum vor-
fatnaði, sem vér seljum með óumræði-
lega lágu verði, kemur illa við keppi-
nauta vora, og þeir vita það líka.
FYRIR
$ 3,50 fást góð vinnuföt fyrir karl-
menn sem kosta $6,50.
• 4,50 fást lagleg mórauð og grá
Cheviot-föt $7,50 virði.
• 5,00 fást góð karlmannaföt úr
ensku vaðmáli, sem seld eru
fyrir $8,50.
• 'í’,50 fást alullar karlmannaföt með
nýjasta sniði, $12,50 virði.
<1 H,SO fást föt úr Indigó bláu Serge,
sem seld eru vanalega á $13,50
$10,00 fást alullar karlmannföt úr
bláu írsku Serge, $16,50 virði.
$ I íí,50 fást karlmnnnaföt af ágæt-
ustu gerð, vanaverð $18,50.
$15,00 fást fín karlmannaföt með
öllum nýjustu sniðum, sem
seljast vanalega á $25,00.
Fáheyrð kjörkaup hjá oss á
Drengja og Barnafötum.
FYRIR
$ 1,50 fást drengjaföt, $3,00 virði.
$ 3,50 fást drengjaföt, vanaverð $4.
$ 3,50 fást fín drengja alullarföt
vanaverð $5,00.
$ 4,50 fást alullarföt- úr kanadisku
vaðmáli fyrir unga menn frá
14 til 19 ára, sem engin ennur
búð í bænum getur selt fyrir
minna en $8,50.
Kjörkaup á höttum.
Buxur í þúsundatali.
Drengjabuxur vel vandaðar fyrir 50c,
Þú sparar peninga með því að kaupa
hjá oss. Vér efnnm það sem vér lofum.
BLIJE STORE
Merki—Blá stjarna.
434 MAIN STREET.
A. Chevrier.
James Farquhar.
Húsflutningamaður.
Ábyrgist verkið vel af hendi leyst og
eins ódýrt og ódýrast gerist.
Heimili: 859 Main Street.
E.B.Eddy’s
eldspitur
Dominion of Canada.
Atylisiardir okeyPis fyrir milionir mama.
200,000,000 ekra
í hveti og beitilandi í Manitoba og Vestr-territóríunum i Canada ókeypis fyrir
landnema. Djúpr og frábærlegafrjósamr jarðvegr, nægð af vatni og skógi, og
meginhlutinn nálægt jámbrautum. Afrakstr hveitis af ekrunni 20 bushel, ef
vel er umbúið. ~
í inu frjósama belti
í Ranðdrdalnnm, Saskatchewan-dalnum, Peace River-dalnum og umhverfis-
liggjandi sléttlendi eru feikna-miklir flákar af ágætasta akrlendi, engi og beiti-
landi—innvíðáttumesti fláki í heimi af lítt bygðu landi.
Mdlmnámaland.
Gull, ailfr, járn, kopar, salt, steinolía o. s. frv. Ómœldir flákar af kolanáma-
landi; eldrviðr því tryggr um allan aldr.
Jdrnbraut frd haji til hafs.
Canada-Kyrrahafs-járnbrautin í sambandi við Grand Trnnk og Inter-Colonial-
brautirnar mynda óslitna jáTnirraut frá öllum hafnstöðum við Atlanzhafr Ca-
nada til Kyrrahafs. Sú braut liggr um miðhlut frjósama beltisins efifcir því endi-
löngu og um hina hrikalegu, tignarlegu fjallaklasa, norðr og ver n
og um in nafnfrægu Klettafjöll Yestrheims.
Heilnæmt loftslag.
Loftslagið í Manitoba og Norðvestrlandinu er viðikent ið heilnœmasta í Ame-
ríku. Hreinviðri og þurviðri vetr og sumar; vetrinn kaldr, en bjartr og stað-
yiðrasamr; aldrei þokaog súld og aldrei fellibyljir, e'ins og sunnar í landinu.
Samband8stjórnin í Canada
gefr hverjum karlmanni yfir 18 ára gömlum og hve'rjum kvennmanni, sem heflr
fyrir familíu að sjá,
160 ekrur af Inndi
alveg ókeypis. Hinir einu skilinálar eru, að landnemi búi á landinu og yrk
það. A þann hatt gefst hverjum manni kostr á að verða eigandi sinnar ábýlis
jarðar og sjálfetæðr í efnalegu tilliti.
íslemkar uýlendur
í Manitoba og canadiska Norðvestrlandinu eru nú þegar stofnaðar í 6 stöð m
Þeirra stœrst er NÝJA ÍSLAND, liggjandi 45—80 mílur norðr frá Winnipeg’á
vestrströnd AVinnipeg-vatns. Vestr frá Nýja Islandi, í 30—25 mílna íjarlægð
er aLFTAYATNS-NÝLENDAN. í báðum þessum nýlendum erimikiðafó-
numdu landi, og báðar þessar nýlendr liggja nær höfuðstað fvlkisins, en nokkr
hinna. ARGYLE-NYLENDAN er 110 mílur suðvestr frá Winnipeg; ÞlN(j-
VALLA-NÝLENDAN, 260 mílur norðvestr frá Winnipeg; QU’APPF,LLE-NÝ-
LENDAN um 20 mílur suðr frá Þingvalla-nýiendu, og ÁLBERTA-NÝLEND-
AN um 70 mílur norðr frá Calgary, en um 900 míbir vestr frá Winnipeg. I
síðasttöldum 3 nýlendunum er mikið af óbygðu, ágætu akr- ogbeitilandi.
Frekari upplýsingar í þessu efni getr hver sem vill fengið með þv£, að
skrifa um það:
M. SMITH,
CommÍMSÍoiier of Dominion Lands.
Eða 13. L. Iíaldwinson, Ísl. umboðsm.
Winnipeg’ - - - - Canada
hafti náð þeirri fullkomnun,
að allir sem brúka þær
eru ánægðir.
Þær eru búnar til eftir þeim
fullkomnustu reglum sem
hafðar eru við eldspýtna-
gerð.
THE F’ERFECT TEA
FROM TI-’E T”A PI.ANT TO THE TEA CUP
IN ITS NATIVE PURiTY.
“ Monsoon " Tea ís pnckrd undcr the stipervision
of the Tea grotvrr?,, and is ndrertisvd nnd sola by them
as a sampltiof the best qualittcsof Indian and Ceylon
Teas. For that rear.on thry sre that none but the
very fresh leavcs go into Monsoon packagcs.
That is why *' Monsoon/ the perfect Tea, can be
so!d at the same price as inferior tea.
It is put up in sealed caddies of 54 lb., i lb. and
5 lbs , ana sold m three flavours at 40C., 500. and 6oc.
If your grrocer does not keep it, tell him to write
to STEEL. HAYTER & CO., n and 13 Front St.
East, Toronto.
CA!V I OBTAIN A PATENT ? For a
aní^ an honost opinior, writo to
iTlLftN iv who buve had nearlyflrty years’
cxperience in the patent business. Cominunica-
tions strictly confldential. A llnndbook of In-
lormotion ooneeming PntentH and bow to ob-
tain tnem scnt free. Also a catnlogue of mechuu-
ical and scientiflc books sent free.
Patents taken throuRh Munn & Co. receive
Bpecial noticelnthe Hclentific Aniericnn, and
thus are brought wldely beforethe publicwith-
out cost to the inventor. This aplendid paper,
lssued weekly, elegantly llÍUFtratod, baw by far tho
larfrest circulation of any soientiíic work in the
Saninlo copies sent free.
Buliaiug Edition, monthly, fð.60 a year. Singlo
conies, íi.'í cents. Every number cont.ains beau-
tifu) plateo, in colors, and photograpiis of new
houses. with plans, enabllng builders to show the
latest deölgnu and seoure contrftcts. Aðdress
MUI!N & CO., NEW YOIIK, 3U1 íiUOAUWAY.