Heimskringla - 17.05.1895, Síða 1
Cfí
%*»
'lUjy
IX. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 17. MAl 1895.
NR. 20.
HEIMSKSINGIi
•OG-
OLDIN.
Nýbúið er að endurprenta fyrsta núm
erið af Öldinni. sem brann í Maí 1893
Fyrir $ 2.25
fyrirfram borgað, fá nú nýir kaupendur
Heimskringlu frá byrjun sögunnar :
“Mikael Strogoff,” til næsta nýárs, og
Öldina frá upphafi (3 árganga, 30 númer)
einnig til næsta nýárs, meðan upplagið
hrekkur.
Fyrir $ 2.00.
Öldin frá upphafi (þrír árgangar) til
næsta nýárs, verður seld sérstök á $2.00
fyrirfram borgað.
í Öldinni eru, eins og flestum er kunn-
ugt ágætis kvæði, fræðiritgerðir um
vísindalegt og sögulegt efni, sögur, þar
á meðal hinar frægu “Sögur herlæknis
ins” (um 30 ára stríðið), eftir Zakarías
Topelius, ásamt ýmsu fleiru — alls 480
blaðsíður í stóru broti. Öldin er mjög
fróðleg og skemtileg bók, enda í sérlegu
afhaldi hjá öllum þeim, sem hafa eignast
hana og ættu allir þeir, sem ekki hafa
þegar fengið hana með Heimskringlu,
að nota þetta tækifæri til að fá þrjá ár-
ganga af Öldinni fyrir svo sem ekki neitt
Munið eftir skilmálunum :
Heimskringla frá 1. Maí þ. á. til
ársloka ásam t Öldinni, 3 árg.,
fyrirfram borg., að eins $2.25
Öldin 1893, 18f»4 og 1895, (30 bl.)
fyrirfram borg., að eins $2.00
Upplagið er lítið, (að eins 250) og því
betra fyrir þá, sem sæta vilja þessu boði,
að gerastkaupendur nú þegar.
Forstöðunefndi n.
Fylkisþingið
kom saman, eins og til stóð. 9. þ. m. kl
41 e. h. og sat til kl. nærri 12 um nótt-
ina, en þá var fundi frestað tii 13. Júní.
Undireins og fundur var settur bað
stjórnarformaður Greenway um þennan
aukafrest og var hann veittur umyrða-
lítið. Mestu mótmælin gegn því komu
frá A. F. Martin, sem gjarnan vildi fá
að vita hvernig á þessum drætti stæði,
og flutti hann í því sambandi all-langa
ávítunarræðu yfir stjórninni fyrir að-
gerðir hennar í þessu máli (skólamál-
inu), en þó sérstaklega fyrir æðisgang
Siftonsdómsmálastjóra í öðru fylki, þar
sem hann beitti skólamálinu sem agni.
—Greenway fór hjá að svara, því hann
beiddi um lengri frest; en síðar hefir ver
ið sagt, að landstjóri Canada, Aber-
deen lávarður, hafi ritað honum og æskt
eftir samtali við hann um þetta mál m.
m. Aðrir segja þá sögu hæfulausa, og
þannig stendur málið enn.
FRETTIR.
DAGBÓK.
FÖSTUDAG 10. MAÍ.
Nýfundnalands þingi var frestað í
gær um vikutíma til að bíða eftir svari
frá Canadastjórn upp á sameiningar
samninginn. Þrír ráðherrarnir eru ein-
ingunni meðmæltir, en ófúsir að ganga
að skilyrðum Canadastjórnar. Ef svar
yrði ekki komið þegar þingið yrði sett
aftur kvaðst Whiteway stjórnarformað-
l>r neyðast til að segja sameiningarmál-
ið útkljáð og kvaðst þá vona að verða
filbúinn með nýja uppástungu, sem eyj-
menn þá mættu til með að aðhyllast. —
Það sem einkum ber á milli er sagt það,
að eyj.irmenn vilja fá verðlaun fyrir út-
fluttan þorsk er nemur $1.50 fyrir hvert
úuintal (kvintal), eða 112 pund, segja, að
tUeð því eina móti getiþeirmætt frönsk-
Um fiskisölum á sölutorgum við Mið-
jarðarhaf. Canadastjórn býður $1.00 á
kvintal, en ekki meira og vill að stjórn
Breta gjaldi hitt. Þar við situr enn, að
Því er kunnugt er.
Að því er fregnir frá Lundúnum
segja var Rússum alvara með að herja á
Japanita heldur en láta þú halda Port
A.rth ur kastalanum. Þeir voru búnir
sð veita 30 milj. rúbla til herferðar og
voru búnir að draga saman 110,000 liðs-
öienn í mið-héruðum Síberíu, sem ferð-
búnir voru samdægurs og Japanítar
befðu neitað að sleppa kastalanum.
Altaf er Roseberry lávarður á Eng-
landi heilsulaus. I gærkvöldi flutti
hann ræðu í gildi einu og var svo minn-
jslaus að hann hvað eftir annaðgleymdi
umtalsefninu og það enda þó 2 vildar-
menn hans væru smámsaman að minna
hann á.
Á Englandi er nýlátinn Sir Robert
Pcel, sonur gamla mannsins^jiafnfræga,
“korn-laga” eða “Free Trad ” Peels.
Þrætur nokkrar spunnust útaf því
í gær, á Dorninion-þingi, að>j inn nafn-
frægi rithöfundur og grundvallarlaga
fræðingur, þingritari Dr, J. G. Bouri-
not, hafði ritað fylkisstjóra Schulte í
Manitoba é.lit sitt á skólamálinu, en
Schultz hafði birt brófið í almennum
fréttablöðum. Var því haldið fram af
andstæðingum stjórnarinnar að Schultz
hefði gert þetta í þeim tilgangi að hafa
áhrif í málinu og fyrir það var hann
ávittur.
LAUGARDAG 11. MAÍ.
í gær kom skoyti frá stjórn Bret.a til
Nýfundnalands, þar sem segir að Cana-
dastjórn só tilbúin að taka að sér skuld
eyjarskeggja, $10 milj. alls, ef hún gerist
fylki í sambandinu og ef Bretar leggi
fram fó sem þarf til að fullgera járnbraut
yfir þvera eyna, svo ekki verði nema 60
milna leið frá endastöð hennar t.il hafnar
á Cape Breton í Nýja Skotlandi, og enn
fremur, ef eyjarþingið semur lög, er los-
ar Canadastjórn á hagkvæman hétt við
fiskiveiðaþrætu eyjarmanna og Frakka.
Bretar eru þessu meðmæltir. ef eyjar-
skeggjar leysa sitt hlutverk ftf hendi.
Nefndin sem Dominion-stjórnin skip-
aði til að rannsaka kærurnar um það,
að C. P. R. félagið setti upp hóflaust
gjald fyrir vöruflutning hér vestra, hefir
nú afhent stjórninni álit sitt og kemst
hún að þeirri niðurstöðu að gjaldið sé
ekki hóflaust þegar á alt só litið.—Þetta
þrátt fyrir alt sem þessir menn fróttu
hér vestra!
Governorinn í New York ríki stað-
festi í gær lög, sem fyrirbjóða peninga
spil í allri mynd.
Samþykt var í gær á þingi Breta, j
með 230 gogn 206 atkv., tillaga fjár- j
málastjórans að auka öltollinn um 12 j
cents á galónunni.
Fregnin sú um daginn að uppreist-1
in á Cuba væri útdauð reynist ekki al- j
veg rétt. Uppreistarmönnum hefir
aldrei gengið betur en í orustu allmik-
illi í gær; yíirunnu þá 2000 spænskaher-
menn og tóku þorp eitt herskildi.
Það er nýlega komið upp í Chicago
að um eða yfir $1 milj. hafa verið svikn-
ir af bæjarstjórninni, einkutn á þann
bátt að löngu dauðir menn voru látnir
draga laun fyrir opinber störf í þarfir
borgarinnar.
Stríðið milli ríkis og kyrkju á
Frakklandi er orðið svo opinbert, segja
blöðin, að stjórnin hlýtnr að fara að
taka tillit til þess. Kyrkjan er höfund-
urinn; er að skifta lýðnum í andvíga
flokka.
MÁNUDAG 13. MAÍ.
Byltinga-laga-frumvarpið, sem Vil-
hjálmi keisara var svto ant um, var felt.
grein eftir grein, án nokkurrar verulegr-
ar umræðu, á þingi Þjóðverja á laugar-
daginn. Búizt er við að nú hvessi í Vil-
hjálmi, og að innanríkisstjórinn falli nú
umsvifalítið úr tigninni.
4,002 innflytjendur komu til New
York á laugardaginn, en það er stærsti
intiflytjendahópurinn, sem þar heíir
komið á einum degi síðan 8. Júní 1893,
þá komu 4,142.
Allir 9 hæstaréttardómarar Banda-
ríkja sátu á fundi á laugardaginn til að
ræða um tekjuskattslögin. Er sagt að
þeir þá hafi komist að niðurstöðu í mál-
inu og að þeir opinberi úrskurð sinn á
mánudaginn komur (20. þ. m.)
Fyrverandi forseti Bandaríkja, Benja-
min Harrison, hefir auglýst, að fram-
vegis hverfi hann algerlega úr sögunni
sem opinber starfsmaður. Hann lauk
við að fly tja mál fyrir rétti á laugardag-
inn og sagði það yrði áreiðanlega i sein-
asta skifti sem hann kæmi í róttarsal
sem málaflutningsmaður. Framvegis
kvaðst hann heldur engan þátt taka i
opinberum málum í einni eða annari
mynd. Eftir þvi vinna þeir fyrir gíg,
sem eru að útvega honum fylgjendur
sem forsetaefni við næstu kosningar.
Enn eru Norðurálfuríkin ekki ánægð
með tilslökun Japaníta. Frakkar hafa
nú formlega mótmælt því, að þeir haldi
eyjunni Formosa ; þykjast hafa meiri
rétt til hennar sjálfir. Spánverjar, ef
ekki aðrir, standa eða falla með Frökk-
um í þessu máli.
Frost og kuldi í austurhluta lands-
ins hefir ollað tjóni miklu undanfarna
viku; hefir alinent skemt og sumstaðar
eyðilagt aldina-uppskeruna í ár. Snjór
féll töluverður í ýmsuni héruðum.
Tekjuhalli Frakkastjórnar í ár er 55
milj. franka (11 milj. dollars) ogerá-
kveðið að auka tolla og alla skatta til að
afstýra sama tekjuhalla á næsta fjár-
hagsári.
ÞRIÐJUDAG, 14. MAÍ.
Síðustu fregnir frá Nýfundnalandi
segja nú meiri von til að sarnan gangi
með eynni og Canada. Er nú ráðgert
að á morgun (miðvikudag) verði tilboð
Canadastjórnar lagt fyrir þíngið.
Roseberry lávarður er kominn af
stað í sjóferð um Englandssund sér til
heilsubótar. Hann neitar að tajra inn
meðulin, sem læknar fyrirskipa, envon-
ar að sér batni. ef hann heldur sig á sjó
úti um tíma og sleppir alveg að hugsa
um stjórnmál.
Stjórnin í Japan er að semja við
Nicaragua-stjórn um hagnýting skipa-
skurðarins, sem vonast er eftir að graf-
inn verði yfir þvert rikið, Bandaríkja-
stjórn, sem ráðgerir að útvega megin-
hluta fjárins, lízt ekki á það.
Formaður utanrikisstjórnardeildar
Bandarikja, Walter Q. Gresham, hefir
verið veikur mjög um undanfarinn
tíma og litið útlit fyrir að hann fái
lieilsuna bráðlega. Er því talað um að
hann segi af sér, en að Donald M. Dick-
inson verði eftirmaður hans.
Skurðurirxn mikli, sem Chicgo
menn eru að grafa frá Michigan-vatni
suðvesur í Missisippi-fljót og sem búist
er við að rýri vatnsmagnið í stórvötn-
unum fyrir austan Superior-vatn, varð
umræðuefni á Dominionþingi í gær,
Kvaðst sambandsstjórnin vera að at-
huga málið og ætla séraðsjéumað
vatnavegirnir yrðu ekki gerðir ónýtir,
kvaðst rita hermálastjóra Bandaríkja
um það. — Allir stórbæirnir í grend við
stórvötnin eru að vinna á móti þessari
skurðgerð.
Japaniska þjóðin er óð og æf yfir
því, að keisarinn skyldi sleppa Port
Arthur kastalanum.
Foringi sálulijálparhersins, Wm.
Booth, vonast eftir að senda 10,000
manns til Canada í haust, í því skyni
að stofna þar eina sína einkennilegu ný-
bygð, þar sem öll eignin er sameiginleg.
MIÐVIKUDAG, 15. MAÍ.
Uppskerutjónið af völdum frostsins
um daginn i héraðinu umhverfis Buffalo
í New York-ríki er metið á $2) milj.—
Það hefði verið gumað mikið af öðru
eins tjóni hór vestra og þótt sönnun
fyrir, að liér sé hvergi lifandi, en þar
fárast enginn um það.
Rannsóknarnefnd Evrópuþjóða hef-
ir nú sannað, að sannar eru ákærurnar
á Tyrki, að því er snertir manndrápin í
Armeniu síðastl, haust.
Snurða all-mikil er hlaupin á Paris-
ar-samninginn um selaveiðar í Berings-
svuidi. Breta kváðu neita að fyrirbjóða
þegnum sínurn að brúka skotfæri í sum-
ar, en það var ein aðal-grein samnings-
ins, að öll skotfæri væru bönnuð.
Klerka og kyrkjumanna þing mikið
verður haldið í Tonpnto í sumar, frá 18.
til 25. Júlí. Koma þar saman klerkar
og kyrkjumenn úr endilangri Norður-
og Suður-Ameríku.
FIMTUDAG 16. MAÍ.
Skeyti frá Tacoma, Wash., höfuð-
bóli Northern Pacific fól. við Kyrrahaf-
ið segir, að sykurgerðarfélags-einveldið
og steinolíu-einveldið séu sameiginlega
að vinna að því að ná undir sig Nortli-
ern Pacific-brautinni og öllum tilheyr-
andi eignum, sem innan skamms er
vonast til að losni úr höndum Banda-
ríkjastjórnar.
Sagt er að 14 skip hafi farizt á Mic-
higan-vatn' í ofveðri, sem æddi þar ný-
lega.
Yfir $50 milj. er tekjuhalli Banda-
ríkjastjórnar orðinn á yfirstandandi
fjárhagsári. — Ásíðastl. fjárhagsári var
tekjuhallinn alls $69,809,260.
131SV1 30kVT V hOii *££
'Xpsiu ijtl| 3HI SvtijSáJj pve
jjiuputQ oj pus ub Sjmi snifl
CSauÁjp SjusAOjdp«al| aljj
0 jcj pipua|cis si ji
dvog \)Vi-omvd
jiedSap ui uie pue ^uitjjÁjano
paiJJ OAStj Oj UJ33S | 'Jjtpi
pusdiwg 3ijj5iíisus3|0jqj
p00jsUBl|MJ0J00Q
Frá löndum.
KAFLI ÚR BRÉFI FRÁ ÁRNESP.O.
Nýja í.-landi. 8. Maí 1895.
Tíðin er afbragðs góð, og ísinn rak
hór undan landi í hægri vestangolu um
miðjan dag, 5. þ. m., og hefir ekki sézt
síðan. Nú er nægur afli af nálfiski og
gullaugum og strjálingur af öðrum fisk-
tegundum. Jörð grær óðum, því bag-
stæðir regnskúrir vökva hana annað
slagið. — Nú er verið í óða-önn að taka
upp grjót í Hnausa-brygejuna bæði
norður hjá Bræðrahöfn oghér í kring-
um allan Oddnýjarstaðatanga og liafa
verið við þá vinnu yfir 20 inanns, Svo
eru aðrir að fella stórtré, sém þeir láta
uxa draga fram að vatninu og þar tek-
ur bvggingarfélagið þau ásamt grjót-
inu og flytur norður. Daglaun við
grjót-tökuna er $1—1,25, en um verð
við bjálka-vinnu er enn óákveðið.
Orða-belgurinn.
Mikli Maðurinn!
Sigtryggur Jónasson byrjar á þvi
að brúka sömu aðferð við mig eins og
hann befir haft við aðra síðan bann tók
við ritstjórn Lögb. Það getur hver les-
andi blaðsins séð, hversu mikla sóma-
tilfinningu sá maður hefir, sem hnoðar
saman þvilíkum ósköpum af órökstudd-
um staðhæfingum og hleypidómum.sem
dálkar Lögb. eru fuliir af. í 18. nr.
Lögb. þ. á. riður hann úr sór heilmiklu
máli—í reiði, eftir venju—út af því að
ég sagði sannleikann, nefnil: að Sigtr.
hefði barizt á móti Ilnausabrygujunm.
Það liefir hann gert, eins og líka allir
vita, sem lesið hafa Lögb. Það sem
liann er sárreiðastur út af er það, að ég
skuli kalla það gleðióp—svona upphátt
—þar sem hann er að gleðjast yfir falli
Bradburys og Hnausa-brygajunnar, og
vill siðan reyna aðklóra sig úr skamma
króknum svo fljótt sem unt er, og snýr
sinnieigin handaskömm, sem hann við-
urkenuir vera, með því að éta það alt
ofan í sig, og segir það hafi verið blátt
áfram skop. Mikill maður er Sigtrygg-
ur, svona aðdáanlega dreng]jTndur, vel-
viljaður sómamaður, svona einkenni-
lega ber hann velferð Ný-íslendinga fyr
ir brjóstinu, að hann skopast að þeirra
stærstu velferðarmálefnum, svívirðir þá
menn scm barizt hafa fyrir framkvæmd
um almenningi til gagns og sóma, og
yfir höfuð reynir að sýna þá svo lítil-
fjörlega að það sé ekkert vit í nokkru
sem þeir gera, og að þeir hali ekki vit á
neinu, sem mótstætt er skoðun hins
mikla dómara ! Herra Sigtryggur slær
þvi út, að ég sé ekki fær um að dæma
hvaða gildi samningurinn um Hnausa-
bryggjuna hefir. Eg get sagt hr. Sig-
tryggi það, að þó óg bafi ekki útbúið
samning, sem varnað hefir mannorðs-
og munaþjófuin frá þvi að stela bæði úr
sinni eigin hendi og annara, þá hefi ég
útbúið samninga, sembundiðhafamenn
við loforð sín og hlýðni við lög landsins.
Þótt Sigtryggur viti að ég er ekki eins
fær um að útbúa krókótta samninga
og hann múske or, þá hefi ég fullkom-
lega eins mikið vit á og hann að dæma
um hvort samningur hefir fuilkomið
gildi eða ekki. Af því hr. Sigtryggur
hefir nú einu sinni ásett sér að útniða
mig, þá mun haun ekki svífast neins,
eftir því sem liann sagði mór sjálfur, að
liann ætlaði að sýna mig lítilfjörlegann,
af því óghafði fengið viðurkenningu fxá
beztu mönnum flokksins á útnefningar-
fundinum 9. Apríl. Þess vegna verður
mér ekki bilt við neitt það sem rennur
úr þeirri átt, hvornig sem því verður
saman linoðað og smurt með lygum og
glósum, blandað hatri, hroka og hefnd-
argirni, og þótt hann segi mig vitlaus-
ann eða brjálaðann næst, þá skal óg
taka það með söinu ró frá þeim manni.
Það er ekki víst að hann verði hafður
laus eða látinn ganga sjálfala. Það er
altalað að stjórnarnefndin muni ekki
þora að hafa hann lausann öllu lengur.
því hætta sé búin, ef hann froðufelli
bölvandi, með prik i hendinni, að hann
bani einhverjum lítilmagnanum.
Winnipeg, 14. Maí 1895.
Stephan Sigurosson.
The Apj o'f (Ur i n g'
SciATlCA,í\HEUMáTI3M
> • -Neu^Mjsi^ •
..'AIN5 IN gACKOAStOE
•0t\ ANYftUSCUlAI\P\m£
|ie5in'Using
’■ '■
y\\E fí Y H 0 L
. ' Piástér'
Er vafalaust
að vér seljurn með lægra verði en aðrir.
Það sést á því hve mikið menn kaupa bjá oss. Ef þig
langar til að nota þér þcssi góðu tækifæri, þá komdu strax
og veldu það sem þú vilt hafa.
Yér græðum ekki á því !
Vörurnar verða að seljast!
Hinn mikli afslafíur
á Karlraanna, Drengja, Unglinga og Barna-fötura.
gerir verzlun vora f jörugri en nokkur önnur verzlun í bænum. Það hefir gengið
svo vel hjá oss, að vér bjuggumst ekki við öðru eins. Síðan við byrjuðum, befir
fólk úr öllum pörtum bæjarins komið til okkar. íbúar norðurbæjarins komu og
fóru hoim ánægðir. íbúar vesturbæjarins komu og voru hissa á hve ódýrt alt
var. Margir hafa komið til okkar utan af landi, og ýmsir hafa sent skriflegar
pantanir, bæði stórar og smáar ; vér afgreiðum hinar smærri eins fljótt og hin-
ar stærri. Við setjum okkur það mark og mið, að uppfylla það sem við lofum
og halda við það sem við auglýsum. Við vitum að allir sem eiga viðskifti við
okkur viðurkenna, að vörurnur séu eins góðar eins og þær eru sagðar, að þær
séu ódýrar og að þær séu “móðins.”
Karlmannaföt.
Vór höfum ekki rúm til að segja mikið
um þessi föt. Vór höfum hér um bil
3000 alfatnaði úr kanadisku vaðmáli,
rúðóttu, röndóttu og marglitu. Einnig
Worsteds og Cheviots tvihneft og ein
hneftá $3,30, $4,50, $5,50, $6,50, $7,75 og
$8,75. Hvert af þessum fötum er ágætt
og sá sóm á annað borð vill fá sór föt,
sleppir ekki þessu tækifæri.
WALSU’S
drengja og barna-föt
Vér höfum sórlega mikið af drengjaföt-
um af öllum tegundum. Drengjaföt
meðlöngum buxum, skólaföt og sunnu-
dagaföt. Stuttbuxur á 35, 40 og 50 cts.
Sailorföt 90c. $1,25 og $2,00. Vaðmáls-
föt $1,50 til $3,50. Svört Worsted-föt
$2,50 til $4,50. Drengja og barna hatt-
ar og húfur 25c. og yfir.
Hattar! Hattar!
Stórkostleg kjörkaup.
Mikið að skoða í hattadeildinni, Vér
höfum aldrei áður haft jafnmikið af hött-
uiu eins og nú. Allir með nýjasta lagi.
Þér getið fengið hvers konnr hatt sem
þér viljið. $1.00hattar nú á 50c., $1.50
hattar nú á 75c., $2,00 hattar að eins
$1,00, $2,50 hattar á $1,75, $3,00 hattar á
$2,00 og $4,00 hattar á $2,75. Skyrtur
og annað þess koriar fyrir drengiog full-
orðna með afarlágu verði. Flannelette
yfirskyrtur að eins 20c.. axlabönd 10c.,
hvítar skyrtur að eins 65c. Karlmanna-
hanzkar 75c., kostuðu $1.50. Hálsbindi
á 5, 10 og 15c., kosta helmingi meira.
Vér verðum að minka fatabyrgðirn-
ar og á meðau á því stendur lokum vér
augunum fyrir hinu rétta verði vörunn-
ar og seljum hana fyrir það sem fæst
fyrir hana alt fram að 25. Maí. Á með-
an á þessu stendur verðnr það regluleet
flóð af fatnaði sem fer út úr búð Wal&hs
á aðalstrætinu.
WALSíi’S fatasolubud
515 og 517 Main Str.
— — — Gegnt City Hall.
Saga sögð ritstjóTanum.
MR. THOS. STRANG TALAR SVO
AÐRIR SKULI LESA OG LIFA.
Fékk influenza sem varð orsök í hjart-
veiki. Vinir hans hugðu honum
ekki líf. Eftir ótal ónýtis tilraun-
ir er hann nú orðinn heill heilsu.
Tekið eftir The Comber Herald.
Strangfield heitir pósthús eitt sex
mílur frá Comber. Það dregur nafn sitt
af hinni alþektu, og vel virtu Strang-
familiu.
Það er mjög rólegt þar í grendinni
enda býr þar mesta iðju og reglu fólk.
Af fólki þar er enginn maður betur
þekktur heldur en Mr. Thos. Strang.
Mr. Strang er miðaldra maður, og ó-
kvæntur. Fyrir nokkrum dögum sagði
hann fregnrita blaðsins Herald hvernig
liann hafði komið til heilsu eftir sjúk-
dóm, sem hann sagði að mundi hafa
loitt sig til dauða ef hann hefði ekki far-
ið að brúka Pink Pills. Það sem upp-
runalega gekk að Mr. Strang var influ-
enza, sem breyttist i hjartveiki. Hann
lá mánuðum saman mSttvana og ó-
styrkur. Hnm reyndi ýins meðöl, en
þau virtust ekki koma að neinu haldi.
Stundum hrestist hann svo að hann
gerði tilraun til að hreyfa sig en tauga-
óstjTkurinn og máttlej'sið var þá svo
mikið að liann datt oft flatur til jarðar,
og varð þá að bera liann til Íivílu sinn-
ar aftur. I þessu ástandi var liann svo
mánuðum skifti, og var þá alt af að
verða óstyrkari og óstj'rkari, og jafnvel
þeir af vinum hans sem vonbeztir voru,
voru farnir að láta huefi»llast. Það var
mikið roynt til að fá hann til að rejma
hinar víðfrægu Dr. Williams’Pink Pills.
Ntígranni einri var sendur til lyfjabúð-
arinnar i Comber eftir Pink Pills, og
eftir fárra daga brúkun þeirra var hon-
uln rnjög svo mikið farið að batna. Eft-
ir hálfan mánuð gat Mr. Strang farið
hindrunarlaust forða sinna, og nú er
hann eins heilsugóður eins og hann heíir
nokkurntíma verið. og er glaður yfir að
geta sagt sömu scguna sem svo margir
aðrir liafa sagt, sem brúkað hafa Pink
Pills. Hann gengur jafnaðarloga til
kyrkju í Combor, som eru sex mílur
vegar. Hann sagði við fregurita blaðs-
ins Herald að hann væri glaður af að
geta gefið þeim sem þjást af sjúkdómum
upplýsingar um þau meðöl sem hefðu
bætt sér. — Dagar þeir eru liðnir, þeg-
ar angistar svitinn vætti enni Mr.
Strang, og nú er hann sem nýr maður
fjT-ir brúkun Dr. Williams Pink Pills.
Afleiðingar influenza, og alfir sjúk-
dómar sem orsakast af skemdu blóði,
eða veikluðu taugakerfi lúta fljótloga
undan Dr. Williams Pink Pills. Þær
lækna það sem önnur meðöl lækna ekki.
og enginn ætti að berjast við sjúkdóm
tiL lengdar án þess að rejma þetta frá-
bæra lyf. Þessar pillur eru til sölu hjá
öllum lyfsölum fyrir 50 cts. askjan eða
sex öskjur fyrir $2.50 einnig fást þær
með pósti frá Dr. Williams’ Medicine
Co. Brockville Ont. og Schenectady N.
Y. Takið engar eftirstælingar.
VEITT
HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINOUNN
ifflll
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reyndu.
Jaraes Farquhar.
Húsfiutningamaður.
ÁbjTgist verkið vel af hendi leyst og
eins ódýrt og ódýrast gerist.
Heimili: 859 Main Street.