Heimskringla - 22.11.1895, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 22. NÓVEM8ER 1895.
VEITT
HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNN
3^'
BAIONG
POWNR
IÐ BEZT TILBÚNA
Óblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óboll efni.
40 ára reynslu.
Winnipeg.
Hra. Jón Kjœrnested fór ofan til
Nýja íslands á laugardaginn var og
verður kennari í Kjarnaskóla í vetur.
Hra. St. B. Johnson, sem dvalið
hefir í Argyle nýlendu um undanfarinn
tíma, kom til bæjarins á þriðjudaginn
var.
Hafið þið skoðað stofuskó kvenna
og barna úr selskinni, hjá E. Knight &
Co. ? Þeir eru “útmeta þing” — um
jólin.
Maður drukknaði í Rauðá 10 mílur
norður frá bænum á laugardaginn 16.
þ. m. ísinn var svo veikur að hann
brotnaði undan honum,
Bæjarstjórnar-kosningarnar fara
fram í vetur 17. Desember (þriðjaþriðju
dag í mánuðinum). Útnefuingafundur
fer fram viku fyrr—10. Des.
Ritstj. verkmannablaðsins “Peoples
Voice”, herra C. C. Kteuart, sækir um
aldermans-stöðu i 4. kjördeíld bæjarins.
Gagnsækjandi hans er C. H. Wilson.
Séra Magnús J. Skaptason bregður
sér til West Selkirk á þriðjudaginn Kem-
ur og flytur þar guðsþjónustu á mið-
vikudagskvöldið 27. þ. m.
“Landi” vor einn í Baudaríkjunum
sendir oss þær fréttir nú samstundis, að
hra. Axel Tulinius sé veitt Suðurmúla-
sýsla, og að gýdáinn sé í Reykjavík
Jón Ásmundsson Johrisen, fyrrum sýslu
maður í Suðurmúlasýslu.
Skósalarnir E. Knight & Co. keyptu
stórslatta af skófatnaði að gjaldþrota-
félagi eystra, núna í vikunni. Þar gefst
tækifæri að fá marga góða muni fyrir
h'tið verð.
Vetraneóur. Eftir framhaldandi
blíðviðri um undanfarinn tíma brá
snögglega til frosts og kulda aðfaranótt
hins 18. þ. m. Á mánudaginn hélzt
norðan stórviðri með hörðu frosti og
féll þá snjór svo að gránaði rót. Síðan
mildara, en vetrarlegt útlit.
Maður að nafni G. Canniff í Gren-
fell, Assiniboia, er vel á veg kominn að
fullgera slökkvivél til að drepa sléttu-
eld. Vélin er nokkurskonar vagn, sem
sviður alt gras að rótum á 10 feta
breiðu sviði, sem hún fer um. Tveir
hestar ganga fyrir henni og getur hún
þá brent alt að 30 mílna langa röst og
10 feta breiða á dag.
Argyle-menn alla leyfum vér oss
að minna á, að á föstudaginn kemur
(29. Nóv.) fer fram hlutavelta í húsi ná-
lægt kyrkjunni og ágæt skemtisam-
koma í kyrkjunni. Takiðyður einn frí
dag og gleðjið yður á góðri samkomu í
þakklætisskyni fyrir hina frábæru upp-
skeru í ár. — Samkoman byrjar kl. 2 e.
h. á fðstudaginn kemur—29, Nóv.
Allsherjar vesturríkja-fundur, til
að ræða um innflutningsmál, var sett-
í St. Paul, Minnesota, á þriðjudaginn
var. Héðan úr bænum fóru 10 menn
til að minna fundarmenn á vesturland
Canada. T. M. Daly innanríkisstjóri í
Canada verður og á fundinum.
Gruggugt kaffi er ekki hollur drykk
ur, ekki heldur gruggug meðöl. A þvi
má þekkja áreiðanlegar, vel til búnar
efnablöndur, að þær eru hreinar og
lausar við grugg. Ayer’s Sarsaparílla
er gersamlega laus við alt grugg af því
hún er samandregin úr ákveðnu efni,
en ekki samsteypa.
“Með því að taka til að brúka Ay-
ers Pills í tima gat ég forðað mér frá
meltingarleysi”. Þetta er reynsla margra
Ayers pillur eru gull-gildi, hvort heldur
ein er tekin eftir máltíð til að örfa melt-
inguna, eða þær eru teknar við lifrar-
veiki, velgju, vindþembingi, útbrotum,
eða öðru sliku.
Mr. og Mrs. Óli P. Bérring, á Elgin
Ave. hér í bænum, hafa oíðið fyrir á-
takanlegum barna-missir í haust. 18.
Okt. mistu þau Wggja mánaða gaml-
an son sinn Agúst Uólmtrygg, úr maga-
veiki, og 7. Nóv. mistu þau úr tauga-
veiki dóttur sína Olafínu Margróti,
nærri 3 ára gamla.
SPURNING. Vegur frá heimiii
mínu til vatns liggur yfir land, sem nú
er ný upp tekið. Ábúandi og eigandi
getur þegar hann vill bannað yfirferð
um landið. Hinn rétti vegur er eftir
“townships”-línu, sem er \ míla óhögg-
inn austur af þjóðveginum. Er ekki
sanngjarnt að sveitarstjórnin láti opna
þennan linu part ? J. S.
SVAR: Enginn efi. Það lætur
enda nær að það sé skylda sveitarstjórn-
arinnar að gera þennan spotta færann.
Hra. S. Christopherson, Grund,
Man., var hér í bænum i vikunni er
leið. Vel þrifast sauðkindurnar sem
hann um árið kom með frá íslandi, og
á akuryrkjusýningu á Baldur í haust
fékk hann fyrstu verðlaun fyrir þær
allar. Islenzki hesturinn hans var
sprettharðari og skeiðaði betur en allir
aðrir gæðingar, sem þar voru saman
komnir, en dómendurnir höfðu ekki
sem bezt vit á að dæma um kosti hans
og fékk hann því ekki nema næsthæstu
verðlaun.
Á föstudaginn 15. þ. m. var afmæl-
isdagur séra Jóns Bjarnasonar, var þá
50 ára gamall, Sama dag var og brúð-
kaupsafmæli þeirra hjóna, Rev. Mr. og
Mrs. Bjarnason, höfðu þá verið 25 ár í
hjónabandi. I minningu þess að þetta
var silfurbrúðkaup þeirra og um leið
afmælisdagur hans, efndu forvígismenn
safnaðarins og ýmsir vinir út í frá til
samkomu í fyrstu lút. kyrkjunni á
föstudagskveldið og mættu þar fyrir
hönd Dakotamanna prestarnir séra Fr.
J. Bergmann og séra Jónas A. Sigurðs
son og málafærslumaður Daníel Laxdal
Séra Friðrik flutti ávarp til þeirra
hjóna og fylgdi því ljómandi “Silver
Tea Service” og yfir $400 í peningum
frá ýmsum vinum þeirra. Séra
Jón þakkaði gjöfina og flutti við
það tækifæri ræðu þar sem hann leit
stuttlega yfir æfiferil sinn til þess tima,
er hann fyrir 11 árum tók við prests-
þjónustu í Winniþeg. Prestarnir, séra
Friðrik og séra Jónas, fluttu einnig
ræður og ýmsir fleiri. Söngflokkurinn
söng tvo viðeigandi sálma. Thos. John-
son söng sólo og þegar Mr. og Mrs.
Bjarnason gengu í kyrkjuna spilaði
organistinn, hra. Gísli Goodman,
“Wedding March”. Samkoman var
all-fjölmenn og kyrkjan skreytt með
blómum og rauðar, hvítar og bláar veif-
ur, buguðu sig hringinn í kring innan á
gafliríunum ogsöngpallinum, og héngu
í lykkjum og bugðum á Ijósakrónunum.
Enn ber oss
að þakka TÍðskiftamönnum vorum fyrir goð og mikil viðskifti.
Og enn bjóðum vér kjörkaup sem fylgir, áframhaldandi til þess upp-
lagið er selt:
Moccasins fyrir karla á 50c. Stofuskór karla á 40 cts.
Moccasins fyrir börn á 35—50c. Flókaskór barna á 20 cts.
$1.25skórkvennahneptirá$1.00. Flókaskór kvenna á 25c.
$1.25 stofuskór kvenna, með Reimaðir moccasins fyrir
ristarbandi, á $1.00. karla, saumaðir með vax-
Moccasins karla saumaðir með bornu garni, á $1.50. Vel
. vax-dregnu garni, á$1.25. $2.00 virði.
Vér ábyrgjumst að skifta við yður svo þér séuð ánægðir, — í öllu
gem lýtur að fóta eða handa-búningi.
------ofo---------
Gleymið ekki staðnum
E. Knight & Co„
351 Main Street - - - Andspænis Portage Ave.
Athugið merkið : Raflýst nafnspjald á hverju kveldi.
Hra. S. J. Jóhannesson kom heim
vestan fyrir Manitobavatn á miðvikud.
Sunnudaginn 17. þ. m. voru Mr.
Sigfús Eyjólfsson ogMrs. Emma Arna-
dóttir gefln saman í hjónaband af séra
Hafsteini Péturssyni, að 753 Ross Ave.
Kaupendur blaðsius í Dakota eru
beðnir að afsaka, þó ekki verði reikn-
ingur þeirra á blaðinu rétt færður í
þetta skifti. Verður leiðréttur 1 næstu
viku.
Tveir ísl. menn og 2 enskir voru á
miðvikud. teknir fastir fyrir að setja í
veltu falsaða silfurpeninga og væntan-
legt að 2 ísl. menn til verði teknir fast-
ír nú á hverri stundu. Sem stendur
viljum vér ekki nafngreina mennina.
Mál þeirra kemur fyrir lögreglurétt
f dag (föstudag).
Stórbreyting á
munntóbaki.
TUCKETT’S
T & B
Mahogany.
er hið nýjasta og bezta.
Gáið að því að T. & B. tinmerk
sé á plötunni.
Tilbúið ap
The Geo. E. Tuckett & Son Co., Ltd.
HAMILTON, ONT.
Tombola.
A. Sölvason,
Cavalier. N. Dak.,
tekur myndir frá þessum tíma upp að
nýári fyrir $3.50 tylftina. Cab. stærð.
Notið tækifærið.
Fyrsti “Calender”-inn fyrir næsta
ár, sem oss hafir borizt, er frá G. Olaf-
son & Co., mjöl og fóðursala á King
Str. Það erljómandi fallegur “Calend-
er” sem hann hefir gefið út; mynd af
búgarði, með mönnum, fénaði og fugl-
um, á haustdegi, með hrím og snjó á
jörðu og trjágreinum, lauflausum og
berum.
C. P, R. vélastjórinn einn, Willi-
am Farr, sem í vor er leið var getið
um í blaðinu að hefði gert tilraun til að
krenna inni konu sína og börn, var í
vikunni sem leið fundinn sekur í þeim
glæp sem hann var kærður ’iyrir. Af
því bein sönnun fékzt ekki fyrir því að
hann sjálfur hefði kveikt í hýsinu, eru
nú málafærslumenn hans, þeir herrar
Crawford og Hagel, að hugsa um að fá
málið hafið á ný. Kveðst Hagel hafa
fundið nýja slóð, sem sig langi til að
rekja. Fyrir réttinum reyndi hann ó-
beinlinis að koma því svo fyrir að stúlk-
an, sem Farr hefir haldið við um síð-
astl, 5 ár, Miss Margaret Robertson,
virtist vera hin seka, enda enginn efi á
að sá grunur er talsvert almennur, þó
hann ef til vill hafi ekki við neitt að
styðjast, að hún hafi það verið, sem
sló eldi í olíuborna viðuna og á ástæðan
að heita sú, að þá yrði Farr laus til að
kvongast sér. Fá mál hafa vakið eins
almenna eftirtekt hér í bænum eins og
þetta mál og mun hún ekki rýrna ef á •
stæða þykir fundin til að hefja málið á
ný. Mr. Hagel ber Miss Robertson
þann vitnisburð, að hún sé hin sleip-
asta kvennpersóna, er fyrir sér hafi
staðið í réttarsalnum. Á þriðjudaginn
féll dómur í máli Farrs og liann dæmd-
ur í 10 ára betrunarhúsvinnu,
Einar Ólafsson, ráðsmaður Heims-
kringlu, kom til bæjarins á sunnudaginn
var, eftir fimm vikna ferðalag um ís-
lenzku bygðirnar í Dakota í erindum
blaðsins. Viðtökur voru alment hinar
beztu, og árangurinn af förinni meiri en
nokkurt undanfarið haust, jafnvel þótt
örðugt væri að ná í menn vegna ann-
rikis, enda gengu ýmsir yinir blaðsins
dyggilega fram í að hjálpa til við inn-
heimtuna, en kaupendur flestir greiddu
andvirðið fljótt og reiðilega, og óefað
hefði blaðið því sem næst kollheimt, ef
ekki hefðu verið jafnmiklir örðugleikar
á að koma frá sér kveitinu, eins og þar
hefir verið i haust. — Uppskeran hefir
alment verið góð, og víða mjög góð, en
verðið mjög lágt, um þessar mundir 41
cent fyrir bezta hveiti. Töluverðum ó-
tægindum hefir það valdið bændum,
hve seint hefir gengið að selja hveitið.
Kornhlöðurnar eru oftast því sem næst
fullar, því Great Northern járnbrautar-
félagið, sem hefir að mestu einveldi í
norðurhluta Dakota, alt vestur á Pem-
binafjöll, hefir aldrei getað lagt til eins
mikið af vögnum og þurft hefir til
að flytja hveitið undan. Þetta hefii
bæði valdið tímatöf og snúniugum og
oft orðið til þess að landar hafa fengið
lægri “grade” á hveiti sínu en ella, enda
auðskilið að svo mun fara þegar margir
sækja um að koma hveitinn út, en lítið
rúm er fyrir í kornhlöðum—þar þyrfti
nýja járnbraut. — Þrátt fyrir hið lága
hveitiverð er ekki annað að sjá, en að
líðan sé góð yfir höfuð, enda eru þar
margir ötulir drengir og munu þegar
allvel í álnir komnír.
Unitarasöfnuðurinn ætlar að halda
tombólu og skemtisamkomuþriðjudags-
kveldið 3. Desember næstkomandi.
Þessi tombóla verður dreiðanlega
engin ruslaskrína; munirnir nýjir og
þarflegir og yfir höfuð óvanalega góðir,
— margir frá $1.00 — $5.00 virði.
Skemtanir verða svo góðar sem
kostur er á, og í því sambandi er þess
getandi, að vér höfum, með talsverðum
kostnaði og fyrirhöfn, fengið frægan
enskan fiðluleikara til að skemta á sam-
komunni, og verður það eflaust hin
besta “Music” sem ísl. hafa nokkurn
tíma átt kost á að heyra. Prógrammið
verður nákvæmar auglýst í Lögb. og
Hkr. í næstu viku.
Einn dráttur ókeypis við inngang-
inn.
FUNDUR.
D. W. BOLE
sem ætlar að sækja um borgai stjóra-
embættið heldur almennan fund á Un-
ity Hall cor. Pacific Ave. <% Nena Str.
á þriðjudaginn kemur 26. þ. m. kl. 8. e.
m. AUir kjósendur sem geta, beðnir að
vera viðstaddir.
Tombola
Og
Skemtun.
Föstudaginn 29. Nóvember heldur
hið íslenzka
kvennfélag í Argyle
hlutaveltu i húsi rétt hjá Argylekyrkju,
Munirnir allir eru góðir. EKKERT
NÚLL. Drátturinn kostar 25 cents.
Skemtanir verða : söngur og ræðu-
höld, er fara fram í kyrkjunni. — Kaffi
verður selt 10 cts. bollinn með brauði.
Tombolan byrjar kl. 2 síðdegis,
föstudaginn 29. Nóvember.
FORSTÖÐ UNEFNDIN.
Það kunngerist
hér með hverjum sem við kemur, að hr.
Gestur Oddleifsson, Geysir. Man. hefir
fengið umráð yflr öllum eigum sínum,
sem af honum voru teknar samkvæmt
skuldarkröfum, og að hann liefir umboð
til að innheimta allar skuldir, er fyrver-
andi sögunarmylnufélag: Gestur & Mit-
chell á útistandandi.
Winnipeg 12. Nóv. 1895.
S. A. D. Bertrand.
You (Affí GoTo SlXEP
|N (HUKCH
IF VOUVE OOT
A BAD COUGH.
As many good things are likely
to. But you are safe in running
the risk if you keep a bottle of
Ptrry Davis'
PAIN
KILLER
at hand. It’s a never-failing
antidote for pains of all sorts.
Sold by all Druggists.
Dotn.-Oo« tsáspoonfnl In • half tlstsof wnler ar mlilt (warm lf cppvmUntj
/r t\A
IVE YOJ
Fatnadir
med heildsölu verdi!
Aðkominn írá Montreal, og að auki stórt upplag af
aiisKonar gravoru.
Blue 5toi
Merki: Rlá stjarna. Lægst verð. 434 Main 5tr.
Þetta nýkomna upplag frá Montreal samanstendur af 1500 alklæðnuðum,
2000 buxum. hundruðum af yfirhöfnum fyrir karlinenn og drengi á öllum aldri.
Loðkápur. kápur fóöraðar með grávöru, karlmannahúfur úr allskonar grávöru
Kvennjakkar úr grávöru, kvennkragar úr grávöru, kvennhúfur úr grávöru.
Hanskar og vetlingar úr grávöru fyrir karla og konur. Endalaus ósköp, sem
ekki er unt að telja, með öllum litum og á öllu verðstigi. Alt þetta upplag
keyptum vér ineð óvanalega lágu verði, en svo er raunin sú, að vér höfum
meiru en belmingi meii’a npplag
en ver getum ráðið við. Og þess vegna erum vér lcnúðir að selja þetta upplag
án nokknrs rillits til venjnlegs verðs.
Hugsið um verðið á siðartöldum sýnishornum og munuð þér sannfærast um,
aðiBLUE STORE fáið þér þær vörur á.65cts., sem aðrir fatasalar í bænum
heimta dollar fyrir :
Kailmanna vaðmAlsfot $7.50 virði,.........seld á $4.50.
Fín karlmannafót fyrii’ hversdags brúk $10.00 virði,
seld á $6.50.
Fín karlmannaföt $13.50 virði,.............seld á $7.50.
Mjög vönduð föt $10.50 virði,..............seld á $9.50.
Ljómandi frakkafatnaður, meb nýjasta sniði, með
vaiulaðasta frágangi (ódýr á $25.00) seld á $14.50.
Buxur í þúsundavís ! Karlmanna, unglinga og drengja-
fatnaðir ! Alt með gjafverði í
Th BLÍl
A. Chevrier.
DÆMALAU5 KJORKAUP!
i BOSTON HOUSE i Wesí>Selkirk.
-----••---- <
Þar er nú á boöst ólum cnnar stór vöruslattur frá gjaldþrota verzlunarfélagi og
verður all selt með frábætlesía lágu verði.
Einhneft nærl'öt 50c.
Alullainærföt $1.25
Yfirskyrtur 50, 75 og 90 cts.
og $1.00
jSfe JÍfe Jife jMs. AR. iSfe. Ji'i jifc Jií. fe Al/.
* 50 cts. I
4) verða borguð fyrir Jsnnan f?
mlða hverjum þeim, scmki up-
jl ir í einu upp á $5,00, í THE k
] BOSTON CLOTHINGSTORE t
J Selkirk, Man. Gildirtil Su.Nóv. £
- *-■ w'w.-w wP
Utanhafnar-buxur - $1.00
Ullarbnxur - - - - $1.25
Mjög vandaðar buxur $1.50
$2.00 og yfir.
ATH.: Ef viðskiftamenn vorir frá
Sflkirk eða grendinni koma til Winni-
peg, þætti oss vænt um að sjá þá í
Big Boston=búðinni,
510 «nin Str.
Sú búð er alkunn fyrir kjörkaup á öll-
um klæðnaði og öllu því, er tilheyrir
búningí kailnianna.
W. Finkelstein
510 Main Street - - - IVinnipeg.
Tvær storarverzlanir!
Og í báðmu IVídæma npplag af álitlegasta varn-
ingi frá stór-verksmiðjunum.
A'l'Iið þið til riilton eða til Edinburgh ?
Það gerir engan man. Vór höfum búð í báðum bæjunum og vörumagn meir
en nokkru sinni áður. Komið og lítið á búðarborðin og skápana.
það er yðar hagur ekki síður en VOR.
Vér höfum matjurrir allskonar. leirtau, glingur, álnavöru, fatnað og alt
sem fatnaði karla tillieyrir, liatta og húfur, skófatnaðo, s. frv.
Alt með ftíbeyrðuni kjörkaupum.
Þér hafið aMrei .séð f.'llí’gr;.' ué fullkomnara en vort, af haust og
vetrarbúningi,
Kai’la og Kvenna Yfirhöfnum,
alt með nýjasta tísku-sniði ®:r úr eins vðnduðu efni og nokkurn tima hefir kom-
ið til Norður Dakota.
Karlmanna Alkla’ðnaðir á $2.00 og yfir.
Spyrjið eftir þeim.
Vér erum á, undan hvuð verzlun snertir, og setlum ad sannfsera alla um, ad
•Enginn gerir betur en vér.
í Milton-búðinni viimiir TliorlntíHHOn.
í Edinburgh-búðinni vinnur .ínroli l.indal.
Þið þekkið þá allir. Finnið þá að máli.
JT. J. Menes,
Milton og Edinburgh^ N. Dak.