Heimskringla - 21.04.1898, Side 1

Heimskringla - 21.04.1898, Side 1
XII. ÁR WINNIPEG, MANITOBA, 21. APRIL 1898. NR 28 “ Hvað er svo glatt.” A laugardagskvöldid var voru fimm góðkunningjar samankomnir í prívat- húsi hér í bænum og sátu þar saman að sumbli, spilum, söng og skrafi ‘‘frarn á rauða nótt.” Var þar glaðværð og á- nægja í hásæti sett, en arg og ergelsi á dyr rekið. Að skilnaði voru eftirfylgj- andi vísur mæltar af munni fram. —M. TIL BJÖRNS HALLDÓRSSONAR. Ei sæmir að ég fari að syngja við þig Um sorgir og barlóm og vol, En heldur í kvæði ég klingi við þig Og kveði um mannskap og þol, Um hriðar og hamhleypu veður, Þá hafið með stormmagni treður Og gengur í hamrana’ á hol. Því kært er þér alt sem er karlmannlogt —Þú kyntir þér forntíðarlag— Og alt sem er sniðugt og snjallmannlegt Það snertir þig þann dag í dag, Sem alt slíkt þig ungann snart forðum, Því andinn í fastheldnum skorðum Sig gleður við hreistinnar hag. Og fróður i fornkvæðastökum Þú finnur þar snillinnar-gull. Og hraustur að hornflæða-vökum, Þó hár verði hvítt eins og ull, Þú situr og sérð fram í tímann, Þú sérð hvernig fara mun glíman, Og tæmir þitt freyðandi full. Eg óska þér gengis, minn góðvinur, Og gleðiuni seglfylli’ af byr. Þinn andi’, hann er lífseigur ljóðvinur; Og ljósið um morgunsins dyr Það fleigir burt frostköldum skuggum, Hann fleigir burt þokunnar muggum, Sem áður var kolgrá og kyr. Og hlustaðu’ á storminn í strengjunum ' —Þeir stæltust við mannrauna eld. Þú telst enn með dugandi drengjunum Þó dragist nú brátt yfir kveld. Svo óskum vér als þér hins bezta, Og aldrei lát hönd á þér festa Til að slíta’ af þér húðfat og feld. Kr. St. MINNI TTTAH. Elutt á íslendingadaginn i Spanish Fork, 2. Ágúst 1897. í fjallanna dölum hér festum vér ból Hvar friður og velsældin drottnar ; Þars blómskrúðin glitra mót glansandi Og gróður mun jarðar ei þrotna [sól Sem brúður í skrautbúinn kyrtil ert Þín kóróna’ er náttúrusmíði. [klædd Ó, Utah ! vor blómdrotning biessunum Af berð flestri veraldar prýði. [gædd Vér minnumst þín glaðir, sem móðir vor Og mungát þér drekkum til sóma. [sért Með hljómfagrar raddir frá huganum Þinn hátt prísum fegurðarljóma. [bert B. R. VINAR-KVEÐJA. Til Þorbjörns Magnússonar, 10. Ág. '97. Nú komin er stund. sem að óðfluga enn Ber að, fyr en nokkurn þess varði, Að frá oss svo skjótlega frjálslynda Ber forlagastraumurinn harði, [menn Ó, vinur vor kær, þaðer söknuður sár, Að sjá þig vorn litla hóp kveðja. En hamingjan blessi þér hvert lífs þíns Þig hlekkist um gæfunnar keðja. [ár, Þótt lukkan ei veitti þér gersema gnægð Með hugdjörfung gekstu mót stríði, Og lagðir þinn skerf til að framför og Sér fest gæti rætur hjá liði. [frægð Þú reyndist oss jafnan til framfara fús, Þitt fjöruga giaddi oss sinni. Að skilnaði, vinur, vér drekkum þér dús Já, drekkúm til heiðurs þitt minni. B. R. Saga Bandaríkjanna sýnir, að marg- ir markverðustu viðburðirnir í sögu þjóðarinnar hafa skeð í Apríimánuði. Ver setjum hér til fróðleiks nokkra Þeirra helztu : 19. Apríl 1775 : Bardaginn við Lexing- ton ; einn stærsti bardaginn í frélsisstríðinu. 21. Apríl 1840 : Fyrsti bardaginn við Mexico. 12. Apríl 18(51 : Norðanmenn skutu á Fort Sumter. 13. Apríl 1861 : Tóku Norðanmenn Fort Sumter. 14. Apríl 1861 : Bað Lincoln forseti um sjálfboðalið. 9' Apríl 1865: Gafst bærinn Richmond upp og General Lee. hershöfð- ingi sunnanmanna, gekk á vald Norðanmanna. 14. Apríl 1865 : Lincoln forseti myrtur. Svo vonnmst vér að geta bætt víð, í Apríl 1898 hafi Bandaríkin byrjað. wnnið og endað stríðið við Spánverja. Frjettir. Markverðustú viðburðir hvaðanæfa. Það má heita hart í ári hjá fanga- ræflunum í betrunarhúsinu i Kingston, Ont. Fyrir nokkru síðan var þeim bannað að brúka tóbak, en nú fá þeir hvorki smjör eða sykur með mat sínum. Þykir þeim þetta þrælavist, sem von er. Eidur eyðilagði mörg íbúðarhús og búðiHí bænum Sutton í Quebec á föstu- daginn. Skaðinn um 8100,000. Alitið er að alt það gull sem fanst í Klondiko árið sem leið, hafi ekki numið meira en 83,000,000. En þetta ár er bú- ist við aðtþað muni nema 86—7,000,000. Italskur skeggrakari í Brc.ocklyn, N. Y., skar einn landa sinn á háls með- an hann var að raka hann. Mennirnir höfðu verið stækustu óvinir fyr meir. Hefir rakarinn því ekki viljað missa af svona góðu tækifæri til þess að jafna sakirnar við hinn. Bandarikjastjórn hafa verið boðnir 25 fílar til brúks, við hernað í Cuba. Þessir fílar eru alvanir við líkt sarft í Indía, fog myndu því reynast ágætir bæði í mýrunum og skógunum á Cuba. Það væri hægt að nota þá þar sem ó- mögulegt væri að koma að hestum eða múlösnum. Bandaríkjamaður einn var tekinn fastur i Havana á föstudaginn. ákærð- ur um að flytja skeyti frá uppreistar- mönnum.f | Enski konsúllinn, er gegnir konsúlsstörfum fyrir hönd Bandaríkj- anna, heimtaði að maðurinn yrði strax látinn laus; sýndist Spánverjum það heilræði, svo maðurinn fékk frelsi sam- stundis. Það er nú búið að leggja 43| mílur af Crows Nest Pass brautinni. Fyrir það er Dominionstjórnin búin að borga C. P. R, félaginu 8453,730. Kafteinn Wood, sem í þrælastríð- inu var yfirmaöur á herskipi Sunnan- manna, Tallahassee, og sem þá var á- litinn einhver mesta sjóhetja ríkjanna, hefir nú boðið Bandaríkjastjórn þjón- ustu sina. Talið or vist [að hann muni fá eitthvertjhinna nýrri • skipa til um- ráða. Hann hefir það fram yfir flesta aðra skipstjóra, að hann er gagnkunn- ur í hverri vík og hverjum firði á suð- ur og austurströnd , Bandarikjanna. Fjögra ára gamall drengur brann til dauðs hér um daginn í Toronto. Hann var að leika sér með eidspítur og kveikti í fötum sínnm. Varð eldurinn ekki slöktur fyr en drengurinn var skað- brendur. Fólksflutningalestin á Pictonbraut- inni skamt frá Halifax, rann af teinun- um á föstudaginn var. Gufuvagninn, flutningsvagninn og einn farþegjavagn byltust út í skurð fram með brautinni. Kona ein meiddist til dauðs, og margir aðrir sem á lestinni vcru meiddust meira og minna. Dynamiteverkstæði, sex mílur frá Ottawa, sprakk í loft upp á sunnudag inn; eftir sprenginguna kviknaði í því, svo það brann til grunna. Skemdir urðu töluverðár á húsum í Ottawa af hristing, ’sem orsakaðist af sprenging- unni. Liktist það mest jarðskjálfta, Kafteinn[Sigsbee, sem var formað- ur á herskipinu Maine. hefir tekið að ser stjórn á hinu hraðskreiða gufuskipi St. Paul, [sem nú á að gera að herskipi. Það tekur nokkra daga aðútbúaþað svo vel sé. Torpedo-báturinn Somers, sem keyft- ur var í Þýzkalandi fyrir Bandaríkja stjórn, er talinn ófær til sjóferða. Hann situr nú i Falmouth á Englandi, og fást engir sjómenn til þess að flytja liann til Ameríku. Þingmaður Hardy frá Delaware kom með frumvarp inn á þingiðí Was- hington, þess efnis, aðveita forsetanum vald tfl þess að kalla eftir 400.000 sjálf- boðaliðs. Þetta frumvarp er svipað því sem lagt var fyrir aukaþingið 22. .Túlí 1861, þegar beðið var um sjálfboða i þrælastríðið. Úm 50,000 manns er buist við að verði beðið um strax. Eldur eyðilagði stórbyegingu í Car- bery á laugardaginn. Einnig brann mikið af vörum sem Gyðingur einn átti í byggingunni. Allur skaðinn álitinn um 820.000. Edward Bellany. hinn nafnfrægi mannvinur og skáldsagnahöfundur, liggur nú fyrir dauðanum í Denver í Colorado. Veikin sem þjáir hann er hinn voðalegi gestur tæring, enda er búist við dauða hans á hverri stundu. Sagt er að um 50 beztu og æfðustu stórskotaliðsmenn í Canada muni nú þegar vera gengnir i þjónustu Banda- ríkjanna. Kornhlaða með 400,000 bushels af hveiti i brann á sunnudaginn í Charles- ton, Mass. Skaðinn um 8600,OoO. Stórve.din hafa tilkynt Tyrkja soldáni að hann verði að draga her sinn burt úr Þessalíu innan mánaðar. Skip- un þessi er samkvæm þeim samningum sem gerðir voru milli Grikkja og Tyrkja í fyrra. Til þess að standast kostnaðinn af ófriði við Spán, ráðgerir fjármálanefnd þingsins í Washington, ,að leggja auka- skatt á ýmsan varning. Er búist við að með því móti fáist um 8120.000.000 í stríðssjóð. Einn dollar á að legvjast á hverja tunnu af bjór, það framleiðir um 830.000.000; aukaskattur á tóbak færir um 815.000,000, [af vindlum og sígarett- um búist við um 85,000.000. Einnig á að setja skatt á hvern einn hlut í hlut- hafafélögum, [og svo á bankaávísanir, kaupskjöl og öll þau skjöl, sem lúta að kaupsamningum og lánveitingum; þá skal eínnig setja skatt á patent-meðöl, hraðskeytifog “express”-bögla, Ætlast er til að skatturinn af öllu þessu færi inn um 835,000,000. Aukaskattur af tei og kaffi á að nema um 828,000.000, Svo skal fjármálarmálaráðherrann hafa leyfi til að fá 8500 millíóna lán; því að eins samt að alþýða Bandarikj- anna láni stjórninni peningana. Vext- ir af láninu skuln vera 3% og lánið tek- ið til 20 ára, en þó innleysanlegt eftir 5 ár, ef stjórnin svo ákveður. Ef þetta nær fram að ganga, þá verður hverju pósthúsi í Bandaríkjun- um skipað að veita móttöku þeim pen- ingum, sem bjóðast til láns, og veita þau gildandi skírteini fyrir móttöku þeirra. Sagt er að stórveldin í Evrópu séu að hugsa um að fá sér dálítinn bita enn þá af Kína. Þau eru nú búin að kingja bitanum sem þau náðu fyrir skömmu siðan. Nú ætla líka Áusturríki og Italía að verða með þeim í næstu at- rennunni, svo vonandi er að alt gangi friðsamlega fyrir sig. John L. Ingersoll, bróðir hins nafn- fræga “vantrúar” manns R. G. Inger- soll, dó í Prospect, Wis., á laugardag- inn. Hjartveiki varð dauðameinhans. Hann var 75 ára gamall. Áköf bind indishetja alla æfi. Jarðskjálfar gnnga enn þá í Cali- fornia; 32 kippir fundust á laugardag- inn í bæjunum Point Arena og Mendo- cius. Skaði varð töluverður á húsum, og á stöku stað komu sprungur í jörðu 5—6 þumlunga breiðar. Hristingur töluverður fanst alt fram á sunnudags- morgun. Út af yfirvofandi stríði milli Spán og Bandaríkjanna, heflr stjórnin í Mexi- co skipað tveimur herdeildum á landa- mæri Mexico og Bandaríkjanna, til þess því betur að fyrirbyggja aðnokkrar á- rásir á Bandaríkin geti átt sér stað af Spánverjum í Mexico. Þetta er mjög nauðsynlegt fyrir- tæki af stjórninni, því fréttir bárust fyrir nokkrum dögum hingað, að um 1000 Spánverjar i Mexico væru búnir að sverjast í fóstbræðralag til þess að gera árásir með ránum og manndráp- um inn í Texas, svo fljótt sem ófriður- inn byrjaði við Spán. Það lítur því út fyrir að Mexicosrjórnin vilji ekki bera ábyrgðina af þesskonar fj-rirtæki gagn- vart Bandaríkjunum. Professor Stadling frá Stokkholm í Svíþjóð leggur af stað 21. þ, m. til þess að leita að Andrée- Hann fer fvrst til Klondike, því þó ólíklegt sé, þá er álit- ið að flugufregn sú sem kom á gang fyrir stuttu, um að frétzt hefði til And rée þar norður frá, hafi ef til vill við dá- lítinn sannleika að styðjast. Fréttir frá Ldndon segja, að ný- skeð hafi fuudizt hjá Thebes (Þebu) í Afríku grafir þeirra Amenophis II. — sem rikti þar 1500 fyrir Krist, Ameno phis III, Thotmes IV., V. og VI. Fregnin segir að líkamir þeirra allra hafi verið í ágætu ásigkomulagi. Frá .London koma fréttir um að fjöldi af Englendingum æski eftir að ganga í Bandaríkjaherinn. Meðal þeirra eru margir fyrverandi flokksforingjar úr brezka hernum, alvanir hermenn, og margir vélastjórar. Einnig heflr margt kvennfólk þar boðið sig fram til þess að stunda þá særðu og sjúku í sjúkrahús- um, ef til ófriðar kemur. Nú er þingið í Washington búið að samþykkja ákvarðanir viðvíkjandi frelsi og sjáifstæði Cuha, Það gekk samt ekki eins greitt og við mátti búast, því senatið tók töluvert dýpra í árinni í ákvörðunum sínum, heldur en neðri málstofan. Þurfti því að fá miðl- unarveg, sem alt þingið væti verið á- nægt með. Voru nefndir settar úr báð- um málstofunum til þess að koma sér saman um og undirbúa frumvarp, sem innibyrgði i sér vilja meirihlutans i báð um þingdeildunum, var svo þetta frum- varp lagt fyrir þingjð klukkan 1 á þriðjudagsmorguninn. Senatið sam- þykti það tafarlaust með 42 atkvæðum móti 35. Neðri málstofan þar á móti tók lengri tima tii að komast að hinni réttu niðurstöðu; en þegar loksins var gengið til atkvæða, sem ekki var fyr en klukkan 2J f. m. á miðvikudaginn, þá sýndu þingmennirnir að hjörtu þeirra voru;á réttum stað. Þeir samþyktu frumvarpið með 310 á móti 6 atkv. Ákvarðanir 'þær sem þingið sam- þykti voru fyrst og fremst: að Cuba- menn séu frjálsir og sjálfstæðir; að Bandaríkjastjórn heimti að Spánverjar sleppi allri stjórn og öllu tilkalli til Cuba, og hafi sig á burt bæði með land og sjó her sinn frá Cuba; að forseta Bandaríkjanna sé gefið vald til, og hon- um boðið að brúka allan sjó- og land- her Bandaríkjanna syo mikið sem nauð- synlegt sé, til þess að þetta fái fram- gang, og svo, að Bandaríkin ætli sér ekki, hvorki nú né í framtíðinni, að hafa önnur afskifti af eyjunni, en að koma á friði og fullkominni stjórn. Þar sem nú þin^ið er búið að stað- festa þessar ákvarðanir, þá var ekkert eftir nema að forsetinn skrifi undir þær svo þær yrði gildandi lög. Síðustu fréttir segja, að hann hafi gert það á miðvikudaginn um leið og hann skrif- aði undir skipunarskjal til Spánverja, að rýma af Cuba. Ósannindi Lögbergs. I Canadafréttunum í næst síð asta Lögbergi, er skýrt frá ræðu þeirri, sem fjármálaráðgjafinn í Laur- ierstjórninni flutti á Ottawaþinginu fyrir skömmu síðan, þegar hann lagðl fjárlaga- (eða fjárglæfra) frum- varp stjórnarinnar fyrir þingið. Lögberg segir: ‘ ‘Hin eina veru- lega breyting sem Mr. Fielding gat um að gerð yrði á tollunum í þetta sinn, var það, að tollur á sykri yrði LÆKKAÐUR lítið eitt. En hann gaf dtvíræðlega í skyn, að næsta ár yrðu tollar lækkaðir allmikið. Tekju- hallinn nam árið sem leið $518,000.” Það er auðséð að Lögberg hefir skammast sín fyrir að segja sannleik- ann í þessu máli. Það hefir að und- anförnu sífelt reynt að flaðra upp á almenning með fagurgala um það, hve óumræðilega mikið tollurinn yrði lækkaður undir Laurierstjórninni, og því átti ritstjóraræfillinn svo ofur- bágt með að játa sannleikann í þessu efni, og hefir honum því þótt það ráð vænlegast, að Ijúga hér vfsvit- andi og af ásettu ráði. Sannleikurinn er sá, að tollur á sykri var IIÆKKAÐUR talsvert, eins og Mr. Fielding líka tók fram í ræðu sinni. Hann kvaðst ætla að setja 40c. toll á hver 100 pd. af þeim sykri sem næði 75 gráða gæðastigi og i cent fyrir hverja gráðu þar yfir. Þetta sagði hann að hefði þau áarif, að á þeim sykri sem mest væri brúk- að af í Canada,, vrði tollurinn 65|c. á 100 pundum, í stað 50c. eins og áður var, og er bækkunin því, eins og allir geta séð, 15Jc. á 100 pd. Mr. Fielding kvað það einnig ætlun stjórnariniiar, að hækka tollinn á púðursykri (88 gráðu finleika) um 8c. á liver 100 pd., ©g á röspuðum sykri um 24c. á hver 100 pd. Þessi tollhækkun nemur um !c. á hvert pd. af púðursykri, en }c. á pundlð af röspuðum sykri. Þetta er að eins lítið sýnishorn af hinni dæmafáu ósvífni Lögbergs þegar það er að skrökva að lesendum sínum um tollmálin. Ef þú vilt fú þcr góðan Bicycle w ^ Þá er þér bezt að kaupa { Gendron eda Reliance. é Það eru beztu reiðhjólin sem nokkurstaðar eru seld hér í Winnipeg. i D. E. ADAMS j Næstu dyr fyrir norðan Pósthúsið. \ Karl K. Albert íslenzkur umboðsmaður. 407 MAIN STREET. En það var ýmislegt annað í ræðu Mr. Fieldings sem Lögberg fann ekki ástæðu til að geta um, svo sem það, að Laurierstjórnin hefir HÆKKAÐ tollinn á ýmsum nauðsynjavörum þeim sem alment eru notaðar af hin- um fátækari hluta þjóðarinnar, svo sem t. d. allskonar baðmullardúkum, sem aðallega er notað til fatnaðar fyrir konur og börn verkamanna. Þessi tollur var hækkaður úr 30 cts. upp í 35 cts. af hverju dollarsvirði. Sömuleiðis var hækkaður tollur á öll- um fatnaði gerðum úr baðmull, úr 32^c. upp í 35c. hvert dollarsvirði. Einnig tollur hækkaður á líndúkum (linen) úr 25 upp S 30%.; sömuleiðis á skrauthlutum (fancy goods) úr 30 upp í 35% ; ennfremur á ullardúkum úr 30 upp í 35%. Einnig er nú á ný hækkaður tollur á innfluttu blððku- tóbaki, sem notað er til vindla og sigarett-gerðar, alt að 14c. á hvert pd. Þessi tollur er ofurlítið ofanálag við hátollinn sem Laurierstjórnin setti á tóbakið í fyrra. Þetta kalla nú Ileimskringlu- menn að HÆIvKA, en ekki að lækka tollinn, og þykir hér vefa lagður ó- þarfa aukaskattur á fátækan verka- lýð. En það er með þetta eins og öll önnur loforð Liberala fyrir kosningar —hvert einasta þeirra er svikið með hinni stökustu óskamfeilni. Þeir eru eins liberalirásvikum við almenning eins og Lögberg er liberalt að Ijúga svo lengi sem því er borgað fyrir það. Það var enn eflt í þessari ræðu Mr. Fieldings sem Lögberg fann ekki ástæðu til að geta um. (Það hafði ekki pláss fyrir það—ekki pláss fyrir annað en það sem hvergi stóð í ræð- unni -um lækkun á sykurtolli). Það var það, að stjórnin hefði ákveðið að lækka árlegar rentur af þeim pening- um, sem fátækt fólk dregur saman og leggur á sparibanka landsins, nið ur í 21%. í fyrra lækkaði stjórnin rentuna úr 3| í 3% svo að lækkunin nemur alls 1%, og græðir ríkisfjír- hirzlan þannig um $500,000 á því að sjúga út úr fátækum verkalýð til þess að hjálpa verksmiðjueigendum til að halda áfram iðn sinni á lánuðutn höf- uðstól. Þetta var ástæðan sem Mr. Fielding gaf fyrir því, að stjórnin lækkaði renturnar á sparibönkunum, —að taka frá þeim fátæku til þess að gefa þeim ríku. Hitt er satt, að tekjuhallinn hjV Laurierstjórninni nam árið sem leið rúmri hálfri miljón dollars. B. L. Baldwinson. Hér er tækifærið fyrir þá, sem hafa í tiygfíju að ferðast eitthvað. — Northern Pacific brautin hefir nú sett niður farerialdið austur og vestur, sem fylgir: Til Toronto, Montreal og New Ýork, á 1. plássi 828,20, á 2. plássi 827, 20. Til Tacoma, Seattle, Victoria og Vancouver, á 1. pjássi 825, og 2. plássi 820, Við enda ferðarinnar borgar fé- lagið til baka þeim sem halda 1. pláss farseðli 85. og þeim sem halda 2. pláss farseðli 810. Svo farspðlarnir eiginlega kosta þá að eins $20 á 1. og 810 á 2. plássi. Niðursetningin á fargjaldi til Kyrrahafsins gildir að eins frá stöðum i Manitoba. Til staða í Austurríkjun- um yrði fargjaldið að sama skapi hærra eftir því sem vestar dregur. Það þorg- ar sig fyrir hvern einn að sjá umboðs- mann N. P. félagsins áður en þeir kaupa annarstaðar. Ben Samson, —Járnsraiður.— ^ West Selkirk, Man. Cerir við og smíðar að nýju vagna, sleða, “bugy’s,” “cutters,” reið- hjól, byssur, saumavélar og yfir höf- uð gerir við flest sem aflaga fer, svo það lítur út sem nýtt væri Hann selur einnig tvær tegundir af Steinoliu með mjög lágu verði Heyrnarleysi og suða fyrir eyrum læknast —með því að brúka— Wilsons Common Sense Ear Drums Algerlega ný uppfinding; frábrugðin ölliun öðrum útbúuaði. Þetta er sú eina áreiðanlega hlust- pípa sem til er Ómögu- legt að sjá bana þegar búið er að láta hana í eyr- að. Hún gagnar þar sem læknarnir geta ekki hjálpað.—Skrifið eftir bæklirg viðvíkjandi þessu. Verðið er, með fuil- komnum útbúnaði, 85.00 parið. Karl K. Albert, P. O. Box 589 503 Main St. WINNIPEG, MAN. % 5Í. Pantanír frá Bandarikjunum afgreiddar fljótt og vol. Þegar þið skrifið þá getið um að auglýsingin hafi verið í Heimskringlu. Urmakari. Thordur Jonson, sem í undanfarin átta ár hefir unnið ið úrsmíði hjá Geo. Andrew hér í bæunrti, vill nú gera löndum sínum kunnugt að hann er byrjaður fyrir sjálfan sig. og er nú reiðubúinn að gera við úr.klukkur og allskonar gullstáss o.s.frv., fyrir lægsta verð, og vonar að sem fiestir’gefi sér tækifæri og reyni sig. Alt verk verður fljótt og vel af hendi leyst. Vinnustofa að 262 McDermot Ave. Beint á móti Stovels prentsmiðjunni.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.