Heimskringla - 28.04.1898, Page 1
rteiinskringla.
XII. ÁR WINNIPEG, MANÍTOBA, 28. APRIL 1898. NR 29
STRIÐID BYRJAD.
Bandaríkin hafa nú formlega sagt Spánverjum stríð á hendur. Hver
einasti þingmaður í báðum deildum sambandsþingsins samþykti það mót-
mælalaust og forsetinn skrifaði undir samþyktina á mánudaginn var. —
Aðalherfloti Bandaríkjanna liggur nú rétt fyrir utan höfnina á Havana,
og er búist við að hann á hverri stundu hetji skothríð á hervirki Spán-
verja þar. — Sagt er að sp'mski flotinn liggi enn kyr við Cape Verd, um
3500 mílur frá Havana, og vita menn ekki um fyrirætlanir hans.
Ef þú vilt fá þér góðan
Bicycle
^ Þá er þér bezt að kaupa
$ Gendron eda Reliance.
Það eru beztu reiðhjólin sem nokkurstaðar eru seld hér í Winnipeg.
D. E. ADAMS
^ Næstu dyr fyrir norðan Pósthúsið.
407 MAIN STREET.
^ Karl K. Albert íslenzkur umboðsmaður.
*
*
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Sendiherra Spánar í Washington,
Senor Polo, fór alfarinn þaðan hinn 20.
þ. m. Hann fór til Toronto, Ont., og
dvelur þar fyrst um sinn. Nokkrir
leynilögregluþjónar fylgdu honum, þar
tilhann var kominn yfir landamærin,
áttu þeir að sjá um að honum væri eng-
inn ósómi sýndur af Bandaríkjaþegnum
á leiðinni. En þessi varasemi reyndist
algerlega óþörf, því hvar sem hann fór
var honum sýnd hin mesta kurteisi.
Fréttaritari einn tók hann tali áður en
hann fór, og spurði hann hvort ómögu-
legt mundi verða að hamla því að stríð
yrði milli Spánar og Bandaríkjanna.
Sagði Senor Polo að stríð hlyti að verða,
Spánn væri búinn að gefa eftfr eins og
mögulegt væri. Fréttaritarinn spurði
hann þá hve lengi hann byggist við að
striðið mundi vara. “Þangað til að
Spánn er búinn að sýna yfirburði sína
yfir Bandaríkjunum,” svaraði Senor
Polo.
Þingið i Washington er að gera all-
ar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að
borga Bretum skaðabætur þær, sem þeir
eiga að fá frá Bandaríkjunum, sam-
kvæmt ályktun nefndar þeirrar sem
fjallaði með Bæringssundsmálið 1896.
Upphæðin er alls $473,151, sem á að
borgast fyrir 1. Júní 1898.
Eldur í Rat Portage á fimtudaginn
var,eyðilagði samkomuhús Odd-Fellows
þar i bænum. Tjónið metið um $3,0t)0;
lítilfjörleg eldsábyrgð.
Tveir menn ræntu póstvagninn,
sem gengur milli Geronime og Globe í
Arizona, fyrir fáum dögum siðan. Þeir
tóku alt sem fémætt fanst á farþegun
um og í pósttöskunum. Hópur manna
er lagður af stað til þess ',að reyna að
elta þá uppi. En þá er 'ómögulegt að
segja hve miklu fé þeir hafa náð, en
talið er víst að það hafi verið töluvert,
Töiuverðar ófriðarhorfur milli Ar-
gentinu og Chili, út af landamerkjum
milli rikjanna,
Chili ber það upp á nágranna sina,
að þeir hafi veitt á þeirri, sem runnið
hefir um landamæri þeirra, úr farvegi
sínum, með þeim tilgangi að ná spild-
unni á milli farveganna.
Libby, MoNeil & Libby, niðursuðu-
félag i Chicago, hefir komizt að samn-
ingum við Canadastjórn, um að selja
heuni alt það niðursoðið kjöt sem ríkið
þarf að senda til Yukon, bæði handa
hermönnum, tollverðinum og öllum
öðrum starfsmönnum sínum þar. Sagt
er að félag þetta fái minna fyrir sitt
niðursoðna kjöt, heldur en hrátt kjötið
kostar í Canada. Niðursuðufélögin í
Canada eru samt óánægð yfir þessu at-
hæfi stjórnarinnar, ekki sízt af því, að
þeim varekki gefið tækifæri til þess að
gera tilboð um að selja stjórninni kjöt-
ið.
Skrifstofur Bandaríkja lífsábyrgðar
félagsins Equitable Lífe Insurance
Company i Madrid, voru umkringdar
af óaldarlýð á fimtudaginn var, sem
heimtaði að eftirlíking af Bandarikja-
ernínum, sem var á framhlið hússins,
væri rifin niður, Þvi vár ekki gegnt
af félaginu, svo skríllinn tók til sinna
ráða og reif hann niður; féll hann fyrir
fætur eins af yfirmönnum bæjarins, og
nm leið og hann tróð hann undir fótum
Bélt hann eldheita ofstækisræðu á móti
Bandaríkjunura, •
Menn af öllum stéttum tóku þátt í
bessum rifbaldaskap; jafnvel lögreglu-
Þjónarnir gengu vel fram í því að van-
virða þjóðareinkenni Bandaríkjanna.
Konsúll Spánverja í Toronto hefir
fengið tilkynning frá 23 Canadamönn
Uln, um að þeir vilji ganga i her Spán-
yerja. Einnrg hafa 4 læknar boðið sig
fvain til þjónustu við herinn. Þetta
Þykir skrítið fyrirtæki hér; en aðgæt-
andi er, að þessir menn eru eflaust allir
^áþólskir ofsatrúarmenn.
General Woodford, sendiherra Banda-
rikjanna á Spáni, fékk tilkynning frá
stjórninni þar á fimtudaginn, að hann
skyldi halda heim til sín; hans þyrfti
ekki frekar við. Eigi vildi spánska
stjórnin heldur taka á móti skipunar
skjali því frá McKinley forseta, sem
Woodfotd átti að afhenda henni.
Stórkostlegur eldur kom upp í bæn-
um Vancouver á fimtudaginn. Skipa-
kviar Stimpsons-félagsinsbrunnu, einn-
ig byggingar NeVv England Fish félags-
ins frá Boston, fjöldi af járnbrautar-
vögnum C. P. R. félagsins, hlaðnir með
varning; og svo heyvagnar og margs
konar útbúnaður annar, sem tilheyrði
þeim McKenzie og Mann, sem ætluðu
að byggja Stickine-brautina. Allur
skaðinn er talinn um $15 000.
Féhirðirinn fyrir San Franciscobæ—
August C, Wilber að nafni, er horfinn,
og með honum $160,000 úr fjárhirzl-
unni.
Mr. Robert Thomps^n, sem í mörg
ár hefir unnið fyrir C. P. R. félagið í
Rat Portage var hér í bænum á föstu-
daginn. Hann hefir sagt upp vinnu
sinni hjá C. P. R. félaginu og heldur nú
til St, Paul, til þess að ganga þar i
sjálfboða herdeild. Kona hansfer með
honum þangað og dvelur þar fyrst um
sinn. — Mr. Thompson er gamall her-
maður úr þrælastríðinu, og var fyr
raeir einhver bezti skotmaður i Banda-
ríkjunum.
Talið er víst að Dominionstjórnin
muni ekki ætla að gera neitt frekara í
því að fá járnbrautarleið til Klondike,
og hún muni láta sér nægja með ak
braut þá sem nú er verið að byggja frá
Glenora til Teslin-vatnsins.
Bandaríkja-hérskipið Nashville tók
spánskt flutningaskip herfangi á föstu-
daginn. Skipið var fermt með borðvið,
og kom frá Texas; herskipið skaut einu
skoti að skipinu og gafst það þá upp
viðstöðulaust; var það siðan tekið til
Key West.
General Woodford lagði af stað frá
Madrid á föstudaginn og hélt til Paris.
Á leíðinni var grýttur járnbrautarvagn
inn, sem hann var í, og gluggar mölv-
aðir. Attu varðmeunirnir fult í fangi
með að halda skrílnum til baka. í öðr-
um stað ætluðu lögregluþjónar nokkrir
að handsama prívat-skrifara Woodfords
sem er Spánverji að ætt; vildu þeir ekki
að hann fengi að fara útyfir landamæri
Spánar, en Woodford var ekki á sömu
skoðun. Gekk hann sjálfur í dyrnar,
þar sem lögreglan sótti að, og sagði
þeim að þeir tækju manninn ekki nauð-
ugann meðan liann væri sjálfur uppi-
standandi. Leizt þeim karl ekki svo
árennilegur með öllum fylgdarmönnum
sínum, og sneru því frá við svo búíð.
Grover Cleyeland héltræðu á föstu-
daginn fyrir 1000 skólapiltum í Prince-
ton, N. J.; hflfðu þeir dregizt saman frá
öllum hinum hærri skólum bæjaríns og
gengu síðan allir upp að húsi Clevelands
með margföldu húrraópi. Tókst þeim
þá að fá hann út úr húsinu og láta til
sín heyra. Ræðan var gagnorð, en
heldur f-orð.
Bandaríkin eru nýbúin að kaupa 3
herskip, sem eru í smiðum á Þýzka-
landi fyrir Kína.
Póstmálastjóri Bandarikjanna, Mr.
Gary, sagði af sér embætti sínu í vik-
unni sem leið. Mr. Charles Emery
Smith er hinn nýi póstmálastjóri; lagði
hann uf embættiseiðinn og tók formlega
við embættinu á föstudaginn var.
Maður varð fyrir járnbrautarlest-
inni á Great North West Central-braut-
inni skamt frá Brandon. Lestiu var á
mestu ferð eftir bugðu sem er á braut-
inni, þegar vélastjórinn sá alt í einu
framundan mann liggja þvert yfir
brautina. Hann lét þegar vélina blása
eins hátt og oft og mögulegt var, en
það hafði engin áhrif á manninn,
Hleyfti hann þá niður snjóplögnum, er
var á gufuvaguinum, til að henda
manninura út af brautinui, og tókst
það vel. En þegar að var gætt var
hann dauður og báðir fótleggirnir
brotnir. Líkið var fiutt til Brandon.
en getið er til að maðurinn muni hafa
verið dauður áður en lestin kom að
honum.
Frétt frá Montreal segir að nokVur
barnamorð hafi átt sér stað í austur-
hluta fylkisins. og að búið sé að tska
einn mann, John McCormick, fastaí: í
South Roxton, og talið víst að flá.ri
verði teknir fastir.
Arið sem leið voru inntektir Breta
£3.878,000 fi amyfir útgjöldin. Af þes.s-
ari upphæð hafa þeir lagt til opinberra
bygginga £2,550 000. Þar að auki heír
ríkisskuldin verið lækkuð um £6,605,OW)
á |árinu,
Tveir menn í fangahúsinu í Portage
La Prairie, sem eru dæmdir til 9 og Í2
mánaða betrunarhússvinnu fyrir óleyfi-
legar árásir á stúlkubörn, voru í ofan-
álag strýktir með kisu (cat of nine
tails) sín 10 höggin hvor. Þó hegningin
sé nokkuð óviðkunnanleg, þá er húr, tý
til vill, hcppileg fyrir annað ejns ótnari,!
eskjuæði, eins og hér átti sér stað.
Ef síðustu fréttir eru sannar. þá
eru nú herskip Bandaríkjanna búin a?
taka föst 5 flutninga og kaupskip Spán-
verja. Þar á meðal Alfonso XII. með
1000 spánskum hermönnum. Spánverj-
ar hafa einnig náð einu Bandaríkja
flutningsskipi, hlaðið hveiti.
McKinley forseti biður nú um 125
þúsund sjálfboða hermenn. í þessari
tölu eru innifaldir allir þjóðarverðir
(National Gaurds), sem hljóta að svara
þessari köllun. í þeim ríkjum, þar sem
þeir eru eigi, verða teknir hvaða sjálf-
boðar sem eru.
Eftirfylgjandi listi sýnir hve marga
menn hvert riki verður að leggja til:
Alabama 2,500; Arkansas 2,925;
Californía 2,238; Colorado 1258; Con-
necticut 1607; Delaware 341; Florida
7,503; Georgia 3,147; Idaho 238; Illi-
nois 6,708; Indiana 4,402; Iowa 3,773;
Kansas 2,778; Kentucky 3,407; Loui-
siana 1940; Maine 1256; Maryland 1942;
Massachusessets 4.721; Michigan 2,368;
Minnesota 2,874; Mississippi 5.411;
Montana 524; Nebraska 1,049; Nevada
138; New Hampshire 752; New Jersy
2.962; New York 12,513; North Caro-
lina 2.581; North Dakota 461; Ohio
7,234; Oregon829; Pennsylvania 10,769;
Rhode Tsland 710; South Dakota 1850;
South Carolina 747; Tennessee 3,080;
Texas 4,229; Utah 425; Vermont 634;
Virginia 2.915; Washington 1,178;
West Virginia 1,369; Wisconsin 3,274;
Wyoming 231; Arizona 181; District of
Columbia 449; New Mexico 330; Oklo-
homa 143,
Voðaeldur í Glasgow á Skotlandi á
mánuiaginn. Bruninn var mestur
með fram ánni Clyde. Meðal stórhýsa
þeirra sem brunnu, var hin mikla kaþ-
ólska kyrkja St. Andrews. Skaðinn
yfir £150,000.
John Sherman, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefir sagt af sér stöðu
siuni vegna heilsuleysts. Judge Day.
sem verið hefir aðstoðarmaður hans,
tekur við embættinu.
Einnig er þess getið til, að
þeir Alger og Long hermálaráðherrarn
ir muni einnig segja af sér. — Það eru
góðir þjónar almennings, sem yfirgefa
stöðu sína þegar mest liggur við !
Millíóna eigandinn John J. Astor í
New York, sem fyrir skömmu síðan
bauð Bandaríkjastjórn til eignar hið á-
gæta skip sitt Normahal, og þar á eftir
bauð frijan flutning á hermönn-
um og öllum þeirra farangri eftir öllum
þeim járnbrautum. sem hann á nokkuð
i — og sem eru æði margar—, hefir nú
á ný tilkynt stjórninni að hann hafi
reiðubúna eina deild stórskotaliðs með
öUum útbúnaði þar til heyrandi, sem
hann bíður nú fram til herþjónustu.
“Býður nokkur betur
Á laugardagskvöldið var torpedó-
báturinn Foote, úr Bandaríkjaflotanum
að kanna höfnina í Matansas á Cuba.
Fór hann svo nærri landi sem unt var;
enda líka notuðu Spánverjar tækifærið.
og byrjuðu að skjóta á bátinn úr virkj
um sinum, en þó hann væri ekki nema
6—900fet frá ströndinni, þá gátu þeir
ekki hælt hmn. Foote hraðaði ekkert
ferðum sinu n að heldur meðan á skot-
hriðinni stóð, en hélt áfram starfi sínu,
þar til því var lokið.
Innanum allan þann glamranda, er
leiðir af stríðinu milli Bandaríkjanna
og Spánar. liggur við að mörgum
gleymist það að hinn mesti mannvínur
og forvígisrnaður frelsisins, sem þessi
öld hefir áft, liggur nú við dauðans
dyr. Að Mr. G'adstone’s þreytandi
dauðastríð sé þegar á enda, virðist eng-
um efa undirorpið, og það er með hinni
mestu hrygð og eftirsiá. að menn við
urkenna að nú sé endað hans óviðjafn-
anlega lífsstarf\ Læknar hans gefa nú
enga von um líf.
Yukon-bréf.
KLONDIKE, 27. JÚLÍ 1897.
Vinur Baldwin :—
Með þessum linum sendi ég þér
kveðju Yukon-guðsins (gullsins) og svo
einnig kæra kveðju mína og þökk fyrir
bréf þitt frá 16. Mai, meðtekið 18. þ. m.
Það er ekki eins mikið gleðiefni fyrir
mig að verða að svara spurningum þín-
um, eins og að fá bréfið frá þér, af þeirri
ástæðu að mér er ekki hægt að gera það
eins vel og ég vildi. En ég skal þó gera
það eftir beztu föngum.
Ekki hefir þetta land neina sjáan-
lega framtið fyrir aðra en þá, sem ætla
sér að nema hér gull eða aðra málma.
Ég álít bezt að fara með gufubát frá
Skagway og þaðan yfir Moore’s Pass.
Þar er enginn fjallvegur til fyrirstöðu.
En fari maður til Dyea og þaðan yfir
Chilcoot Pass, verður maður að fara
j-fir 3500 feta hátt fjall, hálfa mílu á
breidd milli brúna að ofan, og er það alt
vondur vegur. Á fjallinu er enginn
i eldiviður fáanlegur, og er það óþægilegt
fyrir þá sem verða þar veðurteptir, sem
oft ber við. Ég lá þar 21 dag veður-
teptur áður en ég komst yfir hálsinn.
Það er dálítið styttri vegur yfir Chilcoot
Pass, en miklu erfiðari heldur en ef
Moors Pass er farið.
Samskonar fatnaður er brúkaður
hér eins og menn hafa í Manitoba til að
skýla sér fyrir vetrarkuldunum. Kuld-
ian er fult eins bitur í Winnipeg eins ov
hér, því þegar frost er hér mjóg mikið,
þá er ætíð logn. Vegalengd frá Victoria
til Klondike er á sjó 1000 mílur, landveg
um 40 haílur og vatnaleið 600 milur, alls
1640 mílur. Yfir allan þennan veg, að
updanteknum sjóveginum frá Victoria
til Skagway, verður maður að flytja
sinn eigin farangur, þvi að öðrum kosti
yrði flutningskostnaðurinn ókljúfandi.
Maður skyldi þvi flytja með sér langsög
og önnur nauðsynleg áhöld, til þess að
geta smiðað sér bát þegar að vötnunum
kemur, en viðinn i þá fær maður med
því að fella skóg og saga borðvið úr
honum.
Þeir sem koma hingað vorið 1898,
mega ekki búast við að ná í nokkuð af
þeim námum sem enn eru fundnar,
nema að kaupa þær fyrir ærna peninga,
svo að ekki er hægt með neinni vissu að
segja hvort þeir geti gert sér ferðina
vestur arðsama. En á hinn bóginn tel
ég víst, að þeir geti unnið sig áfram
með daglaunavinnu, eða þá farið að leita
að gulli upp á eigin spítur, og eiga þeir
þá alt undir hepni, annaðhvort að verða
að leita lengi og víða og máske finna
ekkert og eyða þannig bæði tíma og efn-
um, eða þá að þeir fiani ríka bletti og
græði þannig auðfjár.
Ferðir hingað norður hafa ekki ver-
ið stöðugar fyr en þetta sumar. Én nú
koma menn hingað daglega og er búist
við innstraum fólks þar til frýs upp í
haust.
Loftslagið er hér mjög svipað os
það er i Winnineg. Landið er fjöllótt
og skógivaxið upp á fjallatinda, breiðir
dalir, víða skóglausir, með stórum mýr-
arflákum og er þar 6—8 þumlunga þykt
mosalag ofan á hinum frosna jarðvegi.
Ég efa ekki að hér megi finna landfláka
hæfilega til griparæktar, t. d. upp með
Stewart og Pelly ánum. En þar sem
ennþá hefir verið bygt hér, álít ég að
ekki sé að tala um griparækt, vegna
grasskorts.
Laxveiði er hér í flestum ám stutt
an tíma af sumrinu, og er það sú eina
Öúbót sem maður getur veitt sér hér, að
undanteknum Moosedýrum og Kariboo-
dýrum, sem hér má veiða, og er það hið
bezta kjöt til fæðu. Lax er hér frá 25c.
til 75c. pundið og kjöt frá 50c. til$1.00
pundið.
Veturinn er hentugasti tíminn til að
vínna að gullgreftri hér. Þá grefur
maður holur og rangala undir jarð-
skorpunni og tekur út mölina sem gull-
ið er blandað saman við og liaugar þvTí
upp á yfirborð jarðarinnar. Þar er það
geymt þar t.il á *orin að þiðnar, en þá
er haugurinn þveginn út og gullið ná-
kvæmlaga hreinsað úr. Á veturnar er
ekkert vatn vinnunni til fyrirstöðu.
Dýpsta holan sem hér hefir verið grafin
er 50 fet og þá var þó ekki komið niður
úr frosti.
Ég álít það að miklu leyti mönnum
sjálfum að kenna, að láta ekki ferðina
hingaö-Jtorga sig, ef heilsan bilar ekki.
En stundum verða menn að berjast við
ógæfu og vonbrigði,—vinna baki brotnu
og þéna þó ekkert. Daglaun hafa verið
í sumar og verða að vetri $15 á dag úti
í námum, en $10 hér í bænum (Dawson
City).
Hér er ekkert pláss fyrir námfúsa
menn, því hér er ekkert nema óregla og
ósiðsemi, en þó á hinn bóginn ekkert
hætt við tjóni á lífi eða eignum af
mannavöldum. Alt sem maður getur
flutt með sér hingað norður-getur mað-
ur selt hér með margföldum ágóða.
Um það hvað mikið maður geti þveg-
ið hér út á dag úr meðallagsgóðri náma-
lóð, get ég ekki sagt með vissu, en álit
að það muni verða um $30 til $40 á dag.
Námalóðir eru hér eíns og nú stend-
ur 500 fet á lengd og dalsbotninn á
breidd. Þær eru seldar á öllu verði, alt
frá $500 upp i $100,000 eftir gæðum.
Menn flytja gull sitt inn í félagsbúðirn-
ar og fá það geymt þar í járnskápum
þar til það er flutt út úr landinu.
Menn eru hér í hlýjum ul'.arfötum
og 8trigafötum þar yfir, til að verjast
kuldanum. — Ef námurnar bregðast,
þá er enginn annar vegur til að þéna
hér peninga. — Ég vil ekki eggja neinn
eða letja, en láta hvern mann sjálfráð-
ann hvort hann vill freista gæfunnar
eða ekki með því að koma hingað.
Verzlanirnar og mýflugurnar eru að-
alplágurnar hér i landi. Hefði ég ekki
verið kvæntur maður, þá hefði mér orð-
ið ómögulegt að svæla út þennan pappír
úr búðinni og þá ekki heldur getað skrif-
að þér, þvi verzlunarfólögin hér hafa
ekki haft svo ónauðsynlega vöru til sölu
á þessu sumri, eins og pappír eða önnur
ritföng. Penna og blek er ómögulegt að
fá hér fyrir nokkurt verð, því það er
ekki til. En vínföng fást hér í gallóna
eða tunnutali eins og hver vill hafa.
Hér er æfinlega mest gnægð af allskon-
ar vínföngum, en matvara og önnur ó-
umflýjanleg nauðsynjavara er látin sitja
á hakanum. Matvöruskortur er hér
æfinlega og þau matvæli eem hér eru
seld, eru hið versta rusl sem til er á
heimsmarkaðinum.
Næsta vor og sumar koma að sjálf-
sögðu hingað norður þúsundir af mönn-
um, svo ég býst við að hér verði litil
tækifæri fyrir daglaunamenn næsta
sumar. Allar þær miljónir dollara sem
héðan verða fluttar næsta sumar, gera
heiminn hissa og hálfvitlausann. Það
hafa fundist einstaka námur rikari t. d.
í Californía og Careboo, heldur en hér.
Én jafnmikill fjöldi af stórauðugum
námum hver hjá annari hafa ekki fund-
ist fyr en hér. Yukonlandið og Norð-
vestur héruðin, eru afarstór og viðáttu-
mikil flæmi. Þar eru þúsundir af átea
og lækjum og dölum, sem enginn maður
veit hversu mikil auðæfi kunna að vera
fólgin í. En að kanna alt þetta land-
flæmi og leita að gullinu sem að sjálf-
sögðu má búast við að sé i því fólgið, til
þess þarf mikinn mannfjölda og langan
tima, vegna þess hve landið er erfitt yf-
irferðar. sökum hins djúpa og blauta
mosa sem liggur yfir miklum parti þess
og svo eru mýflugurnar í miljónatali á
hverju ferhyrningsfeti, og flýta þær ekki
ferðum manná. Sumrin eru líka svo
stutt, og alt sem maður þarf að hafa
með sór, verður maöui að bera á baki
sér um fjöll og firnindi, um leið og mað-
ur ber sig áfram með höndunum í gegn
um mýyargiun.
Ef nýtt verzlunarfélag kæmi inn til
þessa héraðs.sem bætti verzlun og lækk-
aði verð á vörum, þá væri það sannar-
leg happasending fyrir það fólk, sem hér
ei að taka sér bólfestu. En það þyrfti
að vera rikt félag, því það kostar mikla
peninga að byrja verzlun hér.
Að endingu' læt ég hér fylgja lista
yfir verð á ýmsum vörutegundum eins
og þær eru seldar hér í félagsverzlun-
unum.
Líði þér ætíð vel svo lengi þinn andi
lifir.
Þorkell JóNsaoN.
[Samkvæmt bréfi frá konu Þorkels.
dagsett í Victoria 14. þ. m., er bann nú
að vinna á námalóðum sem hann á í
Rosebud Creek. um 75 mílur frá Dawson
City, en það er með ríkustu gullhéruð-
uuum seni enn eru fundin þar nyrðra.
Það er því líklegc að bann fái Yukonför
sína ou allan tilkostnað og örðugleika
þar að lútandi, vel borgað nú i sumar.]
Listi yfir verð á ýmsum
vörutegundum í Klondike.
Reykt svinskjöt (Bacon) pundið 40c.
Bannir 12 Jc.
Smjör $1.00
Niðursoðið nautakjöt.. . " 95c.
" Peari Barley” .. " 20c.
Malað kaffi " 50c.
Ostur 30c.
Mais i könnum “ 40c.
Sukkulaðe .. “ 75c.
Soda kökur (Biscuit)....
Hveitimjöl .. “ 12c.
Þurkaðir ávextir
Niðursoðnir ávextir.... 30c.
Reykt svinslæri.. .. “ 45c.
Svínafeiti “ 30c.
'Hafiamjöl .. “ 25c.
Mais
Niöursoðin mjólk .. " 50c.
Nautakjöt “ 75c.
Mustarður “ $1.00
O.strur " 75c.
Þurkaður laukur .. “ $1.00
Pipar “ 50c.
Klofnar baunir 25c.
Þurkaðar kartöflur 50c.
Gerpúlver “ $1 50
Hrísgrjón " 25c..
Svkur “ 30c.
Súrir garðávextir “ $1.00
Salt “ $1.00
Allrahanda (Spices) $1.00
Soda “ 50c.
Te
Tomatoes “ 40c.
Tóbak “ $100
Garðávextir í könnum.. 75c.
Hunang Gallónan $1.50
Steinolía .. " $1.50
Píckles . . “ $1.00
Sýróp
lvridd-sósa
Eldspítur Pakkinn I24c.