Heimskringla - 19.05.1898, Blaðsíða 1
Heimskringla.
XII. ÁR WINNIPEG, MANITOBA, 19. MAI 1898. Nli 32
ják.Jtfc.JtkJWcjlk.Jlh.Jlh.Jlfcjth.Jth.Jtlt.Jth.jMcA.jMmh.jM.Jlfc.JÍh.Jlh.Jlh.JlÉtJfcJMt.
<
*
*
4
*
Furner’s
MILLINERY.
522 Main Street
— WINNIPEG, MAN.
‘httw wwwwwwwwwwwww^rwwwwwwwl
I
I
►
►
►
STRIÐID.
/Síðan Heimskringla kom út sein-
ast, hefir fátt markvert borið við í ó
friðniim milli Bandaríkjanna og Spán-
ar.
Það helzta sem til mætti telja er,
að við Philippine eyjarnar hefir Dewey
og menn hans sökkt einu spánsku her-
skip og náð öðru á vald sitt, án þess að
tapa nokkru af mönnum eða skipum.
Að öðru leyti er ástandið þar hið sama
og fyrir vikn Síðan. Samson flotastjdri
Bandaríkja skaut á hervirki Spánverja
á Porto Rico, og gerði töluverðan skaða
þar. Hann vildi sjá svo um að spánski
flotinn hefði ekki mikinn styrk af þeim,
þó þeim skyldi takast að koma skipum
sínum þar inn á höfnina. Síðan hefir
hann verið í eltingaleik við spánska
flotann sem nú er sagt að sé í Cari-
biska-sjónum, skamt undan ströndum
Venezuela.
Talið er nú vist að Spánverjar ætli
sér að komast eftir Caribiska sjónum
fram hjá eyjunni /amaica og að suður-
strönd Cuha, og ef mögulegt væri inn
á höfnina í Cienfugos. En nú er Samp-
son tcominn með flota sinn undan Haiti
eyjunni, svo hann mun ætla sér að ná í
spánska flotann áður enn hann kemst
til Cuba,
Commodore Schley er nú kominn
með ,‘Flying Squadron” Bandaríkjanna
að norðurströnd Cuba, og lítur þar eftir
Spánverjum meðan Sampson á við flot-
ann að sunnanverðu, Einnig eru þau
þrjú herskip Bandaríkjanna: Oregon.
Mariettaog Nictheroy, sem nú er kall-
að ‘Buffalo’, sem eru á leið norður frá
Brasilíu, komin allnærri austurendan-
um á Caribiska sjónum, svo alt útlit er
fyrir að floti Spánverja sé nú kominn i
þær kvíar, að hann hafi sig ekki út aft-
ur án þess að mæta einhverjum af her-
skipum Bandamanna. Ef spánski fiot-
inn skyldi taka það ráð að eiga helzt
við Oregon og hin tvö skipin sem með
þvi eru, þá má reiða sig á það að þeir
fá þar að öllum líkindum eins eftir-
minnilega ráðningu eins og hjá Manila
Oregon og meðskip þess eru algerlega
einfær um að ráða niðurlögum þessara
7 herskipa, sem eru í flota Spánverju.
Margar flugufregnir um viðureign
milli flotanna berast nú hingað og þang
að, en slíkum fréttum er ómögulegt að
trúa. Vér vonumst eftir að eitthvað
sögulegt hafi gerst til frásagnar áður en
næsta blað Hkr. kemur út.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Hveitihlaða með 1,115,000 bush. af
hveiti brann í Chicago á fimtudaginn
var. Skaðinn er metinn á 81.200.000.
með nær því fullri ábyrgð. Þar fyrir
utan brunnu eignir Lord & Bushnell
D. S. Tate & Co, Arthur Gousley & Co,
og Francis Beidder & Co.; altsaman
stórviðarsölufélög; er ómögulegt enn
Þá að gizka á hvað skaði þeirra hefir
oiðið mikill, en geta má þéss að borð-
viðarhlaðarnir tóku yfir margar ekrur.
Einnig brunnu 44 járnbrautarvagnar
Þar á sporinu hlaðnir með beztu tegund
af borðvið.
Maður nokkur að nafni George
Downing. sem tekinn var fastur í Was-
hingtou fyrir nokkrum dögum síðan,
grunaður um að vera njósnari fyrir
Spánverja, hengdí sig á fimtudaginn
var í fangahúsinu, þar sem hann beið
eftir prófun máls síns.
Á miðvikudaginn lenti í slag milli
Þúfígja smá herskipa Bandaríkjanna
°S spánsku viggirðinganne hjá Card-
enas á Cuba. Þessír litlu bátar eyði-
lögðu mikið af vígunum, en um mann-
fs-U Spánverja er ómögulegt að segja.
Einn bátur Bandamanna skemdist tölu
vert og 5 menn mistu lífið. Skip þessi
höfðu evga skipun til þes_-> að skjóta á
virkin, þar eð slíkt er álitið algjört of-
urefli fyrir svo smá skip, og er þvi bú-
ist við að yfirmenn þeirra fái að gera
grein fyrir af hvaða ástæðum þeir
hættu lífi manna sinna undir skotvopn
Spánverja.
Eitt af skipum Deweys, herskipið
Concord, náði i spánskt herskip skamt
frá Philippine-eyjunum á fimtudaginn.
og eftir allsnarpa orustu sökti því með
öllu sem á var,
Flutningaskip nýkomin til Hali-
fax, New York og Philadelphia segjast
öll hafa orðið vör við spánsk herskip
skamt undan landi. Ef fregnin er
sönn má búast við að þau geri vart við
sig fram með austurströnd Bandarikj-
anna, Þó er líklegt að flotinn undir
Commodore Schley, sem samanstendur
af öllum hraðskreiðustu skipum Banda-
ríkjanna. muni líta eftir þessum flæk-
ingum, áður en þeir gera mikinn skaða.
Nú er það talið víst að franskir stór
skotaliðsmenn séu í þjónustu Spánverja
á Cuba, og að þeir muni vera nógu
margir til þess að stjórna öllum stærstu
fallbyssum Spánverja. — Þeim gott af
því. Hvort það er heidur Frakki eða
Spánverji, sem ætlar sér að verja Cuba
fyrir Bandamönnum, mun komast að
því fullkeyftu áður en likur.
Aberdeen lávarður, landstjóri í Ca-
nada, hefir tilkynt Canadastjórn, að
hann sé búinn að fá Þusn frá embætti
sínu hjá brezku stjórninni, og að hann
búist ekki við að halda embættinu
lengur en þangað til í Október eða Nó-
vember í síðasta lagi. Ekki getur lá-
varðurinn um neinar sérstakar ástæð-
fyrir heimför sínni, en getur þess að
eins að þær séu privat.
D’alton McCarthy þingmaður á
Dominionþinginu, og einn af helztu
stjórnmálagörpum Canada, dó á mið
vikudagskvöldið 11. þ. m. að heimili
sínu f Toronto. Eins og getið var um í
síðustu Heimskringlu varð hann fyrir
miklum meiðslum af slysi og leiddu
þau hann til dauða. Jarðarförin fór
fram á laugardaginn með mestu við-
höfn.
Slys vildi til á C P. R, brautínni á
föstudaginn skamt frá smábænum
Walsh. Vöruflutningslest var á ferð-
inni að vestan og rendi með sinum
vanalega hraða eftir brautinni, sem á-
litin var í alla staði góð, og sem aðrar
lestir höfðu farið eftir fáum klukku-
stundum áður, en i millitíðinni hafði
sléttueldur brent i burt tréverk sem
hélt uppí teinunum yfir breitt og djúft
ræsi, og rendi flutningslestin þar ofan í.
Vélastjóri og kindari biðu bana af sam-
stundis og sex hlaðnir ^agnar veltust
út af sporinu og brotnuðu meira og
rninna. Ferðalangur einn, sem leyfis-
laust hafði ferðast með lestinni og
hangt á milli vagnanna, meiddist einn-
ig töluvert.
Eitt af herskipum Deweys náði
spánsku herskipi rétt hjá Manila í vik-
unni sem leið. Það lítur út fyrir að
kafteinninn á spánska skipfnu hafi ekki
vitað um að stríð var byrjað milli
Bandarikjanna og Spánar, og sízt af
öllu að hann hafi haft hugmynd um að
óvina floti lagi á höfninni í Manila.
Hinn nafnfrægi fíólínspilari Ed-
ouard Remanyi varð bráðkvaddur j
Orpheum leikhúsinu í San Fransisco á
laugardaginn. Hann var þar að leika
á fiðlu sina fyrir fjölda fólks og sýnd
ist vera með beztu heilsu, þar til alt i
einu að hann hneig örendur niður í
sæti sitt.
Á laugardaginn lögðu hertnennirn-
ir, sem sendir eru til Yukon af Canada-
stjórninni, af stað frá Vancouver, áleið
is norður. Þeir eru 220 als. Með þeim
fóru 4 kvennmenn, til þess að líta eftir
þeim sem sjúkir kynnu að verða.
Ástand Mr. Gladstones hvað aðal-
veikina snertir sýnist vera mjög svipað
og verið hefir fyrirfarandi viku; en
máítur hans smá þverrar, og lífsaflið
minkar, svo hann .færist þannig hægt
og hægt nær því óumflýjanlega.
Þá er Bandaríkjaflotinn (The fly-
ing squadron) undir forustu Commo-
dore Schley lagður af stað í áttina til
Cuba. Það er að eins sagt að hann eigi
að halda til Key West, en þó er búist
við bann fari lengra, og ef til vill sam-
lagi sig við flota admiráls Sampsons.
Bandarfkja-flutningsskipið Gussie,
hlaðið með vopn og vistir til Cuba-
manna, mátti hverfa frá Cuba, án þess
að geta afhent flutninginn til uppreist-
armanna. Spánverjar voru svo margir
á ströndinni að ómögulegt var að lenda
bátum fyrir skothríðinni frá þeim.
Þetta er fyrsta skipið sem ekki hefir
getað aflokið erindi sínu fyrir Banda-
ríkjastjórn við strendur Cuba, enda
var kafteinninn mjög hryggur í huga
yfir að þurfa að snúa frá við svo búið.
Bandaríkjastjórn ætlar að senda
12,000 hermenu undir forustu yfirhers-
höfðingja Wesley Meritt til Manila.
Það er álitið að ekki muui veita af
þeirri töiu til þess að geta haldið upp-
reistarmönnum þar í skefjum, ef á þarf
að halda, og um leið að geta sýnt ótví-
ræða yfirburði yfir spánska herliðinu
sem þar er Mestmegnis verður það
sjálfboðalið, sem þangað verður sendt
bæði frá Minnesota, Norður Dakota
og hinum öðrum vesturríkjunum. Jafu'
framt þessu verða sendar þangað næg-
ar byrgðir af vopnum og vislum og
öllu því sem nauðsynlegt þykir.
Admiráll Sampson lagði nokkrum
skipum úr flota sínum framan við vigin
hjá San Juan á Porto Rico á fimtudags
morguninn, og sendi þeim nokkrar kúl-
ur. I skeyti sínu til Bandaríkjastjórn-
arinnar segist hann hafa eyðilagt eitt-
hvað af þeim, og hefði getað tekið bæ-
inn, en vildi ekki gera það, þar hann
hafði ekki nóga hermenn, sem hann
mátti án vera af skipunum. Skaði á
skipunum eftir orustuna var enginn.
Einn maður féfl og 3 eða 4 Bærðust lítið
eitt.
í húsbruna í St. Hyacinthe í Que-
bec-fylkinu brunnu tveir drengir til
dauðs á sunnudaginn, og kona ein
stökk út um glugga á fjórða lofti i hús-
inu; brotnuðu báðir handleggir og fót-
leggir á henni og dó hún litlu siðar af
áverkanum.
Senor Polo Barnabe, fyrrmeir sendi-
sendiherra Spánar í Washington, sem
hefir dvalið nokkrar vikur í Toronto
og Montreal, leggur af stað heim ti-
Spánar á laugardaginn kemur. For-
seti McKinley hafði áður beðið Eng-
landsstjórn að sjá svo um að hann hefði
ekkí lengi aðsetur sitt í Canada, þar eð
nægar sannanir fengust, sem.sýndu að
hann stóð í sambandi við spánska snuðr
ara í Bandaríkjunum, er höfðu það fyr-
ir mark og mið að gera Bandaríkja-
mönnum allan mögulegan skaða.
Fullyrt er að brezka stjórnin ætli
aðláta víggirða St. Johns á Nýfuudna-
landi. Orsökin er sögð að vera hinar
miklu ófriðarhorfur í Evrópu.
Fréttir frá Havana segja að Gener-
al Blanco, hershöfðingi Spánverja á
Cuba, muni þegar þrotinn að skotfær-
um. Ef fréttin er sönn og ef spánska
flotanum tekzt ekki að komast til Ha-
vana, sem er mjög óliklegt að honum
takist, þá er alt útlit fyrir að Havana
verjist ekki herskipum Bandamanna til
lengdar,
Eldur eyðilagði stórt verkstæði í
Moosomin, N. W. T., á þriðjudaginn.
Tjónið er metið á $5000. Engin elds-
ábyrgð,
Bandaríkin hafa keyft 177 þúsund
ton af kolum frá Ástralíu, sem eiga að
flytjast til San Fransisco.
Bærinn Chipley í Florida er sagt að
hafi því nær allur brunnið á mánudag-
inn. Hvert einasta verzlunarhús á að-
alstræti bæjarins brann, ásamt járn-
brautabyggingum öllum og fjölda af í-
búðarhúsum. Tjónið er voðalega mik-
ið; fjöldi fólks misti aleigu sína, og ótal
fjölskyldur standa uppi húslausar og
allslausar.
Fregnritarinn Halstead, sem Spán-
verjar tóku fastann sem njósnarmann á
Porto Rico, og sem nú hefir verið dæmd-
ur í 9 ára fangelsi, er Canadamaður o.j
breskur borgari. Stjórnin í Canada
hefir sent skipun til breska konsúlsins á
Porto Ripo að ná manninum úr haldi,
þar eð enginn efi er á að hann er alger-
lega saklaus, að öðrum kosti er búist
við að Bretar sjálfir skerist i leikinn.
Ráðaneyti Spánverja hefir sagt af
sér. og þegar siðast fréttist var ekki bú-
ið að mynda nýtt ráðaneyti. Enginn ai
hinum frægari mönnum þjóðarinnar
vill leggja það ok á herðar sér.
Til grobbarans.
Sigtryggi Jónassyni hefir orðið frem-
ur orðfátt i siðasta Lögbergi eftir ádrep-
una sem ég vék honum í Heimskringlu.
Að vísu var hann með sinum vanalega
hrokaskap búinn að grobba af þvi í blaði
sinu að ég mundi óska að hafa aldrei
byrjað á ritdeilu við sig. Slíkan merk-
ismann ! Sjálfan ritstjóra Lögbergs !
Vandlætinga og siðferðispostulann
mikla ! Ritsnillinginn og mælskumann-
inn makalausa ! Og síðast en ekki sízt
—hem !—hinn fyrsta íslenzka þingmann
í Canada ! Nei, það var svo sem ekki
mikill efi á þvi, að það var ekki mitt
meðfæri að deila við slíkan stórlax
Greenwayklíkunnar í Winnipeg, sem
hafðium mörg undanfarin ár verið strið-
alinn á stolnuum stjórnarmútum (eins
°g ég hefi áður sannað). En hvernig
sem því er varið, þá er þó svo að sjá í
síðasta Lögbergi, að ritstjórinn sé ekk-
ert montinn yfir útreið þeirri sem hann
hefir fengið í þessari deilu, það sem enn
er komið. Manni verður ósjálfrátt að
ætla að það geti nú skeð, að hann kunni
að hafa fundið til þess með sjálfum sér,
að lesendur blaðanna hafi ef til vill tek
ið eftir því, að ekki sé alt sem allra
hreinast i fari stjórnarinnar í þeirn at-
riðum sem ég hefi minst á. Honum get-
ur ekki hafa verið ókunnugt um það
sem nú er á hvers manns vörum, og sem
ýmsir af þeim mönnum sem alt til þessa
hafa verið taldir góðir og gildir Liber-
alar hafa undrast yfir, að hann skuli
ekki hafa getað sagt eitt einasta varnar-
orð fyrir 1. d, hallærisstyrknum til Lög-
bergs. stuldinum til Guðna á Gimli eða
stuldinum í sambandi við hin islenzku
fargjöld. sem eins og hinir stuldirnir
nemur þúsundum dollara, — að ég ekki
nefni þann aukabita sem stjórnin virðist
að hafa dregið til sín á þann hátt, að
þykjast hafa borgað vissar upphæðir til
manna fyrir innheimtu þessara far-
gjalda, en sem alls ekki hafa haft neina
slíka innheimtu á hendi, og ýmislegt
fleira er ég hefi minst á greinum mínum.
í stað þess að svara nú þessum at-
riðum og skýra þau svo sem föng voru
á fyrir hinum íslenzku gjaldþegnum
fylkisins, þá tekur hann á sig stórann
og óþarfan krók, til að reyna að leiða
athygli lesendanna frá aðalmálefninu,
og fer að ljúga upp á sjálfan sig—(von
er þó hann ljúgi upp á aðra)—lofi um
það, hve dæmalaust hann hafi nú ann-
ars æfinlega verið mér góður, og hve
frámunalega vanþakklátur ég geti feng-
ið af mér að vera, að ég skuli ekki kann-
ast við það, að hann og blað hans hafi í
rauninni eytt mestum parti æfi sinnar
til þess að haida mér fró hunda og
manna fótum ! Að minsta kosti hefði
ég þó átt að færa honum lofsöng og
þakkarfórn fyrir þann greiða, að hafa
frelsað mig frá stórsektum eða fangelsi
fyrir dæmafá afglöp í sambandi við síð-
ustu fylkiskosningar ! !
Já, mikið og stórt er mannanna
vanþakklæti! Ég vildi ekki kannast
við þetta og lét ég lesendur Hkr. skilja
það. En svo kemur nú blessað ljúf-
mennið Sigtryggur með það, sem á sjálf •
sagt að vora eitt heljar-rothögg á mig,
að því er snertir fangelsisfrelsun mína,
en það er bréf frá Mr. C. Graburn, skrif
ara fylkisstjórnarinnar um það, að
hvorki hafi ég né nokkur umboðsmaður
fyrir mína hönd látið honvm í té neina
skýrslu yfir kosningakostnað minn 1896.
Að þetta bréf sé að öllu leyti satt og
rétt, dettur mér ekki í hug að efa. svo
framarlega sem með orðunum “að láta
í té” sé meint og skilið það, að ég hafi
ekki persónulega afhent Mr. Graburn
reikningiun í sínar hendur. Sigtryggur
hefir því sannað það, að Mr. Graburn
hefir ekki meðtekið slíkan reikning. En
með því er ekki sagt og því síður sann-
að, að ég hafi ekki samið og sent frá
mér slikan reikning. Og ennþá síður er
það sannað, sem þó er aðalmergur máls
ins og sem þessi deila er aðallega um,
að Sigtr. Jónasson hafi nokkurntíma
haft það á sínu valdi, að fá mig dæmd-
ann í sekt eða fangelsi fyrir afglöp i
þessu sambandi. Það var þessi stað-
hæfing kafteinsins sem ég kvað hann
vera lygara að, og því sama held ég
fram enn. Ég hefi rætt þetta mál við
þrjá mikilhæfa lögmenn hér í bænum
og hefir þeim öllum komið saman um
það, eftir að hafa heyrt málsvörn mína,
að það hefði orðið allsendis ómögulegt
að fá mig dæmdann sekann i slíku máli.
Ég vil því ráða ritstj. Lögb. til þess
að angra ekki sjálfan sig framvegis með
neinum tilraunum tilað losast viðþenn-
anlítilf jörlega titil sem ég hefi vikið hon-
um. Heldur væri þó reynandi fyrir
hann að yrkja upp á nýjan stofn og gefa
sig næst við því að lofa okkur að vita
um það, hvernig hann fór aðútvega
mér umboðsstöðuna forðum. Það er
dálítið ónotalegt afspurnar að verða að
liggja á hverju bragði, og því alveg
nauðsynlegt að gera eínhverja svolitla
tilraun til þess að koma lesendum Lög-
bergs i skilning um það, að hann geti
þó sagt satt í einstöku tilfellum.
Ég segi svo ekki fleira um þetta að
sinni, en samkvæmt vinsamlegri bend-
ingu frá hr. Magnúsi Paulsyni i Lögb.
um daginn, mega lesendur Heimskr.
búast við að ég segi þeim síðar hitt og
annað um hina stærri sindapoka fylkis-
stjórnarinnar.
B. L. Baldwinson.
Einkennileg sparsemi.
Eitt af þvi marga sem einkennir
sparsemi Laurierstjórnarinnar er það
sem blaðið “Regina Standard” skýrir
frá, í sambandi við fangelsið og iðnaðar-
skólann i bænum Regina.
Undir Conservativustjórninni var
tveimur læknum þar í bænum falið á
hendur að hafa eftirlit með heilbrigðis-
ástandi þessara stofnana, og hafði fang-
elsislæknirinn $120 á ári fvrir starfa
sinn, en sá sem annaðist um iðnaðar-
skólann hafði $480, alls $600 til beggja
læknanna. En hinni nýju Laurier
liberal stjórn þótti þetta hin mesta
eiðslusemi, ekki vegna þess hve launin
voru há, heldur vegna þess, að læknarn-
ir setn fengu þau voru Conservativar.
Hún rak þvi þessa tvo menn frá emb-
ætu og setti í þeirra stað tvo Liberal
lækna, og borgar hún nú fangelsislækn-
inum $360 um árið, en iðnaðarskóla-
lækninúm $1400, eða samtals $1760, i
stað $600 sem áður var. Hún borgar
því þrisvar sinnum hærra kaup fyrir
þessa vinnu heldur en gamla stjórnin
gerði, án þess þó að verkið hafi að
nokkru leyti aukist. Þetta er gott sýn-
ishorn af sparsemi Liberalstjórnarinnar
í Ottawa.
B. L. Bai.dwinson.
Einkennileg fínanzfrœði.
Ut af þeirrí megnu óánægju, sem
komið hefir i ljós um þvert og endilangt
Canada, vegna þess að Laurierstjórnin
lækkaði rentur af innlögum verkalýðs-
ins á sparibanka ríkisins niður úr öllu
hófi — (i 2J procent af hundraði), í þeim
eina tilgangi — eins og Mr. Fielaing
skýrði þinginu frá — að létta undir
með verksmiðjueigendunum, að þeir
gæti aukið iðnað sinn meðlánuðu stofn-
fé. Þá gaf einn af ráðgjöfum Lauriers
þá upplýsingu á þingi fyrir fáum dög-
um, að stjórninni hefði hugkvæmst að
láta árlegar rentur vera 3% á öllum
upphæðum upp að $500, en að eins 2J%
á öllum stærri upphæðum, sem fólk
kynni að eiga á sparibönkunum.
Eftir þessari ákvörðun er það sjá-
anlegt, að sá sem á $500 á banka fær
$15 í árlega rentu. En ef hann er svo
ólánsamur að eiga $510, þá fær hann
að eins $12,75 i árlega rentu. Svona er
fínanzfræði Laurier-stjórnarinnar.
B. L. Bai.iiwinson.
Frá löndum.
MOUNTAIN, N. D., 9. MAÍ 1898.
(Frá fregnrita Hkr.
Tíðin hefir verið hin hagstæðasta í
alt vor. Sáning hefir þar af leiðandi
gengið mjög fljótt og vel, flestir að enda
við það.
Mikið er talað hér um stríðið milli
Bandaríkjanna og Spánverja. Um 470
hermenn hafa verið kallaðir frá Norður
Dakota, og fá miklú færri að fara héð-
an en vilja, þvi fyrst eru teknir þjóðar-
verðirnir og þeir sem einhverja heræf-
ingu hafa haft áður. Fóstursynir
gamla Jónatans sýna það á þessum
tíma að þeir verja karlinn f.yrir yfir-
gangi og órétti, hvenasr sem er, og hver
sem í hlut á.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band af S, Guðmundson, Justic of the
Peace, Mr. M. Th. Halldórson og M.
Johnson að Hallson, og Thos. Skaro
(norskur) og Christina Christianson
(íslenzk), að Hensel, N. D. Lukkuósk-
ir 'allra kunningjanna fylgja þessum
hjónum út á hina óförnu lífsleið þeirra.
Workman-félagið á Mountain held-
ur áfram að auka meðlimatölu sína.
Hefir það nú 96 meðlimi. Stórstúku-
þing (Grand Lodge) A, O. U. W. félags-
ins kemur saman i Fargo, N. D., þaun
17. þ. m., og mætir Mr. S. Guðmunds-
son þar sem fulltrúi frá Workman-
stúkunni á Mountain.
Nokkrir bændur úr þessu bygðar-
lagi hafa í hyggju að flytja sig búferl
um til Mouse River-dalsins í sumar,
Meðal þeirra er herra Indriði Sigurðs-
son, sem var einn af þeim fyrstu að
nema land hér í Mountainbygðinnj, og
sem hefir búið á landi sínu rétt austan
við Mountain.
Hveitiverð hér er nú $1,27 bush.
af No. 1 hard, og er það mikið hærra
en það hefir komizt i mörg undanfarin
ár. Bændur vonast eftir góðu verði á
hveiti nú um tíma á rneðan forðabúr
landsins, sem nú eru næstnm tóm, eru
að fyllast
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
Vorid er komid
♦
♦
♦
:
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Og grundirnar groa.
♦
:
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
:
:
um í borginni. Reynslan er ólýgnust.
Kæraþðkk fyrir undanfarandi viðskifti, og jafuframt ósk um
framhald & þeim eftirleiðis.
Með vinsemd og beztu óskum.
Og vörubyrgðimar hjá Stefáni Jónssyni þetta vor eru þær
vönduðustu og beztu sem hann hefir nokkurntíma halt að bjóða
viðskiitavinum sínum, og jafnframt hinar oilýi'iistu. Þér mun-
uð sannfærast um að svo er, þegar þér skoðið vörubyrgðirnar og
og spyrjið um verðið. Dragið ekki of lengi að koma. Yður er ó-
hætt að trúa auglýsing frá Stefáni Jónssyni. En það er samt réttara
fyrir ykkur að koma sjálf og spyrja um prísana svo þér sannfærist.
Það verður gert alt sem með sanngirni er hægt að búast við, ti!
gera yður viðdvölina í búðinni sem ánægjulegasta. Steíán .Jónis,
óskar eftir viðskiftam yðar allra.
Nýlendubúar sem komið til Winnipeg,— ef þcr þurfið f
yður fatnað eða fataefni, af hvaða tegund sem er, þá komið til u...
♦ og vitið hvort þér fáið ekki ems góð kaup bjá mér og nokkrum öði
t
♦
♦
:
:
♦
♦
♦
♦
: 5TEFAN JONSSON. |
♦ Norð-austur horn Ross Ave. og Isabel Str. ♦
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦Kl