Heimskringla - 02.06.1898, Side 1
Heimsknngla.
xii. Ar
WINNIPEG, MANITOBA, 2. JÚNI 1898.
NR 34
1776.
1898.
FJORÐI JUU.
Hina miklu frelsishátíð Bandaríkjanna hefir verið ákveðið að halda að
llullson. \ort li-DnUot n. 4. Júlí næstkomandi. Það er samkvæmt
gamalli venju, að íslenzku bygðirnar hafa haidið þessa hátíð sitt árið
hver, og þar eð Garðar hlaut þann heiður 1896 og Mountain 1897, þá
kemur nú til Hallson að leysa þetta vandasama starf myndarlega af hendi.
Nú þegar hefir margt verið gert til undirbúnings fyrir þessa fyrir-
huguðu hátíð, og mun ekkert verða til sparað að gera skemtanirnar sem
allra beztar 0g margbreyttastar, og þessa rainningarhátíð hinnar mikil-
hæfu Bandaríkjaþjóðar sem allra ánægjulegasta.
Prógramið verður auglýst síðar.
Hallson, N. D., 30. Maí 1898.
Nefndin.
STRIDID.
Hægt og seint .gengur ófridurinn
milli Bandamanna og Spánverja. Eng
ar breytingar hafa átt sér stað siðast-
liðna viku, hjá Dewey við Philippine-
eyjarnar. Hann bíður þar rólegur eft-
ir liðsafla frá Bandarikjunum og tveim-
ur herskipum, sem hann fær i viðbót
Yitaskuld getur hann tekið bæinn Ma-
nila þegar hann vill, með þvi að skjóta
áhann af herskipum sínum, en það
væri honum gagnslaust, þar eð hann
hefir ekki nægan liðsafla til þess að
halda bænum á eftir, fyrir Spánverjum.
Við austurströnd Bandarikjanna
gengur alt seint. Þó er nú síðustu dag-
ana búið að flytja nokkur þúsund her-
menn til Cuba; eiga þeir í sambandi við
uppreistarmennina að hjálpa til að
eyðileggja bæinn Santigo de Cuba, þar
sem spánski flotinn liggur á höfninni.
Yfirhershöfðingi Bandaríkjanna Miles
fer sjálfur með hemum.
Síðustu fregnir frá Santiago de Cu-
ba segja, að orusta hafi átt sér stað
milli flota Bandaríkjanna og skotvirkj-
auná við höfnina og spánska flotans.
Sagt er að um 12 Bandaríkja herskip
muni hafa verið í slagnum, og hafi þeim
tekizt að eyðileggja hin ramgerðu vígi
Spánverja, ['og að þeir muni hafa rent
inn á höfnma, þó hún væri full af tor-
pedos, til þess að geta náð í óvinaflot-
ann.
Ef fregnin er sönn, þá er þetta það
mesta hreystibragð sem Bandamenn
hafa gert. Vígin voru álitin af flestum
óvinnandi og höfnin var svo illa löguð
til aðsóknar, að aðeins eitt skip getur
rent inn í einu,
Sundið sem liggur inn að höfninni
er að eins 900 fet á breidd og krókótt
mjög, en fleirf mílur á lengd. og tná
heita að fram með þessu sundi sé ein
röð af stærstu og beztu Krupps-byssun-
um. Inn á höfnina sjálfa frá mynninu
á sundi þessu eru ló mílur, svo af því
er hægt að sjá að það er ekki auðhiaup-
ið þar inn. Það eitt er víst, að ef
mögulegt hefir verið að komast að
spanska flotanum, þá hafa þeir Samp-
son og Schley gert það, og þess vegna
er það, að vér álítum að fréttin geti
verið sönn.
Áform Bandarikjastjórnarinnar er
að þegar þeir hafa náð Santiago de
Cuba og eyðilagt eða handsamað íiota
Spánverja þar, þá verður flotinn og
iandher sendur til Porto Ricó til þess að
taka höfuðstaðinn þar. San Juan, 02
ucn leið mæta öðrum flota Spánverja,
sern búizt er við að leggi af stað frá
Cad iz.á Sþáni um þessar mundir. Hav-
anaborg á Cuba ætla þeir ekki að eiga
við fyrst um sinn. Það er hægt að
svelta Spanverja þar inni, og ná borg-
inni án mikils tilkostnaðar.
Natsonal Hotel.
Þar er staðurinn sem öllura ber saman
u>n að só hið ódýrasta og þægilegastaog
skemtilegasta gestgjafahús i bænum.
3 Kilciitsli.UOndiig.
-ágæt vín og vindlar með vægu verði.
Munið eftir staðnum.
NATIONAL IHOTEL.
HENRY McKITTRICK,
—eigandi.—
Sunnanfari.
Loks í vikunni sem leið barst oss 1.
hefti (Des.—Marz) af þessum árgangi
“Sunnanfara”. Hann er nú kominn i
tímaritsform og kemur út fjórum sinn-
um á ári, 48 bls. i hvert skifti, í sama
broti (blaðsíðustærð) og áður. — Rit-
stjórar eru þeir Jón Olafsson og Þorst.
Gíslason, og hinn síðarnefndi er útgef-
andinn.
Eins og von var til, með þeim Jóni
og Þorsteini fyrir ritstjóra, er Sunnan-
fari prýðisvel vandaður að efni og öll-
um frágangi, og þótt verðið sé óþarf-
lega hátt hér, í samanburði við það sem
hann kostar á fslandi (1 kr, heftið þar,
en 40 cents hér), þá ver vist enginn
centum sínum betur, sem annars ver
þeim til islenzkra bókakaupa, en með
þvi að eignast Sunnanfara, ef dæma
skal eftir þessu 1. hefti.
Fyrsta ritgerðin í þessu hefti er
hinn margumtalaði fyrirlestur herra
Jóns Ólafssonar um Ameríku, er hann
hélt í fyrrasumar i Reykjavík, og sem
heiðursblaðið (!) Lögberg hefir gert sér
svo undurmikið far um að svívirða og
rægja Jón Ólafsson fyrir. Auðvitað
vissi ritstj. Lögb. ekki hót um það hvað
Jón liafði sagt, svoí nokkru samhengi
væri. en það gerði nú svo sem minst
til, — það mátti svo sem alt af fylla
þau skörð með lognum getsökum og
ærulausu níði. Það er æfinlega hand-
hægasta vopnið fyrir þesskonar náunga
eins ogritstj. Lögb..
Þvi miður er ekki allur fyrirlestur-
inn í þessu hefti, en það er þó eflaust
mikið meira en helmingurinn, sem kom-
ið er. Vér látum því bíða að geta hans
ítarlegaeða skrifa um hann ritdóm, þar
til hann er allur kominn. En það get-
um vér sagt hér, að aldrei höfum vér
séð neitt ritað á íslenzku um Ameríku
og líðan íslendinga hér yfir höfuð með
jafnmikilli sanngirni og það sem kom-
ið er af þessum fyrirlestri. Hin sér-
stöku bygðarlög íslendinga hér vestra
eru nefnd þar hvert út af fyrir sig og
kostum og göllum lýst rétt og sam-
vizkusamlega eftir beztu vitund. Al-
veg sama er um lýsingar Jóns á mönn-
um og málefnum hér, vér sjáum þar
hvergi réttu máli hallað. í stöku stað
koma fyrir meinlausar og þýðingarlitl-
ar missagnir, en sem auðsjáanlega stafa
af ókunnugleika, eða því, að Jóni hefir
verið rangt skýrt frá af öðrum.
En vér ætlum ekki að segja meira
um fyrirlesturinn i þetta sinn, en
síðar munum vér, þegar hann er allur
kominn út, ræða um hann ítarlegar í
blaði voru.
Svo er og í þessu hefti: Þrir ritdóm-
ar um íslenzkar bækur (ensk-íslenzk
orðabók, eftir G. Eoega, og dönsk-ísl,
orðabók, eftir Jónas Jónasson); báðir
þessir ritdóraar eftir .Tóu Ólafsson; um
Grettisljóð séra Matthíasar, eftir Guðm
Friðjónsson); Þrjú kvæði, eftir Guðm.
Friðjónsson (Mannskaðinn, Náttúran
og gleðin. Jón gamli); Þorlákur Jóns-
son (frá Gautlöudum): eftirmæli (í ljóð-
um). Stjórnarfar í Venezuela. Fyrsta
manntal á Rússlandi. Um skáldskap
(eftir Guðm. Friðjónsson). Útlifaðar
reikistjörnur (eftir J. Ó.). Undir dag-
inn (eftir Si’-rurjón Friðjónsson). Tákn
tímanna (eftir Þorst Gíslason).
Frá gullnemum.
Á bökkum Athabasca-árinnar.
22. Maí 1898.
Iíæri frændi Magnús
Þá erum við loks hingað komnir
með öll bein óbrotin ; en ekki vil ég
ráða neinum að fara slóð okkar að svo
komnu, því brautin (ef braut skyldi
kalla) getur tæplega heitið fær jrfirferðar
nema fyrir áburðarhesta. Það er að eins
örmjó slóð, i einlægum hlykkjum og
bugðum i kringum trjáboli og aðrar
vegtálmanir. Bein lína hingað frá Ed-
monton er að eins 85 mílur, en þessi slóð
sem maður verður að fara, er eflaust 120
mílur á lengd. Við keyptum og fluttum
með okkur bát, 24 fet að kjöllengd, 30
fet á millum stafna. Eg reyni ekki að
lýsa fyrir þér. erfiðleikunum við að kom-
ast hingað. Oft og einatt urðum við að
lifta upp vagninum með öllu saman og
bera yfir torfærurnar. En nú erum við
þó hingað komnir og báturinn okkar
liggur hér óskemdur á árbakkanum.
Við stöldrum hér við í þrjá daga, en
höldum svo af stað upp eftir ánni, hvað
langt, það má hamingjan vita, því það
er alt komið undir því, hve hepnir við
verðum í leitinni. Við leigðum fjögur
hestapör í Edmonton til að draga flutn
ing okkar hingað, og borguðum fyrir
það $100 ; hestarnir hálfuppgáfust síðast
og urðum við að selflytja síðustu 15 míl-
urnar. Ég hefi orðið var við gull hér
þegar, en get ekki enn sagt hve mikils
virði það er ; ég skoða það nákvæmar á
morgun. Berðu kreðju kunningjunum.
Þinn einlægup.
J. B. Brynjói.fson.
Athabasca River, 23. Maí '98.
Kæri vinur M. Pétursson :—
Ég lofaði að senda þér línu við síð-
asta tækifæri, og með þessu vil ég sýna
lit á því. en ég get ekki látið það vera
lengra, því flutningsmena okkar eru að
fara af stað til baka. Heilsaðu frá mér
öllum kunningium og segðu þeim að ég
hafi verið heill og hress.
Líði þér ætíð vel.— Þinn einl.
S. J. J.
Rödd úr eiðimörkinni.
Hér ef skyldi’ eg beinin bera
Brattra millum fjallatinda,
Heigður mun ég að háttum feðra,
En helskó mér ei þarf að binda.
Skófrekt því ég ætla eigi
Eilífðar á brautum vera,
Anda minn þá ofar skýjum
Óþreytandi vængir bera.
Ei þá reynist örðug förin
Austur að sækja vinafundinn
Sem ég við fyrir skömmu skildi
Skýrum vinar heitum bundinn.
S. ./. Jóhanncsson.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Fregn frá Gibraltar segir að Spán-
verjar séu nýbúnir að fá 40 Krúpp-fall-
byssur frá Þýzkalandi. Þær hafi verið
sendar yfir Frakkland, og hafi þær far-
ið í gegnum tollhúsin þar sem “kitchen
furnitui'e” (eldhúsgögn). Ef fréttin er
sönn, þá er líklegt að Þjóðverjar fái að
gera grein fyrir því síðar meir, gagnvart
Bandaríkjunum. Það væri ekkert á
móti því, að kenna Vilhjálmi ferðalang
dálitla lexíu við tækifæri.
Fréttir frá New York segja, að ó-
regla hin mesta og eyðslusemi hafi átt
sér stað undir stjórn Strongs, fyrver-
andi borgarstjóra í New York, og að al-
menningsfé hafi verið sóað á margvís-
legan hátt án minstu þarfa. Van Wyck
hinn núverqjidi borgarstjóri, heimtaði
endurskoðun allra borgarreikninganna,
og er sagt að yfirskoðunarnefndin hafi
fundið óhrekjandi sannanir fyrir fjár-
glæfrabrögðum, og þessar skýringar
ætlar Van Wyck að leggja fyrir bæjar
búa, svo þeir sjái hvernig eignir þeirra
hafi verið meðhöndlaðar.
Tveir af aðstoðarmönnum Senor
Polo, fyrverandi sendiherra Spánar í
VVashington, urðu eftir í Quebec þegar
sendiherrann hélt til Evrópu. Sagt er
nú að þeir eigi að halda áfram stra-fi
yfirmanns sins, að reyna að hafa njósn-
ara sem víðast í Bandaríkjunum, sem
eiga að gera þeim aðvart um alt mark-
vert sem við ber og sem einhverja þýð-
ingu geti haft. fyrir Spánverja í stríðinui
Þessir menn koma svo skeitunum til
spönsku stjórnariunar.
Tvö Austurrísk herskíp lðgðu af
stað frá Gibraltar á íöstuda.'iuu ; var!
ferðinni heitið til Cuba. Sum hlöðiníj
Austurríki fara drjúgum orðum um, að
vel geti íarið svo. aðíóftið fari mill I
Bandarikjanna og Austurríkis, þar eðj
Bmdaríkjastjórn hefir neitað að sinna I
þeim kröfurn sem Austurríki gerði fyi ir I
líflát þegna sinna,23 að tölu, sem skotn-
ir voru hjá Lattimeri Pennsylvania fyr j
ir nær tveimur árum síðan. Þó þetta i j
sjálfu sér gæti trauðlega verið næg or- *
sök til ófriðar, þá er búist við að Aust-
Urríki mundi nota það meðfram, til þess
að hafa tækifæri til að hjálpa Spánverj-
um.
■ •
J. J. Holland, sá sem fann upp
“Holland-bátinn,” sem vér höfum áður
lýst í Heimskringlu, býður nú Banda-
ríkjastjorn að fara á bát sínum inn á
höfnina í Santiago de Cuba, þar sem
spápski flotinn heldur nú til. og sprengja
upp allar sprengivélar sem séu á sjávar-
botni, svo herskipum Bandaríitjanna sé
óhætt að halda inn og hitta óvinaflot-
ann. En Mr. Holland kveðst einnig
vera einfær um að eiga við flota Spán-
verja á höfninni.
Fimm herskip undir umsjón Commo-
dora Schley fóru inn á höfnina i Cien-
fuegos á Cuba í vikunni sem leið, og
fóru einn hring í kring fram með land-
inu, án þess að verða vör við eina ein-
ustu kúlu frá Spánverjum. Síðan fengu
skipin öll.þar kol sem þau þurftu, úr
kolahjöllunum. Það er ekki gott að
geta til hversvegna Spánverjar skutu
ekki á skipin.
Fullyrter að samningar milli Spán-
verja og Frakka séu þegar fullgerðir,
viðvíkjandi Philippine-eyjunum, og að
Frakkar eigi aðfá fullkomin umráð yf-
ir þeim, ef til vill eignarrétt; ætlast er
svo til að þeir sjái um að Bandamenn
megi til að sleppa þeim. — Frökkum er
betra að muna að Dewey hefir ef til vill
eitthvað að segja í því máli.
Rikisráðherrarnir á Italíu hafa all-
ir sagt af sér. Orsökin mun vera upp-
hlaupin og annað óstand, sem hefir átt
sér stað þar nú upp á síðkastið. Hum-
bert konungur hefir beðið Marquis De
Rudini að mynda nýtt ráðaneyti.
Bandaríkjamaðurinn Irving M,
Scott, aðalumsjónarmaður við smíðarn
ar á herskipinu Oregon, hefir fengið
mjög mikið hól hjá Rússumfyrir bygg-
ingu á skipinn, og hve vel það hafi
reynzt. Hann hefir einnig veríð beðinn
að koma til Pétursborgar, til þess að
gefa góð ráð viðvíkjandi smíðinu á
rússneskum herskipum. Hann lagði
af stað þangað i vikunnl sem leið,
Fréttir frá Nýfundnalandi segja að
þrjú herskip hafi sézt þar undan landi ó
laugardagiun. Þau voru sýnileg frá
kl. 5 til 7 um kvöldið, en ómögulegt
var að greina hverrar þjóðar skip það
voru. Þau héldu í suður og vesturátt.
Enskt flutningsskip, hlaðið með
hveiti, rakst á Bandaríkja-herskipið
Columbia, skamt frá Fire Island; olli
það töluverðum skaða á herskipinu
sjálfu, en sökti algerlega hinu skipinu;
mönnum varð samt bjargað af því áður
enn það sökk. Herskipið lenti við New
York til viðgerðar.
Nú eru Bretar búnir að fá full yfir
ráð yfir Wei-Hai-Wei í Kína. Japan-
ítar afhentu Kínum stöðina 20. Maí, þar
eð þeir höfðu borgað allan þann stríðs-
kostnað sem Japanítar heimtuðu. Sama
dag afhentu .Kínar Englendingum víg-
in og höfnina og samstundis voru sett-
ir í land nokkrir hermeun af herskipinu
Narcissno.
Frétt frá Madrid á Spáni segir, a'i
uppreistarforinginn Aguinaldo á Phil-
ippineeyjunum, eftir að liafa fengið
vopn og vistir hjá Dewey, hafi sagzt
heldur vilja yfirráð Spánverja en Banda
manna, og að hann mundi því berjast
með Spánverjum. Olíklegt er að frétt-
in sé sönn.
Uppreistarmenn á Cuba unnu stór-
ann sigur á Spánverjum við bæinn Re-
medios í fylkinu Santa Clara. Þeir
höfðn fengið fregnir um að spánska
setuliðið — 3000 manns — hafði fengið
mikið af vistum, mörg hundruð riffla
og gnægð skotfæra, sem þá vanhagaði
mikíð um, svo 800 uppreistarmanna
réðist á þessa (herdeild snemma morg-
uns á laugardaginn, og ráku þá gjör-
samlega á flóttaímeð miklu mannfalli.
Siðan létu þeir greipar sópa um alt
það sem nýtilegt var og fluttu burt, og
voru þeir rétt Jbúnir þegar Spánverjar
komu aftur með liðsafla og tóku bæinn
af þeim aftur.
Tveir Italir nýkomnir til Port Au
Prince, Hayti, frá Santiago de C im
láta mjög ilia af ástandiuu þar, Þeir
segja að hungursneyð hiu voðalegasta
voli yfir bænnm, ekki sízt, síðaii spánsk
flotinri kom þaugað, sem er lírt b.vruui
af matvælum. 800 stórskotaliðsmenn
og véiastjórar voru settir á land af her
skipunum og eiga þeir að sjá um að alt,
fari með lagi í virkjnnum; einnig var
sett á land upp 20.000 Mauser-rifflar og
mikið af skotfæruin. Þessir menn segja
einnig að flotinn iiafi mikið af vopnum
og skotfærura, sem ættu að komast til
San Juan á Porto Rico.
4
4
4
4
i!
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Ftirner’s
—«► MILLINERY.
522 Main Street ■■■
WINNIPEG, MAN.
*
*
*
*
/i
Sendíherra Bandarikjanna í Patis,
og margir aðrir Bandaríkjamenn,
skreyttu legstað hetjunnar miklu La-
fayette með blómskrúði og fánum
Bandaríkjanna og Prakklands, hinn
vanalega skreytingardag (Decoration
Day) 30. Mai. General Porter, sem var
þar viðstaddur, hélt langa og snjalla
ræðu, þar sem hann sýndi fram á hve
mikið Bandarikin hefðu að þakka hin-
um fræga frelsisvi" sem hvíldi þarna;
þau mættu þakka honum fjrir öfluga
og einbeitta hjálp á timum neyðarinnar,
þegar þau fámenn og fátæk hefðu brot-
ist undan oki Englending. — Frakkar
gerðu góðan róm að athöfninni.
M. C. Cameron. þingmaður Ottawa
þingsins fyrir West Huron, hefir verið
útnefndur af stjórninni sem fylkisstjóri
fyrir Norðvesturlandið,
Útbúnaður og vélar tilheyrandi 7
þrettán þuml. fallbyssum, sem eiga að
vera til landvarna með fram Kyrrahaf-
inu voru fluttar með N.P.lestinni.er fór
vestur í gegn um Fargo á laugardag,
inn. Það þurfti 10 járnbrautarvagna
til að flytja dótið, og sum stykkin voru
svo tröllaukin að stærð og útliti, að
þeim sem sáu þótti nóg um. Byssurn
ar sjálfar verða sendar vestur innan
fárra daga.
Pundur sá sem settur yar í Was-
hington, til þess að ræða um samkomu-
lag í þeim málum, sem Breta og Banda-
ríkin hafa greint á um, enti á mánudag
Úrslitin urðu þau, að samþykt var að
leggla ályktanir fundarins nndirhlutað
eigandi stjórnir til samþykta, og skulu
þær þá hvor um sig útnefna nefnd
manna til þess að skera úr öllum á-
greiningsmálum þeirra, sem nú eru á
dagskrá. og þeim sem fyrir kunna að
koma síðar. Með þessum fnndi er því
fengin vissa fyrir því, að öll málefni
sem snerta þessar tvær þjóðir, verða
lögð í gerð.
Dagblöðin hér í bænum koma með
þá fregn, að nokkrir Emersonbúar sem
fóru til Pembina, N. D.. 30. Mai (Deco-
ration Day), hafi verið svívirtir af
Bandaríkjamönnum með því að ein-
hverjir Pembinabúar hafi rifið í sundur
og gengið á brezku flaggi sem þeirhöfðu
haft meðferðis. Vér trúum ekki frétt-
inui eins og hún er enn sögð, og bíðum
með óþreyju eftir að geta fært leseudum
vorum sannar fregnir af þessu tilfelli.
Síðustu fréttir frá Vermillion ánni
i Ontario segja. að mikið os hreint gull
hafi fund:zt bai i rikum mæli. Saman
við gulkið í hinum svarta sandi hefir
einnig fundizt mikið af platinu.
Forseti McKinley hefir kallað eftir
75,000 sjálfboðaliðs meira. í þann hóp
kemst William J. Bryan með herdeild
þá sem hann er búinn að koma upp í
Nebraska. Búist er við að hann verði
gerður að óbersta í sjálfboðaliðinu.
Sagt er að viðlagaherskip Banda-
ríkjanna, St. Paul, hafi skorið sundur
hafþráðinn frá Santiago de Cuba. Hefir
það verið gert til þess að Spánverjar
gretu engar fréttir fengið frá flota sín-
um þar.
Tollur af innfluttum vörum, sem
komu til Toronto síðastl. mánuð nam
$307,025; i sama mánuði í fyrra nam
tollurinn $256.221; alt svo hafa tollinn-
tektir þar aukizt um $50,863,70 frá þvó
sem þær voru á sama mánuði í fy- ra.
Utanrikisráðherra Frakka. M. Hm.a-
toux, gaf til kynna á stjórnan á'sfundi
á þriðjudaginn, að ve: zbiniii sn umingur
milli Bandaríkjanna ou: F’nkklands
væri fullgerður. Þessi saiiiuiugur befir
enn ekki verið opinberaður, ei, felja n.á
víst að hann sé til hagsmuna fyrir bæði
ríkin.
Hér er lítið ljóðabréf
Til landa okkar
Kæru landar giögt að gætið
Þá gangið'þið um Aðalstrætið
Til að kaupa klæði og skó,
Hyggið bara að vestanverðu,
Wind3or beint á móti sérðu
Er lítil búð. eu billeg þó.
Buxur, vesti, biðla-frakka,
Beztu skó fyrir menn og krakka,
Alt spánýtt. og ekta snið,
Hvítar skyrtur, klútiar, sokkar.
Komið ogjskoðið vörur okkar
Því sanngjarnlega seljum við.
Silki hálstau, hnappa gylta,
Hatta fyrir alla pilta,
Undirföt af allri gerð.
Og hlífar til að hlifa’ í regni,
Hæfar hverjum brezkum þegni,
Látura vér fyrir lægsta verð.
Athugið númerið.
n
StfiAenson.
&
630 Main 5t.r.
QPARID pENINGA
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
o
<>
A
❖
Þið getið það með þvi að fara til STEFANS
JÓNSSONAR, á Norð-austur horni Ross Ave.
og Isabel Str., þegar þér þurtið að að kaupa
eitthvað af álnavðru (Drygoods). T. dæinis;
Musilinsá4, 5, 8ogl0 cts. Prints 5, 6, 8, 10,
12i,c. (sum lOc. print næstum yard ábreidd).
Einnig ljósleitir, tvíbreiðir kjóladftkar á óc.
ljómandi fyrir sumarið fyrir kvenntreyjur
og kjóla handa litlum stúlkum. Þáeru dökk-
leitir dftkar ft 121 og I5c. hreinasta afbragð.
Ótal aðrar tegundir af dftkvöru sem ómögu-
legt er upp að telja, með mjög lágu vei ði.
Ógrynni af ljómandi fallegum stráhöttum fyr-
ir litlar stúlkur og konur, eins lágt og 15 og
20c. Þér getið vissulega sparað peninga
yðar með því að kaupa hjá mér g< ða vöru
með lágu verði: Gleymið því ekki að koma
við hj t mér og sjá hvað ég er að bjóða við-
skiftavinum mínum þetta sumar.
Með vinsemd og beztu óskum.
♦
o
o
t
♦
«•
♦
<■>
4'
<
O
♦
♦
O
♦
♦
♦
♦
STEFAN JONSSON. |
Norð-austur horn Ross Ave. og Isabel Str.