Heimskringla - 28.07.1898, Side 1
WINNIPEG, MANITÖBA, 28. JÚLI 1898
XII. ÁR
STRÍDID.
NR 42
Islendinga-dagurinn
2. August 1898,
I EXHIBITION PARK, WINNIPEQ.
Heiðursgestir: Fylkisstjóri Hon. Wm. Patterson og Mayor A. J. Andrews
Programm :
Forseti dagsins : B. L. Baldwinson.
Ekkert stórkostlegt viðvíkjandi
stríðinu getum vér fært lesendum vor-
um í þetta sinn. Shafter .herforingi i
Santiago de Cuba heldur alt af áfram að
taka við fleiri og fleiri Spánverjum, sem
gefast upp og leggja niður vopn sin.
TJm það þeir eru allir búnir að afhenda
vopn sín, þá hafa Bandamenn nóg af
riflum og skotfserum handa fleiri her-
mönnum en þeir hafa nú á Cuba. Gen-
eral Miles er nú kominn á land í Porto
Rico, og gekk það alt slysalaust. Kaft-
einn Wainwright, á snekkjunni Glou-
cester, sem bezt barðist við Santiago,
var með í förinni, og rendi hann inn á
höfnina ósmeikur, þó sagt væri að tor-
pedos væru i botninum. Miles þakkaði
honum sérstaklega fyrir djarfmensku
sina. — Óljós fregn kemur nú um það,
að Dewey hafi skotið á Manila bæ, og
Bandaríkjaherinn tekið borgina eftir
blóðugan bardaga.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Nú er búið að senda i alt 14,099 her
menn til Philippine-eyjanna, og þeir
seinustu. sem lögðu af stað frá San
Francisco 19. Júlí, verða komnir til
Manila um 20. Ágúst. 1. Ágúst hefir
Merritt yfirhershöfðingi 13,000 manns
undir vopnum og reiðubúna til þess að
berjast við Spánverja. Til þess að
flytja þennan hóp allan hefir þurft 16
flutningsskip: þar að auki hafa farið'til
Manila 3 herski, Charleston, Monterey
og Monadnock. Bandarikin verða ekki
uppnæm fyrir neinu smáræði í Philip-
pine-eyjunum.
Aðmiráll Sampson hefir fengið bréf
• fráeíokkrum Cubamönnum, sem búa í
bænum Cieufuegos. Biðja þtír hann
að koma sem fyrst með flota sinn sér til
hjálpar, þvi þeir hljóti allir að deyja úr
hungri, ef þeim verði ekki bjargað bráð-
lega. Spánverjar hafa umráð yfir öll-
um matvælum í bænum og hermenn
irnir eru látnir sitja fyrir öllum öðrum.
Um 3000 Cubamenn standa þarna uppi
alslausir, mest gamalmenni, konur og
börn. Það hlýtur að dragast nokkuð
þangað til Bandamenn ná þeim bæ, og
þá verður eflaust margt af þessu fólki
dáið úr hungri.
Sum blöðin á Frakklandi gera mik-
ið veður út af hinni fyrirhuguðu ferð
Watsons til Spánar. Þau jafnvel hóta
. að gera það sem hægt sé til þess að fá
Ítalíu, Rússland og Austurriki til þess
að skerast í leikinn með Frakklandi og
hindra það að Watson komíst nokkurn
tíma til Spánar. Þau vilja fyrst og
fremst að sendiherrar þessara þjóða í
Washington geri sitt til að fá Banda-
ríkjastjórn ofan af þessari heirasku.
Ensku blöðin eru ósköp nákvæm í
lýsingum sínum á hinu lítilfjörlega
meiðsli prinsins af Wales. Oft á hverj-
um degi auglýst á gatnamótum víða á
Englandi hvernig Hans Hátign líði,—
Menn gætu hugsað að öll þjóðin væi’i í
voða, eftir þeim ósköpum sem á ganga.
Á Spáni eru hinar mestu óeirðir um
þessar mundir. Búist við þá og þegar
að Sagasta-ráðaneytið steypist úr völd-
um, og að General Palavieja verðj her-
málaráðherra næst. Einnig hefir verið
íalað um hinn alræmda Weyler, sem
líklegan til þess að mynda nýtt ráða-
neyti, en síðustu fréttir segja að lík-
legra sé að hann verði settur í fangelsi,
fyrir hluttöku í samsæri Karlunga.
Lögregluþjónar hafa leitað i mörgum
heldj-i manna húsum í Madrid og fund-
ið órækar sannanir fjAir því. að stór-
kostlegt samsæri muni vera að kom-
ast á fót víða um landið, til þess að
ryðja hinni núve'wndi stjórn frá völd-
um.
Það er búið að hefja rannsókn út
af hegðun sumra yfirmannanna við
fangahúsið í Kíngston, Ont. Búist við
að ýmisleg.t gruggugt komi þar í Ijós.
Einn af þeim^sem var varðmaður fyrir
nokkru, segist geta sannað drykkju-
skap og ýmislegt annað verra á hendur
sumum yfirmönnunum.
Voðaveður gekk yfir Vancouver og
Georgiasflóann fyrir skömmu. Nokk-
ur laxvgi*íiskip fórust, þar á meðal tvö
japánisk skip; mikið af smábátum
hvolfd'st, en í flestum tilfelliun varð
mönnum bjargað.
Stjórnin hefir áður verið beðin að
leggja til varðskip, sem haldi til á þess-
um stöðvum og sem geti, þegar svona
vill til, bjargað skipshöfnum, sem ann-
ars hlyti að farast.
Fregn frá Hong-Kong í Kína seg-
ir að Bandamenn og Spánverjar hafi
barizt hjá Malate fyrra laugardag, og
hafi Bandamenn hrakið Spánverja inn
fyrir instu víggirðíngar sínar. Sagt er
einnig að Colemann flokksforingi í her
Bandamanna hafi fundið 100 000 doll.
í peningum innan um annan farangur
hjá Cavite; er ætlað að einhverjir Kín-
verjar hafi falið það þar.
Fæðingardagur drottningarinnar á
Spáni var þann 21. þ. m. Hefír þá
vanalega verið mikið um dýrðír í Mad
rid, en i þetta sinn var ekkert hátíða-
hald. Hún fór að eins til hinnar kon-
unglegu kapellu sinnar og var þar við
messugjörð.
Það er nú fullyrt að aðmíráll Cer-
vera muni setjast að í Bandaríkjunum
fyrir fult og alt, og að hann muni velja
Boston sem aðsetursstað sinn- Hann
hefir alstaðar mætt svo miklu dreng-
lyndi frá hálfu Bandamanna, að hann
segist tæplega vilja yfirgefa þá, þó
hann fái heimfararleyfi þegar friður er
saminn.
Red Cross félágið er nú þegar búið
að koma heilum skipsfarmi til Santia-
gode Cuba af matvælum og öðrum
nauðsynjavörum, sem á að útbýta á
meða) þeirra nauðlíðandi. Skipið er
lagt á stað aítur til Bandaríkjanna eft-
ir öðrum farmi, sem er tilbúinn,—Sann-
arlega er þetta mannkærleikans stríð.
Þessa dagana leggja af stað frá
San Francisco síðustu herdeildirnar.
sem sendar eru undir umsjón Merritts
generals til Philippine-eyjanna, I alt á
hann að hafa um 18—20,000 hermenn.
Líklegt er samt að þeir þurfi aldrei að
berjast, því búist er við að Manila-bær
fari á sömu leið og Santiago; gefist upp
þegar Spánverjar sjá að Bandamenn
ætla áreiðanlega að veita atlögu.
Siðustu fréttir frá Washington segja.
að stjórnin hafi í hyggju að senda
skipin Oregon og Philadelphia til Man-
ila, svo Dewey sé viss að geta mætt
hvaða flota sem er. Það virðist hafa
verið glappaskot af Bandamönnum að
senda Oregon nokkurn tima burt úr
Kyrrahafinu. Dewey hafði sannarlega
raeiri þörf fyrir það skip heldur en
Sampson.
Kona nokkur að nafni Mrs. Mart-
ensen, dó í St. Thomas, N. D.. 15. Júlí.
en vegna vissra kringumstæða var Dr.
Suter frá Crystal látinn skoða líkið með
öðrum læknir. Úrskurður þeirra var
sá, að konan hefði dáið á eftir barns-
burði vegna slæmrar hirðingar. Einnig
fundu læknarnir lík ungbarns, sem þeir
sáu að hafði verið lifandi þegar það
fæddist. Líkið var falið í vatnskassa i
húsinu sem stóð þar hálSullur af vatni.
Nákvæ.vari fréttir um þetta fengust
ekki í þetta sinn;
W. J. Bryan er kominn með her-
deild sína frá Nebraska til Jacksonville
á Floridaskaganum. Fitz Hugh Lee,
ssm var konsúll Bandaríkjanna í Ha-
vana, er þar fyrir; hefir hann verið sett-
ur yfir stóra herdeild, sem er dregin að
úr mörgum ríkjum. Bryan og menn
hans verða einnig í þessari stór-her-
deild Lee’s.
Yfirmaður Cubamanna, General
Garcia.sem átti aðberjast meðmönnum
sínum móti Spánverjum í félagi við
Bandamenn, reiddist við General Shaf-
ter og jhermenn hans; þótti þeir ekki
veita sér næga virðingu. Sagði hann
þvi bréflega skilið við Shafter og her
hans og hélt sveit sinni til fjalla. —
Skömmu þar á eftir réðist hann á flokk
af Spánverjum, sem var á ferð til San-
tiago til þess að gefa upp vopn sín, en
þeir tóku svo hraustlega á móti Cuha-
mönnum að þeir urðu frá að hverfa
með miklu mannfalli.
Bandaríkjastjórn biður um tilboð til
þess að smíða fjóra “Monitors”. Þeir
eiga að verða, ef mögulegt er, enn þá
fullkomnari en þeir sem nú eru til, og
eiga að bera þær stærstu byssur sem
mögulegt er að nokkurt skip geti borið
Mest verða þeir liafðir til landvarnar,
því þeir verða ekki gangskip mikil. —
Þetta er góðnr viðbætir við flota Ur.cle
Sams, því án efa eru þessir Monitorar
ein þau beztu bardagaskip sem hægt er
að fá, geta vafalaust eyðilagt beztu
bryndreka Bnndnríkjanna.
Bandamenn voru farnir að hafa
hina rnestu skömm á hermönnum Gar-
cia. Þeir nentu ekki að vinna neitt,
voru ragir til jbardaga, en vildn helzt
sitja við kjötkatla Shafters. Aðal-yfir-
hershöfðingi Cubamanna, General Go-
mes, hefir síðan tekið í strenginn og
skipað öllum sínum undirmönnum að
sýna algerða hlýðni hershöfðingjum
Bandamanna; hann minnir þá á hvað
stóra skuld þeir eiga að gjalda Banda-
mönnum fyrir hina heiðarlegu hjálp.
Það þarf því varla að óttast að nokkur
sundrung eigi sér stað á Cuba.
254 .Spánverjar, sem höfðu verið
teknir til fanga á kaupskipum, sem
reyndu að komast að ströndum Cuba
af varðskipum Bandaríkjanna. voru
sendir heim lil sín á Anchorlínuskipinu
Hesperia, sem siglir undir brezku
flaggi. Rétt þegar skipið var að leggja
út af höfninni hjá Brooklyn, fór lítil
hersnekkja Bandaríkjanna fram hjá.
Spánverjar allir voru á þiljum uppi. og
óðara sendu þeir þrefalt húrraóp fyrir
fána Bandaríkjanna. Hinir brezku
skipsmenn urðu forviða á þessu; höfðu
aldrei heyrt þess getjð að hinir yfir-
unnu hrópuðu húrra fyrir sigurvegur-
unum. Þeir spurðu yfirmenn Spán-
verja hvernig stæði á þessu. Þeir svör-
uðu þvi, að með þessu einu gætu þeir
sýnt virðingu sína og viðurkenningu
hinni göfugu óvinaþjóð sinni, er hefði
farið betur með sig meðan þeir voru
stríðsfangar, heldur en nokkur dæmi
eru til, og einn yfirmannanna sagði, að
ef fjöldinn af hinum spánsku hermönn-
um hefði nokkra hugmynd um dreng
lyndi Bandamanna, þá yrði stríðið
ekki langvarandi á Cuba; þeir myndu
gefast upp samstundis og ganga á hend
ur Bandamönnum. En hann sagði að
þeim væri stöðugt sagt af yfirmönnun-
um, að ef þeir gæfist upp og yrðu her-
teknir, þá yrðu þeir undantekningar-
laust myrtir af Ameríkumönnum. Og
þannig gæti þeir haldið þeim frá að
strjúka undan merkjum Spánar.
Fiá löndum.
MINNEOTA, MINN., 11. JÚLÍ 1898.
(Frá fréttaritara Hkr.)
Tíðarfar fremur umhleypingasamt
þó hafa engin skaðaveður komið hér enn
Hveiti hefir fallið í verði og er nú
65 cts. Hveitiband hetir nú komist hér
í 18c. pundið ; auðvaldið segir að það sé
af áhrifum stríðsins.
4. Júlí var haldinn hátíðlegur lijá
Islendingum í Vesturbyggð, að heimili
MethúsalemS Jónssonar.
Eyjólfur Nikulásson er kominn aft-
ur hingað frá íslandi með skuldalið sitt.
Stríöið. Mönnum er tíðrætt mjög
um það. Ymsum þykir það eftirtekta-
vert, að Bandaríkjastjórn skuli ekki
hafa gengið að boði Hollandsbáts-eig
andans og meta það á þann veg, að
henni sé það ekkert áhugamál að leiða
stríðið til lykta svo fljótt,—að hún vilji
gefa Mark Hanna sem lengstan tíma til
fjárglæfraspilunar, og fjölga að mun
mönnum á eftirlaunalistanum.
18. Júlí.
Sigríður Jósefsdóttirerkomin áleið-
is til New York að leita sér lækninga.
Nýgift eru þessi : Eiríkur Magnú. -
son, ættaður úr Eyðaþinghá og Solveig
Sigurjónsdóttir af Jökuldal. Gunnar
J. Holm (sonur Jóhannesar Sveinsson-
ar frá Kóreksstöðum í Hjaltastaðaþing
há) og Jónína Eðvarðsdóttir frá Papey.
Gunnar Björnson úr Eyðaþinghá og
Sigurborg Ásbjarnardóttir úr Vopnaf.
ALHUGASEMD.
Lýsing ísland? eftir Bertha S Paine.
(Hvað hún heitir á.sínu eigin móður-
máli veit óg ekki, éíi hitt veit ég, að hún
er íslenzk, úr Vopnafirði, frá Lýtings-
stöðum í Selárdal). Lýsingin er skrifuð
fyrir “Mankatonian” og tekin svo upp
í “Minneota Mascott”, alveg athuga-
semdalaust.
Höfundurinn ætlar að skrifa lýsing
af íslandi, en í stað þess skrifar hún
lýsing af íbúum íslands, mönnum og
dýrum ! ! Lýsingin mun vera vel meint
en mjög fáfræðislega er hún samansett,
lýsir vanþekkingu á eðli, högum og
hátt.um þjóðarinnar. Um landið -er
ekki að tala; hún orðar ekki linattstöðu
þess, eðli, lögun, eða ásigkomulag frá
hendi náttúrunnar eða manna.
Það er vonandi aðsú meinloka fest-
ist. ekki í höfði á neinum Vestur íslend-
ingi, sem ekki er tU þess fær, að gefa
hérlendum mönnum lýsing af hinni ís-
lenzku þjóð eða íslandi. ’þil þesskonar
starfa úthoimtist meira en meðalmanns
vit og nákvæm þekking. Þessi um-
rædda lýsing er svo barnalega úr garði
gorð, að það er ekki eyðandi tíma til að
toga hana í sundur.
S. M, S. Askdal.
Listi
yfir þá er gefið hafa verðlaun til
Islendinga-dagsins 1898.
Eftirfylgjandi er listi yfir nöfn þeirra
sem gefið hafa verðlaun til íslendinga-
dagsins 2. Ágúst 1898. Öll verðlaunin
eru hér reiknuð út til peningaverðs, og
upphæðin sem hver hefir gefið sett aft-
an við nafnið :
Albert Evans, 300 Main ,St.... $5.00
Turner & Co., Portage Ave..... 5.00
Wm. Grundy, 431 Main St....... 5.00
Cowans Music Store, Main St.... 5.00
Barrowclough,47s0 Main St..... 2.00
C. W. Cranston, 480 Main St... 1.25
Wellford & Co., Cor. Main&Pacific 4.00
Francis Drug Store, Notre Dame 3.25
G. VV. Cranston, 498.Main St.... 1.50
Lvon & Barber, 497 Notre Dame 0.50
Mrs. Williams, cor.Nena&NotreD. 0.50
Nokkrar íslenzkar konur, Wpeg 4,00
Blue Store, 434 Main St ....... 3.50
Banfield Carpet Store, Main St. 1.50
Central Drug Hall, Main&Market 2.00
J'he N.R Preston Co.,524 Main St 2.00
Craig & Co-, Main St........... 0.50
J. Robertson, 528 Main St..... 3.50
Parkins Studio, 490 Main St.... 5.00
The Goold Bicycle Co.484 Miin St. 1.50
John Stephanson, 630 Main St... 3.00
Grand Pacific Hotel, Market St.. 6.00
National Hotel, Main St........ 5.00
Exchange Hotel, Main St........ 5.00
Comfort Soap Co, 253, King St... 5.00
C. A. Gareau, 324 Main St .... 1.00
Fit Reeform Clothing Co, Main St 1.00
E. L. Drewry (Beðwood Brewery) 10.00
F. W. Thompson.................. 5.00
Gordons Drug Store, Main St.... 1.50
D. W. Fleury, 564 Main St..... 2.00
Leland Hotel..................... 5.00
Mitchell’s Photo Studio, RupertSt 5.00
W. J. Boyd 370 Main St......... 3.00
John Winram, cor. Elgin & Isabel 0.75
The Commonwealth................. 1.50
D. E. Adams. 407 Main St...... 2.00
Palace Clothing Store, Main St... 1 50
S. Anderson, cor. Bannat.& Nena 8.00
Joh. Paulson, King St............ 3.00
K. K. Albert 148 Princess St.... 3.00
R. A. Bonnar, Main St............ 2.00
Winnipeg Brewery............... 3.00
BlackwOods Bro’s............... 3.00
Paulin Biscuit Factory ........ 2.75
CViapside, 578 & 580 MainSt.... 0.50
The Emporium, Alexander Ave 1.50
Dyson & Gribson ■...N.......... 1.25
'Campbell Bro’s, 538 Main St... 0.75
Stefán Jónsson, Cor. Isabel&Boss 1.75
Mrs. Ripsteen, 627 Main St..... 0.50
Hotel Du Canada, Lombard St... 2.50
Ideal Restaurant, William St:... 2.50
Galt House....................... 2.50
Globe Hotel, Princess St....... 3.00
Royal Oak Hotel, Market St..... 6.00
Sherman House, Market St....... 6.00
Maurice Restaurant, Main St.... 5.00
J. L. Meikle & Co., 530 Main St. 5.00
J. McLeod Haliday, 266 Port.Ave 3.00
G. Johnson, Cor. Ross & Isabel.. 2.50
Sutherland & Campbell............ 2.00
Thos Ryan........................ 0.75
Geo. Ryan........................ 1.00
Barré Bros, 520 Main St.......... 5.00
Royal Crown Soap Co, KingSt.. 3.00
Deegan, 556 Main St........... 2.00
Steel & Co., Cor. Main & Bannaty 5.50
F. J. Porter, 450 Main St....... 1.00
E. Knight & Co, 351 MainSt.... 1.25
Hoover & Town, 680 Main St.... 2.50
Þorst. Þorkelsson, 47 Aikin St... 1.00
Jón Stefánsson. Point Douglas... 2.00
Hans Einarsson, Garðar, N.D.... 3.00
John Hall, 405 Ross Ave.......... 2.00
Colcleugh & Co, cor Ross& Isabel 2 00
Kristján Kristjánsson, 557 Elgin 1.50
Sölvi Thorarinson. Fort Itouge... 1.50
Magnús Borgfjörð, William Ave 0.75
Miss H. Johnson, Young St...... -3.00
Guunar Sveinsson, Higgins Ave 10,00
Jón Ketilsson. James St.......... 1.00
G. Fowler, 480 Main St.......... 4.00
Kmerson & Hague, Water St.... 3,00
Bened. Jónsson, 612 Ross Ave... 1,50
J. Robinson & Co. 400 Main St... 3,25
iVfcs. J. H, Barr. Notre Dame St.. 1,00
Heimskringla................... 5,00
Wm. Brown, 541 Main St......... 3,00
Scandinavian Hotel, MainSt.... 3,00
Sevmore Hotel.Market St.......... 4,00
Occidental Hotel, Main St...... 1 25
Inoquois Hotel Main St......... 5.00
W. J, Bawlf, Princess St....... 2,80
Hingston Smith Arms Co......... 3 00
James Watts, Main St.............. 0Á0
Thos. Lyons, Main St............. 1,00
H. H. Sveinson, James St ..... 1,30
Siguidson &Co, . William & Nena 3,00
China Hall, 572 Main St........ 1,00
Scott Fu n’ture Co, 276 Main St 3^50
Tribnne Publ. Co............... 1,50
Fre* Press Publ. Co............ 3^00
The Morning Telegram............. o|oo
P. Gallagher, City Market...... 1,25
Beliveau & Co, cor. Main & Logan l.tX)
McPherson Co, Wholesale Fruit 3,(X)
C. B. Julius...................• o,76
J. F. Howards Drug Store ........ 2,00
Burke Bro’s, 320 Main St....... 2,00
J. H. Rogers, 296 Main St...... sloo
F. W. Weir, 670 Main St....... 1,25
Dingwall, 584 Main St.......... 2 00
Brunswick Hotel................ 2,50
O’Connors Hotel................ ;j|oo
W. Wellband, 562 Main St....... oj)0
Mrs. R A. Carr, 294 Main St.. .. 3.00
Bennetto Photo Studio, \436 Main 5,00
Imperial Drygoods Co, 452 Main 1,00
Andrews & Co, 438 Main St...... 2,00
Lewis & Shaw, 180 Princess St... 2,50
Wilson Furniture Co ............. 2.50
R. P Roblin ................... 2,50
S G Giroux..................... i^oo
Garðurinn opnaður kl. 8i árdegis.
KAPPHLAUP.
1. Stúlkur innan 6 ára......50 yards
1. verðl. Kassimeð ‘Bon-Bons’ 50c.
2. “ Sólhlíf, 25c.
2. Drengir innan 6 ára......50 yds.
1. verðl. Hattur, 50c.
2. “ Munnharpa 25c.
3. Stúlkur 6—8 ára..........50 yds.
1. verðl. Sólhlíf, $1.00.
2. “ Ilmvatnsglas 50c,
4. Drengir 6—8 ára..........50 yds.
1. verðl. Skór $1.00.
2. “ Hlaupaskór 50c.
5. Stúlkur 8—12 ára.........50 yds.
1. verðl. Úttekt úr búð $1,50
2. “ Saumakassi 1,25
3. " Ilmvatnsflaska 75
6. Drengir 8—12 ára ........75 yds.
1. verðl. Alfatnaður ....$1,50
2. " "Bat & Ball” 1,25
3. “ Hlaupaskór.... 75
7. Stúlkur 12—16 ára........100 yds.
1. verðl. Hárbusti og greiða $2,75
2. “ Umvatnsflaska $2,00
3. “ Belti og peningabudda $1
8. Drengir 12—16 ára........100 yds.
1. vl. Hattur$l,50 skór$l, $2,50
2. “ Peisa og húfa $2,00
3. “ Ermahnappar 1,00
9. Ógiftar stúlkur yfir 16 ára 100 yds.
1. vl. Autoharp, ca^e& stand $5,00
2. “ eitt dúsin ljósmyndir $4,00
3. “ Musical goods $2,00
10. Ógiftir menn yfir 16 ára... .150 yds.
1. vl. Fiólín $5,00
2. “ Vindlakassi $3,00
3. “ “Free Press”, 3 mán. $2,00
11. Giftar konur............100 yds.
1. verðl. eitt dúsin myndir $5,00
2. “ Ruggustóll og pen.budda $4
3. “ Veggjapappír og do 3,50
12. Kvæntir menn............150 yds.
1. verðl. Vindlakassi $6,00 x\
2. “ Kassi af sápu 5,00
8. í' Buxur $3,50
13. Konur 50 ára og yfir....75 yds.
1. vl. ábreiða, sóffapúði $4,00 og
kafifi $1.00 $5,00
2. verðl. Brauð $3,00, kjöt 50c 3,50
3. Myndiramma$l,50,sápa50c $2.00
14. Gamlirmenn(50áraogyfir) lOOyds.
1. vl. Matressaog svínslæri $4,25
2. vl. Svínslæri 1,50, J mjölsekkur
$1,30, Groceries 50 cts. $3,30
3. “Doormatt” og neftóbak 2,00
15. “Hurdle-race”...........200 yds.
1. verðl. Skór $3.00
2. “ Úttekt úr búð $2,00
3. “ Vindlakassi $1,25
16. J mílu hlaup
1. verðl. Vindlakassi $5,00
2. “ Mynd i ramma (Victoria
drottning) $3,00
3. vl. Vindlakassi $2,00
17. Hlaup, ein mila.
1. verðl. Vindlakassi $5.00
2. “ Skammbyssa 3.00
3. " Skeggbolliogbusti 2.00
og garðstóll 50
18. Kapphlaup milli Winnipeg og Dak-
ota manna, 3 á hvora hlið, £ míla.
Verðlaun : 2 vindlakassar, $6,00
Kl. 2—4 síðdegis.
RÆÐUR OG KYÆÐI.
1. ísland.
Kvæði : .Tón Ólafsson.
Ræða : G. A. Dalmann.
Forseti setur samkomuna kl. 9i árd-
2. Vesturheimur.
Kvæði : Einar Hjörleifsson,
Ræða : Skapti Brynjólfsson,.
3. Vestur-íslendingar.
Kvæði : Gestur Pálsson.
Ræða : Einar Ólafsson.
HJÓLREIÐAR.
1. Fyrir að eins þá sem ekki hafa
fengið verðlaun áður 1 míla.
1. verðl. Vindlakassi $5,00
2. “ Lampi........... 3,50
3. “ "Sweater” og pipa $2,00
2. Fyrir alla...................1 míla
1. verðl. Fiólín........$5,00
2. “ Úttekt úr búð 3,50
3. “ Nærfötogsilkiklútur $2,25
3. Fyrir alla...............2 milur
1. verðl. 1 dúsin myndir $5,00
2. " Vindlakassi og úttekt $3,50
8. “ ‘Tribune’ 6 raos. $1,50
og Lampi $1,00 $2,50
4. Fyrir alla...............5 milur
1. verðl. ‘Morning Telegram’ $6,00
Case soft drinks & Silk skarf 1,50
2. “ Vindlakassi $4,00
3. “ do. og úttekt $3,25
5. “Handicap”......................2 mílur
1. vl. 1 dúsin myndir $5,00
2. " Hattur........... 3,00
3. “ Skór ............ 2,00
6. Hjólreið fyrir kvennfólk J míla
1. verðl. Brjóstnál..$5,00
2. “ Ruggustóll og hanskar
og Ilmvatnsflaska........$3,50
3. “ “Pickle stand” og skæri 2,75
STÖKK FYRIR ALLA.
1. Hástökk.
1. vl. J dús. platínu-myndir
og úttekt úr búð.......$4,00
2. “ Mynd í ramma ......... 2,50
2. Hástökk jafnfætis.
1. vl. 2 blómsturpottar og
silfurmunir...........$4,00
2. “ J dus. silfurskeiðar og
og hlaupaskór......... 2,75
3. Langstökk (hlaupa til).
1. verðl. t dúsin myndir $5,50
2. " Úttekt úr búð og ‘Bon-Bon’
skeið $3,00
4. Hopp—stig—stökk.
1. verðl. “Musical Goods” $5,00
2. “ Vindlakassi $3,00
5. Stökk á staf.
1. verðl, Harmonika $5,00
2. vl. Mynd og Heimskringla $4,0C -
GLÍMUR OG AFLRAUNIR
1. Islenzk gl’ma.
1. verðl. Rúmspi ing $3,00
og mjölsekkur $2 50.......$5.50
2. “ Mjölsekkur $3,00, kjöt 50c.
og stráhattur 75c $4,25
3. verðl. B. Powder 5 lb. $1,25
te $2,00 $3,25
2. Riskingar (Catch as catch can).
1. verðl. 1 dús. stykki bezta hand-
sápa $3,00
2. verðl. Skór $1,50
3. Riskingar fyrir drengi innan 18 ára
1, verðl. Kíkir og hattur $4,(>0
2. “ Úttekt og hlaupaskór $2,00
8. verðl. 1 par hæsni $1,00
Dans að kveldinu til kl. 11.
1. verðl. fyrir ‘Waltzing’ : Toilet
Tray. belti og peningabudda $5,00
2. verðl. J dús. hnífar og gafflar,
belti og peningabudda.....$3,50
Hluttökueyri verður tekinn fyrir hjólreiðar, stökk og nr. 10, 12, 15,116,
17 og 18 af hlaupum, glimur og riskingar, 25 cents af hverjum.
Tveir Islendingar ganga á strengdum og slökum vír leika í rólum og
köðlum, fara á handahlaupum og sýna ýmsar aðrar fimleika íþróttir.
Tvenn verðlaun verða gefin fyrir hvort um sig kappkeyrslu og kappreið,
ef 4 fást i hvert, og verða þeir að gefa sig fram við einhvern nefndarmann
fyrir 25. þ, m. og verða þá verðlaunin auglýst i næsta blaði (28. þ. m.)
íslenzki hornleikaraflokkurinn hér (Jubilee Band) og íslenzki hornleikara-
flokkurinn frá Daaota spila í garðinum allan dagínn og fyrir dansinum að
kvöldinu.
Öllum börnum sem komin verða þegar barna-hlaupin fara fram, verður
gefið brjóstsykur og hnetur.
Inngangseyrir í garðinn verður sama og í fyrra 15c fyrir fullorðna og lOe
fyrir börnlfrá 6—12 ára.
Boltaleikur (Base-Ball Match) milli Winnipeg- og Dakota-manna.
Byrjar kl. 9J árdegis. Verðlaun $25.00.
* I '