Heimskringla - 14.06.1900, Page 1

Heimskringla - 14.06.1900, Page 1
1 fíí) fífífí Flugur op “Mosqu- ♦ / UU,UUU ilos>> fangaöar hér á 1 hverjum degi. Fáid yður hurðir ♦ og giugga úr vírneti. Viðhölum ♦ J>að á ýmsu verði og með allskon- 2 ar litum, ♦ Trading Stamps. Cash Coupons. ♦ ANDERSON & THOÍTAS, X jARNVÖOtUSAIiAK ðitö M.AIN ST. ^♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ —«— XIV. ÁR Hammocks Ekkert þægi- legra i hitunum en að hvíla sig í "Uammock” Reynið þaö einu siuni. Vér höf- um þá á mismunandi verdi. Trading Stamps. Cash Coupcns ANDERSON & THOMAS, . Jarnvörusalar 588 Main St. w ©♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^ WTNNIPEGí, MANITOBA 14. JÚNÍ 1900. Nr. 36. PENINQAR LANADIR. Hægar mánaðar afborganir. Vér erum umboðsmenn fyrir hið bezta og ríkasta lánfélag sem bækistöðu hefir i Winnípeg. VILTU EIQNAST Laglegt og vel vandað einloftað hús (Cottage) á Alexander Avenue ? Það er úr timbri, á steingrunni og kostar $1200. TAKID VATRYQQINQ— {> TnB p„0eNix of london”. Það er hið elzta og bezta vátryggingafélag í heimi. Nares, Robinson & Black, Bank of Hamilton Cliambera. ? 'íi.' Frjettir. Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. Ástandið í Kina er alt annað en á- litlegt um þessar mundir. Hér um bil norðurhelft keisaradæmisins er að meira og minna leyti undir yfirráðum óaldar- seggja og morðvarga, sem tilheyra leynifélaginu “Boxers”, eða sem stund- um er kallað “félagið með langa hníf- inn”. Mælt er að núverandi stjórn sé hrædd við þetta félag, eða jafnvel hlynt því. Hvorki stjórnin né hershöfðingj- arnir aðhafast nokkuð til að stemma stigu fyrir þessum óaldarlýð. Conger ráðgjafi heflr lýst því yfir, að stjórnin virðist viljalaus eða vanmegna til að bæla yfirganginn og vandræðin niður, Og herinn væri hálfhræddur við þessa ‘Boxers'. Nú er sagt að Kruger gamli við- hafist i vagni á Machudrop-vagnstöðv- unum. Fiéttaritari, sem fékk að tala við 'hann, segir að hann hafi verið þreytulegur á svipinn, sat og reykti pípu sína í ákafa. Hann sýndi enga ánægju yfir þvi að tala við fregnritann. Kruger á að hafa sagt þetta ’við fregn- ritanni “Það er alveg rétt að Bretar hafa umráð á Pretoria, en það þýðir ekki það, að striðið sé búið. Búarnir eru ákveðnir með því að berjast eins lengi og mögulegt er, Á meðan þeir hafa 600 hermenn í Transvaal, gefast þeir ekki upp fyrir Bretum. Fréttaritarinn áleit að Búar yrðu að hætta striðinu þegar höfuðborg þeirra væri tekin. "Höfuðborgin tekin !” hafði Krug- er upp eftir honum, og hélt svo áfram: “Höfuðstaðurinn samanstendur aðal- lega af grjóti, múrsteini og steinlími. Það er alt og sumt. Stjórnin er hérna í vagninum þeim arna. Aðsetursstað- urinn myndar ekki stjórnina og stjórn- in starfar enn þá jafn ötullega og hún hefir gert hingað til. Það er alt eins þægilegt fyrir stjórnina að búa í vögn- um og fam aftur og fram frá einum stað til annars, og vera þar sem vand- ræðin og nauðsynin þarfnast hennar. “Það er sagt að þú hafir með þér tíu milíóna virðí af gulli”, sagði fregn- ritinn. “Það er engin hæfa”, svaraði Krug er. “Ég hefi auðvitað svo lítil skild- ingaráð, sem ég þarf í stjórnarþarfir. En svo ætla ég ekki að segja þér hvar fjárhirzla Transvaal er geymd. Látum Lord Boberts leita hennar og hremsa hana, ef hann getur”. “Það er líka altalað á Englandi að þú ætlir að forða þér með hollenzku herskípi til Norðurálfunnar”, sagði fregnritinn. “Það er líka önnur lygi”, svaraði Kruger. “Ég þekki ekkert hollenzkt herskip, sem ég hefi tækifæri að fara með, og mér hefir aldrei dottið í hug að flýja landið mitt. Ég ætla aldrei að yf- irgefa Transvaal, og óg get ekki enn þá séð, að þess gerist nokkurn tima þörf fyrir mig”. Sagt er að Búar geymi brezka fanga i grindum úr gaddavír, og þykj- ast þeir hart haldnir. Bretar ættu að geta losað fangana fljótlega úr kvíum þessum, ef þei: hafa slík ráð yfir Trans- vaalríki og beir láta. Hraðskeyti frá Shanghai, Kína, 7. þ. m. segir, að um 900 brezkir liðsmenn séu komnir þar á land af enska flotan- um. Er þetta sagt meira lið en öll hin Stórveldin eigi þar til samans. Þetta enska lið er vel útbúið og ætlar að brjóta sér leið frá Tien Tsin til Pekin, höfuðbórgarinnar. Nýlega hefir kínverska herliðinu lent saman við uppreistarflokkinn(Box- ers); 200 höfðu fallið, en hvað margt af hverra liði er ófrétt enn. Sagt er að sumt af stjórnarhermönnunum hafi hafi hlaupið yfir i lið upphlaupsmanna. Keisara-ynnjan hefir skipað hershöfð- inja Neigh Si Chong að sjá um að járn- brautarlestir geti komist óhindraðar út og inn í Pekin. Hann hefir 8000 her- menn. Enn fremur er mælt að kaþó- ólskum mönnum hafi lent saman við Boxarana nýlega, og að kaþólíkar hafi borið hærra hlut í þeim viðskiftum. Víða fram með járnbrautinni frá Pekin, f nokkurri fjarlægð, hefir þessi þorparalýður sett eld á brautarstöðvar og höggið telegrafsstoðir' og eyðilagt vírana. Lítur ástandið all-fskyggilega út í Kínaveldi í þenna mund, og spá sumir að þar verði blóðugra og stór- íeldara stríð innan skamms, en heimur- inn hafi nokkurn tíma þekt áður. Um morðmálið í Anoka, Minn., og sem minst var á í þessu blaði fyrir skömmu síðan, er það nú að segja, að Mrs Wise tilnefndi Harry Balcom nokk urn, sem líklegasta manninn til að hafa framið manndrápin. Mrs Wise er nú dauð. Mr. Wm. Wise hafði átt $500 hjá þessum Balcom, og höfðu þeir átt ýms viðskifti saman, og Wise á að hafa haft orð á því við kunnuga menn, að Balcom, hafi haft í heitingum við sig. Balcom þessi hefir slæmt orð á sér al- ment þar sem hann er þektur. Lög- reglan er nú á hælunum á honum, og sagt að hún sé að styrkjast í þeirri trú, að Balcom sé morðinginn. „ Önnur dóttir Wise er sagt að muni missa vitið út úr hræðslu og sorg. Viðskiftin eru óðum að aukast á millum Cuba og Bandaríkjanna. Á yfirstandandi fjárhagsári munu vörur þær sem Cuba selur á Bandarfkjamark- aðinu vera 31 milióna dala virði, Fjár- hagsárið 1898 seldi Cúba Bandaríkjun- um vörur að eins 15 milíónir dala virði, en árinu áður borguðu Bandamenn Cu- ba-búum $18,500,000 fyrir vörur. Aftur á móti nema innfluttar vörur frá Bandaríkjunum til Cuba 25 milíónum dala í ár, en 1996 voru ihnfluttar vörur frá Bandaríkjum að eins $7,530,000 virði. Sömuleiðis fer viðskiftalífið milli Bandaríkjanna og Filipseyjanna óðum vaxandi, þrátt fyrir fram haldandi ó- frið, þar á milli. Flestir eða allir, sem ætlað hafa til Cape Nome, eru nú lagðir af stað þang- að. Frá Seattle og Tacoma hafa lagt af stað um 10,000 sálir. Fólk þetta hefir komið frá öllurn stöðum heimsins. svo sem frá Ástralíu, Suður-Ameriku, Suður-Afríku, og vfðsvegar úr Banda- ríkjunum, og, sem sagt, alstaðar að. Síðan 15. Apríl í vetur hafa 52 skip lagt á stað þangað, og með þeim hafa farið 9700 me n og konur Það má því á- ætla að fólkstalan f Cape Nome verði í haust orðin 20—25,000. með því fólki sem þar var fyrir, og þeim námamönn- um, sem fara þangað úr Yukon-hér- aðinu. Útbúnað og vörur, sem þetta fólk hefir flutt með sér, má ætla að nemi 5 milfónum dala, þangað hafa verið fluttar góðar og dýrar námavél- ar ög margt fleira. Seint í vikunni sem leið var upp- hlaup af hendi verkfallsmanna f St. Louis. Strætisvagnafólagið ætlaði að byrja aftur fyrir alvöru að láta strætis- vagnana ganga. Voru verkfallsmenn safnaðir saman og gerðu þegar óeirðir. I upphlanpinu lentu um 2000 menn. Verkfellendur skutu strax á vagnana og þeir ætluðu af stað. Ríðand. varð- lið var við hendina, skaút það út í loft- ið til að hræða upphlaupslýðinn, sem bæði skaut og grýtti. John Goetling, myndasmiður, sem stóð nálægt orustu- vellinum, fékk skot í gegn um sig og er talinn frá. Sömuleiðis fór kúla í brjóst ið á konu einni, og 3 lögregluþjónar urðu fyrir skotum. Nálægt Moosomin, N. W. T., voru framin hryllileg morð í vikunni sem leið. Vinnumaður réðist á húsbóndann og húsfreyjuna sofandi og drap þau bæði; sfðan 5 börn, en vakti hið 6. (dálitla stúlku) og skipaði henni að fara til næsta bæjar og segja frá því að hann væri búinn að drepa alla familí- una nema hana, og kvaðst ætla að skjóta sig sjálfur á meðan hún væri f burtn. Þegar hún var farin heyrðist skot, Þégar fólk kom þangað með stúlkunni, var McArthur, húsráðand- inn f andarslitrunum; eínnigsonur hans Russell, dó litlu seinna. Liklegt þykir að brjálsemi hafi knúð manninn til að vinna þetta skelfilega hryðjuverk. Fylkiskosningar fóru fram í Brit- ish Columbia á laugardaginn var. Fréttir segja að “Svarti” Joe hafi að eins fengið 8 sæti af 38. Conservatívar náðu 20 sætum. Fóikið er hætt að trúa Liberölum fyrir völdnm hér f Canada, ef það hefir tækifæri til að greiða öðr- um atkvæði, og fær að ráða. Sagt er að búið sé að handtaka Pio de Pillar hershöfðingja, sem talin hefir verið einn með helztu foringjum upp- reistarmanna á Filipseyjunum. Hann náðist nálægt Manila. Sagt er að stjórnin í Kína hafi harð lega ámint Neigh hershöfðinSja fyrir að hafa látið skjóta á uppreistarmennina (Boxers). — Trúboðar frá Bandaríkjun- um hafa sent hraðskeyti til McKinley forseta og beðið um vernd, segja þeir að trúboðar og stöðvar þeirra séu í hinni mestu hættu. Tun-Chan trú- stöðvarnar hafa trúboðar orðið að yfir- gefa alveg, og bænahús o,g kapellur hafa verið brotnar og brendar. Fleiri hundruð af kristnum mönnum hefir verið drepið og myrt. A fimtudaginn var brendi upp- hlaupslýðurinn kyrkju fyrir Rússum f Tung-Fingan, 35 milur norðan við Pekin. Það er verið að gera við járn- brautina, sem uppreistarmenn skemdu og eyðilögðu um daginn milli Pieu- Tsin og Pekin. Mörg hundruð varð- menn eru við brautina til að verja verkamennina, svo ekki verði á þá ráð ist. Þar eru 100 Bandaríkjahermenn, undir forustu kaft. McCalle, úr varðlið inu. Þeir eru velbúnir að vopnum. Jafnóðum og brautin er búin, eru sett- ir á hana vagnar, sem hlaðnir eru hertýjum, vistum og hermönnum, til að berjast við óaldarlýðinn. Þingið á Prince Edward Island hef- ir samþykt vínsölubannslög fyrir fylk- ið. Þetta eru fyrstu vínsölubannslög- in, sem í raun og veru hafa öðlast gildi í Canada. Lög þessi banna stranglega alla smáskamtasölu á áfengi nema til sakramentis, meðalagerðar og efna- sameininga við iðnað. Heildsala er einnig bönnuð, nema til lækna, lyfsala og utan fylkis. Það er mjög rætt og ritað un Ba- den Powell, sem nú er af sumum kall- aður hetjan frá Mafeking. Ein tvö eða þrjú prentfélög hafa gefið út ævisögu hans. Fullu nafni heitir hann Robert Stephen Smyth Baden Pawell, Hann er fæddur í Lundúnum 22. Febrúar 1857. í móðurætt er hann kominn frá kaft. Smith, sem í stjórnartíð Jacobs I. Englakonungs frelsaði Virginiu-ný- lenduna, sem þá var að myndast, i Ameríku, frá eyðileggingu. Síðar skift- ist "i” í “y” í því nafni ættarinnar. Sumir af þessari Smyths fan ilíu höfð- ust tíðum við f Egyptalendi og voru í kærleikum við einvaldshöfðingja þar. Blöðin segja að drottningin f Kína, sem er ekkja, hafi flúið til rússneska sendiherrans og hafist við á heimili haus. Hún hefir ekki treyst sér til að halda áfram að styðja “Boxers” lengur upp á sitt eindæmi. Sé þessi fregn Sönn, er auðsóð að hverju hnígur fyrir Rússum. I California er maður, sem hefir þá lang-stærstu hjörð af Angora-geitum, sem menn vita um. Hann á frá 8000 til 10 000 höfuð. Af þeirri hjörð eiu um 1200 kynbótageitur, svo arðsamar, að ekki þekkjast aðrar eins. Beztu kyn- bótahafra, sem hann á, selur hann frá $25 —$40. Reifið af Angora'geitinni hjá honum vegur frá 4—6pd., og það er alls ekki óalgengt að reifið vigti 8 til 10 pd., ef geitin er klipt. Hann hefir kynbótahafur úr Suður-Afriku, sem hann nefnir “Paéha”. Reifið af honum hefi verið minst 12 pd. Hann á annan hafur, [er hann keypti úr Tyrkjaveldi. Síðastl. ér vigtaði reyfið, af honum 14 pd. og 12 únzur; í ár vegur það 15 pd, og 3 únzur. ' Honum hafa verið boðnir $500 fyrir þenna hafur, en hann er ekki falur fyrír neitt. Loubet forseti Frakklands heim- sótti útlendar sýningardeildir 8. þ. m. I brezku nýlendudeildinni varð dálitið þjark. Hon. J. I. Tarte, ráðgjafi op- inberra verka í Canada, neitaði að fara eftir ráðstöfun brezka erindrekans, og af þvl hann léti Canada ekki fá það sæti þar, sem hann vildi. Hon. Tarte krafðist þess siðan að Loubet forseti heimsækti Canada svningardeildina sem sérstaka deild, sem ekki væri und- ir eignarráðum Breta að öðrum kosti léti liann læsa öllum dyrum að henni. Málið var þegar yfirlegað og Canada hlaut virðulega viðurkenningu. Horn- leikaraflokkur Canada spilaði “Mar- seillaise” í svo miklum æsingi og tryll- ingí, að þeir gleymdu að gefa hlé fyrir fagnaðarhrópinu: “Lengi lifi Loubet!” “Lengi lifi lýðveldið!”, svo tilheyrend- urnir tóku til sinna ráða og hrópuðu þetta svo undirtók og bergmálaði í öllu Þegar Tarte kvaddi forsetann, var hrópað hástöfum: “Lengi lifi Frakk- land! ’ Á máuudaginn var kom sú frétt að Roberts lávarður væri útilokaður frá fróttasambandi við umheiminn. Er sagt að það bafi komið sem leíptur og eldingar úr heiðríku lofti yfir Englend- inga. Eftir því sem blöðin segja hafa Bretar og Búar háð hildarleik nú í seinni tið víðar en í einum stað, þrátt fyrir það þótt Bretar heima og erlendis væru búnir að fagna innreið Roberts og liðs hans í Preteria og teldu stríðið búið. Á einum stað hafa Bretar mist 600 til 700 menn, en þeir segjast hafa á öðrum stað náð 1500 Búum til fanga. Þaá) lítui svo út sem Búar hafi á síúu valdi stórt svæði, svo Bretar get ekki látið umheiminn vita hvernig sér líður. eða hvernig leikar ganga þar. Sá eini nafnþektur maður brezk' r, er lætur til sín hoyra, er læknir við hosp- italið í Roodeval. Hvað orðið hefir af öllum brezkum mönnum þar, er ráð- gáta uú sem stendur. Forsætisráðherra Schreiner í Cape Town hefir orðið að segja af sér vegna þverrandi fylgis. Orsök til þess að fylgismenn hans yfirgáfu hann er sögð si’, að Schreinir hafði ætlað nú þegar að koma fram með hegningarlagafrum- varp gegn uppreistarmönnum í sínu fylki. Síðustu daga hafa herfréttirnar úr Suður-Afríku bent á að Bretar og Bú- ar haldi áfram að berjast, og siðasta fréttin segir, að Bretar hafi beðið ósig- ur við Elandsfontein, og hafi þar fallið 150 hermenn og 750 særzt. Hiaðskeyti frá Bloemfontein á þriðjudagjnn var hljóðar á þessa leið:— Járnbrautir eru nú í höndum Breta aftur. Það er verið að gera við þær og gengur fljótt og vel, þvi nóg er af við- gerðarefni í Bloemfontein. Hemála- stofa Búa segir, aÍ Dewet herforingi hafi náð, 2. Júní, um 8000 pörum af brekánum, skóm og vetlingum; sn vegna þess að hann gat ekki flutt alt þetta herfang með sér, þá brendi hann það sem hann gat ekki flutt. Dewet segist hafa sjálfur eyðilagt 1000 her- menn fyrir Bretam og tortýnt yfir 500,000 dala virði af eignum. Sagt er að Bretar séu farnir óbeinlínis að bjóða yfirmönnum Búa háar fjár ipphæir til að gefast upp. Tilboðin eru ekki lægri en 10 þúsundir dala um árið. ATHUGASEMD. í 84, tölublaði Hkr. er getið um tilraun kaft. Streeter að ræna landi. Þar er sagt að Miles hershöfðingi hafi gefist upp ásamt 4 fé lögum sínum, þegar þeir sáu lögregl- una koma o. s. frv. —í Hkr. er fregn- in um kaft. Streeter tekin úr blaðinu Free Press hér í bænum, sem er eitt- hvert bezta fréttablað í Vestur-Canada. En svo hefir einn eða fleiri náungar verið að gera athugasemd við þessa frétt i Hkr., að meintur væri þar einn af aðalhershöfðingjum Bandarikjanna með þessum Miles; í ráðvendni! halda þeir að ekki só til nema einn maður að nafni Miles, í Bandaríkjunum !! Blaðið Free Press kallar þenna mann Miles, og eftir því var farið með fréttina í Hkr., og getur hver læs maður fengið að sjá þetta Free Press blað hjá ritara stjórnarnefndar Hkr. The Home Life Association of Canada. Aðalskrifstofa í Toronto. Möíuðstóll—em millíóíi dollars. Full trygging í höndum sambandsstjórnarinnar. Lífsábyrgðarskýrteiui Home Life félagsins gildahvar i heimi sem er. Eng- m höft eru lögð á skírteinishafa hvað snertir ferðalög. bústað eða atvinnu. Þau eru ömótmælanleg eftir eitt ár frá dagsetningu. Skírteinin hafa ÁBYRGST VERÐGILDI í uppborgaðri lífsábyrgð pen- ingum og lánsgildi, eftir þrjú ár. ’ Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá W. H. WHITE, ARNI EGGERTSSON, MANAÖER. GENERAL AGENT. Mclntyre Block, Winnipeg. P. O Box'845, MINNEOTA, MINN., 30. MAÍ 1900. (Frá fréttaritara Hkr.). Tíðarfar hefir nú um langan tíma verið þurt, svo farið er að votta f yrir skemdum á ökrura. — 11. þ. m. flutti Þórður læknir Þórðarson vísindalegan fyrirlestur um “hið illa í tilverunni”. Allir tilheyrendur luku lofsorði á fyrir- losturinn. — Þau hjónin Sigmundur Jónatansson og Hólmfríður Magnús- dóttir fóru héðan um daginn til Wis- consin í kynnisför til Ingibjargar dótt- ur sinnar; búast þau við að verða einn mánuð í burtu. — Ekki alls fyrir löngu sendi séra Hafst. Pótúrsson í Kaup- mannahöfn mér síðasta heftið af riti sínu “Tjaldbúðin”. Það er snildarlega samið rit frá sjónarmiði prests og þjóð- vinar, en ritið kastar heldur skugga á dýrðarljóma Vesturheims-prestanna, Jóns og Friðriks. Sprengivatn. Hraðfregn frá Rómaborg til Lundúna á mánudaginn 7. Mars, getur þess, að tilraunir Cornara, ofurstans, sem fund- ið hefir upp að nota til sprenginga splundurefni það, er felst í rafmögnuðu vatni, veki hvivetna nákvæma eftirtekt og undrun meðal hermannanna, Corn- ara hefir nýlega lukkast að sprengja með þessu rafurmagnaða vatni ramm- lega lokað stálhylki. Kostir þessa sprengivatns eru meðal annars þeir, að auk þess sem það er ákaflega aflmikið, er það og ódýrt og hættulaust í með- ferðinni. Sú skipun hefir nýlega útgengið frá stjórn vorri í St. Paul, að fasteigna- og lausafjárskattur skuli hækka að mun á þessu ári. — Skórinn harðnar smámsaman á fótum vorum hér. — Stjórnarskýrslur vorar segja, að á 6 mánaða tímabili, er endaði 81. Október siðastl., hafi innfluttar vörur til Fil- ipseyja numið $9,758,138; þar af var frá Bandaríkjum $635,495; og þó herjum vér þangað til að ná valdi í hinni arð- miklu verfclun eyjabúa. Á þessu tíma- bili seldu Kínvorjar—þessi fáráða þjóð, sem kölluð er— Filipseyingum $4,165,- 940; Bretar $1.515,893; Spán meira en $1 milíón. Af þessu sést að það eru Kínverjar, sem hafa þær vörur er eyja- búar æskja eftir. Þar af leiðandi mun hvorki hervald né lagaleg harðstjórn draga verzlúnina hingað. Á sama tíma seldu Bandamenn Canadamönn- um $86,587,484 virði af vörum, sem nemur 62% af aðkeyptum vörum í Ca- nada. Bandamenn telja sig eiga Fil- ipseyjarnar, en hafa ekki þær vörur fram að bjóða, er eyjabúar þarfnast, en yfir Canada hafa þeir engin völd, þó fá þeir þaðan meiri verzlunararð en nokkur önnur þjóð. Mundi eigi það samkvæmara nútíðar mentun og mann- úð, að hlúa þar að verzlun er hún get- ur gengið mótþróalaust, heldur en að ryðja sér braut til markaðar með her- valdi, og þar með að misbjóða þjóð- inni, í tilliti til manntjóns og skatta- álaga. Sjónlaust, heyrnarlaust og mállaust skáld. Tommi Stringer, sem er heyrnar- laus, mállaus og sjónlaus, hefir samið skáldsögu og dregið upp myndir, sem fylgjn henni. Hann er nú á 5. stigi í málfræðisskóla í Boston, og er fyrsti og eini pilturinn sem gengið hefir á þess- konar skóla í þeim bæ. Nýlega samdi hann sögu sem heitir ; 1 ‘Tveir drengir í Boston : Hreintrúar (puritan) piltur- inn frá 1690 og Bostondrengurinn 1900.” Dregur ungi rithöfundurinn fram bráð- skarpleg rök fyrir mismuninum á hög- um og háttum þessara söguhetja sinna, og endar líkingafærzlu sína á þessa leið: “Það gleður mig m jög að litli hrein- trúardrengurinn tókst á hendur að flytja vistferlum til Boston yfir hið mikU bylgjuþrungua haf 1C90, en ég sjálfur vildi þó miklu heldur vera Bost- on pilturinn árið 1900.” Myndirnar { sögunni bjó höf. til á þann hátt, að hann klipti þær til úr hvítum pappir og límdí þær á dökkan grunnflöt. Þannig gerði hann myndir af fólksvögnum, vindmilnu, seglskipi og strætavögnum,—sem hann anðvitað hefir aldrei séð né heyrt. KVÆÐI. Flutt við ársfjórðungslok stúkunnar Heklu, 4. Maí 1900. Bindindismenn sem berjast eru fyrir Bauvænni siðspilling oghrinda á braut, Nu eytt höfum miklu er áður var fyrir Uppslitið þyrni en blóm stráð á braut, Mannkyni lyft á sjónarsvið æðra Til að sjá hvað er vansæmi’ og sorg, neyð af hlaut. u u, Með mannást og kærleika vort stríð- andi fer lið. Pað skal vort sverðið til drykkjuskapinn En vér drögum inn aftur með farsæld og frið. Þeir sem drekka frá sér vitíð og veikja sina krafta, Og vasana tæma þeirra hrellandi ráð Vér hefjum þá til hamingju’ er á helveg- um glapta; Því hver þá fer leiðhún er vansæmistráð Þegar maðurinn sem eins og sauðskepna er viltur, Sér ekki og vill ekki neinu að gá, Af áhrifum vínandans orðinn svo spiltur Að ekkert vansæmdar hneyksli kann sjá Um saurlifnað, siðspilling syngur hann kvæði, Því sjónin og vitið ei veita kann lið. Konuna’ og börnin oft ber þá i bræði Og brýtur svo kærleikans helgasta frið. Allan vorn lífsstarfa erfa vor börnin, Hvort ilt eða gott er sem við höfum sáð Og ef það er ilt—ja, hver verður þá vörnin Þegar velsælu laudinu hinu er náð. Vökum og störfum, ei höngum né hým- um Yfir heimsku og vana sem að vit fær forsmáð, ' En tökum á móti og glottleitir glímum, Vor glímubrögð vizka sé atorka’ og dáð. Að leita og finna hvar svíðandi eru sárin Er sannarleg skylda sem reglu vorri ber Að lækna þau, líkna og líka að þerra tárin Svo ljúf er þessi stundin sem helgum vér því hér. Þótt ei sjálfir njótum þess alls er vér sá- um, Þá áfram samt höldum þars markinu . að ber, Því eitt er þó víst ef að vel vér gáum, Að líf vort það á köllun og skyldur á sér neroum æ meira og meira og meira vort skeið Ef fánamark kærleikans fyrir höfum stafni V íð fannum þá siðast að leið verður greið. íklæðum vort siðferði sannleiksást, _T .. ,, ,, skrúða, Undir sólgullnri skykkju á mannúðar- . skör, ötigum vér allir, nú strenpjum þa heítin, I stefnu til jafnréttis leiðum vor kjör. Lifi hún Hekla og lifið þið bræður, Og líka þið systur er styrkið vort mál. Vort gullvæga áform ei gefið á glæður, En á galleiðu fetið mót bakkusar brjál. Eg kveð ykkar stúku í síðasta sinni Með samvizku ró, en þó hrærður í sál, Og óska’ öllum góðs sem að eru hér inni Friður og eining styrki ykkar mál. SlGURÐUR VILHJALMSSON.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.