Heimskringla


Heimskringla - 27.06.1901, Qupperneq 4

Heimskringla - 27.06.1901, Qupperneq 4
HEIMSKRINGLA 27. JÚNÍ 1901. Winnipe^- Björn Jónsson, fráBrú P, O. Man,, lagði af stað til íslands á mánudaginn var. Björn kom vestur 1876 og fór nú heim að tinna gamla kunningja og líta fornar æskustöðvar, eftir fjórðungs aldar utanveru. — Hkr. óskar honum skemtilegrar ferðar og heillar aftur- komu að sumri. Ungra manna Conservative-félagið, hér i Winnipag, heldur alment þing í sýningarvikunni, i samkomusal sínum i Stovel Block á McDermot Ave. ísl. utan og innan bæjar, sem aðhyllast konservativ® flokkinn eru boðnirog vel- komnir á þenna fund. Áríðandi flokks- málefni verða rædd áfundinum. og þess er óskað að sem aUra flestir utanbæjar íslendingar sæki hann. Ódýrust föt eftir máli selur » -- S. SWANSON, Tailor. 512 iNaryland St. WINNIPEG. Herral. V, Leifur, frá Mountain, N. D., var hér á ferð um siðustu helgi áleiðis til kirkjuþingssetu að Gimli. Af kosnum safnaðar fulltrúum til þingsins mundi hann veftir þessum: Frá Garðarsöfnuði:—Stefán Eyjólfsson. Víkursöfnuði: — Tomas Haldórsson, Sveinn Sölvason og I. V. Leifur. Vidalinssöfnuði:— Einar G. EiríksSon. Eyfordsöfnuði: — kand. theol. J. S. Björnsson. Péturssðfnuði: — Tryggvi Ingjaldsson. PernbinasöEnuði:— Gunnlaugur Pétars- son og Hansson og frá Fjallasöfnnði:— Hermann Bjarnason. Allir þessir frá N orður Dakota. — Frá Minnesota var sendur til þingsins Sigmundur Jóns(?)- son Einnig komu frá Mountain-bygð, í skemtiferð, með kirkjuþingsfullt.rúun- um bændurnir Þorgils Haldórsson, Guð- mundur Guðmundsson og Daniel Jóns- son; ennfremur Mrs. Soffia Bjarnason með barn. Þetta fólk, ásamt kirkjuþings- mönnunum, fór héðan á mánudaginn til Nýja íslands. Jónas K. Jónasson frá Siglunes P. O. kom hingað á föstudaginn var til að mæta nýkomnum ’emigröntum frá ís- landi. Mr. Jónasson heflr verið settur Commissioner í héraðinu þar nyrðra. ásamt honum kom Jörundur Eyford, póstmeistari á Siglunes P. O. til að mæta tengdamóður sinni, sem er að flytja norður til hans frá Hensil í N. D. Þessir menn segja alt bærilegt ur sinni bygð. Gufubátaferðir nú 2 í viku frá Siglunesi inn til Delta við suð urendann á Manitobavatni. AUmikinn rjóma selja landar f þessari bvgð. Hann er fluttur með gufubát og járnbraut til Winnipeg Næsta ár er búist við að samgöngur norður í þessa bygð verði orðnar svo góðar, að almenningur þar geti sent rjóma sinn til markaðar, og verður það þægileg búbót frá því sem verið hefir með því að bændur þar mjólka nú al- ment írá 10 tii 20 kýr hver, og gripir eru óðum að fiölga í bygðinni.—Gripa- sala var þar með bezta móti á síðastl. vetri. $32—$38 var borgað fyrir uxa á 3 ári og yfir 70 munu hafa verið seldir þaðan út úr nýlenduoni, og voru þó nokkrir bændur, sem ekki seldu gripi sfna. Um 30 íslenzkir búendur eru nú í þessari bygð. Vr. Jónasson biður þess getið að hann ráðieggi bændum þeim, sem senda rjóma inn til Winniþeg, að fá iása að könnum sínurn hjá mjólkur- félaginu—álítur nauðsynlegt að hafia könnurnar læstar. íslendingar í Goodtemplarastúkun- „Heklu" og „Skuld“ hafa myndað hjólreiðarfélag, um eða yfir 20 manna hafa þegar gengið i félagið. Þetta fólk hefir útreiðartúra sína á hverju mánu- dagskvöldi kl. 8, frá horninu á Ross Ave. og Nena St. Það þykir líklegt að nær eitt hundrað Isl., konur og karlar, gerist meðlimir félagsins áður langt líður. Rúmlega hundrað Isl. innflytjend- ur komu til Winniþeg á laugardaginn ▼ar, 22. þ. m. Flestir voru þeir frá Suður- og austurlandi. Þeir fóru frá Keykjavfk með „Seres-1 18 maí. Komu við f Vestmannaeyjum og Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Seyðisfirði, og komu nokkrir vesturfarar um borð á hverjum þessara fjarða. „Seres kom til Skot- lands 26. Maí, en folkið varð að bíða þar í 12 daga þar til 10 Júní að það fékk far með Allanlínuskipinu „Samar- ifan“. Til Quebec kom það 19. þ. m., og svo hingað eins og að framan er sagt. Alt leit fólk þetta vel og frjáls- iega út, enda kvað það sér hafa liðið vel á skipi Allan-línunnar, en að öðru leyti þóttist það hafa mætt vonbygðum nokkrum að þvi er snerti loforð linunn ar eða umboðsmanna hennar, um ferða- áætlun og túlk. Annars var kaupm. Finnur Finnsson frá Horgarnesi, túlk- ur þessa hóps að heiman- Meðal ann- ara þar vorn þeir Vigfús Þórðarson frá Leirá í Borgarfirði, með konu og 3 börn og Sigurður Einarsson af Seyðisfirði með konu og 1 barn. Vel lét fólk þetta af tíðarfari á ís- landi á slðastl. vetri og skepnuhöldum þar. En kuldakast hafði komið þar um páskana og staðið 2 vikur. Útflutnings- hugur fólks allmikill víða um landið, en efnaskortur hindrar framkvæmdir í þá átt hjá öllum þorra fólksins. Byggingaleyfi hafa verið veitt til að byggja ný hús i Winnipeg í sumar sem nemur einni millión dollars. Stórlegar framfarir í ár. Bæjarstjórnin hefir selt nokkuð á fjórða þúsund reiðhjólaleyfi i tvær und- anfaroar vikur og er gizkað á að það sé á helming þeirra hjóla sem nú eru í brúki hér í bænnm. Hannes Sigurðsson frá Brú, Man., kom til Winnipeg á mánudaginn var með augnaveika dóttur sína, 7 ára, til lækninga. Hann «egir útlitið gott þar vestra. Mr. Sigurðsson fór heimleiðis í ígærdag. Mr. A. R. McNichol, aðalumboðs- maður fyrir Mutual Reserve félagið, hefir sent oss mótmæli gegn grein vorri í Heimskringlu, Nr. 37, dags. 20. þ. m. Þessi grein Mr. McNichols kemu - í næsta blaði. Svar frá S. V: til S. V. kemur f næsta blaði. Þeirsemkeppa um veiðlaun fvrir íslandskvæðið í sumar, samkvæmt aug- lýsingu í síðasta tölublaöi Hkr. ættu að merkja kvæðin með staf, eða merki, en senda nafn sitt í lokuðu umslagi, sem eins er merkt, og verður þá að eins það umslag opnað, sem ber sama merki og undir kvæðinu er, sem dómnefndin ákveður verðiaunín skuli hijóta. G. Johnson, verzluuarmaður á s. v. horninu á Ross Ave. og isabel St. verðnr ftamvegis „agent“ fyrir „Cos- mopclitan Fashkm Co.“, Paris, Lon- don, Berlin og New York oghefirhann »nið þessi af ðllam stærðum og selur þau fyrir lOc. og löc.,helmingi ódýrari en jafn góð snið fást annarstaðar. G- C- LONG- MAIN Rétt nýlega fengið allar nýjustu og fegurstu tegundir af karlmanna eg drengja fatnaði. Svartar og bláar karlamanna yfirfatnaðir með ein- eða tvihneptum vestum. Þessir fatnaðir eru sniðnir og saumaðir af beztu skröddurum. Ágætir "Worsted”, “Serge” og "Tweed”-fatnaðir með ýmsu sniði. Allar nýjustu og beztu tegundir af yfirfrökkum úr “Whipcord”, “Venice” og “Covert”.dúkum. Hattar harðir og mjúkir af öllum tegundum. Skyrtur, hálstau og alt annaðer lítur að karlmannafatnaði. íslenzkur afhendingamaður í búðinni. Komið og skoðið. Allar vörur með sanngjörnu verði. Q. C. Long, - 458 Main St. Rat Portage Lumbe r Co. Ltd. Telephone 1372. ÚRTlNINGS BORÐVIÐUR Á ÖLLUM LENGDUM, $13.00 HVER 1,000 FET. Jno. M. Cbisliolm, Manager. [fyrrv. Manager fyr Dick, Banning & Co.] (llntlKtone & Higgin St. Bréf frá Steinback næsta blaðs. verða að bíða JAFNAÐARMANNAFELAGIÐ hélt fund á Unity Hall á mánudags- kveldið. Þar voru mættir nokkrir auk félagsmanna og bættust 3 við tðluna. Nefnd sú, er kosin var á næsta fundi á undan til þess að semja lög fyrir félag- ið, lagði fram frumvarp, er samþykt var í einu hljóði. Ákveðið að halda fund innan skamms og bjóða þangað nokkrum utanfélat smönnum. Verður sá fuudur auglýstur í blöðunum og stefnuskrá féiagsins birt.—Það er rétt hermt i Heimskringlu aðbráðabyrgðar- stjórn hafi verið kosin áður og félagið stofnað. Á þessum fundi verða fjörugar umræður og skemtilegar. Þessi flokkur verður andstæður báðum pólitisku fiokkunum hér í því sem miður fer, en fylgir þeim að málum í öllu ærlegu og góðu. í umboði félagsina. Sig. Júl. Jóhannesson. . ÆFIMINNING. Þann 19. Apríl síðastl. lézt úr lungna veiki, eftir6 daga legu i.sjúkrahúsinu í Minniapolis, Minn., Gaðmann Kristj- ánsson frá Mountain, N. D , og var lík- ið sent til N. D. og jarðsett í grafreit Eyford-safnaðar 25. s. m. af séra F. J. Bergmann.—Guðmann sál. var fæddur 1. Ágúst 1878 á Dröngum á Skógar- strönd í Snæfellsnessýslu og voru for- eldrar hans Kristján Kristjánsson (dá- inn fyrir rúmu ári) og Kristín Bjarna- dóttir, er lifír hjá börnum sínum skamt frá Mountain. 3 ára að aldri flutti Guð mann með foreldrum sínum til Ame- ríku; n«m faðir hans land suðvestur af Mountain og bió þar til æfiloka. í æsku var hinn látni mest heima í föðnrgarði, en er honum óx þrek, fór hann í vinnu mensku þar í nágrenninu og vann sér hvervetna hylli húsbænda sinna fyrir ástundun og hlýðni. Hann naut litils skolanáms í ungdæmi sinu, en varði öllum frístundum til bóknáms og var hann því í mörgum námsgreinum kom- inn eins langt og margir, sem eytt hafa mörgum árum til skólanáms. Siðastl. vetur stundaði hann nám við Ilormal- skólann í Minneapolis og hefði útskrif- ast þaðan í vor ef aldur og heilsa hefði enzt. Næsta ár ætlaði hann að lesalög i lögfræðisdeild rikisháskólans i Minne- sota.—Það var alment viðurkent af kennurum hans, að hann væri einn gáfna skarpasti lærisveinn er á þann skóla hafi gengið. Guðmann sál. var stiltur i geði og þægilegur í viðmóti og vann sér alment hylli þeirra er kyntust honum. Það má með sanni segja að hann hafi verið í fremstu röð ungra Dakota-íslendinga, að gáfum og at- gerfi, og er hans mjög sárt saknað af aldraðri móður, ættingjum og vinum, er eiga á bak að sjá ástfólgnum syni, ástrikum ættingja og vini. S. Ef þér óskið algerðrar ánægju þá ríðið á Gsndron Bicycle. Það eru reiðhjélin sem þcr getið reitt yður á. Þau eru gerð úr beztu efuum af beztu smiðum. QENDRON reiðhlólin spara eigendum sínum mikil óþæg- indi, og þau eru beztu hjól- in á markaðinum. Bicycle Cö. 62iUlain St. Phone 430. P. S. Hæsta verð borgað fyrer brúkuð hjól, í skiftum fyrir ný hjól. — Vér ger- um við aliar tegundir af reiðhjólum, sækjum þau heim til fólks og skilum þeirn þangað aftur, hvar sem er í borginni. Brúkuð hjól til sölu frá $5.00 og þar yfir. ###################*###### # # # * # # # # # # * * # # # # # # # # DREWRY’S nafnfræga hreinsaða öl “D'reyðir eins og kampavín.” Þett er óáfengur og svalandi sælgætis- drykkur og einnig hið velþekta Canadiska Pilsener Lager-öl. Ágætlega smekkgott og sáínandi í bikarnum «áCir þ“«sir drykkir er seldir i pelaflöskum og sérstaklega ætl- aðir til neyzlu í heimahúsum, — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst hjá ðllum vin eða ölsölum eða með þvi að panta það beint frá REDWOOD BREWERY. EDWARD L- DREWRY- Maiinfacturei' & Importer, f # # # s # # # # # t # # # # # # # * # w , WUN1FE6. ##»####»»###*######******* *#################### #*#*# # # # # # # # # # # # # # f # # # Areiðanlega það bezta er Ogilvie’s Mjel. Sjáið til þess að þér fáið OGILVIE’S. # # # # # # # # # # # # # # # * s #################### ###*## 0 Peningar lánaðir gegn lægstu gildandi vöxtum. J Hus og lóðir til sölu með vægum tímaborgunum. ^ Eldsabyrgdar umboðsmenn. J CARRUTHERS, BROCK & JOHNSTON, Á CONFBDERATION LlFE BLOCK 471 MAIN St. - WlNNIPEO, MaN 0 4.* Army aud Kavy Heildsala og smásala á tóbaki og vindlum. Vér höfum þær beztu tóbaks og vindla- byrgðir sem til eru i þessum bæ, og selj- um þær ódýrara en aðrir. Enda gerum vér meiri verzlun en nokkur annar. Vér óskum eftii viðskiftum yðar, F. Browi & Co, 541 Main Str. Wimipíl Creaniery & Prodnce Co. LIMITED. S, 51. öarre, - - radsmadur. Bœndur! Sendið rjómann yöar á elsta, stærsta og beztstjórnaða smjörgerðarhúsið í Mani- toba. Starfsaukning 400% á 4 árum. Vér ábyrgjumst að gera viðskífta menn ánægða. Fullar upplýsingar fást með því að rittatil 240KING ST. WINNIPEG. THE CRITERION. Beztv vin og vindlar. Stærsttog bezta Billiard Hall í bænum. Borðstofa uppi á loftinu. John Wilkes, eigandi íll o Stærsta Biiliard Hall í Norðvestrlandinu. Fjögur “PooP’-bord og tvö “Bflliard boro. Allskonar vín og vindlar, l.ennon A Hebb, Eigendur. t & 210 Lðgregluspjarinn þvi sjálfnr. Ef ég vinn fáum við okkur kveld- verð á dýrasta veitingahúsinu”. “Ég ætla nú að fá mér kveldverð hvort sem þú vinnur eða ekki!” segir Soffia. “En hvaða stúlka er þetta þarna á móti okkur? stúTkan í svörtu fötunum ?—s tdlkan með augun-------”. "Nei, nú er égalveg steinhissa ! Þekkir þú hana ekki?” segir maður hennar; “Það er hún Louisa!" “Loufóa !” segir kona hans og setur á sig ó- lundarsvip. “Hvaða Louisa ?” "Louisa er blómsölumærin, sem hefirheill- að hjarta keisarasonarins—og eftir því sem fólk- ið segir, einnig hjarta þitt, herra de Verney”. “Soffia lætur sem hún heyri þetta ekki, en þykír auðsjáanlega miður. Hún tekur upp sjón- auka sinn €1 þess að virða fyrir sér Louisu. Hún hefir heyrt margt og mikið rætt um fegurð hennar, en aldrei séð hana fyrr. Nú eru allir sjónaukar á lofti: allir vilja skoða Louisu og virða hana fyrir sér, en hún veitir því enga eft- irtekt. Húu hefir í hendi sér fagra rós og veltir henniáýmsa vegu. Hún bíður auðsjáanlega n^ð óþreyju eftir einhverju, sem henni er ant um^A sjá. Það er glíma þeirra Ágústs og grírfflmannsins. Allir aðrir bíða einnig þeirrar stundar með eftirvænríng. Þar eru ótal glímumenn, sem nú er engin eftirtekt veitt. Frægðarljómi hinna hefir siegið skugga á þá. Þar eru hetjurnar báðar frá líarseilles, hinn yngri og tldii; þar er Lebauf og svertingiun .frá Hayti; þar er Jan.es le Noir, sem herra Higgins frá Boston, sem nú Lögregluspoejarinn. 215 ingur hans allur var svo dýr og fagur að slíks eru ekki dæmi meðal konungborinna rnanna. Þegar kvennfólkið leit þessa veru sf þeim flokki mannkynsins, sem það elskar; þegar það leit þarna í einum karlmanni sameinaða alla þá fegurð, sem mannlegur hugur getur girnst; þeg- ar það sá óyfirvinnanlega krafta samfara þessr., þá titraði það og skalf; hjarta þess sló ótt og títt og blóðið streymdi fossandi og beljandi og sjóð- andí heitt i hverri æð. Það skoðaði þessa aðdá- anlegu veru eins og nokkurs konar hálfguð. Kvennhjartanu er altaf þannig varið að það tignar það og treystir, ssm aflið og kjarkinn hefir, en tekur roinna tillit til annars- Louisa hefír ekki meira indi af nokkrum hlut en því að horfa á sterka menn. Hún starir á hann og segir: “Þetta er guðdómlegt!” en Sallie tautar í hálfum hljóðum: “Hamingjan góða! hvaða voðalegt tröll er letta!” Þessi maður er liðugur og fimur eins og tigrísdýr og sterkur eins og Síberiunaut og hann litur út fyr. ir »8 hafa það til að vera nokkuð fylginn sér og óvorkunnlátur, ef því er uð skifta. Frakkneski maðurinn er á að gizka þrjátíu pundum léttari en hann og fullum þremur þuml- ungum lægri. Grimumaðurinn vill auðsjáan- lega neyta fimleika sins í viðskiftunum til þess að jafna upp fyrir kraftamuninn. Hann hleyp- ur í kring um hann tius og léttfættur hvolpur og finnur fljótt að haun j.t t ir boriö af sér brögð hans auðveldlega. Haun er sto var um sig að að í hvert skifti þfgar Demitri ætlar að hremma hanu með sterkum höndum og níða hann niður 214 Lögregluspæjarinn. Öllum öðrum hefir hann varpað til jarðar eínsog fysi. Hvernig skyldi það nú ganga í þetta skifti; ætli hann standiekki dálitið { honum þessi piltur ? Glímudómarinn sezt niður og gefur merki. “Ó, ó, ó !” kallar fólkið. Grímumaðurinn kastar af sér skikkjunni í einni svipan og stendur nú frammi fyrir áhorfendunum í allri sinni dýrð. Hann hafði svo oft staðið áður á þessum pali og altaf sem sigurvegari. Hann var orðinn nokk- urs konar hálfguð Parisarbúa. Þegar litið er á hann í fyrsta skifti vírðist svo sem hann sé lið- ugur eins og köttur, en ekki ad þvi skapi sterk- ur, en við nánari athugun sést það glögt að kraftana vantar tæpast heldur. Þnd er eins og höfuðið sé fest á svíiann með ógurfóga sterkum en liðugum hjörum, þvi hann getur snúið því í allar áttir; látið andlitið snúa aftur ef hann vill Heudurnar eru kemur litlar, en tingurnir digrir, og þegar hanu kreppir' hnef- ann. lítur út fyrir að þar séu kraltar í kögglum Hanjleggirnir eru óvenjulega langir og sterkleg- ir. Á fótum fér hetir hann skiunhlitar; eru þeir ekki stórir, eu afar sterklegir, rétt eins og rán- dýrshrammar. Hann er f sílkisokkum úr gljá andi og skínandi glitvef, afardýrum. Hann hef- ir btlti um mitti sér sterklegt fog dýrt. Líkarni hans lýsir ytir höfnð áköfu afii og liáleika, sýnist vera fær um að rnæta öllum heim-ins höfuð- skepnum. Þai er eins Þg ósjálfrátt vakni sú spurning i huga áhorfeudauna hvort það sé virkiiega mögulegt að dauðinu beri sigur úr být- um þegar hanu skoii þenna mann á hcTm. Bún- Lögregluspæjarinn. 211 er nýkominn ásamt vinum sínum, kallar í skopi "Svarta Jóa". Allir þessir þreyta glímur og aflraunir. en fólkið tekur naumast eftir þeim; enginn klappar fyrir þeim, nema fáeinar hræður. þegar þeir hætta.til þess að sýna þeim að fólkið verði fegið að losna vfð þá. Fólkið heldur á- fram að streyma að úr ðllum áttum. Eftir Jang ar ryskingar og hrindingar verður íóiks- mergðin alt í einu þögul og alvarleg. Það er eins og fólkið hafi skyndálega orðið að steingjörf- ingum; allir standa hreifingarlausir og ekkj heyrist svo mifeið sem andardráttur. Louisa lit- ur yfir hópinn og sér bunguvaxið glimusvæði, á a ' gizka fimtíu fet á lengd og fjörutíu á breidd, Umhverfis það stóð mannþyrpiug í kveldklæð- unum og þar á meðal menn, sem sagan geymir enn í dag; þar eru vísindamenn og skáld.málar- ar og myndasmidir, rithöfundar og stiórnmáia- menn. Þar voru sumir sem ekki voru þektir af öðrum en félögum sínum og enn aðrir, sem voru alls ekki þektir. Allar þjóðir heimsins áttu sonu í Paris um þetta leyti. Að baki þeim er stór þyrping af kvennfó'lki af ýmsu tagi, Þar eru frægustu leikmeyjar og söngkonur, og þar err fegurstu blómin sem vaxið hafa á akri mann- lífsins og þar eru líka nokkur illgresi—þau fylgj- ast altaf rneð. Inn á þenna glímustað liggur gangur beint { móti nðalínnganginum; þar fam í þróttainenn- irnirútoginn Nú hvíla A þeim allra augu og atira hugir. Uppi á palliuutn heyrist ekki orú> af nokkuis manns tnutini. Kjaftakindurnar. er aldrei gátu þagað í leikhúsum og öðrum sain- .1

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.